Þjóðviljinn - 15.05.1981, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 15.05.1981, Qupperneq 11
Föstudagur 15. maí 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 iþróttir ■ Uoisjdo: Ingólfur Hannesson íþróttir (jF1 ludo-glíma líkt-ólíkt A Armannsmótinu i júdó, sem fram fór i þessari viku komu fram nokkrir vaskir glimukapp- ar og sýndu iþrótt sina. Þvi næst var gerður samanburður á glimu og judó og sýnd hliðstæð brögð og tækni, en eins og kunn- ugt er eru fangbragðaiþróttir þessar um margt likar. Um út- skýringar sáu Hörður Gunnars- son og Eysteinn Þorvaldsson. Er óhætt að segja að þetta til- tæki hafi vakið mikla athygli áhorfenda. • Bjarni sigraði í opna flokknum Bjarni Friðriksson varð sig- urvegari i opnum flokki á Ármannsmótinu i judó, sem fram fór fyrir skömmu. Sigurð- ur Hauksson, UMFK varð annar og þriðja sætinu deildu Armenn- ingarnir Koibeinn Gfslason og Kristján Vaidimarsson. Margrét Þráinsdóttir bar sig- ur úr býtum i opnum flokki kvenna. Kristin Hassing varð önnur. t unglingaflokki sigraði Magnús Jónsson, A og i drengjaflokki Davið Gunnars- son, Á. Keppendur á mótinu voru 40 talsins. • Þrír leikir í 1. deild Þrfr ieikir eru á dagskrá 1. deiidar knattspyrnunnar á morgun, laugardag og hefjast þeir allir kl. 14. Á Akureyri leika KA og ÍA, f Vestmannaeyjum iBV og Þór og á Melavellinum mætast erkifjendurnir KR og Valur. Þá verður heil umferð i keppni 2. deildar. A Hvaleyrar- holtinu mætast á morgun Hauk- ar og Völsungur, ÍBK og Fyikir leika I Keflavik og i Borgarnesi leiða Skallagrimur og ÍBl sam- an hesta sina. Þessir leikir hefj- ast allir kl. 14. A Neskaupstað mæta heimamenn, Þróttur, Sel- fyssingum kl. 15. A sunnudaginn leika siðan Þróttur, R, og Reynir frá Sand- gerði. Hefst sú viðureign kl. 20 á Melavellinum. Leiðrétting t grein um fótboltann i sumar i Þjv. I gær var Halldór i Borg- arfelli sagður Snorrason i tvi- gang, en hið rétta er að hann er Jakobsson, eins og reyndar kom fram I myndartexta. komín út Ct er komin Handbók Frjáls- iþróttasambandsins 1981. Þar er að finna hinar margvíslegustu upplýsingar varðandi frjálsar iþróttir. Lysthafendur geta snú- ið sér til skrifstofu FRI. • Víkurbæjar- mót — opið golfmót Opið golfmót verður á Hólms- velli I Leiru um helgina, svo- nefnt Vikurbæjarmót. Keppnin hefst á morgun, laugardag, i 2. og 3. fl. og á sunnudaginn á sama tima með keppni i 1. og mfl. Cibona komst í undanúrslit Mótherjar Vals i 1. umferð Evrópukeppni meistaraliða i körfuknattleik, Cibona Zagreb frá Júgóslaviu, höfðu það af aö komast I undanúrslit keppninn- ar. Þar lék Cibona gegna Barce- lona (IS lék gegn þvi liði I Evrópukeppni bikarhafa fyrir nokkrum árum) og sigruðu Spánverjarnir i þeirri viður- eign, 92:85 heima, 75:79 úti. Barcelona tapaði siðan úr- slitaleiknum gegn italska liðinu iquibb, 82:86. UBK*og Fram leika á Melavellinum Sökum þess að knattspyrnu- völlurinn við Fifuhvammsveg i Kópavogi er ekki tilbúinn til notkunar mun Breiðablik leika fyrsta heimaleik sinn á Mela- vellinum i kvöld og eru Framar- ar mótherjarnir. Leikurinn hefst kl. 20. Myndin hér að ofan sýnir vel hvað leikmenn FH og Vlkings þurftu að kljást við.Mynd: — gel - Varamaðuriim sá um FH-ingana Snjallt herbragð Vikings- • þjálfarans Youri Sedov tryggði hans mönnum sigur gegn FH i 1. deildinni i gærkvöldi, 2-1. Vik- ingarnir sýndu afspyrnuslakan leik i fyrri hálfleik, en eftir leik- hiéið setti Sedov markaskorarann frá Húsavik, Hafþór Helgason, inná og fyrr en varði var hann búinn að skora. Hafþór gerði það ekki endasleppt, hann gulltryggði sigur Vikinganna nokkru um mið- bik hálfleiksins þegar hann skoraði aftur, 2-0. Bæði liðin sýndu ágæta takta á upphafsminútunum, en leikurinn leystist siðan I eitt allsherjar hnoð. Að vísu voru aðstæður á Melavellinum ekki glæsilegar til knattspyrnu, en það afsakar þó ekki með öllu kýlingar leikmanna beggja liða. A 56. min skoraði Hafþór eftir varnarmistök hjá FH og Vik- ingarnir náðu undirtökum. Þeir léku oft ansi laglega saman. Vik- ingarkomust i 2-0 á 74. min þegar Hafþór skoraði með kollspyrnu af stuttu færi og enn var hægt að kenna um varnarmistökum FH- ingum. A siöustu min. leiksins minnkaði FH muninn þegar Guðmundur Hilmarsson skoraði af stuttu færi, 2-1. Vikingarnir tóku góöa spretti i seinni hálfleiknum og þeir dugðu til sigurs. Hafþór, Omar og Helgi áttu allir ágætan leik. Hjá FH skaraöi enginn framúr, helst að Magnús sýndi góð tilþrif. —IngH iþrottir[A Handbók FRI er / Vormót ÍR í frjálsum iþróttum Mjög góður árangur Stórgóður árangur náðist i nokkrum greinum á Vormóti tR i frjálsum Iþróttum, sem haldið var á Fögruvöllum i gærkvöldi. Hreinn Halldórsson kastaði 19.12 m i kúluvarpi og er liklegur til afreka i sumar. Þá náðist mun betri úmi i 400 m hlaupi kvenna en mörg undanfarin ár. Þar sigr- aði Sigriöur Kjartansdóttir, KA á 56.1 sek (tslm. 55.3) og næstu 2 stúlkur voru innan við 58 sek. t langstökki kvenna setti Bryn- dis Hólm, ÍR meyjamet, stökk 5.62 m. Athyglisverður árangur náðist i spjótkasti kvenna. Birgitta Guðjónsdóttir, HSK sigr- aði með 44.l8m kasti og tris Grönfeldt, UMSB varö önnur með 43.80 m. Guðrún Ingólfsdóttir, KR sigraði I kringlukasti meö 45.12 m. t 100 m. hlaupi kvenna náði Oddný Arnasóttir, tR góðum árangri, sigraði á 12.2 sek. Gunnar Páll Jóakimsson var fyrstur 1800 m hlaupi á 1:55.0 min og Guðmundur Sigurðsson, UMSE varð annar á 1:58.5 min. Viggó Þ. Þórisson, FH setti pilta- met, hljóp á 2:09.3 min. Agúst As- geirsson sigraði með umtalsverö- um yfirburðum i 3000 m hlaupi á 8:38.0 min. I 100 m hlaupi sigraði Jón Oddsson á 11.1 sek. — IngH JTottenham varð ! bikarmeistari i Frábær frammistaða Argentinumannanna Ardiles og Villa tryggði Tottenham enska bikarinn i knattspyrnu i gærkvöldi þegar liðið sigraði Manchester City meö 3 mörkum gegn 2 eftir æsi- spennandi leik. Þriðji yfirburöamaðurinn á vellinum var Joe Corrigan, markvörður City.sem varði hvaöeftir annað glæsilega. Villa tók forystuna f yrir Tottenham á 7. min þegar hann skoraði af stuttu færi eftir að Corrigan hafði variö skot Archibald. City jafnaði 3 min siðar. McKenzie skoraði með glæsilegu langskoti. t byrjun seinni hálfleiks náði City forystunni, Reeves skoraði úr viti, 2:l.Crooks jafnaði 2:2á 70min og sigurmarkið skoraði Villa á 76. min eftirmikinn einleik, 3:2. Corrigan átti ekki möguleika á að verja skot hans. Leikurinn þótti stórskemmtilegur og var sigur Tottenham fyllilega verðskuldaður. —IngH I I I I Kúluvarpararnir Guðni Halldórsson (t.v.) og Hreinn Halldórsson, (t.h.) náðu báðir ágætisárangri á Vormóti IR I gærkvöldi. Hreinn kastaði 19.12 m.Guðni 17.25 m. Myndir: —gel

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.