Þjóðviljinn - 17.08.1989, Blaðsíða 12
Rúnar Þór Pétursson
tónlistarmaður:
Það er misjafnt. Ætli það sé ekki
það að fá hausverk.
Jóhanna Hrafnkelsdóttir
hjúkrunarfræðingur:
Ég veit það eiginlega ekki. Ég er
svo ánægð með lífið og er ekkert
að pæla í svona hlutum. Læt
hverjum degi nægja sína þján-
ingu.
Bogi Eymundsson
sjómaður:
Rangur fréttaflutningur í fjölmiðl-
um fer mest í taugarnar á mér.
Þegar fréttamenn rangtúlka mál
og tala bara við annan aðila máls
en ekki hinn.
Bjarni Kristjánsson
nemi:
Ætli það sé ekki veðrið eins og
það hefur verið undanfarna
daga.
Þórunn Snorradóttir
kennari:
Svona spurningar.
SPURNINGIN
Hvað fer mest í
taugarnará þér?
SÍMI 681333
Á KVÖLDIN
681348
SÍMFAX
681935
Gerðar eru tilraunir með ræktun ýmissa sjaldgæfra grænmetistegunda í skólanum. Á myndinni er Fjóla Grétarsdóttir með kínverskt grasker,
ræktað af fræi frá kínverska sendiráðinu.
Garðyrkjuskóli ríkisins
Garðrækt í fimmtíu ár
50 ára afmœlishátíð garðyrkjuskólans verðurhaldin á laugardag.
Garðyrkjusýningítilefnidagsins verður opnuð ogþingað um garðyrkjumál á Hótel örk
Frá gróðurskálanum sem er inni í miðri byggingu Garðyrkjuskólans
GarSyrkjuskóli rikisins að
Reykjum í Ólfusi á 50 ára afmæli
á þessu ári. A laugardaginn verð-
ur haldin afmælishátíð fyrir fyrr-
verandi og núverandi nemendur
og starfsmenn skólans, garð-
yrkjumenn, boðsgesti og velunn-
ara skólans og Reykja. Þá um ieið
verður opnuð garðyrkjusýning í
skólanum sem síðan verður opin
fyrir almenning frá 20. til 27. ág-
úst. Garðyrkjuþing verður hald-
ið að Hótel Örk dagana 21. til 22.
ágúst en aðalmál þingsins verður
staða og framtíð íslenskrar garð-
yrkju. Þing þetta er haldið í
minningu Unnsteins Ólafssonar
fyrsta skólastjóra skólans. í til-
efni þessara tímamóta hefur einn-
ig verið hafin ritun á sögu Reykja
og Garðyrkjuskólans ásamt nem-
enda og kennaratali og er stefnt
að því að hún verði gefin út á
næsta ári.
Jörðin Reykir er einn af helstu
sögustöðum á Suðurlandi og saga
hennar mjög merk. Árið 1930
keypti ríkissjóður Reykjatorfuna
í Ölfusi en til hennar heyra fimm
jarðir, þar sem Reykir er aðal-
jörðin en alls er landið um 3600
ha. Það var Jónas Jónsson frá
Hriflu, þáverandi menntamála-
ráðherra sem beitti sér fyrir
kaupunum.
Nýtt skólahús var tekið í not-
kun árið 1976 og í fyrra var stað-
fest deiliskipulag heimalands
Garðyrkjuskólans. Samkvæmt
því hefur verið unnið að stór-
aukinni trjá- og skógrækt, vegir
og stígar lagðir og tilraunir í trjá-
rækt hafnar. Nú er verið að ljúka
við skipulag að svæðinu umhverf-
is skólabyggingarnar og að skrúð-
kennslu- og tilraunagarði sem á
að koma í kringum skólahúsið og
tengjast trjáplöntusafni sem vísir
er kominn að.
Lögð hefur verið á það áhersla
að á skólastaðnum mætist sagan,
nútíminn og framtíðin. í þessum
tilgangi hefur m.a. verið ákveðið
að varðveita gamla skólahúsið og
gera það að safni varðandi sögu
Reykja, skólans og íslenskrar
garðyrkju. Ennfremur verður
þar fræðslustofa fyrir sögu, nátt-
úrufar og lífríki svæðisins. Að
þessu verður unnið á næstu árum.
Á meðan á garðyrkjusýningunni
stendur verður gamla skólahúsið
opið sýningargestum þar sem
gömlum verkfærum og vélum
hefur verið haldið til haga.
Nemendum við Garðyrkju-
skólann hefur farið fjölgandi á
undanförnum árum og á síðasta
skólaári stunduðu 35 nám í skól -
anum.Þá var tekin upp kennsla í
umhverfisvernd sem aðalgrein
námsbrautar, og er það í fyrsta
skipti hérlendis sem boðið er upp
á það svið sem aðalgrein.
Niðurstöður könnunar sem
gerð var árið 1982 sýnir að garð-
yrkjunámið hefur skilað sér mjög
vel út í atvinnugreinina,, því yfir
75% útskrifaðra nemenda starfa
við garðyrkju. Framtíðarhorfur
greinarinnar ættu líka að vera
nokkuð góðar nú á tímum
aukinnar grænmetisneyslu og al-
menns áhuga fólks á blómum og
öðrum gróðri. Á sviði umhverfis
og náttúruverndar bíða einnig
stór verkefni fyrir garðyrkjufólk.
iþ