Þjóðviljinn - 07.06.1985, Síða 1
UM HELGINA
GLÆTAN
ÞJÓDMÁL
Reykjavík
Loka dagvistir í haust?
A 3. þúsund undirskriftir afhentar borgarstjóra ígœr
þar sem krafist er úrbóta í rekstri dagvistarheimilanna í borginni.
Igær afhentu fóstrur og Samtök
foreldra barna á dagvistar-
heimilum í Reykjavík borgar-
stjóra undirskriftalista með hátt á
þriðja þúsund undirskriftum
með kröfum um úrbætur í rekstri
dagvistarheimila Reykjavíkur-
borgar.
Samtök foreldra barna á dag-
vistunarheimilum stóðu fyrir fjöl-
dagöngu frá Hlemmi að Borg-
arstjórnarskrifstofunni, og tóku á
milli 200-300 manns þátt í henni
og fjölmenntu síðan á pallana
undirskriftalistanum til stuðn-
ings. Gangan þótti takast mjög
vel miðað við að hún var ekki
auglýst og sýnir það hug manna
til þessara mála“, sagði Katrín
Didriksen einn af forsvarsmönn-
um hennar.
Þegar borgarstjóri tók við list-
anum, sagði hann að listinn færi
til borgarráðs og yrði tekinn til
athugunar, en sagðist ekki geta
sagt neitt á þessari stundu hvern-
ig umfjöllunin yrði.
Laust fyrir matarhlé í gær-
kvöldi lagði Sigurjón Pétursson
fram tillögu um að umræðan um
dagvistunarmál yrði tekin fyrir
strax, vegna fjölmennis á pöllun-
um. Davíð Oddsson mælti gegn
þeirri tillögu og sagði að það mál
yrði ekki tekið á dagskrá fyrr en
síðar.
^sp
Sjá bls. 3.
Vegna ummæla Davíðs Odds-
sonar borgarstjóra við krýningu
fegurðardrottningar nýlega mót-
mæltu borgarfulltrúar Kvenna-
framboðsins, þær Magdalena
Schram og Guðrún Jónsdóttir
með því að mæta í kjólum áfest-
um borðum sem á stóð ungfrú
Spök og ungfrú Meðfærileg.
Einnig talaði Guðrún Jóns-
dóttir utan dagskrár og sagði
m.a. „Við krýningu fegurðar-
drottningar nýlega gerðist borg-
arstjóri opinber fulltrúi karl-
rembunnar og sýndi sinn innri
mann með því að reyna að vera
fyndinn á kostnað kvenna.
fmynd karlveldisins til kvenna
felst í snotru andliti, grönnu
mitti, réttu ummáli brjósta og
mjaðma."
Ummæli borgarstjóra voru
eitthvað á þá leið að ef þær 13
fallegu stúlkur sem tóku þátt í
fegurðarsamkeppninni skipuðu
efstu sæti Kvennaframboðsins þá
þyrfti hann ekki að bjóða sig fram
í næstu kosningum.
Borgarfulltrúunum til stuðn-
ings mættu aðrar Kvennafram-
Magdalena Schram og Guðrún Jónsdóttir mótmæltu fyndni Davíðs Oddssonar á kostnað kvenna í Broadway fyrir skömmu með því að mæta í fínu pússi á fund boðskonur í sparifötunum og til-
borgarstjórnar í gær. Ljósm. E.OI. hafðar. -sp
Borgarstjórn
TtarT
rembu
mótmælt
Hagvirki og Byggðaverk standa á bak við tilboð í eigur Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar.
Virði togaranna vanmetið um meira en 20 miljónir. Sambandið íhugar tilboð.
Tvö stór verktakafyrirtæki í
Hafnarfirði, Hagvirki og Sig-
urður og Júlíus hafa í sarnvinnu
við sinn hvorn útgerðaraðilann
óskað eftir kaupum á eignum
Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar.
Eigendur Hagvirkis standa ásamt
fleirum að tilboði Samherja hf á
Akureyri sem fyrst lagðj fram
kauptilboð í eignir BÚH. Á fundi
bæjarráðs Hafnarfjarðar í gær
voru lagðar fram óskir frá
tveimur aðilum til viðbótar sem
vilja kaupa útgerðina.
Þeir tveir aðilar sem hafa bæst í
hóp áhugasamra um að reka út-,
gerð í Hafnarfirði eru Stálskip hf
sem áður hafði óskað eftir
kaupum á Bv Maí en vill nú
kaupa allar eigur BÚH í sam-
vinnu við byggingaverktakanna
Sigurð og Júlíus. Þeir reka bygg-
ingafyrirtækið Byggðaverk sem
nú er að reisa 28.000 fermetra
stórhýsi fyrir Hagkaup í Kringlu-
mýri í Reykjavík. Þá hefur Þor-
leifur Bjarnson sem gerir út tog-
arann Þorleif Jónsson frá Hafnar-
firði óskað eftir viðræðum um
kaup á eignum Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði
hefur enn aðeins umboð frá
meirihluta bæjarstjórnar til að
ræða við Samherja hf og sagði
hann á bæjarráðsfundi í gær að
það yrði fullreynt um helgina
hvort gengið yrði til samninga við
Samherja.
Á fundi bæjarráðs í gær var
einnig lagt frá bréf frá fjárhæða-
nefnd fiskiskipa þar sem tilkynnt
var nýtt tryggingamat á togurum
Bæjarútgerðarinnar. Er það
rúmum 20 miljónum krónum
hærra en matið sem notað er í
reikningum fyrirtækisins og
kauptilboð hafa verið miðuð við.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans eru nokkrar líkur á því að
Samband íslenskra samvinnufé-
laga muni einnig gera tilboð í
eignir Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar.
-Jg-
Æðurinn
alorpin
„Þetta er allt í hámarki núna“,
sagði Eysteinn Gíslason bóndi í
Skáleyjum á Breiðafírði í gær
spurður um æðarstúss, „fugl al-
orpinn og farinn að leiða út, það
er að fara með ungana á sjóinn".
Eysteinn sagði varpið vera heldur
fyrr á ferðinni en venjulega vegna
góðrar tíðar í vor. I Skáleyjum
fást yfírleitt um 70 kfló af dún á
sumri og „það er þegar sýnt að
þetta verður með skárra móti
núna“.
Dúnninn er týndur í tveimur til
þremur „leitum" og í Skáleyjum
eru menn rétt að ljúka fyrstu íeit.
Eysteinn sagði æðarvarp og dún-
tekju með eðlilegum hætti það
hefði hann frétt hjá nágrönnum,
þó væri sumstaðar kvartað um
ágang vargfugls.