Þjóðviljinn - 14.05.1988, Síða 2
Gengisfelling
Rauðu strikin út?
Mikill ágreiningur um stœrð gengisfellingarinnar. Hliðarráðstafanir
rœddar um helgina. Porsteinn frestar vesturför
Gengisfellingin
Viðskipti
glæðast
Eftir að öruggt var að gengið
yrði fellt hafa margir hlaupið til
með veskið á lofti. í einu bíla-
umboðanna hafði jafn mikið selst
af bílum fyrir hádegi í gær og alla
síðustu viku. Heimilistæki og
tölvur seljast betur en áður og
sumar verslanir anna ekki eftir-
spurn
Guöbjörg Sandholt sölumaður
hjá ferðaskrifstofunni Útsýn
sagði „allt búið að vera vitlaust
undanfarna daga og allt frá í síð-
ustu viku þegar orðrómur um
gengisfellingu komst á kreik“.
Að sögn Guðbjargar ber ekki á
því að fólk afpanti ferðir.
Bílaborg sem er með Mazda
umboðið hafði selt jafnmarga
bíla fyrir hádegi í gær og alla síð-
ustu viku. Guðmundur Þor-
steinsson hjá Heimilistækjum hf.
sagði þá geta selt miklu meira en
þeir gerðu. -hmp
Afundi ríkisstjórnarinar í gær-
kvöldi átti að taka ákvörðun
um stærð gengisfellingarinnar
sem framundan er en nota síðan
helgina til þess að ræða þær hlið-
arráðstafanir sem nauðsynlegar
eru. Mikill ágrciningur er meðal
stjórnarflokkanna um hve mikið
eigi að fella gengið, Framsókn vill
20-25% gengisfellingu en Alþýðu-
flokksmenn vilja ekki að hún fari
yfir 10%. Sjálfstæðisflokkurinn
siglir síðan þarna mitt á milli og
almennt er búist við að gengisfell-
ingin verði í kringum 12-15%.
Meðal þeirra hliðarráðstafana
sem rætt er um samhliða gengis-
fellingunni eru bráðabirgðalög
sem fella úr gildi hin svokölluðu
rauðu strik en hið fyrsta þeirra er
nú 1. júní. Á móti koma hækkun
almannatrygginga. Ljóst er að
þetta muni mæta mikilli andstöðu
verkalýðshreyfingarinnnar. Aðr-
ar hliðarráðstafanir liggja ekki á
hreinu.
Hið gífurlega útstreymi af
gjaldeyri úr bönkunum í þessari
viku varð þess valdandi að gjald-
eyrisdeildum þeirra var lokað í
gærmorgun en þá hafði fjórðung-
ur gjaldeyrisforða okkar verið
tekinn út í vikunni eða um 2,5
milljarðar króna. Samkvæmt
upplýsingum frá bönkunum var
hér um allskonar fyrirtæki að
ræða og einstaklinga en ferða-
skrifstofur munu hafa bent við-
skiptavinum sínum á yfirvofandi
gengisfellingu með þeim afleið-
ingum að tvö til þrefalt fleiri um-
sóknir voru um ferðamanna-
gjaldeyri en eðlilegt er.
Efnahagsráðstafnir þær sem
grípa á til nú hafa svo þær afleið-
íngar að Þorsteinn Pálsson for-
sætisráðherra hefur frestað fyrir-
hugaðri heimsókn sinni til Ron-
ald Reagan Bandaríkjaforseta.
Afleiðingar þeirrar gengisfell-
ingar sem hér er um rætt, 12-15%
eru að verðlag hækkar um 6-7%
og verðbólgan á árinu fer úr 16%
og í 22-25%. Ljóst er að gengis-
felling sem er yfir 10% mun
sprengja rauða strikið 1. júní og
það eru einkum framsóknar-
menn sem gera þá kröfu að rauðu
strikin verði tekin út.
-FRI
Laddi var helst til óheppinn í gær er hann keypti sér timbur í Húsasmiðjunni því þá hækkaði það um 14%.
Mynd Sig.
Verðhœkkanir
Timbursalarfljótir til
Timburhœkkar áður en gengið erfellt. Áœtluðgengisfellingar-
prósenta. Óeðlilegar hœkkanir
ASÍ
Kjaraskerðing
verður ekki þoluð
Samþykkt formannafundar ASÍ send
forsœtisráðherra
Timburverð hækkaði um 13-
14% í þremur af stærstu bygg:
ingarvöruverslununum í gær. I
Húsasmiðjunni og Byggingavöru-
sölu Sambandsins um 14%, en í
BYKO um 13%.
Af þessum sökum voru síma-
línurnar hjá Verðlagsstofnun
rauðglóandi í gær og neytendum
mikið niðri fyrir að fá vitneskju
um hvort um ólöglegt samráð
væri að ræða eða eðlilega hækkun
í krafti frjáls verðlags. Starfsfólk
stofnunarinnar mun vinna að því
á næstunni að kanna lögmæti
þessarar hækkunar.
Jón Snorrason forstjóri Húsa-
smiðjunnar sagði í gær að þeir
hefðu átt um það að velja að loka
hreinlega eða gefa sér einhverja
ímyndaða gengisfellingarpró-
sentu. Erlend vörukaupalán
hefðu hækkað upp úr öllu valdi
meðan gengið væri óskráð. Þeir
hefðu hækkað járnvörur, timbur
og fleira vegna fyrirhugaðrar
gengisfellingar.
- Gengið er ósköp einfaldlega
fallið, sagði Jón Helgi Guð-
mundsson aðalframkvæmda-
stjóri BYKO í gær. Hann bar
fyrir sig sömu röksemdir og Jón
Snorrason, en BYKO hækkaði
eins og áður sagði verðið hjá sér
um 13% í gær.
Guðmundur Ingi Guðmunds-
son hjá Byggingasölu Sambands-
ins sagði það vera rétt að þeir
hefðu þurft að hækka sín verð en
það hafi verið vegna hækkunar á
innkaupsverði á timbri frá Rúss-
landi. Eftir að þeir hefðu gert
sína samninga í mars hefði verðið
á timbrinu hækkað stórum.
í JL-Völundi er hinsvegar öllu
á annan veg farið og er Þjóðvilj-
inn innti Þorstein Gunnarsson
framkvæmdastjóra eftir fyrirhug-
uðum verðbreytingum í kjölfar
gengisfellingarinnar sagði hann
að JL-Völundur hefði ekki í
hyggju að hækka verðið fyrr en
ljóst verður hve mikil gengisfel-
lingin verður. Hann sagðist líta
svo á að allar hækkanir á verði
meðan gengið væri ótryggt væru
óeðlilegar og að þeir vildu vera
vissir um að starfa löglega. Ekki
kæmi til greina að hækka verðið
fyrr en nýjar birgðir yrðu
keyptar.
Eftirfarandi ályktun sendi for-
mannafundur ASI sem hald-
inn var í gær forsætisráðherra en
forráðamenn Alþýðusambands-
ins áttu fund með ráðherranum
þar sem þeir kröfðust svara varð-
andi væntanlegar efnahagsráð-
stafanir en fengu engin bréf.
„Á fundi formanna landssamb-
anda innan ASÍ í dag var eftirfar-
andi samþykkt gerð samhljóða:
Frá því samningar voru gerðir í
desember 1986 hefur alvarlegt
misgengi orðið í efnahagskerf-
inu. Ástæðurnar má rekja til að-
gerða og þó frekar aðgerðaleysis
stjórnvalda. Það er óhjákvæmi-
legt að benda á fjárlagahalalann,
miklar erlendar lántökur, stór-
felldar óarðbærar fjárfestingar,
okurvexti og skipulagsleysi í
flestum greinum. Þjónustugrein-
ar á höfuðborgarsvæðinu hafa
notið þenslunnar á meðan þrengt
hefur að útflutningsgreinunum.
Ríkisstjórnin hefur nú ákveðið
að fella gengið. Það er ljóst að
gengisfelling leysir enganveginn
essi atburðarás hún sannar
réttmæti þeirra viðvarana
sem ég flutti á miðstjórnarfundi
Alþýðubandalagsins um sl. helgi,
þegar ég lýsti þeirri hagstjórnar-
kreppu sem ríkisstjórnin hefur
skapað. Þegar nærri þrír milj-
arðar streyma út úr gjaldeyris-
sjóðunum á einum degi, þá er ver-
ið að flytja í verki vantraust á þá
ríkisstjórn sem sagði að
fastgengisstefnan væri horn-
steinninn í ríkisstjórnarsamstarf-
inu, sagði Olafur Ragnar Gríms-
son í samtali við Þjóðviljann.
- í greinargerð ntinni til mið-
stjórnarinnar benti ég rækilega á
að þessi hagstjórnarkreppa yrði
ekki leyst með gamaldags gengis-
þann vanda sem við er að stríða.
Gengisfelling veltir bara öllu enn
einn hring. Til að leysa vandann
þarf að taka á orsökum misgeng-
isins.
Það er auðsætt að þau vanda-
mál sem nú steðja að verða ekki
rakin til nýgerðra kjarasamn-
inga. Nú þegar gengisfelling hef-
ur verið ákveðin skiptir því öllu
að þeir samningar verði virtir að
fullu. Reynslan frá 1983 er nær-
tækasta dæmið um það hverjir
það eru sem mundu bera byrð-
arnar ef stöðva ætti kauphækkan-
ir með lagaboði.
Þeir sem búa við samnings-
bundna taxta verða þá látnir bera
byrðarnar. Þeir sem aðstöðu hafa
til þess að taka á sínum málum til
hliðar við kjarasamninga munu
áfram ná fram launaskriði. Lág-
launafólkið hlyti að axla byrðarn-
ar en hálaunahóparnir flestir
halda sínum hlut og jafnvel enn
sækja á. Verkalýðshreyfingin
getur ekki liðið að óréttlætið
magnist enn með þeim hætti.
Slíkt ástand verður ekki þolað.“
fellingu og kjaraskerðingu og
rakti fjölmargar aðgerðir í ríkis-
fjármálum, peningamálum og
fjárfestingarstjórnun sem gætu
komið í staðinn.
- Ef ríkisstjórnin ætlar nú að
skerða nýgerða kjarasamninga,
þar sem ekki náðust einu sinni
eðlileg lágmarkslaun, þá verður
uppreisn meðal launafólks í
landinu. Það er röng stjórnar-
stefna sem hefur skapað þennan
vanda, ekki launin. Ef setja á
bráðabirgðalög um kjaraskerð-
ingu ætti tafarlaust að efna til alls-
herj arvinnustöðvunar um allt
land til að sýna mótmæli launa-
fólks, sagði Ólafur Ragnar
Grímsson.
Ig-
Fréttastjórastaða
Umsóknir fyrir útvarpsráð
Fimm umsœkjendur.
r
Afundi útvarpsráðs í gær voru
lagðar fram umsóknir fimm
aðila um stöðu fréttastjóra sjón-
varps. Þau sem sækja um eru Ög-
mundur Jónasson, Sigrún Stef-
ánsdóttir, Hallur Hallsson og
Helgi H Jónsson. Einn umsækj-
andi óskar nafnleyndar en það
mun vera Bogi Ágústsson blaða-
fulltrúi Flugleiða.
Útvarpsráðsliðar hafa nú um-
sóknirnar til umhugsunar en
gengið verður til atkvæða um um-
Afstaða tekin eftir helgi
sækjendur á fundi útvarpsráðs
nk. þriðjudag.
Talið er að útvarpsstjóri ætli að
láta vilja útvarpsráðs ráða frétta-
stjóravalinu í þetta skipti. En
þann háttinn hafði hann ekki á
þegar Ingvi Hrafn Jónsson var
ráðinn. Utvarpsstjóri ætlar ss.
ekki að brenna sig á sama hlutn-
um tvisvar eða „brennt barn sæk-
ir í brunninn“ eins og meistari
Megas orðaði það af sinni ein-
stöku snilld.
-hmp
Gengisfelllingin
Vantraust í verki
Ólafur Ragnar Grímsson: Fastgengisstefnan
fokin. Launafólk mótmæli bráðabirgða-
lögum um kjaraskerðingu með allsherjar-
vinnustöðvun
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. maí 1988