Þjóðviljinn - 14.05.1988, Side 9
Kórtónleikar í Kópavogskirkju
Árlegir vortónleikar skólakór- dag kl. 17.00. Fram koma fjórir Stjórnandi kóranna er Þórunn
anna úr Kársnes- og Þinghóls- kórar, samtals 150 krakkar á Björnsdóttir.
skóla verða í Kópavogskirkju í aldrinum sjö til sautján ára.
Bókakaffi
Sýning á tölvu-
grafískum
Ijósmyndum
Sigurður K. Árnason fyrir framan
eitt verkanna sem hann sýnir í
Gallerí Borg. Mynd - Sig.
Myndlist
Sigurður
sýnir í
Gaiierí
Borg
Nú er nýbyrjuð sýning Sigurð-
ar K. Árnasonar á olíu og pastel-
myndum í Gallerí Borg.
Sigurður er fæddur í
Vestmannaeyjum, 1925, og
stundaði nám við Myndlistaskóla
Reykjavíkur og við Handíða- og
myndlistaskólann. Þetta er átt-
unda einkasýning Sigurðar, en
hann hefur auk þess tekið þátt í
fjölda samsýninga bæði hérlendis
og erlendis. Árið 1980 var Sig-
urður sæmdur gullmedalíu Acca-
demia Italia delle Arti e del La-
voro.
Sýningin stendur til 24. maí, og
er opin virka daga kl. 10:00-
18:00, og kl. 14:00-18:00 um
helgar.
LG
í dag kl. 14:00 opnar Ólafur
Engilbertsson sýningu á tölv-
ugrafískum Ijósmyndum í
Bókakaffi, Garðastræti 17.
Ólafur vann ljósmyndirnar
með teikniforritinu Lumena frá
Time Arts í Kaliforníu síðastliðið
sumar, en þá var hann við nám
við skólana Academy of Art sem
er opinn listaskóli og við skólann
Suite 3 d.
Frummyndir Ijósmyndanna á
sýningunni fylgja með í sjálf-
stæðu kveri, ásamt bálkinum
Áður en rafmagnið kemst á, sem
verður til sölu í Bókakaffi.
Sýningin er 3. einkasýning
Ólafs, en hann hefur áður sýnt
teikningar, málverk og grímur á
Mokka og Kaffi Gesti, auk þess
sem hann hefur tekið þátt í ýms-
um samsýningum, flestum með
súrrealistahópnum Medúsu
1982-87.
Bókakaffi er opið virka daga
kl. 9:00-22:00, kl. 10:00-22:00 á
laugardögum og kl. 14:00-22:00 á
sunnudögum.
LG
„Hér er byggt á raunveruleika Ijósmyndarinnar og einn af óteljandi
draumveruleikum hennar leiddur fram í rafeindabirtuna."
Óteljandi leiðréttingar
hafa þegar verið gerðar
á Gullfossi og Geysi
En ef þessi reykmettaða braut
tímir ekki að stansa
fyrir einu póstkorti
Það er hvergi sama tóbakið
Púströr kunna að hitna
og öxlar hallast að Nýju Guineu.
Laugardagur 14. maí 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
1 IúsnæÖisstofnun ríkisins
TÆKNIDEILD
Sími 696900
Útboð
Höfðahreppur
(Skagaströnd)
Hreppsnefnd Höfðahrepps, óskar eftir tilboðum í
byggingu parhúss, byggðu úr steinsteypu. Verk
nr. U.18.01. úr teikningasafni tæknideildar Hús-
næðisstofnunar ríkisins.
Brúttóflatarmál húss 212 m2
Brúttórúmmál húss 717 m3
Húsið verður byggt við götuna Skagavegur 10-
12, Skagaströnd, og skal skilafullfrágengnu sbr.
útboðsgögn.
Afhending útboðsgagna er á sveitarstjórnarskrif-
stofu Höfðahrepps, Túnbraut 1-3, 545 Skaga-
strönd, og hjátæknideild Húsnæðisstofnunarrík-
isins frá mánudeginum 16. maí 1988 gegn kr.
5000.- skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á sömu staði eigi síðar en
þriðjudaginn 31. maí 1988 kl. 11.00 og verða þau
opnuð að viðstöddum bjóðendum.
f.h. hreppsnefndar Höfðahrepps
Tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins.
Húsnæðisstofnun ríkísins
Starfsmenntun
i atvinnulífinu
Á vegum ráðuneytisins eru komin út í fjölriti erindi
sem flutt voru á ráðstefnu um starfsmenntun í
atvinnulífinu er haldin var 28. nóvember 1987.
Það hefur verið sent til þátttakenda. Þeim sem
ekki gátu setið ráðstefnuna en hafa áhuga á að
kynna sér erindin, er bent á að snúa sér til Bók-
sölu stúdenta, Félagsheimili stúdenta við Hring-
braut, sem hefur fjölritið til sölu.
Félagsmálaráðuneytið,
13. maí 1988.
Lausar stöður
I viðskiptadeild Háskóla íslands eru lausar til umsóknar eftir-
greindar tvær tímabundnar lektorsstöður. Gert er ráð fyrir að ráðið
verði í stöðurnar til þriggja ára:
1) Hálft starf lektors í rekstrarhagfræði með sérstöku tilliti til stjórn-
unar.
2) Hálft starf lektors í rekstrarhagfræði með sérstöku tilliti til upplýs-
ingatækni.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt
rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda, ritsmiðar og rann-
sóknir, svo og námsferil og störf, skulu sendar menntamálaráðu-
neytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 10. júní nk.
Menntamálará&uneytið,
10. maí 1988.
>
Útboð
Norðfjarðarvegur, Eskifjörður - Beljandi
''/v/m v V Vegagerð rikisins óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. Lengd vegarkafla 2,46 km, burðarlag 20.000 m3, skeringar 87.000 m3 og fyllingar 99.000 m3. Verki skal að fullu lokið 1. ágúst 1989. Utboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Reyðarfirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 16. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 30. maí.
k— - ■ Vegamálastjóri