Þjóðviljinn - 07.06.1985, Blaðsíða 13
Iðnó
Hálft í hvoru
til styrktar blindum
Mánudaginn 10. júní veröa
haldnir tónleikar í Iðnó til
styrktar bókaútgáfu á blindra-
letri og hefjast þeir klukkan
20.30.
Þar munu hljómsveitin „Hálft í
hvoru“, Arnþór og Gísli Helga-
synir og Helgi E. Kristjánsson
flytja efni af nýútkominni hljóm-
plötu Gísla Helgasonar, „Ástar-
játningu". Elín Sigurvinsdóttir
flytur lög eftir Sigfús Halldórsson
við undirleik höfundar, Kristín
Liljendal syngur nokkur lög, og
kynnir á tónleikunum verður
Magnús Ólafsson. Allur ágóði
rennur til styrktar bókaútgáfu á
blindraletri.
Oxsmá á
Austurlandi
OXSMÁ mun fara í tón-
leikaför um Austur- og Norð-
urland 7. til 17. júní. Mun hin
nýútgefna hljómplata þeirra,
„RIP RAP RUP“ fylgja með í
förinni, heit úr pressunni.
Ýmislegt óvænt verður gert á
hverjum stað, einhverjar
breytingar kunna að verðafé-
lagsheimilum staðanna.
I kvöld 7. júní verða þeir í Sind-
rabæ á Höfn í Hornafirði. Laug-
ardagskvöld 8. júní Egilsbúð
Neskaupsstað og Herðubreið
Seyðisfirði að kvöldi hins 9. júní.
Valaskjálf Egilsstöðum mánu-
dagskvöldið 10. júní, Miklagarði
Vopnafirði þriðjudagskvöld 11.
júní og í félagsheimili Húsavíkur
að kvöldi miðvikudagsins 12.
júní. Á fimmtudagskvöldið 13.
júní í Sjallanum á Akureyri.
Föstudagskvöldið 14. júní í Sæ-
borg í Hrísey og Víkurröst á Dal-
vík laugardagskvöld 15. júní. Og
að lokum í Fellsborg á Skagast-
rönd sunnudagskvöldið 16. júní.
Þessi glæsilegi vörubíll er reyndar „bastarður" en samt sem áður allur frá General Motors. Grind og
burðarvirki er G.M.C. en hús og samstæða Buick, hvorutveggja árgerð 1930. Eigandi bilsins R 833 var Geir
Geirsson.
Bíllinn 100 ára
Hátíðahöld á morgun
Laugardaginn8.júní
næstkomandi verður haldið
hátíðlegt 100 ára afmæli bíls-
ins. Fornbílaklúbbaránorður-
löndum efna til margskonar
hópferða og Fornbílaklúbbur
íslands heldur upp á daginn
með hópferðausturyfirfjall,
tívolíferð í skemmtigarðinn í
Hveragerði.
Lagt verður af stað frá Hótel
Esju klukkan 13.30. Klúbburinn
hvetur þá íélaga sem ekki geta
mætt í hópferðina til þess að
halda afmælið hátíðlegt með smá
bílferð, hver fyrir sig eða nokkrir
saman eftir aðstæðum.
Stjórn klúbbsins skipa nú Ru-
dolf Kristinsson formaður, Hilm-
ar Böðvarsson, Hinrik Thoraren-
sen, Helgi Magnússon, Haukur
ísfeld, Arngrímur Marteinsson
og Kristján Jónasson. Aðalverk-
efni klúbbsins um þessar mundir
er að leysa húsnæðisvandamál
félagsmanna. Brýnt er að koma
upp sameiginlegri aðstöðu, bíl-
skúrum með viðgerðarplássi og
jafnvel sýningarsal. Að þessu er
unnið í samráði við borgaryfir-
völd. Að öðru þýðingarmiklu atr-
iði er einnig unnið, en það er að fá
fellda niður tolla af innfluttum
fornbílum, enda má telja þá
fremur safngripi eða listaverk en
ökutæki. Væntir stjórnin góðs ár-
angurs í því efni, í samvinnu við
fjármálaráðuneytið. Félagar í
klúbbnum eru nú rúmlega fimm
hundruð, víðsvegar um land.
Flestir eiga þeir sinn fornbíl og
sumir fleiri en einn, jafnvel
marga. Lauslega mætti því ætla
að allt að um 1000 fornbílar séu til
í landinu í eigu klúbbfélaga og
annarra. Þessir bílar eru vitan-
lega í afar mismunandi ástandi,
en þeim fjölgar sífellt sem birtast
fægðir og fallegir á hátíðum og
tyllidögum.
N.V.S.V.
Garðabær
skoðaður
N.V.S.V. fer náttúruskoðun-
ar- og söguferð laugardaginn 8.
júní um Garðabæ. Frá Garða-
skólaverðurfariðkl. 14.15. Hægt
er að fara í bílinn við Norræna
húsið kl. 13.30, Náttúrugripa-
safnið, Hverfisgötu 116 kl. 13,45
og Náttúrufræðistofu Kópavogs,
Digranesvegi 12 kl. 14.00.
Leiðsögumenn verða Jón Jóns-
son jarðfræðingur, Áslaug Ara-
dóttir líffræðingur og sögu- og ör-
nefnafróðir menn.
Samsöngur í
Þorlákskirkju
Söngfélag Þorlákshafnar
hefur nú starfað í 25 ár. Aðal-
hvatamaður að stofnun þess
og fyrsti söngstjóri var Ingi-
mundurGuðjónsson. ítilefni
þessara tímamóta hefur kór-
inn ákveðið að efna til söng-
og skemmtiferðartil Noregs
nú í vor.
Flogið verður þann 11. júní til
Þrándheims, en þaðan haldið
suður á bóginn. Til Osló, yfir til
Svíþjóðar síðan haldið norður í
Þrændalög og komið heim aftur
25. júní. I ráði er að heimsækja
norska kóra á nokkrum stöðum
°g syngja hjá þeim. Einnig syng-
ur kórinn á 17. júní samkomu ís-
lendingafélagsins í Osló og e.t.v.
víðar. Einsöngvari með kórnum
verður Ingveldur Hjaltesteð
söngkona. Kórinn ætlar að halda
samsöng í Þorlákskirkju n.k.
sunnudag 9. júní kl. 4.00 e.h. Á
söngskrá eru íslensk og erlend lög
eftir ýmsa höfunda.
Brynja Guttormsdóttir með tónleika á sýningu Tryggva
Píanótónleikar á
myndlistarsýningu
Brynja Guttormsdóttir held-
ur píanótónleika á sýningu
TryggvaÁrnasonar, Kæra
Reykjavík, að Kjarvalsstöðum
í kvöld, föstudag, kl. 21. Á efn-
isskráeru þrjárgnossiennes
eftir Satie, Fantasía í C dúr op
17 eftir Schumann og Myndir
á sýningu eftir Moussorgsky.
Brynja Guttormsdóttir er fædd
í Reykjavík. Hún stundaði nám í
einkatímum hjá Helgu Laxness
og Jórunni Viðar. I Tónlistar-
skólanum í Reykjavík voru kenn-
arar hennar Rögnvaldur Sigur-
jónsson og Árni Kristjánsson og
lauk hún píanókennaraprófi frá
skólanum vorið 1969. Árið 1970
hóf Brynja nám við Tónlistarhá-
skólann í Stokkhólmi og lauk
þaðan prófi vorið 1973. Hún
stundaði einkanám hjá prófessor
Gunnar Hallhagen 1976-78.
Brynja hefur stundað kennslu
um árabil, lengst af hjá Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar.
Nýlistasafnið
Þýskur
video-listamaður
(kvöld, föstudag, kl. 20
opnarþýski listamaðurinn
Ðarbara Hammann sýningu í
Nýlistasafninu Vatnsstíg 3b.
Þar verða sýndar polaroid-
myndir og video-innsetning
(installation)
Barbara Hammann er video-
listamaður, hún skipuleggur sýn-
ingar og skrifar um kvennalist.
Barbara er fædd í Hamborg 1945.
Hún er sjálflærð í listinni en hefur
numið listasögu og er með Phd,-
gráðu í heimspeki. Hún er þekkt
fyrir video-verk sín á alþjóðavett-
vangi og hefur unnið fyrstu verð-
laun á alþjóðlegu video-hátíðinni
í Tokyo. Hún hefur einnig sýnt
verk sín á alþjóðlegu video- og
kvikmyndahátíðunum í Berlín og
Montreal.
Barbara berst fyrir kvennalist
og að tengja saman menningu og
fólk. Þetta eru helstu þættir lífs
og listar hennar. Um verk sín
segir Barbara einnig: „Sjónræn
list skapar ímynd ólgu sem ekki
er hægt að skilja frá líkamanum
og reynsluheimi kvenna,“ í Ný-
listasafuinu sýnir hún „Sjálfs“-
Polaroidmyndir (myndir þar sem
hún sjálf og líkami hennar er
þátttakandi í verkinu) og nýtt
video-verk: „Örlítil snerting
hjartans".
Sýningin verður opin daglega
kl. 16-20 til sunnudagsins 16.
júní.
Norrœna húsið
Óbó-píanó-dúó
Bedford Duo - Monte Bed-
ford, óbó og Frances Bedford, pí-
anó - mun halda tónleika í Nor-
ræna húsinu laugardaginn 8. júní,
kl. 15.00. Bedford Duo er á leið
heim úr þriðju tónleikaferð sinni
um Evrópu, en í þetta sinn héldu
þau tólf tónleika í fimm löndum.
Bedford Duo hefur og ferðast
víða um Bandaríkin, leikið á
mörgum þekktum tónlistarhátíð-
um þar, og auk þess gefið út
margar hljómplötur. Þau kenna
bæði við bandaríska háskóla,
Monte Bedford við Alabama há-
skóla og Frances Bedford við
Wisconsin-Park Side háskóla.
Bedford Duo hefur hlotið lof
gagnrýnenda fyrir frábært sam-
spil og listræn gæði.
Á efnisskránni á laugardag eru
verk eftir Hándel, Bach, Gordon
Jacob, Ivar Lunde jr., Ole Bull
og George Gershwin.
Föstudagur 7. júní1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13