Þjóðviljinn - 17.08.1989, Blaðsíða 9
SKÁK
Jón L. Árnason íslandsmeistari í skák fyrir árið 1988
Einvígi hinna
glötuðu tækifæra
.. HHIIIIIIIM ~~— 34. Re6
Einvígið um Islandsmeistara-
titilinn milli Jóns L. Árnasonar og
Margeirs Pétursonar 1988 tók
loksins enda sl. þriðjudagskvöld
er Jón L. Árnason vann áttundu
skák einvígisins og lauk þar með
bráðabananum sem þeir félagar
hófu að afloknu Norðurlanda-
mótinu í skák í Finnlandi. Er ein-
víginu lauk var eitt ár frá því að
keppni í landsliðsflokki á Skák-
þingi íslands ’88 hófst. Lokatölur
urðu 4V2:3l/2.
Nafngiftin „einvígi hinna
glötuðu tækifæra“ er ekki fjarri
lagi, því báðir klúðruðu upp-
lögðum tækifærum. Jón var þó
alltaf heldur nær sigri. Hann náði
forystunni með auðveldum sigri í
1. skákinni, Margeir átti unnið
tafl í þriðju skákinni, en lék
hrottalega af sér og varð að verj-
ast af nákvæmni til að halda
jöfnu. í fjórðu skákinni tókst
honum að vinna með svörtu og
jafna metin á síðustu stundu. Þeir
tefldu tvær skákir til viðbótar.
Margeir fékk gott tafl í fimmtu
skákinni, en lék því öllu niður og
Jón var sennilega með auðunna
stöðu sem hann klúðraði. Sjötta
skákin var viðburðasnautt jafn-
tefli og svo héldu þeir til Finn-
lands.
í sjöundu einvígisskákinni náði
Jón að jafna taflið, en varð á óná-
kvæmni, og Margeir átti frábæra
vinningsmöguleika en tefldi ón-
ákvæmt og Jón hélt jöfnu.
Áttunda og síðasta skák þessa
einvígis verður tekin til meðferð-
ar hér. í Maroczy-afbrigðinu,
sem margoft hefur áður komið
upp í viðskiptum þeirra félaga,
fylgdi Margeir rangt eftir athygl-
isverðri peðsfórn. Jón hirti peð-
ið, lék ákveðið og nákvæmt og
byggði upp vinningsstöðu. Þó
hann hafi kannski ekki ratað
stystu leiðina að settu marki var
úrvinnslan skammlaus og þarna
tefldi hann sína bestu skák í ein-
víginu. Þess vegna kom frétt
Morgunblaðsins um úrslitin
nokkuð á óvart. Var þar óneitan-
lega gert heldur lítið úr afreki
Jóns. Margeir er lítill greiði gerð-
ur með þessháttar réttlætingu á
tapi sínu og þarf ekki á slíku að
halda.
8. einvígisskák:
Jón L. Árnas. - Margeir Péturss.
Sikileyjarvörn
1. e4-c5 4. Rxd4-g6
2. Rf3-Rc6 5. c4-Rf6
3. d4-cxd4 6. Rc3-d6
40. Kd3
Jón L. Árnason.
7. Be2-Rxd4 10. De3-Be6
8. Dxd4-Bg7 11. Hcl
9. Bg5-0-0
(Endurbót Jóns á taflmennsku
sinni í 2. skák þar sem hann lék
11. 0-0).
11. ...-a6 13. cxb5-axb5
12. 0-0-b5!? 14. a3!-Db8?
(Ónákvæmur leikur. Eftir 14. ...
Ha5 er staðan óljós. Þá má svara
15. Bxb5 með 15. ... Rxe4! og 15.
Rxb5 Db8 eða 15. ... Rg4. Kann-
ski leikur hvítur best 15. Hal sem
hótar 16. b4 o.s.frv.)
15. Bxb5
(Óhræddur hirðir Jón peðið.
Margeir á ýmsa möguleika og sá
vænlegasti er sennilega 15. ...
Rg4 16. De2 d5 17. g3 Re5! með
flókinni og óljósri stöðu. 15. ...
Rxe4 er hinsvegar lakara því hvít-
ur getur tryggt sér frumkvæðið
með 16. Rxe4 Dxb5 17. Bxe7.)
15. ...-Hc8?
16. a4-Db7 19. Be3-Da5
17. Hfel!-Hc7 20. Bd2-Da7
18. De2-Db6 21. b4
(Frípeðin renna af stað og Mar-
geir hefur engin mótfæri.)
21. ... Dd4 25. f4-Dh5
22. Bd3-H7c8 26. Dxh5-gxh5
23. Rb5-Db2 27. a5
24. Hbl-De5
(Eftir drottningaruppskiptin er
staða svarts hartnær vonlaus.)
27. ... Bc4 31. b5-Ha4
28. Bxc4-Hxc4 32. b6-Re4
29. Hbcl!-Hxe4 33. b7-Hb8
30. Rc7-Hc8
(Krísuvíkurleiðin. Mun fljótvirk-
ara var 34. Hxe4! Hxe4 35. Re6!
Bd4+ 36. Kfl Bc5 37. Rxc5 dxc5
38. a6 Ha4 39. Hxc5 og svartur
getur gefist upp.)
34. ... Rc5 37. Kfl-Ha2
35. Rxc5-dxc5 38. Ke2
36. Hxe7-Bd4+
(38. Bel ásamt - f5 og - Bg3 var
einfaldara.)
38. ...-Kg7
39. Hc7-Kf6
^Tímamörkunum var náð og enn
átti Jón einfaldari leið: 40. Kdl!
ásamt - Hbl og - Hc8.)
40. ...-Ke6 45. Kc2-Ha2+
41. f5+-Kxf5 46. Kb3-Hb2+
42. Hfl+-Ke6 47. Ka3-Hb4
43. Hfxf7-Bf6 48. Hxf6+-Kxf6
44. Bf4-Ha3+ 49. Hc6+
- og svartur gafst upp.
Urslitin í einvíginu þýða að
bikarinn sem Guðmundur Ara-
son gaf til keppninnar í landsliðs-
flokki fyrir röskum 20 árum verð-
ur enn í umferð. Margeir átti
möguleika á því að vinna þriðja
árið í röð. Keppni í landsliðs-
flokki á Skákþingi íslands fyrir
þetta ár hefst væntanlega í næsta
mánuði.
Salovog Kasparov
efstir í Skellefta
Að loknum fjórum umferðum
á heimsbikarmótinu í Skellefta í
Svíþjóð hefur heimsmeistarinn
Garrí Kasparov skotist upp í efsta
sætið þó hann hafi misst niður í
jafntefli unna stöðu gegn Robert
Hubner í þriðju umferð. Úrslit í
4. umferð urðu þau að Kasparov
vann Short en jafntefli varð í öðr-
um skákum þ.e. hjá Karpov og
Portisch, Ribli og Vaganian, Nik-
olic og Ehlvest, Andersson og
Sax, Hubner og Salov, Tal og
Seirawan og Kortsnoj og Nunn.
Staðan að loknum fjórum um-
ferðum er þá þessi:
Biðskákum úr fyrri umferðum
hefur lokið með jafntefli nema
skák Andersson og Tal og hefur
heimamaðurinn betri stöðu.
Staða á mótinu er þá þessi:
1.-2. Salov og Kasparov 3 v. 3.-4.
Ehlvest og Portisch 2Vi v. 5.-11.
Karpov, Short, Sax, Nunn, Nik-
olic, Hiibner og Seirawan 2 v. 12.
Andersson IV2 v. + biðskák 13.-
14. Vaganian og Ribli IV2 v. 15.
Tal 1 v. + biðskák. 16. Kortsnoj
Vi v.
Fimmta umferð mótsins fer
fram í dag.
VIÐHORF
Framhald af bls. 5
samræma hann. Dani og Breta
langar raunar enn eina EB-þjóða
að halda í fyrri gjaldmiðil sinn;
hinar þjóðirnar 10 virðast sem
best sáttar við nýja EB-
gjaldeyrinn ECU. En ólík menn-
ing og ólík tungumál eru líka far-
artálmi því frjálsa flæði fólks,
varnings og fjármagns, sem er
helgari en allar aðrar kýr í fjósi
EB. Og menningarleg samræm-
ing er svarið, og það ætti Uffe
ekki að vera ókunnugt um. Árið
1988 var u.þ.b. 8 milljónum
Bandarikjadala varið til hennar,
fé, sem sótt er í vasa skattgreið-
enda aðildarríkjanna, vitaskuld.
Hefur hann gleymt sjónvarps-
lögum EB, sem kveða á um að
a.m.k. 50% sjónvarpsefnis í EB-
löndum skuli framleitt innan EB?
Og gleymt því að í Danmörku
hafa til þessa gilt allt önnur sjón-
varpslög?
Man Uffe ekki, að tungumála-
kennslu í skólum Evrópubanda-
lagsins á að samræma að einum
og sama staðli, „LINGUA-
kerfinu", þar sem tungur EB
skulu ekki aðeins sitja í fyrirrúmi,
heldur skulu EB-nefndir einnig
hafa eftirlit með móðurmáls-
kennslu innan hvers aðildarnkis?
Kannast Uffe ekki við hin kröft-
ugu mótmæli dönsku kennara -
samtakanna gegn þeim ráðstöfun-
um á þessu ári? Eða horfum til
íþróttanna. Árið 1992 verða
næstu Ólympíuleikar háðir. EB
hefur beitt sér mjög fyrir því, að
þar mæti EB til leiks sem ein
heild, klæðist EB-búningum og
gangi inn á völlinn undir tólf-
stjörnufánanum, en skilji þjóð-
fánana eftir heima. Undirtektir
hafa reynst misjafnar; óvíst hvort
þetta tekst, en tilgangurinn virð-
ist allljós. Poul Schluter,
skoðanabróðir Uffe um ágæti EB
hefur raunar margoft látið þá
skoðun í ljósi, að „skeið þjóðríkj-
anna“ sé löngu á enda runnið. Og
í sjónvarpsþætti nýverið þótti
Helmudt Schmidt það ekki nema
notaleg tilhugsun, að árið 2000
yrði enska orðin aðaltungumál í
löndum Evrópubandalagsins.
Orð Uffe í tengslum við þetta allt
hljóma nokkuð kynduglega. „Ég
tel miklu fremur að hinn sam-
eiginlegi markaður eigi eftir að
ryðja þeim tálmum úr vegi sem
hindrað hafa þjóðleg sérkenni í
að breiðast út.“ Hugsi svo hver
sitt um þá „útbreiðslu”. Og hvað
hefur í raun tálmað slíkri út-
breiðslu til þessa? En ályktun
Uffe: „Þannig að ég hef enga trú
á því að hið þjóðlega eigi eftir að
hverfa og einhver samevrópsk
menning taki við.“ Kannski hefur
Uffe ekki veitt eftirtekt áróðurs-
spjaldi, sem víða mátti sjá á
veggjum húsa í EB-löndum fyrir
kosningamar í sumar; mynd af
litlum brosmildum dreng með
bláa húfu, prýdda 12 stjörnum,
og fyrir neðan setningin: „Mam-
ma, þegar ég verð stór, ætla ég að
verða Evrópumaður.“ Leiti
menn svo að heilli brú í þessu.
Leiti menn einnig að einni stað-
festingu í verki á eftirfarandi:
„Það er líka yfirlýst stefna EB í
menningarmálum að leggja
áherslu á að aðstoða minni
fSa) Fjórðungssjúkrahúsið
vHJ á Akureyri
Viljum ráða fóstru í fullt starf á barnaheimilið
Stekk frá 1. september n.k.
Nánari upplýsingar veita Sigurjóna Jóhannes-
dóttir, forstöðukona og Sonja Sveinsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri,
sími 96-22100
Byggðastofnun
Fasteign til sölu
í Vík
Byggðastofnun auglýsir til sölu fasteignina
Sunnubraut 21 í Vík í Mýrdal (áður eign Nýlands
hf.). Húsið er á tveimur hæðum (2. hæð inn-
dregin) með steyptum grunni að grunnfleti
256,8 m2. Burðarbitar hússins eru úr límtré og
með klæðningu frá Berki hf., Hafnarfirði. Hugs-
anlega hægt að flytja húsið úr stað. Tilboðum
skal skilað á skrifstofu Byggðastofnunar,
Rauðarárstíg 25, 105 Reykjavík fyrir 5. sept-
ember n.k.
Þjóðarbókhlaðan
Tilboð óskast í tæki í loftræstirými og frágang þeirra í húsi Þjóðar-
bókhlöðunnar við Birkimel.
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. janúar 1990.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykja-
vík, til og með 25. ágúst 1989 gegn 10.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 31. ágúst 1989 kl.
11.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Borgartúni 7, simi 26844
Allir eiga að vera í beltum,
hvar sem þeir sitja
í bílnum!
aUMFERÐAR
RÁÐ
samfélög sem eiga í vök að verj-
ast.“ Hér þurfa menn að taka á
fyrr en þeir trúa. Kannski hefur
Uffe þá í huga aðstoð á borð við
kaup EB á veiðileyfum í græn-
lenskri lögsögu. Raunar kann ég
að nefna eitt dæmi um „EB-
aðstoð“ við „minni samfélög,
sem eiga í vök að verjast.“ Það er
örlítill bæklingur á írskri gelísku,
sem EB dreifir ókeypis til barna-
og unglingaskóla í Irlandi og ber
nafnið „Evrópa fólksins". Boð-
skapur áþekkur því, sem Uffe
hefur að færa í Morgunblaðinu.
En Uffe kveðst vera íslands-
vinur; viðmælandi getur þess að
hann muni þekkja betur til lands-
ins en nokkur annar danskur
stjórnmálamaður. Og Uffe „les
íslendingasögurnar að staðaldri
og finnst yndislegt að ferðast um
landið, og ekki síst renna fyrir
fisk. Saga íslensku þjóðarinnar er
líka heillandi, ég hef lesið ís-
landsklukkuna margoft og þekki
því þann hluta sögunnar vel,
hmmmm...“.'
Hef lesið íslandsklukkuna og
það margoft. Einhverju hlýtur
Uffe samt að hafa gleymt af þeim
lestri líka. Má ekki í þeirri bók sjá
mynd þeirrar þjóðar, sem lýtur
yfirráðum voldugra aðila og fjar-
lægra og hlýðir lögum, lætur
jafnvel líf sitt vegna laga, sem
hún hlýðir nauðbeygð? Lætur
höfundur bókarinnar ekki í ljós
skoðun sína á feitum þrælum?
Þrælum Hamborgarkaupmanna?
Og skilningi danskra embættis-
manna á íslenskum högum?
Rámar Uffe í það? Og var um-
rædd klukka, þessi eina eign
þjóðarinnar, ekki mölvuð á Þing-
völlum og brot hennar flutt í skip,
þannig að hún gæti nýst þáver-
andi hagsmunum meginlands-
búa? íslandsklukkan á fullt erindi
við fólk okkar tíma og er því ætl-
uð. En Uffe virðist dálítið
gleyminn. Ef til vill hefur hann
ekki lesið íslandsklukkuna nógu
oft.
Jón Gunnarsson er lektor í H.l.
Fimmtudagur 17. ágúst 1989 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9