Þjóðviljinn - 23.12.1978, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 23.12.1978, Blaðsíða 19
Laugardagur 23. desember 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19 A íþróttir (2 iþróttir g) íþróttir Umsjón: Ingólfur Hannesson Hvernig verður iþróttastórveldi til? Okkur Islendingum hættir oft til þess/ aö of metnast af árangri íslenskra íþróttamanna í keppni viö erlenda félaga sfna. Miklar kröfur eru geröar til afreksmanna og oft beinlínis krafist/ aö þeir sigri; allt annaö er aumingjaháttur og ræfildómur. Gott dæmi um þetta er handknattleikslandsliðið. Tap fyrir Færeyingum þar yrði //hneyksli"/ en þegar ekki tekst aö mala Dani, spyrja allir: Hvaö er eiginlega aö? Eftir eins marks ósigur gegn Pólverjum sögöu hinir sömu: Þetta var svona sæmilegt/ þeir vinna þá næst strákarnir. Æi, þaö er svo leiöinlegt aft hanga svona. Hvenær skyldi rööin vera komin að okkur? Hér er heldur betur lif I tuskunum og ekki annað sjáanlegt en að mörg mörk hafi veriö skoruö. Skólaíþrótta- , félögin mikilvæg 1 hinum æðri menntastofnun- um skipa iþróttir veglegan sess, ekki siöur en i grunnskólanum. Þar er gert ráð fyrir tveimur iþróttakennslustundum I viku hverri, eða lámark 70 stundir á ári. lþróttakennarar 1 æðri skól- um hafa allir hlotið háskóla- menntun i sinni grein, en i grunn- skólanum eru 60 til 80% þeirra sérmenntaðir. í framhalds- skólunum er einnig fylgst mikiö með iþróttalegri hæfni nemend- anna og þá oftast gengiö út frá fyrirfram settum markmiöum. 63% skólabarna á aldrinum 6 til 18 ára taka þátt i Iþróttastarfi ut- an þess ramma, sem ákveðinn er með lögum. Það starf er aö mestu innan skólaiþróttafélaganna (slik félög eru við 85% allra skóla og hefur viðkomandi skólastjóri yfirumsjón meö þeim) eða hjá iþróttafélögunum i heimabyggð. I skólaiþróttaféjögunum er öll kennsla i höndum sjálfboðaliða, hvar iþróttakennarar eru uppi- staöan. Einnig eiga hér hlut að máli verkamenn og námsmenn. Um 60% leiðbeinenda i skóla- iþróttafélögunum hafa sérstaka Iþróttamenntun að baki. A árunum 1971 til 1975 voru byggðir 540 iþróttasalir og áætlað er að frá 1976 til 1980 verði teknir I notkun 750 til 800 salir i viðbót. Einnig má geta þess, að stjórnin reiknar með að nota 40 milj. marka til þess að fullkomna tækjakost þeirra iþróttasala, sem nil eru I notkun. „Spartakiad” Að lokum langar mig til þess að minnast litillega á fjölmennasta iþróttamót, sem haldiö er I Aust- ur-Þýskalandi, „Spartakiad.” Þessi mót byrja i sérhverjum 63% 6 tll 18 ára skólanema taka þátt í íþróttastarfi Sagt frá uppbyggingu skólaíþrótta í Austur- Þýskalandi Okkur til glöggvunar Sú grein, fer hér á eftir, kynni að varpa örlitiö skýrara Ijosi á það sem hér var minnst á hér aö framan, en hún er úr nýjasta timariti „Sports in the DDR,” en það er gefið út af austur-þýska Iþróttasambandinu. Þetta er kynningarrit um austur-þýskt Iþróttalif, með nokkuð sterku sósialisku áróöursivafi. Úrdrátt- ur, sem hér birtist er úr grein sem nefnist „Iþróttir frá barna- heimili til háskóla” og er eftir Dr. Manfred Reichenbach. E.t.v. er hér komin skýringin á hinu mikla Iþróttaveldi Austur-Þjóöverja og fróðlegt aö bera þessa uppbygg- ingu, sem Reichenbach lýsir, saman við okkar aöstæöur hér á klakanum. íþróttastundir á barnaheimilum „Ein helsta ástæöá hinnar öru þróunar likamsuppeldis i Austur Þýskalandi er sú staðreynd, að sósialiskt þjóðskipulag gerir ráð fyrir jafnrétti einstaklinganna til andlegrar sem likamlegrar menntunar. 1 skólakerfinu er reynt að þroska jákvæða eigin- leika barnanna á sem skipuleg- astan hátt, með hliðsjón af marx- leniniskum uppeldishugsjónum. Um 90% af öllum börnum á aldrinum 3—6 ára eru á barna- heimilum. Þessi börn eru i umsjá 50.000 forskólakennara, sem I leik og starfi undirbúa börnin fyrir væntanlega skólagöngu, ásamt þvi að fylgjast meö framförum og þroska þeirra. Likamsuppeldi gegnir þar mikilvægu hlutverki á hverjum degi I formi heilsugæslu, leikja og einnig sérstakra iþrótta- stunda. I sérstakri áætlun, sem samin hefur verið I þessu sam- bandi, er börnunum skipt I þrjá hópa, 3—4 ára, 4—5 ára og 5—6 ára, allt eftir þroskaskeiöi þeirra. Gert er ráð fyrir tveimur til þremur iþróttastundum I viku hverri, 30 til 45 min. I senn. I grunnskólanum er lögð mikil áhersla á iþróttir til þess að undirbúa nemendur sem best fyrir hin margvislegu störf þjóð- félagsins og til þess að örva þau til þátttöku i iþróttastarfi að lok- „Skólaiþróttir eiga aö undirbúa nemendur fyrir hin margvislegu störf I þjóðfélaginu og örva þau til þátttöku i iþróttastarfi ab lokinni skólagöngu”. inni skólagöngu. Grunnskólinn okkar er i 10 ár, hvar gert er ráö fyrir tveimur iþróttatimum á viku I 1—3.bekk, þremur I 4.-6. bekk og tveimur i 7.—10 bekk. í fyrstu fjórum bekkjunum eru drengir og stúlkur saman i timun- um, en eftir þaö skiljast leiöir. Reynt er að leggja megináherslu á þroskun hraða, styrks, jafnvæg- is og teygjanleika, auk Iþrótta- legrar hæfni. Sundkennsla er ákaflega mikilvæg, en hún hefst i 3. bekk. Börnin fá nokkurt svig- rúm um val á Iþróttagreinum, t.d. i 9. bekk. geta drengir fengið tilsögn I hnefaleikum, glimu eða júdó. Mjög vel er fylgst með aö nemendur sýni góöa ástundun. 1 rauninni er ákaflega vel fylgst með allri iþróttalegri þróun I skólum landsins. Það hefur t.d. komið fram I rannsókn einni, að meðaltal ágætiseinkunna ip. bekkjar grunnskólans hefur auk- ist úr 65% 1972 I 68% 1977. I elstu bekkjunum er aukningin úr 80% I 84%. önnur könnun sýnir, að 82% nema 5. bekkjar eru syndir, 97-100% I elstu bekkjunum. skóla landsins. Siðan koma þeir bestu úr hver jum skóla saman og keppa á héraðsmótum o.s.frv. Þarna er keppt i einstaklings- iþróttum, og 1976 tóku 5.7 milj. ungmenna þátt I þessum mótum. Þegar þannig er búið að vinsa úr bestu unglingana I hverjum landshluta er haldið grlðarmikið iþróttamót með snjöllustu Iþróttabörnum og unglingum landsins. Þannig tekst okkur að sjá út mikil efni I afreksmenn og getum veitt þeim alla bestu aö- stoð sem hugsanleg er.” IngH

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.