Þjóðviljinn - 14.05.1988, Side 1
Laugardagur 14. maí 1988 108. tölublað 53. órgangur
Ríkisstjórnin
Fastgengið
((
fallið
Gengisfellingíkringum 12-15%. Óvissa um hliðarráðstafanir. Átök ístjórnarbúðum. Þorsteinn frestar
fundinum með Reagan. Alþýðusambandið: Kjaraskerðing launafólks verður ekkiþoluð
Hornsteinn ríkisstjórnarstefnu
Þorsteins Pálssonar, „fast-
gengið“, er nú hruninn. Þrátt
fyrir að stjórnarflokkarnir hafi
enn ekki komið sér saman um
stærð gengisfellingarinnar er bú-
ist við að hún verði í kringum 12-
15%. Langir og strangir fundir
voru meðal ráðherranna í gær og
gærkvöld og verða áfram um
helgina þar sem rætt er um hlið-
arráðstafanir þær sem gera á sam-
hliða gengisfellingunni. Meðal
annars er rætt um að taka „rauðu
strikin" í nýgerðum kjarasamn-
ingum úr sambandi.
Harðar deilur eru innan stjórn-
arinnarog Þorsteinn Pálsson hef-
ur frestað fyrirhuguðum fundi
sínum með Ronald Reagan
Bandaríkjaforseta sem átti að
verða á mánudag.
Forystumenn Alþýðusamb-
andsins færðu forsætisráðherra
harðorða yfiriýsingu í gær; þar
segir m.a. að kjaraskerðing í
kjölfar gengisfellingarinnar verði
ekki þoluð.
Áður en gjaldeyrisdeildum
bankanna var lokað í gærmorgun
hafði fjórðungur gjaldeyrisforða
Seðlabankans verið tekinn út í
vikunni, alls um 2,5 miljarðar
króna. Bæði fyrirtæki og einstak-
lingar voru þannig búin að sýna
vantraust sitt á efnahagsstjórn-
inni í verki, áður en Seðlabank-
inn greip til þess ráðs að stöðva
frekari gjaldeyrissölu.
Sjá bls. 2
Langar biðraðir voru víða í gjaldeyrisdeildum bankanna í gær, þrátt fyrir að Seðlabankinn hafi fryst frekari
útsteymi gjaldeyris. Afgreiddar voru pantanir sem lágu fyrir og ferðamenn fengu keyptan gjaldeyri með
25% álagi. Mynd-Sig.
Álverið
VSÍmeð
hótanir
Knattspyrna
Hetja Valsmanna
Jón Gunnar skoraði 3 af 4 mörkum Vals
þegar þeir unnu Fram á
uppstigningardag
Það rigndi mörkum þegar
leikið var um titilinn Meistari
meistaranna á fimmtudaginn. Sá
leikur er árlega á milli þáverandi
íslandsmeistara og Bikar-
meistara en Valur og Fram halda
þessum titlum nú. Jafnt var að
loknum venjulegum leiktíma og
því þurfti framlengingu til að
knýja fram úrslit en mörkin urðu
7 þegar yfir lauk.
Jón Gunnar Bergsson átti stór-
an þátt í sigrinum því hann
skoraði 3 af 4 mörkum Vals en
Pétur Ormslev sá um öll 3 mörk
Fram. Talsverð harka var í
leiknum enda voru gefin 4 gul
spjöld og eitt rautt en það fékk
Hilmar Sighvatsson Valsmaður á
65. mínútu þannig að Valur spil-
aði með 10 leikmenn í 55 mínút-
ur. -ste
Sjá síðu 15
Sambandsstjórn VSÍ gaf í gær
framkvæmdarstjórn sinni heim-
ild til boðunar verkbanns á þá
starfsmenn álversins sem eru í
verkfalli. í samþykkt sambands-
stjórnar segir að starfsmenn ál-
versins fari fram á tvöfalda upp-
hafshækkun miðað við það sem
verið hefur á vinnumarkaðnum.
Örn Friðriksson, trúnaðarmað-
ur, segir þetta rangt.
f samþykktinni segir einnig, að
ef reksturinn stöðvist muni ál
„frjósa" í kerjum og marga mán-
uði taki að koma framleiðslunni í
samt lag. Örn segir ÍSAL sjálft
hafa valið „niðurkeyrsluleiðina“;
önnur leið sé til sem hafi ekki í för
með sér storknun áls í kerjum.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans hefur Alusuisse staðið í
skeytasendingum til ÍSAL og lýst
yfir áhyggjum á gangi mála.
Sjá bls 3
Verðhœkkanir
Verðið hækkað
að vild
Timbursalar hœkka nú verðið á timbri
vegna gengisfellingarinnar
í gær hækkuðu Húsasmiðjan
og Byggingasala Sambandsins
verð á timbri um 14% og BYKO
um 13%. Að sögn forráðamanna
þessara fyrirtækja er um að ræða
hækkun vegna fyrirhugaðrar
gengisfellingar.
Verðlagsstofnun er nú að
kanna lögmæti þessarar hækkun-
ar því reiðir neytendur hafa verið
að hringja inn til Verðlagsstofn-
unar til að kanna réttarstöðu sína
því mörgum finnst þeir vera varn-
arlausir gagnvart verðlagsfrels-
inu margrómaða.
Sjá bls. 2