Þjóðviljinn - 17.08.1989, Side 2
FRETTIR
Vextir
Raunvextir enn háir
Eiríkur Guðnason, Seðlabanka: Nafnvextir hafa lœkkað en horfur áháum raunvöxtum.
Vextir hœkkandi erlendis. Már Guðmundsson:
Lánsfjáröflun ríkissjóðs innanlands hœkkar ekki vexti
hefðu nafnvextir verið 12% í
30% verðbólgu.
Á þriðja ársfjórðungi, sem nú
stendur yfir, sagði hann að horfur
væru á mjög háum raunvöxtum,
en að nafnvextir lækkuðu. Sagð-
ist Eiríkur allt eins eiga von á því
að raunvextir næðu tveggja stafa
tölu á þessum hluta ársins, án
þess að vilja slá nokkru föstu í
þeim efnum. Helsti munurinn á
okkur og öðrum löndum væri sá
að vextir væru mjög sveiflukenn-
dir vegna þeirra sveiflna sem
væru í verðbólgunni sem yllu
heilmiklum vanda. Neikvæðir
vextir eins og á fyrsta árs-
fjórðungi væru fyrirbæri sem
önnur lönd þekktu ekki. Kannski
væru bankarnir að jafna þetta út
með hærri raunvöxtum nú. Horf-
ur væru á vaxtahækkunum er-
lendis sem hefðu áhrif á vexti
afurðarlána hér.
Algengustu vextir af verðt-
ryggðum lánum eru nú 7,4% að
sögn Eiríks, sem hann sagði
nokkuð háa vexti. Peir hefðu
lækkað í júlí úr um 8% í samræmi
við lækkun ríkisins á sínum vöxt-
um. Már Guðmundsson sagði að
bankakerfið hefði enn ekki að
fullu aðlagað sig að lækkun vaxta
ríkissjóðs. Sala á ríkisskulda-
bréfum og ríkisvíxlum hefði
gengið mjög vel og innlend láns-
fjáröflun myndi ekki hafa áhrif á
vextina.
Már sagði ríkissjóð þurfa að
afla sér 4,5 milljarða nettó innan-
lands. Nú þegar hefðu spariskír-
teini selstfyrirl,7milljarðkróna
og ríkisvíxlar fyrir 3,2 milljarða.
Ríkissjóður væri því þegar búinn
að afla 400 milljónum meira en
stefnt var að. Þrír milljarðar
kæmu til innlausnar í haust og yki
það vonir um frekari sölu, þar
sem algengt væri að þeir sem inn-
leystu keyptu ný skírteini.
-hmp
Eiríkur Gyðnason hjá Seðla-
banka Islands segir að
nafnvextir hafi verið að lækka að
undanförnu. Meðalvextir víxil-
lána hafi náð hámarki á þessu árí
um mánaðamótin júní júlí en þá
voru þeir 34%. Núna 40 dögum
síðar eru nafnvextir víxillána að
meðaltali 28% og segist Eiríkur
eiga von á því að nafnvextir haldi
áfram að lækka. Már Guð-
mundsson, efnahagsráðgjafi fjár-
málaráðherra, segir að lánsfjár-
öflun ríkissjóðs innanlands gangi
vel.
Horfur á lækkun raunvaxta eru
tvísýnar, að áliti heimildarmanns
í bankakerfinu. Hann sagði þá að
öllum líkindum koma til með að
standa í stað út árið en möguleiki
væri á að þeir hækkuðu eitthvað.
Ef litið er á víxilvexti, en víxil-
vextir eru raunvextir þar sem þeir
eru ekki verðtryggðir, voru þeir
lágir í upphafi árs og raunar nei-
kvæðir, að sögn Eiríks. Vextirnir
hefðu einnig verið lágir á öðrum
ársfjórðungi. Ef miðað væri við
gömlu lánskjaravísitöluna hefðu
víxilvextir að meðaltali verið nei-
kvæðir um 9,1% á fyrsta ársfjórð-
ungi en jákvæðir um 2,6% á öðr-
um. Miðað við nýju lánskjaravís-
itöluna hefðu þeir verið - 2,7% á
fyrsta ársfiórðungi en +5,5% á
öðrum. Á fyrsta ársfjórðungi
Hundadagar ‘89
Tríó
Kauniainen
Finnsktpíanótríó leikur
verk eftir Sjostakóvits,
Porkel Sigurbjörnsson
og Madetoja í Öperunni í
kvöld
Petri Sakari, aðalstjýrnandi
Sinfóníuhijómsveitar Islands,
leiðir í kvöld tónleika finnska pí-
anótríósins Trio Kauniainen í Is-
lensku Óperunni. Tríóið hefur
starfað undir forystu Sakaris um
tíu ára skeið, en auk þess að vera
hljóinsveitarstjóri er Sakari fiðlu-
leikari og var konsertmeistari í
hljómsveitum í Finnlandi þegar
hann var um tvítugt.
Aðrir meðlimir tríósins eru Ja-
akko Raulano sellóleikari, sem
starfar sem fyrsti sellisti í Fíl-
harmóníuhljómsveit Helsinki og
Helsinki kammersveitinni og Pir-
rko Hyttinen píanóleikari, sem er
þekktur einleikari og kammerm-
úsíkant í Finnlandi. Tríóið stofn-
uðu þau þegar þau voru öll kenn-
arar við lítinn „úrvals" músík-
skóla í Kauniainen og koma enn1
Petri Sakari, Pirrko Hyttinen og Jaakko Raulanen æfa fyrir tónleikana, Þorkell Sigurbjörnsson fylgist með.
Mynd - Kristinn.
saman í nokkra mánuði á ári, æfa
og halda tónleika í Finnlandi og
erlendis.
Á efnisskrá tónleikanna, sem
hefjast kl. 20:30, verða tvö tríó
eftir Sjostakóvíts, það fyrra
æskuverk en það seinna samið í
hreinsunum Stalíns miðjum.
Seinna tríóið fékkst ekki flutt fyrr i
en löngu eftir að það var samið,
en er nú talið til mestu meistara-
verka í kammermúsík nútímans
bæði austan tjalds og vestan. Auk
þess leikur Tríó Kauniainen ný-
legt verk eftir Þorkel Sigur-
björnsson, Three faces of pant-
omime, samið fyrir Scandinavia
today í Bandaríkjunum, og er
það frumflutningur tónsmíðar-
innar hér á landi. Lokaverk tónl-
eikanna er síðan Trio op. 1 eftir
Levi Madetoja, sem mun hafa
verið uppáhaldsnemandi Sibe-
liusar. Hefur það verk ekki held-
ur heyrst áður á tónleikum hér á
landi.
LG
Dagleg störf í Árbæjarsafni
Á laugardaginn kemur verður efnt til sýningar í Árbæjarsafni sem ber
heitið Dagleg störf fyrri tíma. Sýningin verður einungis opin þennan
eina dag milli kl. 13 og 17 og á henni verður kynnt tóvinna, mjólkur-
vinna, skeifusmíði, netahnýtingar, tréskurður, rímnakveðskapur,
harmónikkuleikur og bakstur. í tilefni þessarar sýningar hefur safnið
fengið til liðs við sig fjölda sjálfboðaliða, einkum af eldri kynslóðinni.
, Yfirstjórn
íslandsbanka
Nýkjörið bankaráð íslandsbanka
kom saman til fundar á þriðju-
daginn og gekk þar frá ráðningu
bankastjóra og skipan í æðstu
stöður hins nýja banka. Banka-
stjórar voru ráðnir þeir Valur
Valsson sem er formaður bank-
astjórnar, Björn Björnsson og
Tryggvi Pálsson. Þá var Ásmund-
ur Stefánsson kjörinn formaður
bankaráðsins, Gísli V. Einarsson
varaformaður og Brynjólfur
Bjarnason ritari. Bankaráðið á-
kvað ennfremur að skipta starf-
semi bankans upp í sex svið sem
hvert lúti forystu ýmist banka-
stjóra eða framkvæmdastjóra. Er
gert ráð fyrir að þeir víxli störfum
á nokkurra ára fresti. Ráðið á -
kvað að bjóða Guðmundi Hauks-
syni, Jóhannesi Siggeirssyni,
Kristjáni Oddssyni og Ragnari
Önundarsyni stöður fram-
kvæmdastjóra. Þá var Guðmundi
Haukssyni falið að annast dag-
legan rekstur Útvegsbankans til
áramóta þegar íslandsbanki
leysir hann af hólmi.
Skýrsla um byggð
í V-Skaftafellssyslu
Byggðastofnun hefur gefið út rit-
ið „V-Skaftafellssýsla austan
Mýrdalssands - Atvinnulíf og
byggðaþróurí*. í ritinu er varpað
ljósi á atvinnulíf þessa svæðis og
reynt að spá í líklega þróun næstu
ára. Einnig eru settar fram til-
lögur sem talið er að yrðu
atvinnulífi til framdráttar. í sér-
stökum kafla er fjallað um sam-
einingu sveitarfélaga á þessu
svæði en það skiptist nú í fimm
hreppa með alls 661 íbúa. Er það
niðurstaða skýrsluhöfundar,
Árna Jóns Elíassonar á Kirkju-
bæjarklaustri, að „sameining
allra hreppa á svæðinu sé æskileg
og jafnframt líkleg til að verða
svæðinu til aukins framdráttar á
komandi árum“.
Héraðssaga úr
A-Skaftafellssýslu
Á Höfn í Hornafirði er komið út
6. hefti héraðssöguritsins
Skaftfellings sem hefur verið gef-
ið út annað hvert ár frá 1978. f
ritinu er ma. þáttur um rafork-
umál í A-Skaftafellssýslu, þættir
um Skarphéðin Gíslason á
Vagnsstöðum og Sigurð Jónsson
á Stafafelli um störf þeirra, um
leikstarfsemi á Mýrum, um upp-
skipun á vörum í Öræfum, um
Eddustrandið 1934, ferðir yfir
Skeiðarársand ofl. Ritnefnd
Skaftfellings skipa Sigurður
Björnsson ritstjóri, Páll Björns-
son, Guðbjartur Óssurarson og
Zophonías Torfason en dreifingu
ritsins annast Gísli Sverrir Árna-
son, Hrísbraut 10 á Höfn, sími
97-81678.__________________
íslenskir torfbæir
í Norræna húsinu
íslenskir torfbæir og gömul hús
verða umræðuefni Þórs Magnús-
sonar þjóðminjavarðar í erindi
sem hann flytur á sænsku fyrir
norræna ferðamenn í Norræna
húsinu annað kvöld, fimmtudag,
kl. 20.30. Þór ætlar að skýra mál
sitt nánar með litskyggnum en að
erindi hans loknu verður kaffihlé
og síðan verður sýnd kvikmyndin
Sveitin milli sanda eftir Ósvald
Knudsen. Þetta er næstsíðasta
opna húsið í Norræna húsinu á
þessu sumri.
Kynning á
skólagörðum
Reykj avíkurborg á 203 ára af-
mæli á morgun, föstudag. Af því
tilefni bjóða Skólagarðar
Reykjavíkur foreldrum sem eiea
börn í görðunum eða hyggjast
senda börn sín í garðana næsta
sumar að koma og kynna sér
starfsemi þeirra. Alls eru starf-
ræktir sjö skólagarðar í Reykja-
vík, í Árbæ, við Ásenda, í Folda-
hverfi austan við Logafold, í
Laugardal, við Jaðarsel, í Skild-
inganesi og á Stekkjarbakka.
Garðarnir eru fyrir börn á aldrin-
um 8-12 ára. Þeir verða opnir á
morgun frá kl. 9.00-15.30 og
veita starfsmenn þeirra fræðslu
um geymslu, frystingu og mat -
reiðslu á grænmeti.
Kjartan í Genf
Kjartan Jóhannsson nýskipaður
sendiherra er kominn til Genfar
þar sem hann afhenti fyrir
skömmu Jan Martenson, fram-
kvæmdastjóra skrifstofu Samein-
uðu þjóðanna, trúnaðarbréf sitt
sem fastafulltrúi hjá alþjóða-
stofnunum í Genf.
Kvefpest að
ganga í Reykjavík
Ef marka má skýrslu frá borgar-
lækni voru talsvert margir
Reykvíkingar hrjáðir af kvefpest
í júnímánuði. Alls voru 540
manns skráðir með kvef eða aðra
veirusýkingu í efri loftvegum en
62 með sýkingu í þeim neðri, þe.
þörmunum. Þá voru skráð 37
lungnabólgutilfelli í mánuðinum
en lítið sem ekkert af öðrum pest-
um.
2 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Fimmtudagur 17. ágúst 1989