Þjóðviljinn - 07.06.1985, Síða 9
GLÆTAN
Sumirsem lásu áskorun
Glætunnar hér um daginn
tóku við sérog hristu upp í
heilasellunum og ydduðu
blýantana. Þorsteinn
Pétursson, 15 ára, varmeð
þeimfyrstu og hérmeð
gefstykkur tœkifæri á að
lesa hristinginn.
Sendandinn kvart-
aði undan að-
stöðuleysi ung-
linga, svona er bú-
ið að þeim með-
limum sem eru
hvorki börn né full-
orðin.
Þá segja mæðurnar Jesús og Guð
Mig langar til að minnast á að-
stöðuleysi unglinga á aldrinum
13-16 ára. Já, ég veit að það eru til
Fellahellir, Þróttheimar og
nokkrar aðrar slíkar stofnanir.
En er mikið af krökkum sem
koma á þessa staði? „Já, æðis-
lega, alltaf fullt“, segir þú kann-
ski. En pælum aðeins betur í
þessu. Er það ekki sama fólkið
sem kemur á þessa staði aftur og
aftur? Jú, akkúrat, maður sér
varla ný andlit og af hverju?
Vegna þess að þessir staðir höfða
ekki til nærri allra. Sumir vilja
alls ekkert með svona staði hafa,
vilja heldur planið eða sjoppuna.
Þá segja mæðurnar „Jesús og
Guð, vertu ekki með þessum
strák, hann er alltaf hangandi í
sjoppunni í staðinn fyrir að
skemmta sér í einhverri af þess-
um fínu félagsmiðstöðvum“. En
hvernig væri að mæðurnar hlust-
uðu á viðkomandi strák (stelpu)?
Hann hefur engan áhuga á dansi
(en það er yfirleitt það sem ætiast
er til að fólk geri á þessum stöð-
um) hann er feiminn og hann á
erfitt með að kynnast fólki. Samt
langar hann, en hann þorir ekki
og þess vegna fer hann frekar í
sjoppuna til að hitta krakka.
„Bull og della“, segið þið, „það
er eitthvað fyrir alla á þessum
stöðum". Nei, það er það ekki og
þess vegna fer svona rosalega
mikill fjöldi af krökkum eitthvað
annað til að skemmta sér. Þið
munið helgina áður en skólarnir
byrjuðu? Miðbærinn ætlaði bók-
staflega að springa, svo mikið var
af fólki. Samt er ég viss um að
helmingurinn af liðinu hefur sagt
foreldrum sínum að það hafi ver-
ið allt annars staðar. Getur það
ekki passað?
Mér finnst ferlega slappt þegar
krakkar ljúga að foreldrum sín-
um, en það gera þeir vegna þess
að foreldrar þeirra eru svo hrika-
lega fanatískir. Þeir hafa lesið í
blöðunum: 10 rúður brotnar í
miðbænum, blindfullir unglingar
ráfa um götumar og annað í þeim
dúr. Við vitum að yfirgnæfandi
meirihluti unglinganna er edrú og
er þama til að sýna sig og sjá
aðra, hitta fólk. En þetta vita for-
eldrar ekki. Blöðunum finnst
sjaldnast nokkuð varið í það góða
sem á sér stað þarna, það eru
rúðubrotin og fylleríið sem skipta
máli. Þessu verður að breyta, því
blöðin hafa engan rétt til að gera
þetta og hafa af unglingum eina
af þeirra bestu skemmtunum. Að
sjálfsögðu vitum við að þó for-
eldrar segi „Ég vil ekki hafa að þú
sért að flækjast þarna niðri í bæ
um helgar“, þá förum við nú
samt. Eg get ekki með nokkru
móti séð neitt í góðu veðri niðri í
miðbæ og bágt eiga þeir foreldrar
sem láta glepjast af sögum blaða-
nna.
Vonandi breytist þetta ástand
til batnaðar, ekki veitir af.
Þorstcinn Pétursson
STJORNMAL
OG
KVENNABARÁTTA
OPNIR FUNDIR
Konur í Alþýðubandalaginu gangast fyrir opnum fundum um
stjórnmál og kvennabaráttu. Málin verða reifuð og rædd af mál-
svörum Alþýðubandalagskvenna og öðrum fundargestum.
SIGLUFIRÐI
Laugardaginn 8. júní kl. 15.00, í Vökusal,
Suðurgötu 10.
Á fundinn koma:
Álfheiður Ingadóttir, Reykjavík
Bjarnfríður Leósdóttir, Akranesi
Gerður Óskarsdóttir, Reykjavík
Hallveig Thorlacius, Varmahlíð
Jóhanna Karlsdóttir, Sauðárkróki
Slgný Jóhannsdóttir, Siglufirði
Sigurbjörg Sveinsdóttir, Hafnarfirði
SELFOSSI
Sunnudaginn 9. júní kl. 20.30, í Árvirkjahúsinu,
Eyravegi 29.
Á fundinn koma:
Adda Bára Sigfúsdóttir, Reykjavík
Auður Guðbrandsdóttir, Hveragerði,
Elín Oddgeirsdóttir, Gnúpverjahreppi
Guðrún Agústsdóttir, Reykjavík
Hansína Stefánsdóttir, Selfossi
Helga Sigurjónsdóttir, Reykjavík
Margrét Frímannsdóttir, Stokkseyri
BLÖNDUÓSI
Sunnudaginn 9. júní kl. 15, í Hótel Blönduósi.
Gerður Oskarsdóttir, Reykjavík
Hallveig Thorlacius, Varmahlíð
Kristín Mogensen, Blönduósi
Sigurbjörg Sveinsdóttir, Hafnarfirði
SAUÐÁRKRÓKI
Sunnudaginn 9. júní kl. 15.00, í Safnahúsinu:
Álfheiður Ingadóttir, Reykjavík
Anna Kristín Gunnarsdóttir,
Sauðárkróki
Bjarnfríður Leósdóttir, Akranesi
AKRANESI
Sunnudaginn 9. júní kl. 15.00 í Rein.
Á fundinum verða auk heimakvenna:
Elna Jónsdóttir, Egilsstöðum
Elsa Kristjánsdóttir, Sandgerði
Guðrún Helgadóttir, Reykjavík
Margrét Pála Ólafsdóttir, Reykjavík
ÍSAFIRÐI
Sunnudaginn 9. júní kl. 16.00 á Hótel (safirði:
Hanna Lára Gunnarsdóttir, ísafirði
Kristín Á. Ólafsdóttir, Reykjavík
Svanfríður Jónasdóttir, Dalvík
Þuríður Pétursdóttir, ísafirði
Fundirnir eru öllum opnir meðan húsrúm leyfir.
Konur í Alþýðubandalaginu.
TIMAMOTAVERK
Nýja platan
með Bubba Morthens
er komin út.
■ Bubbi Morthens
- Kona
KONA er Ijúfasta og fallegasta
plata, sem Bubbi hefur nokkurn
tíma sent frá sér. Sterk lög, fal-
legar útsetningar, tillfinningaríkir
og sterkir textar. Aðstoðarmenn
Bubba á þessari plötu eru margir
fremstu tónlistarmenn landsins.
■ New Order
-Low Life
Ný plata frá einni virtustu hljóm-
sveit Breta. Plata sem aðdáend-
ur New Order hafa beðið eftir'
með óþreyju í 3 ár. Low-Life fékk
strax feikigóðar viðtökur er-
lendis. Enda er hér tvímælalaust
um að ræða eina vönduðustu
plötu ársins.
■ The Smiths
- Meat Is Murder
Umsagnir gagnrýnenda tala sínu
máli um gæði The Smiths.
„Fyrsta plata Smiths var góð en
þessi er enn betri..."
Gunnl. Sigtússon - HP
„Kjarngóð og markviss"
Lára - Þjóðviljinn
„Þetta er verulega góð hljóm-
sveit, og platan sú besta í langan
tíma.“ (EINKUNN: 9 af 10)
Árni Daníel - NT
■ New Order
- The Perfect Kiss 12“45rpm
Ný tveggja laga plata frá New Order, sem ekki er að finna á
LP plötunni. Frábær dansmúsík, sem örugglega fylgir vin-
sældum Blue Monday vel eftir.
Nýjar/athyglisverðar plötur
■ Cotton Club - Úr kvikmyndinni
■ Dead Or Alive - Youthquake
■ David Knopfler - Behind The Lines
■ Dire Straits - Brothers In Arms
■ Eurythmics - Be Yourself Tonight
■ Imperiet - Bla Himmlen Blues
■ Killing Joke - Night Time
■ Leonard Cohen - Various Positions
■ Miles Davis - You’re Under Arrest
■ Pat Metheny Group - First Circie
■ Prince - Around The World In A Day
■ Rockabilly Psychosis - Cramps, Gun Club o.fl.
■ Smiths - Meat Is Murder
■ Smiths - Shakespear’s Sister 12“45rpm
■ Smiths - William 12“45
■ Smiths - This Charming Man 12“45rpm
■ Tears For Fears - Songs From The Big Chair
■ Tom Petty - Southern Accents
■ Willie And The Poor Boys - UC. Watts, B. Wyman,
J. Page)
■ Working Week - Working Night
■ Yello - Stella
Athugið eigum fyrirliggjandi fjölbreytt úrval
af, Rokkbókum - Duran Duran, Prince,
Wham, Rolling Stones Barmmerki - Duran
Duran, Prince, Frankie o.fl. o.fl. Bluestónlist.
Þjóðlög. Jazz. Klassík.
Sendum í póstkröfu samdægurs
gramm
nD
Laugavegi 17
Sími 12040.
Föstudagur 7. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9