Þjóðviljinn - 07.06.1985, Qupperneq 6
ATVINNUUF
Frá Tónlistarskólanum
í Reykjavík
Umsóknarfrestur um skólavist fyrir skólaáriö 1985-
1986 er til 20. júní og gildir það um allar deildir skólans.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans Skipholti
33 frá kl. 10-15.
Inntökupróf verða í haust og auglýst síðar. Eldri nem-
endur eru minntir á að sækja um fyrir sama tíma.
Skólastjóri.
UMFERÐARMENNING ~^]------------
----—Ökum jafnan
á hægri rein
á akreinaskiptum
vegum. nj UMFERÐÁR
WRÁÐ
Opinn fundur
um kjaramál
verður á mánudagskvöld 10. júní kl. 20.30 á
Hallveigarstöðum.
Konur fjölmennum á fundinn undir kjörorðinu:
Lausa samninga í haust.
Samtök kvenna á vinnumarkaðinum.
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
Staða hjúkrunarforstjóra við Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri er laus til umsóknar.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist fram-
kvæmdastjóra fyrir 15. júlí n.k.
Upplýsingar um starfið veitir hjúkrunarforstjóri í síma
96-22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Eiginmaður minn og faðir okkar
Helgi Jónsson, húsgagnasmiður,
Sogavegi 112 (Hjalla)
lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund þann 2. júní s.l.
Bálför hans hefur farið fram í kyrrþey.
Elísabet Magnúsdóttir
Herdís Helgadóttir
Skúli Helgason.
Eiginmaður minn, faðir okkar og afi
Einar H. Guðmundsson
frá Flekkuvík
lést á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn þann 21. maí
Guðmundur Einarsson
Einarín Einarsdóttir
Gunnar J. E. Einarsson
Pálmi Einarsson
Olga Soffía Einarsdóttir
og barnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og tengdasonur
Hersteinn Magnússon
Birkigrund 21,
Kópavogi
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 10. júní
klukkan 12.30.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast
hans er bent á líknarstofnanir.
Sigríður Skuladóttir,
Herdís og Áslaug Hersteinsdætur,
Þórdís Árnadóttir
Áslaug Ágústsdóttir.
Útför hans hefur farið fram.
Margrét Jónsdóttir
Þorsteinn B. Einarsson
Hrefna S. Einarsdóttir
Hansína B. Einarsdóttir
Bryndís Einarsdóttir
Guðrún A. Einarsdóttir
Nýlega var hér á ferð dr. María
Regina Kula, prófessor í líftækni
við háskólann í Braunschweig í
V-Þýskalandi og kom hún í boði
Alexander von Humbolt stofnun-
arinnar og Háskóla íslands. Sér-
svið dr. Kula er einangrun og
framleiðsla ensíma og hélt hún
hér tvo fyrirlestra; um fram-
leiðslu og notkun ensima í iðnaði
og um nýjustu ensímarannsóknir
í V-Þýskalandi. Hún notaði einn-
ig tímann til að skoða ýmsar
stofnanir hér svo sem rannsókna-
stofu Háskólans í lífefnafræði,
Hafrannsóknastofnun og
Rannsóknastofnun fiskiðnaðar-
ins.
Hvað er
ensím?
En hvað eru ensím? Flestir
kannast sjálfsagt við auglýsing-
una um „efnakljúfa sjálfrar nátt-
úrunnar”, og það er einmitt í
hreinsiefnaiðnaðinum og
reyndar einnig í matvæla- og lyfj-
aiðnaði sem ensím koma að hvað
mestum notum. Ensím hafa, að
Prófessor María Regína Kúla, frá V-Þýskalandi: Fiskensím gætu komið að
miklum notum í fiskiðnaði. En það er ekki að vænta kraftaverka á einni nóttu.
Mynd Valdís
Líftækni
Arangur næst ekki
á einni nóttu
Dr. María R. Kula, ensímafræðingur: Hægt að vinna ensím úr fiskúr-
gangi. Nýtanleg til roðflettingar og hreisturlosunar.
sögn dr. Kula, þá eiginleika um-
fram ólífræna hvata að þau vinna
hraðar, þau eru sérhæfðari og
vinna við mun mildari aðstæður,
þannig að með notkun þeirra má
spara umtalsverða orku. 80% af
öllum þvottaefnum sem eru á
markaði í V-Þýskalandi eru bætt
með ensímum, sem leysa upp líf-
ræn efni eins og fitubletti, sem
venjulegar sápur vinna illa á. I
matvælaiðnaðinum nefndi dr.
Kula dæmi um notkun ensíma við
framleiðslu ávaxtasafa og víns og
einnig í ostagerð, bakstri og sæl-
gætisiðnaði.
Vín og
ostur
„Maðurinn hefur hagnýtt sér
virkni ensíma og örvera í alda-
raðir,” sagði dr. Kula. „Menn
tóku líftæknina í sína þjónustu
við brauðgerð, vínframleiðslu og
ostagerð, reyndar með happa- og
glappaaðferðinni og án þess að
vita hver árangurinn yrði í hverju
tilfelli, en þá var bara að reyna
aftur. Hér áður fyrr voru ger-
sveppirnir í andrúmsloftinu t.d.
notaðir við bakstur og þá gátu
liðið tveir tímar eða tveir dagar
þar til brauðið hafði lyft sér. Nú
hefur gersveppurinn verið ein-
angraður og ræktaður í stórum
stfl og þú ferð bara út í búð og
kaupir hann í þartil gerðum
pökkum. Á sama hátt hefur fjöldi
annarra örvera og reyndar en-
síma verið framleiddur á undan-
fömum árum og áratugum til að
nota inni á heimilunum og í alls
kyns iðnaði.”
Háþróuð tækni
„Ensím munu verða æ mik-
ilvægari í iðnaðar- og efnafram-
leiðslunni,” sagði dr. Kula.
„Hvert ensím hvatar aðeins einu
ákveðnu efnaferli og sérhæfni
þeirra tryggir bæði örugga fram-
leiðslu á því efni sem menn sækj-
ast eftir hverju sinni og betri nýt-
ingu á hráefnunum. Það er því
alltaf þörf fyrir ný og ný ensím og
sífellt verið að þróa nýjar aðferð-
ir til að gera framleiðslu þeirra
ódýrari og öruggari. f flestum til-
fellum eru ensímin aðeins notuð
einu sinni og þeim síðan hent eða
þau eyðileggjast við notkunina
eins og t.d. við þvott. Þessa sóun
getum við ekki leyft okkur með
dýrustu ensímin,” sagði hún, „og
því er iögð mikil áhersla á að leita
leiða til að nota þau oftar en einu
sinni. Þetta er háþróuð tækni sem
krefst samvinnu lífefnafræðinga,
efnafræðinga og örverufræð-
inga.”
Ensím úr
innyflum
Dr. Kula sagðist ekki hafa per-
sónulega reynslu af notkun eða
framleiðslu ensíma í fiskiðnaði,
sem mjög er litið til hér á landi en
á því sviði væru miklir mögu-
leikar. í háskólanum í Tromsö í
Noregi færu t.d. fram miklar at-
huganir á því að nota innyfli fiska
eða meltu til að vinna úr ensím.
„Við verðum að fá ensímin úr
lífverum,” sagði hún, „þau eru
svo stór og flókin í byggingu að
það er ekki hægt að búa þau til á
efnafræðistofum. Þetta er oft gert
með því að rækta örverur, sem
framleiða viðkomandi ensím, en
áður fyrr voru oft notuð t.d. nýru
og bris úr sláturdýrum. Það er
engin ástæða til þess að ætla að
ekki sé hægt að nota innyfli fiska í
sama tilgangi,” sagði hún, „þetta
er öruggt hráefni sem er til í gífur-
legu magni. Fiskúrganginum er
líka hent í dag og einmitt þess
vegna er mikil ástæða til að reyna
að nýta þetta hráefni. Ég myndi
ekki leggja til að hafin yrði fram-
leiðsla fiskensíma ef fyrst yrði að
finna upp og þróa togarann, en
þetta er allt til reiðu í dag og eðli-
legt að nýta þennan úrgang.“
Roðflett-
ing
Dr. Kula sagði að fiskensím
gætu komið að miklum notum,
kannski ekki síst í fiskiðnaðinum
sjálfum. Menn gætu t.d. notað
sérhæfð ensím til að losa hreistur
af roði eða jafnvel roðhreinsa fisk
á svipaðan hátt og ensím eru nú
notuð til að auðvelda fiður-
hreinsun fugla. Þunnu ensímlagi
er þá smurt á fuglinn og þau losa
um fiðrið. Þá sagði dr. Kula að
fiskensím gætu eflaust komið að
miklum notum við framleiðslu
alls kyns krydd- og bragðefna úr
fiski.
Dr. Kula sagðist að lokum líta
á heimsókn sína hingað til lands
sem fyrsta skref í hugsanlegu
samstarfi landanna á sviði líf-
tækni. „Það er ágætt að skiptast á
bréfum,” sagði hún, „en það er
alltaf betra að fá að kynnast per-
sónulega bæði mönnunum sjálf-
um og viðfangsefnum þeirra.”
Hún sagðist hafa orðið vör við
mikinn áhuga og metnað á sviði
líftækninnar hér á landi. „Menn
skynja að möguleikarnir eru víð-
tækir,” sagði hún, „og að það er
nauðsynlegt að nýta þá. Hins
vegar verða menn að vera þolin-
móðir. Á þessu sviði er ekki að
vænta kraftaverka á einni nóttu.”
-ÁI
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 7. júní 1985