Þjóðviljinn - 14.05.1988, Qupperneq 14
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra
Fundur kjördæmisráðs
Stjórn Kjördæmisráðs Ab. boðar til fundar í Lárusarhúsi sunnudaginn 15.
maíkl. 13-18.
Á dagskrá fundarins verða m.a.: 1. a) Útgáfumál, b) Starfið framundan, c)
Onnur mál. 2. Byggðamál.
Allir félagsmenn velkomnir. Formenn og stjórnir Alþýðubandalagsfélag-
anna, sveitarstjórnarfulltrúar og annað áhugafólk um byggðamál, er sér-
staklega hvatt til að mæta.
Stjórn kjördæmisráðs.
Seyðfirðingar
Opinn fundur
Hjörleifur Guttormsson alþingismaður ræðir þjóðmálin við lok Alþingis,
sunnudaginn 15. maí kl. 16 í Herðubreið.
Fyrirspurnir og umræður á eftir. Allir velkomnir. - Alþýðubandalagið.
Austurland
Björn Grétar
Ólafur Ragnar
ísland á tímamótum
Ólafur Ragnar Grímsson og Björn Grétar Sveinsson á opnum stjórnmála-
fundum á Austurlandi sem hér segir:
Egllsstaðlr:
Sunnudaginn 15. maí kl. 14 í Samkvæmispáfanum.
Eskifjörður:
Sunnudaginn 15. maí kl. 20.30 í Valhöll.
Neskaupstaður:
Mánudaginn 16. maí kl. 20.00 í Egilsbúð.
Fáskrúðsfjörður:
Þriðjudaginn 17. mí kl. 20.30 í Verkalýðsfélagshúsinu.
Alþýðubandalagið
í Reykjavík
Félagsfundur
fimmtudaginn 19. maí
kl. 20.30.
Steini
Svavar
Þeir skammta okkur frelsi,
þeir skammta okkur brauð.
Steini Þorvaldsson formaður Verslunarmannafélags Árnessýslu og Svavar
Gestsson alþingismaður fjalla um nýliðin og yfirstandandi stéttaátök.
Félagar! Fjölmennum og ræðum hvað við sem sósíalistar getum lært af
atburðum undanfarinna vikna og hvernig við eigum að bregðast við.
Stjórn ABR
Alþýðubandalagið Siglufirði
Félagsfundur
Félagsfundurmánudaginn 16. maí kl. 20.30. Ragnar Arnalds kemur
og ræðir stjórnmálaástandið.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Reykjavík
Spilakvöld ABR
Síðasta spilakvöldið í þessari lotu verður haldið þriðjudaginn 17. maí kl.
20.30 aö Hverfisgötu 105.
Vegleg lokaverðlaun. Kaffi og meðlæti. Allir velkomnir.
________________________________________________ABR
Sumardvöl á Laugarvatni
Hinar sívinsælu sumarbúðir Alþýðubandalagsins á Laugar-
vatni verður í sumar vikuna 18. - 24. júlí.
Umsjón verða í höndum Margrétar Frímannsdóttur og Sigríðar Karlsdóttur.
Allar nán^fi upplýsingar í síma 17500. Alþýðubandalagið
P*J| Hofsstaðaskóli -
V vorskóli
Vorskóli fyrir börn fædd 1981 hefst í Hofsstaöa-
skóla mánudaginn 16. maí kl 10.00.
Vorskólinn stendur yfir frá 16.-20. maí.
Skólastjóri.
ÍÞRÓTTIR
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. maí 1988
Dæmigerð mynd af fótboltanum í fyrra. Hörð barátta í leik KR og Þórs.
Fótbolti-SL deild
Jafnara en áður
íslandsmótið hefst í dag. Alltstefnir íjafnt og skemmtilegt
mót. Utlendingar á heimleið
íslandsmótið í knattspyrnu
hefst á morgun. Sem kunnugt er
þá kallast 1. deiidin nú SL-deild
vegna stuðnings Samvinnu-
ferða-Landsýnar við mótið. Það
er nánast sama hvert litið er, allir
virðast sammála um að mótið
verði jafnara en áður og erfiðara
að flokka liðin niður eftir styrk-
leika.
Astæðan fyrir þessari breyt-
ingu er einfaldlega sú að öll liðin
eru vís til að hirða stig frá hvaða
liði sem er, og einnig að í
deildinni í ár geta bestu liðin ekki
leyft sér að vera örugg með neinn
leik. Gott dæmi um þetta er að nú
er Fram spáð meistaratitli af fé-
lögunum sjálfum, enda þótt þeir
hafi þegar tapað tveimur titlum.
Þá vekur athygli að íslands-
meistararnir, Valur, hefur misst
fjölda manna í önnur lið og munu
þeir eflaust eiga erfitt uppdráttar
með að verja titilinn. Annað
Reykjavíkurlið, Víkingur, er
nánast andstæða Valsmanna.
Þeir koma upp úr 2. deild, en ný-
liðum hefur ekki vegnað sem best
undanfarin ár, en hafa hins vegar
fengið fjölda leikmanna til sín
þannig að þeir eru til alls líklegir í
sumar.
Menn hafa jafnan gaman af að
spá í stöðu liða fyrir íslandsmót
og er sjaldan mikil alvara í slíkum
spádómum. Því væri gaman að
líta sem snöggvast á liðin sem
leika í SL-deildinni með tilliti til
möguleika hvers liðs.
Fram
Eins og áður sagði er Frömur-
um spáð sigri á mótinu í ár. Fáir
eru hissa á þessari útkomu þar
sem í liðinu eru landsliðsmenn
nánast í hverri stöðu. Hins vegar
hefði liðið með sömu röksemda-
færslu átt að verða meistari í fyrra
þannig að Framarar eiga titilinn
alls ekki vísan í ár.
Af breytingum í liðinu ber fyrst
að nefna markmannaskiptin,
Birkir í stað Friðriks. Þá missa
Framarar Keflvíkingana Ragnar
Margeirsson og Einar Ásbjörn
Ólafsson, en þeir fundu sig aldrei
verulega í Safamýrinni. Hins veg-
ar kemur Ómar Torfason heim
frá Sviss og mun hann áreiðan-
lega styrkja liðið mikið. Framar-
ar verða því á svipuðu styrk-
leikastigi og í fyrra og verða í
fyrsta eða öðru sæti.
Valur
Valsmönnum er ekki spáð
mikilli velgengni í sumar. Þeir
hafa misst marga menn og þá er
Ian Ross farinn frá félaginu, en
hann hafði náð mjög góðum ár-
angri með liðið. Mestu munar um
Sævar Jónsson sem yfirgefur hina
sterku Valsvörn. Þá getur Guðni
Bergsson ekki leikið með liðinu í
bráð þannig að vörnin verður
varla eins sterk og í fyrra. Hins
vegar kemur Atli Eðvaldsson til
liðsins og verður hann vafalaust
liðinu mikill styrkur. Einnig hafa
þeir fengið Jón Gunnar Bergs og
Tryggva Gunnarsson og gætu
þeir orðið öðrum liðum skeinu-
hættir. Valsmenn eiga áreiðan-
lega eftir að verða góðir þegar
líður á sumarið og enda í 2.-4.
sæti.
KR
Gamla knattspyrnustórveldið
byrjar sumarið vel. Liðið vann
sinn fyrsta titil í tíu ár á dögunum
undir öflugri stjórn Ian Ross.
KR-ingar hafa nú svipaðan
mannskap og í fyrra, en hafa þó
misst Andra Marteinsson af
miðjunni. Liðið hefur verið í
uppsveiflu síðustu misserin en
herslumuninn vantað og er ekki
ólíklegt að hann komi nú undir
agaðri stjórn Ross. KR-ingar
verða í 1.-3. sæti í ár.
Akranes
Akurnesingar verða eflaust
sterkir í sumar þó að erfitt sé að
reikna með þeim á toppnum. Þeir
hafa misst Birki til Fram og þá
eru Sveinbjörn Hákonarson og
Valgeir Barðason farnir. Á móti
fá þeir Ólaf Gottskálksson, Mark
Duffield og þá er Karl Þórðarson
byrjaður að leika með liðinu að
nýju. Skagamenn verða í 3.-5.
sæti í sumar.
Víkingur
Víkingar eru nýliðar í deildinni
en verða engu að síður mjög
sterkir. Þeir hafa endurheimt
Andra frá KR ásamt mörgum
öðrum góðum leikmönnum og
Júrí Sedov virðist vita vel hvað
hann er að gera. Þá kemur Lárus
Guðmundsson heim f sumar og
varla versnar liðið við það. Vík-
ingar enda í 4.-6. sæti.
Keflavík
Mikill Iiðsauki hefur borist til
Keflavíkurliðsins. Ragnar og
Einar Ásbjörn sneru heim frá
Fram og Grétar, Daníel og Kjart-
an Einarssynir koma frá Víði.
Frank Upton ætti því að hafa úr
ágætum mannskap að ráða en þó
erfitt að staðsetja liðið í
deildinni. Keflvíkingar verða um
miðja deild en gætu þó farið ofar.
Segjum 5.-7. sæti.
Þór
Þórsarar eru með nánast sama
lið og í fyrra. Þó hafa þeir misst
Árna Stefánsson en fengið þess í
stað Birgi Skúlason úr Völsungi.
Jóhannes Atlason þjálfar liðið en
Þórsarar hafa verið mjög ánægðir
með hans störf hjá félaginu. Þós-
arar koma áreiðanlega til með að
hirða stig af hvaða liði sem er en
varla er hægt að spá þeim ofar en
5.-7. sæti. Ekki má gleyma að lið-
ið lenti í 3. sæti árið 1984 eftir
miklar hrakspár í upphafi
sumars.
KA
Hitt Akureyrarliðið, KA,
verða óútreiknanlegir í sumar.
Litlar breytingar hafa átt sér stað
í liðinu en þjálfari þeirra er Guðj-
ón Þórðarson. Þeir hafa frekar
ungu liði á að skipa og getá lent
svo að segja hvar sem er í
deildinni. Eg ætla því að leyfa
mér rnikil óvissumörk á KA liðið
og setja þá í 6.-9. sæti.
Völsungur
Húsvíkingar munu eiga erfitt
uppdráttar í sumar. Þeir eru að
mestu með svipað lið og í fyrra en
þá var þeim einmitt spáð falli.
Þeir létu slíkar hrakspár sem vind
um eyru þjóta og kannski verður
það sama uppi á teningnum í ár.
Þeir muna örugglega hanga lengi
á góðum heimavelli en setjum þá
í 8.-10. sæti.
Leiftur
Ólafsfirðingar eru algjört
spurningarmerki í ár. Þeir komu
á óvart er þeir komust upp í 1.
deild í fyrra og gætu allt eins tekið
upp á því að halda sér uppi. Þeir
hafa mjög sterkan heimavöll sem
verður væntanlega martröð ann-
arra liða. Ég leyfi mér þó að spá
þeim stuttri veru í deildinni og set
þá í 9.-10. sæti.
-þóm