Þjóðviljinn - 23.02.1988, Síða 16
Aðalsími
Þorlákshöfn
Sparisjóösvextir
á téKKareiKninga
meö
hávaxtaKjörum
SAMV1NNUBANKI
iSLANDS HF.
_ Listasafnið
A þremur vígstöðvum
Garðar Halldórsson, húsameistari ríkisins, hönnuður Listasafnsins
°g byggingarnefndarmaður Listasafnsins, kannar áætlanir Garðars
Halldórssonar, húsameistara ríkisins, hönnuðar Listasafnsins og
byggingarnefndarmanns Listasafnsins
Ofeigur upp
i fjom
Elsta stálskip flotans, Ófeigur
III frá Vestmannaeyjum, strand-
aði skammt utan við innsigling-
una til Þorlákshafnar árla sl.
laugardagsmorgun. Fjórir skip-
verjar voru um borð og var þeim
bjargað í land með þyrlu Land-
helgisgæslunnar.
Skipið er komið langt upp á
land og illa farið eftir að hafa
velkst umígrýttrifjörunni. Ýmsu
lauslegu tókst að bjarga úr
skipinu en engin tilraun verður
gerð til að bjarga því enda búið
að dæma það ónýtt.
Álitið er að bilun í stýribúnaði
hafi verið orsök strandsins en
sjópróf fara fram í
Vestmannaeyjum í dag. -|g
Garðar Halldórsson, húsa-
meistari ríkisins, er hönnuður
að Listasafni ríkisins. Hann sá
sem hönnuður um að gera kostn-
aðaráætlun fyrir byggingu Lista-
safnsins. Einsog kunnugt er stóð-
ust þær áætlanir engan veginn.
Guðmundur G. Þórarinsson,
formaður byggingarnefndar
Listasafnsins sagði í Þjóðviljan-
um á laugardag að hann hefði á
árunum 1986 og 1987 látið gera
kostnaðaráætlun á þriggja til
fjögurra mánaða fresti og engin
áætlun hefði staðist.
Garðar Halldórsson átti sæti í
byggingarnefnd Listasafnsins
með Guðmundi G. og tók því
þátt í að samþykkja þær áætlanir
sem Garðar Halldórsson, húsa-
meistari ríkisins og hönnuður
Listasafnsins hafði gert.
Nú hefur Guðmundur G. feng-
ið Garðar Halldórsson, húsa-
meistara ríkisins, hönnuð Lista-
safnsins og byggingarnefndar-
manns Listasafnsins til að rann-
saka hversvegna áætlanir Garð-
ars Halldórssonar, húsameistara
rfkisins, hönnuðar Listasafnsins
°g byggingarnefndarmanns
Listasafnsins, stóðust ekki.
-Sáf
„Ber er hver að baki nema sér bróður eigi.“ Þórarinn V. Þórarinsson, fram- formaður Verkamannasambandsins, sneru saman bökum í gær, eftir að uppúr
kvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins og Guðmundur J. Guðmundsson, hafði nær slitnað í fyrrakvöld. Mynd E. Ól.
VMSÍ - VSÍ
Viðræðuslit á næsta leiti?
Karvel Pálmason: Ekki bjartsýnn. Framhald viðræðna kann að ráðast ídag. Hlýtur að fara að
koma að þvíað launaliðir verði ræddir. Viðrœður Dagsbrúnar hafa tafið fyrir VMSÍ
Reykjavíkurskákmótið
Nær 70 þátttakendur
Reykjavíkurskákmótið
■ verður sett á Hótel Loft-
leiðum í dag og fyrsta umferðin
hefst síðdegis. Alls verða tefldar
11 umferðir og lýkur mótinu
sunnudaginn 6. mars.
Nær 70 skákmenn eru skráðir
til þátttöku, þar af um 30 er-
lendir. 13 stórmeistarar taka þátt
í mótinu, þrír þeirra íslenskir;
þeir Helgi Olafsson, Margeir Pét-
ursson og Jón L. Árnason. Af er-
lendum meisturum eru þekktast-
ir Sovétmennirnir Polugajevskij
og Gurevitsj, Bandaríkjamaður-
inn Walther Brown og Ungverj-
inn Andreas Adorjan. Kanada-
maðurinn Spraggett sem var
væntanlegur hefur boðað forföll
en í stað hans teflir Bandaríkja-
maðurinn Larry Cristiansen.
Af öðrum þekktum skák-
mönnum sem tefla á Reykjavík-
urmótinu að þessu sinni má nefna
Polgarsysturnar þrjár frá Ung-
verjalandi sem allar eru þekktar í
skákheiminum þó ungar séu að
árum. Sú elsta þeirra 18 ára
gömul er nú þriðja stigahæsta
skákkona í heiminum. -Ig.
Samninganefndir Verka-
mannasambandsins og at-
vinnurekenda virðast verða æ
vondaufari um að samningar ná-
ist að sinni. Þrátt fvrir hrakspár
um að uppúr mundi slitna í gær,
varð úr að nýr fundur er boðaður
í dag. - Menn töldu að ekki væri
búið að reyna til þrautar, sagði
Karvel Pálmason, varaformaður
Verkamannasambandsins, í sam-
tali við Þjóðviljann eftir að samn-
ingafundi lauk um sjöleytið í gær.
- Það er ekki þar með sagt að
ég sé bjartsýnn á framhaldið. Það
hlýtur að fara að koma að því að
menn ræði launaliði nýrra samn-
inga. Það getur ekki dregist öllu
lengur, sagði Karvel, Ekki er tal-
ið loku fyrir það skotið að fund-
urinn í dag skeri úr um framhald
samningaviðræðna.
í gær ræddust menn við um
vörslu orlofsfjár í tengslum við
nýju orlofslögin og hugmyndir
voru settar á blað um hvernig
standa skuli að nýju afkastahvetj-
andi launakerfi í stað bónusins í
fiskvinnslunni.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans eru skiptar skoðanir innan
samninganefndar VMSÍ um
ágæti sérkjaraviðræðna Dags-
brúnar samhliða viðræðum um
nýjan aðalkjarasamning VMSÍ.
Bent er á að Dagsbrúnarviðræð-
urnar hafi ekki orðið til að flýta
fyrir viðræðum VMSÍ. Eftir því
sem næst verður komist voru það
einkum Dagsbrúnarmenn sem
voru áfram um það í gær að við-
ræðum yrði fram haldið.
Nýr samningafundur í Garð-
astræti er boðaður í dag klukkan
16.
-rk
l
Listasafnið
Ekkf
trúverðug
Ríkisendurskoðandi:
Lítum fljótlega á
Listasafnið
- Það er gott ef menn eru
gagnrýnir og vilja skoða sjálfa
sig, en slíkar athuganir eru ekki'
trúverðugar án þess að ég vilji
dæma um það að sinni, segir
Halldór V. Sigurðsson hjá
Ríkisendurskoðun um þá ákvörð-
un byggingarnefndar Listasafns
ríkisins að standa sjálf fyrir at-
hugun á því hvers vegnar kostn-
aður við byggingu safnsins fór
langt fram úr áætlun.
Halldór sagði að þessi ákvörð-
un byggingarnefndarinnar
breytti engu varðandi fyrirætlanir
Ríkisendurskoðunar. - Ég reikna
með að við mununt Iíta á þetta
dæmi mjög fljótlega. Fram-
kvæmdum er að fullu lokið og því
engin ástæða til að bíða með eðli-
lega skoðun á þessu máli, sagði
ríkisendurskoðandi. _i„
Norrœna húsið
Skógminja-
safn?
Vibeke Koch, fræðslustjóri
danska skógminjasafnsins í Hörs-
holm flytur í kvöld kl. 20.30 fyrir-
lestur í fundarsal Norræna húss-
ins scm hún nefnir „Hvers vegna
Island á að eignast skógminja-
safn“. Fyrirlesturinn er fluttur í
tengslum við sýninguna „Hið
græna gull Norðurlanda“ sem
opnuð var sl. laugardag í Nor-
ræna húsinu.
í fyrirlestrinum mun Vibeke
Koch ræða nauðsyn þess að ís-
lendingar eignist skógminjasafn,
en saga skógræktar fyrri tíma,
saga skógræktar líðandi stundar
og skógrækt framtíðarinnar er
samofin. Markmið safns er að
þjóna samfélaginu með því að
styrkja sjálfsvitund þjóðar og
vera leiðarljós komandi kynslóð-
um og vísa veginn þegar best
lætur.
I