Þjóðviljinn - 13.04.1989, Síða 11
Utanríkis-
ráðherra
verður sér
enn til
skammar
Ummæli Jóns Baldvins utan-
ríkisráðherra nýlega um Græn-
friðunga eru alveg forkastanleg.
Hann líkti baráttu þessara manna
við aðferðir nasistanna á sínum
tíma. Það er furðulegt að maður í
þessari stöðu skuli viðhafa aðra
eins firru og að líkja Grænfrið-
ungum við einhverja mestu
glæpamenn mannkynssögunnar.
Grænfriðungar hafa unnið
mjög gott starf í sambandi við
umhverfisvernd þó að þeir séu á
villigötum í baráttu sinni gegn
hvalveiðum. Vitaskuld á að veiða
hvali eins og önnur sjávardýr, en
menn verða auðvitað að fara með
gát þar eð viðkoma þessara dýra
er mjög hæg. Það vita fáir betur
en íslendingar og þess vegna er
þeim treystandi til að stjórna
veiðunum af skynsemi.
Þó að íslendingar séu Græn-
friðungum reiðir og það með
réttu, munu fáránleg ummæli
utanríkisráðherrans aðeins skaða
málstað okkar sjálfra. Jóni Bald-
vin ferst heldur ekki að væna and-
stæðinga okkar í hvalamálinu um
ofbeldisaðgerðir, hann styður
sjálfur í orði og á borði mestu
ofbeldismenn sem nú eru uppi,
það er að segja ísraelsmenn.
Meðferð þeirra á Palestínufólk-
inu bæði núna þessa dagana og
gegnum tíðina er svo hroðaleg að
maður er algerlega agndofa. Og
að maður eins og íslenski utanrík-
isráðherrann, sem kennir sig við
frelsi, jafnrétti og bræðralag,
skuli tala máli þeirra, er með slík-
um ólíkindum að orð fá því ekki
lýst.
Guðjón V. Guðmundsson
Laugardags-
útgáfa
Margir hafa hringt til Þjóðvilj-
ans til að spjalla um „stóra blað-
FRA LESENPUM
ið“ 1. apríl - og það sem síðar
kom í ljós: að það var síðasta
laugardagsblaðið um óákveðinn
tíma.
Yngri lesendur blaðsins voru
yfirleitt stórhrifnir af stóra brot-
inu og mörgum þeim eldri var
líka skemmt, en þeir voru samt
ánægðir með að þetta skyldi ekki
eiga að vera framtíðarbrot á blað-
inu. Einn lesandi sagðist ætla að
geyma blaðið og æfa sig á því
áður en hann færi til útlanda og í
stórbrotsblöðin þar! Annar sagði
að það heföi gefið ákaflega góða
tilfinningu að vera svona lengi
með hverja opnu. Þeir sem kvört-
uðu undan brotinu sögðu að þeir
hefðu ekki ráðið almennilega við
það, þurft að hnoða því saman til
að geta lesið það, og svo væri ekki
nokkur leið að lesa það í rúminu!
Lesendur hafa tekið niðurfell-
ingu laugardagsblaðs með skiln-
ingi þó að öllum finnist afleitt að
fá ekki nýtt blað á laugardegi.
Einn lesandi sagðist lesa helgar-
blaðið betur fyrir vikið, það væri
svo efnismikið að hann kæmist
ekki yfir það í einni atrennu.
Annar sagði blaðinu upp með
þeim orðum að það besta sem
hann vissi væri að fá nýtt blað á
helgarmorgnum og missir laugar-
dagsblaðsins hefði svipt hann
þeirri gleði þann dag.
Við á ritstjórn vonum að
bráðum komi betri tíð og blaðið
eflist og dafni, bæði laugardaga
og aðra daga, en þökkum kær-
lega fyrir áhugann.
Ætlum við að láta það viðgangast afskiptalaust?
Margar ljósmyndir hafa verið
teknar af jörðinni sem við byggj-
um utan úr geimnum. Eina slíka
ljósmynd hef ég fyrir framan mig
þegar bréf þetta er ritað.
Utan úr geimnum séð er jörð-
in, þessi bláhvíta pláneta,
vistlegasti og kærkomnasti un-
aðsreitur sem gefur á að líta í
geimnum, að sögn geimfara frá
jörðinni. Þessi gimsteinn í
geimnum er samt ekki sú paradís
sem halda mætti, hátt frá himn-
um séð, því undir hvítri skýjahul-
unni byggir plánetuna mannkyn
sem á í stöðugu stríði og deilum,
og sannast þar hið fornkveðna að
ekki er allt gull sem glóir.
Sagan vitnar um að í gegnum
aldirnar hefur mátt flokka
mannkynið í tvo hópa, hina eigin-
gjörnu og ágjörnu og hina fórn-
fúsu unnendur bræðralags alls
mannkyns. Hinir fyrrnefndu hafa
á sér yfirskin guðhræðslunnar,
markmið þeirra er að auðgast á
kostnað þeirra sem minna mega
sín. Þeir eru oft kallaðir hægri
menn og búa „í vestri“.
Hinir síðarnefndu iðka
bræðralag og kærleika til manna
og sýna það í verki. Þeir vinna
fyrir heildina, samfélagið, þannig
að allir hafi sama rétt, allir hafi
nóg og enginn þurfi að líða skort.
Þessir menn eru nefndir vinstri
menn og búa „í austri". Þeir eru
gjarnan uppnefndir sósíalistar og
kommúnistar, og í vestri hafa
börn hægri manna fengið að
heyra draugasögur alveg fram í
andlátið af rússagrýiunni ógur-
legu, jafnvei um hábjarta daga.
Það hefur nefnilega ávallt ver-
ið þannig, að þegar friðelskandi
fólk hefur viljað koma á jafnrétti
og bræðralagi, og bent á lesti
fólks „af góðu fólki“, þá hefur
slíkt verið kallað stríðsyfirlýsing í
herbúðum íhaldsins. Þá hafa
„sökudólgar" verið drepnir og
jafnvel nú sem aldrei áður vígbú-
ist, framleiddar helsprengjur og
drápstækin sýnd. Það dugir ekk-
ert minna hjá auðvaldinu vestur í
Bandaríkjum Ameríku, og hér á
landi, en að hóta friðelskandi
fólki dauða og eyðileggingu.
Þannig hefur þetta verið gegnum
tíðina, og nú tekur helstefna
auðvaldsins stefnu á ísland og
ætlar að æfa sig í drápstækni
kringum þjóðhátíðardag okkar.
Ætium við að láta slíkt við-
gangast afskiptalaust? Fari það
sótbölvað!
Ég mæli með því að við sýnum
þessum hermönnum, yfirvaldi
þeirra hér á landi og íslenskum
skósveinum þeirra nokkur vel
valin slagorð, með það í huga að
penninn er máttugri en sverðið,
eins og segir einhvers staðar.
Einnig þess vegna verðum við
að eiga gott málgagn og útbreiða
það sem víðast, „um allar j arðir“.
Það málgagn er Þjóðviljinn.
Að lokum vil ég beina þeim
tilmælum til Samtaka herstöðva-
andstæðinga að þeir standi fyrir
mótmælaaðgerðum vítt og breitt
um suðvesturhornið og auglýsi
þær vel og tímanlega.
Nú reynir á samtakamátt
friðelskandi manna. Látum ekki
okkar eftir liggja. ísland úr
NATO - herinn burt!
Með baráttukveðjum,
Einar Ingvi Magnússon
Á fjölmennum fundi Samtaka
herstöðvaandstœðinga í Háskóla-
bíói 2. apríl var boðuð stofnun
heimavarnarliðs til að fylgjast
með œfingum bandarískra her-
sveita á Reykjanesskaga í sumar.
Vœntanlega verður liðssöfnun
þessi kynnt nánar von bráðar.
I DAG
þJOÐVILJINN
FYRIR 50 ÁRUM
Chamberlain reynir enn að
„semja“ við Mussolini. Brezka
stjórnin dregur á langinn samn-
inga við Balkanríkin um hernað-
araðstoð.
Þvottakvennafélagið „Freyja".
Fundur með kaffidrykkju verður
haldinn á Amtmannsstíg í kvöld
kl. 8,30. Rætt verður um geng-
ismálið o.fl.
13. APRÍL
fimmtudagur í tuttugustu og
fimmtu viku vetrar, tuttugasti og
fjórði dagur einmánaðar, 103.
dagur ársins. Sól kemur upp í
Reykjavík kl. 6.03 en sest kl.
20.55. Tungl vaxandi á öðru
kvartili.
VIÐBURÐIR
Stóridómur staðfestur af konungi
1565. Þjóðhátíðardagur Tsjad.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavik. Helgar- og kvöldvarsla lyfj-
abúöavikuna
7.-13. apríl er í Breiðholts Apóteki og
Apóteki Austurbæjar.
Fyrrnefnda apótekið er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til
10 fridaga). Síðarnefnda apótekið er
opið á kvöldin 18-22 virka daga og á
laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
Reykjavík sími 1 11 66
Kópavogur..........sími 4 12 00
Seltj.nes..........sími 1 84 55
Hafnarfj...........sími 5 11 66
Garðabær...........sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabílar:
Reykjavik..........sími 1 11 00
Kópavogur..........sími 1 11 00
Seltj.nes..........sími 1 11 00
Hafnarfj...........sími 5 11 00
Garðabær...........sími 5 11 00
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavík, Sel-
tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur alla virka daga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi-
dögum allan sólarhringinn. Vitj-
anabeiðnir, símaráðleggingar og tíma-
pantanir í síma 21230. Upplýsingar um
lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í sim-
svara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8-
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eða ná ekki til hans. Landspít-
allnn: Göngudeildin er opin 20-21.
Slysadeild Borgarspítalans: opin allan
sólahringinn simi 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan
sími 53722. Næturvakt lækna simi
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt s.
656066, upplýsingar um vaktlækna s.
51100.
Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið-
stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s.
22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445.
Farsími vaktlæknis 985-23221.
Keflavik: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt læknas.
1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartímar: Landspítalinn: alla
daga 15-16,19-20. Borgarspítalinn:
virkadaga 18.30-19.30, helgar15-18,
og eftir samkomulagi. Fæðlngardeild
Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30-
20.30. Öldrunarlækningadeild Land-
spítalans Hátúni 10 B. Alladaga 14-20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala: virka daga 16-19, helgar
14-19.30. Heilsuverndarstöðin við
Barónsstígopinalladaga 15-16og
18.30-19.30. Landakotsspítali: alla
daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild:
heimsóknir annarra en foreldra ki. 16-17
daglega. St. Jósefsspítali Hafnarfirði:
alladaga 15-16og 19-19.30. Klepps-
spftalinn: alla daga 15-16 og 18.30-19.
SJúkrahú8lð Akureyri: alladaga 15-16
og 19.19.30. Sjúkrahúsið
Vestmannaeyjum: alla virka daga 15-
16og 19-19.30. SJúkrahúsAkraness:
alla daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra-
húsið Húsavik: alla daga 15-16 og
19.30-20.
ÝMISLEGT
Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung-
lingaTjarnargötu 35. Sími: 622266, opið
allansólarhringinn.
Sálfræðistöðin. Ráðgjöf i sálfræðilegum
efnum. Sími 687075.
MS-félagið Álandi 13. Opið virka dagafrá
kl. 10-14. Sími 688800.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum Vestur-
götu 3. Opiö þriðjudaga kl.20-22,
fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22,
SÍmi 21500, slmsvari.
Sjálf sh jálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrirsifjaspellum, s. 21500, símsvari.
Upplysingar um eyðni. Sími 622280,
beint samband við lækni/hjúkrunarfræðing
á miðvikudögum kl. 18-19, annars sím-
svari.
Samtök um kvennaathvarf, sími 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar
hafa verið of beldi eða orðið fyrir nauðgun.
Samtökin '78. Svarað er í upplýsinga- og
ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21-
23. Símsvari á öðrum tímum. Síminn er
91-28539.
Félag eldri borgara. Opiö hús I Goðheim-
um, Sigtúni 3, alla þriöjudaga, fimmtudaga
ogsunnudagakl. 14.00.
Bilanavakt (rafmagns-og hitaveitu:s.
27311. Raf magnsveita bilanavakt s.
686230.
Vinnuhópur um sifjaspellamái. Simi
21260allavirkadagakl. 1-5.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga-
nema, er veitt í síma 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 á fimmtudagskvöldum.
„Opið hús“ krabbameinssjúklinga
Skógarhlið 8 er „Opið hús“ fyrir alla krabb-
ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á
fimmtudögum kl. 17.00-19.00.
Samtök áhugaf ólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka
og aðstandendur þeirra. Hringið í síma91 -
22400 alla virka daga.
GENGIÐ
12. apríl
1989 kl. 9.15.
Sala
Bandaríkjadollar............ 53,18000
Sterlingspund............... 89,91400
Kanadadollar................ 44,68000
Dönsk króna.................. 7,25510
Norskkróna................... 7,78280
Sænsk króna.................. 8,29900
Finnsktmark................. 12,60190
Franskurfranki............... 8,35700
Belgískur franki........ 1,34800
Svissn. franki.............. 31,92460
Holl.gyllini................ 25,00410
V.-þýsktmark................ 28,21000
ftölsk lira.................. 0,03851
Austurr. sch................. 4,00800
Portúg.escudo................ 0,34280
Spánskur peseti.............. 0,45490
Japanskt yen................. 0,40041
irsktpund................... 75,29000
KROSSGÁTA
I Lárétt: 1 þekkt 4 nálg-
1 2 3 « S é 5 ast 8 töf 9 reykir 11 for- faðirinn 12 flatfiskur 14 samtök 15 kyrtil 17 gorti 19lesandi21 hratt 22 grannur 24 bað 25 fmyndun. Lóðrétt: 1 gripahús2 guðir 3 benda 4 röskur 5 áþján 6 minnast 7 ella 10 hæða 13 bragð 16 rispa17hnöttur18 borðuðu 20 heiður 23
m •
0 10 m 11
12 " 13 □ ’«
m 18 1« L -J hest Lausn á sfðustu krossgátu Lárétt: 1 gums4skek8 Ökumann9ögri11 árna12fíknin14il15 Íðar17kjáni19asi21 Ias22naut25flói LÓAlAtt- 1 nrnf P mnrlr
10 L- J 10 20
íi 22 □
24 r: 2« ' lwjiwii i yiui aiiiuik 3 skinin 4 smána 5 kar 6 enni 7 knalli 10 gígjan 11 iAirt 1 C roi iM ~7 L-IA < O
i o loin i o raui i f kio 1 o ása 20 stóð 23 af
Flmmtudagur 13. apríl 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11