Þjóðviljinn - 23.02.1988, Blaðsíða 3
FRETTIR
Flugstöðin
241 miljón í viðbót
Steingrímur Hermannsson: Amælisvert aðfyrrverandi
utanríkisráðherra samþykkti viðbœtur ánþess að beraþœr undir
Alþingi. Matthías A. Mathiesen segir Geir Hallgrímsson hafa
samþykkt viðbœturnar
Varaþingmenn
Unnur Sólrún
á þing
Unnur Sólrún Bragadóttir tók
sæti Hjörleifs Guttormssonar á
þingi í gær, en hún er fyrsti vara-
maður hans.
Þá tók Vilhjálmur Egilsson
sæti Pálma Jónssonar á þingi í
gær. _Sáf
Viðbótarkostnaður við flug-
stöðina til að Ijúka henni að
fullu hljóðar upp á 241 miljón.
Þetta kom fram hjá utanríkisráð-
herra í umræðu um umfram-
kostnað vegna Flugstöðvarinnar
á Alþingi í gær.
Inni í þessu dæmi eru að sögn
ráðherra nokkrir stórir kostnað-
arliðir og tiltók hann sérstaklega
tvo sem hann telur mjög brýnt að
Ijúka sem fyrst, helst á þessu ári.
Annarsvegar frágangur á hita-
veitulögnum og hinsvegar að
reisa útilistaverk sem samið hefur
verið um við listamenn að gert
verði á árinu. Sagði ráðherra að
þær fjárveitingar, sern ætlaðar
væru til flugstöðvarinnar í ár,
myndu ekki nægja til þess en að
hann hygðist leita leiða til að
standa við samkomulagið við
listamennina.
Þá sagðist Steingrímur Her-
mannsson ekki minnast þess að
viðbæturnar við flugstöðina
hefðu verið ræddar í ríkisstjórn-
inni og endurtók að það væri
ámælisvert að fyrrverandi utan-
ríkisráðherrar skyldu á sínum
tíma hafa samþykkt viðbætur við
flugstöðina án þess að bera þær
undir Alþingi.
Matthías Á. Mathiesen sór af
sér að hafa tekið ákvarðanir um
viðbætur, sagði að þær hefðu all-
ar verið teknar í tíð Geirs Hall-
grímssonar sem utanríkisráð-
herra.
-Sáf
Hafnarfjörður
Ógnvænlegur
sprengjufaraldur
Piltur stórslasaðist þegar heimatilbúin
sprengja sprakk inni í bílskúr. Lögreglan í
Hafnarfirði gert55 slíkar sprengjur
upptœkar. Ottastað tímasprengjur séu
komnar í umferð
Ungur piltur úr Hafnartirði
liggur nú þungt haldinn á
gjörgæsludeild, með mikla höf-
uðáverka, fót- og handarbrotinn,
eftir að sprengja sprakk sem
hann var að útbúa ásamt þremur
fclögum sínum í bílskúr í Hafnar-
firði síðdegis á sunnudag. Annar
piltur slasaðist einnig en hinir
tveir sluppu án meiðsla. Piltarnir
eru á aldrinum 12-17 ára.
- Það verður að segjast að við
höfum óttast að svona myndi
fara. Ástandið hefur verið mjög
alvarlegt og frá því á þrettánda-
kvöldið síðasta er lögreglan búin
að gera upptækar 55 heimatil-
búnar sprengjur, stórhættuleg
vopn eins og sýndi sig á sunnu-
dag, sagði Olafur Guðmundsson
aðstoðaryfirlögregluþjónn í
Hafnarfirði í samtali við Þjóðvilj-
ann.
Lögreglan hefur sent sprengj-
urnar til skoðunar hjá Landhelg-
isgæslunni sem hefur staðfest að
hér sé um stórhættulega hluti að
ræða. Sprengjurnar eru flestar
rörbútar fylltir með púðri úr flug-
eldum og blysum. Sprengingin á
sunnudag varð þegar piltarnir
voru að bora fyrir kveikjuþræði í
einn rörbútinn. Lögreglan telur
ástæðu til að óttast að einnig hafi
verið framleiddar tímasprengjur
en leifar einnar af sprengjunum
sem fundist hafa benda til þess að
hún hafi verið tengd tímastilli.
- Fólk virðist ekki hafa áttað
sig almennilega á hversu mikil
hætta er hér á ferðum en við verð-
um að hvetja foreldra til að fylgj-
ast með því hvort börn þeirra eru
með heimatilbúnar sprengjur í
fórum sínum. Það verður að
koma í veg fyrir frekari slys, sagði
Ólafur.
-íg-
Ólafur Guðmundsson með sýnishorn af þeim heimatilbúnum sprengjum sem lögreglan hefur gert upptækar.
Ríkisútvarpið
Fréttamenn
Auglýsingatekjur hrapa
Auglýsingatekjur útvarpsins hafa minnkað um 43% síðan 1985 og
sjónvarpsins um39%. Alþýðubandalagið leggur tilað nefnd verið
kosin til að gera tillögur um eflingu R ÚV. Ber að gera R ÚV að
sjálfseignarstofn un ?
Auglýsingatekjur Ríkisút-
varpsins hafa hrapað síðan
nýju útvarpslögin tóku gildi og
fleiri útvarps- og sjónvarpsstöðv-
ar fóru að bítast um auglýsing-
arnar. Þannig hafa tekjur út-
varpsins dregist saman um 43% á
milli áranna 1985 og 1987 og tekj-
ur sjónvarpsins af auglýsingum
hafa dregist saman um 39% á
sama tíma.
Árið 1985 voru tekjur útvarps-
ins af auglýsingum 366 miljónir
króna á núvirði en í fyrra höfðu
þær hrapað niður í 208 miljónir
króna. Tekjur sjónvarpsins af
auglýsingum árið 1985 voru 241
miljón króna á núvirði en í fyrra
voru þær komnar niður í 148 milj-
ónir króna.
Tekjur af útvarpsgjaldi hafa
hinsvegar aukist smávegis á milli
þessara tveggja ára en voru tals-
vert lægri árið 1986 en í fyrra og
árið 1985. Útvarpið fékk 176
miljónir í tekjur af útvarpsgjaldi
árið 1985, 163 miljónir árið 1986
og 212 miljónir í fyrra. Sjónvarp-
ið hafði af sama gjaldi tekjur upp
á 450 miljónir árið 1985,382 milj-
ónir árið 1986 og 490 miljónir í
fyrra. Allar tölur eru færðar til
verðlags ársins í ár.
Þessar upplýsingar er að finna í
fylgiskjali með þingsályktunartil-
lögu sem þingmenn Alþýðu-
bandalagsins hafa lagt fram á Al-
þingi um eflingu Ríkisútvarpsins.
I tillögunni er lagt til að kosin
verði níu manna nefnd til að gera
tillögur fyrir næsta þing um
eflingu RÚV. Á nefndin m.a. að
kanna hvaða áhrif nýju útvarps-
lögin hafa haft á starfsemi RÚV
og hvernig tekjur og útgjöld hafa
þróast á undanförnum árum. Þá á
nefndin að kanna hvort rétt sé að
gera RÚV að sjálfseignarstofnun
með verulegu sjálfstæði um eigin
fjárhag og rekstur. _Sáf
Keflavík
Manndráp og sjálfsvíg
Sá hörmulegi atburður átti sér banaði síðan sjálfum sér eftir að
stað í Keflavík aðfaranótt sunnu- hafa kallað lögreglu á vettvang.
dags að ungur maður skaut konu Hjónin voru bæði 27 ára
sína til bana með haglabyssu og gömul. Þau láta eftir sig tvö börn.
Hindraðir
í störfum
Blaðamannafélagið hefur sent
Jóni Sigurðssyni dómsmálaráð-
herra bréf þar sem því er harð-
lega mótmælt hvernig lögregluyf-
irvöld hafa að undanförnu hind-
rað fréttamenn í störfum.
í bréfinu til ráðherra eru sér-
staklega tilgreind atvik er urðu á
Keflavíkurflugvelli fyrir skömmu
þegar Ijósmyndari dagblaðs var
handtekinn þegar hann tók mynd
af farmi flutningavélar sem kom
til landsins á vegum hersins og
einnig vinnubrögð lögreglu er
Paul Watson var handtekinn á
Keflavíkurflugvelli í sl. mánuði.
Blaðamannafélagið krefst þess
að starfsréttindi blaða- og frétta-
manna séu virt og slíkir atburðir
endurtaki sig ekki. Þá fer félagið
fram á að fréttamönnum verði
tryggður eðlilegur aðgangur að
móttökusal nýju flugstöðvarinn-
ar.
-Sáf.
Þriðjudagur 23. febrúar 1988 'ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 3