Þjóðviljinn - 27.04.1991, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 27.04.1991, Blaðsíða 2
Guðlaugur Arason: 5. kafli Þegar vopnin snúast 23. ágúst. Laugardagsnótt. Það var komið fram yfir miðnætti. Og enginn flutningabíll hafði lagt leið sína norður yfir heiði. Finnur og Ingi sátu inni í sendla- bílnum og keðjureyktu. Þeir voru löngu búnir að tala um allt sem þeir gátu með góðu móti rætt um. Þótt þeir væru góðir félagar, voru ákveðin takmörk fyrir því sem þeir ræddu sín á milli. Þeir voru búnir að bíða í tvo klukkutíma þama í rigningunni. Kalltækin virkuðu eins og til var ætlast, og annað slagið heyrðu þeir í Heimi, þar sem hann hímdi undir bninni og kvartaði undan kuldanum. Örfáir bílar höíðu farið hjá, ýmist á leið suður eða norður, en enginn flutningabíll. Vonleysið var farið að grípa um sig og Ingi kominn á fremsta hlunn með að stinga upp á því við Finn að hætta við allt saman. Heyrðist þá allt í einu áköf rödd í labb- rabb tækinu sem lá í sætinu á milli þeirra. - Strákar, strákar, heyriði í mér? Finnur þreif tækið og bar það upp að munninum. - Já, svaraði hann snöggt. Hvað? - Það er að koma bíll... ég held að þetta sé flutningabíll. Finnur og lngi litu hvor á annan. - Fínt, svaraði Finnur, og reyndi að tala rólega og yfírvegað. Við erum klárir. - Jú, þetta er flutningabíll, kallaði Heimir, ég sé það núna. Ég fer upp á veg. Daníel Jónasson flutningabílstjóri var að velta því fyrir sér, þar sem hann ók upp Norð- urárdalinn, hvemig það yrði að hafa konu sem forseta lýðveldisins. Hann gat ómögulega ímyndað sér kvenmann flytja áramótaávarpið í sjónvarpinu. En nú var þjóðin nýbúin að kjósa þetta yfír sig og hann yrði líklega nauð- beygður til að sitja undir þessu næstu íjögur gamlárskvöld. Sjálfur hafði hann kosið Pétur. Mitt í þessum hugleiðingum sér hann allt í einu hvar dökkklædd vera stendur á veginum framundan og veifar út báðum höndum. Draugur, hugsaði hann með sjálfum sér. Nei, hver andskotinn, þetta er maður. Hann snarhemlaði svo að ískraði í brems- unum. Kannski hafði þessi náungi keyrt útaf og var nú á leið til byggða. Varla gat verið önnur ástæða fyrir því að vera á ferli hér á þessum stað og í þessu veðri. Ef þetta var þá ekki draugur. Þessi óvænti ferðalangur kom hlaupandi í áttina að bílnum. Eflir stutta stund opnaðist hurðin hægra megin, og við Daníel blasti and- lit ungs manns sem hafði dregið einhverskon- ar pijónahúfu fast niður að dökkum gleraug- um sem hann bar á nefinu. — Kom eitthvað fyrir? var það fyrsta sem Daníel datt í hug að segja. - Nei, nei, svaraði komumaður á móti. Ertu að fara norður? - Já. - Eru nokkrir farþegar? - Nei, hvað sýnist þér. - Get ég fengið að sitja í á Blönduós? — Já, gerðu svo vel, svaraði Daníel. Drífðu þig inn. - Heyrðu, ég ætla aðeins að pissa, svo kem ég- Heimir var með ákafan hjartslátt þegar hann hljóp aftur fyrir bílinn og opnaði töskuna sem hann hélt á. Hann var svo skjálfhentur, að hann ætlaði aldrei að geta kveikt á tækinu. En loks kviknaði rauða Ijósið og hann flýtti sér að kalla: - Finnur! - Já, heyrðist svarað. - Hann er kominn... enginn farþegi, þetta er allt í lagi, við komum. Heyrðirðu þetta? - Já, drengur, drullaðu þér inn í bílinn! - Ókei! Heimir flýtti sér að stinga tækinu aftur niður í töskuna og hljóp svo inn í bílinn. - Hvaða ferðalag er á þér í þessu veðri? spurði Daníel undrandi, þegar farþeginn var sestur inn. Ég hélt að þú værir draugur! Heimir var viðbúinn þessari spumingu og hafði því svar á reiðum höndum. Hann reyndi að hlæja. - Æi, ég lenti í smá rifrildi við kærastuna áðan, hún henti mér út. Við voram á leiðinni norður. - Nú, það er bara svona, sagði Daníel, og glotti. Ertu frá Blönduósi? - Já. - Hvað heitirðu? - Pétur. - Nú, það er ekkert öðravísi, alveg eins og forsetaframbjóðandinn! svaraði Daníel. Það var djöfullegt að fá hann ekki sem forseta. Kaust þú ekki? — Ha? Jú, jú. - Hvað kaustu? Það er nú óhætt að segja það núna þegar stelpan er sest í stólinn. - Pétur, svaraði farþeginn. - Já, þetta líkar mér að heyra, minn mað- ur! Hér sitja bara tvö atkvæði sem karlræfill- inn á, sagði Daníel og hló við. Hvað segirðu, léstu kærustuna henda þér út? - Ja, eiginlega fór ég nú sjálfur út, hún var alveg snaróð. - Blessaður vertu, við mætum henni, sagði Daníel hughreystandi. Hún sér eftir þessu og snýr við. Heimir þagði. Hann stakk höndunum und- ir lærin til að leyna skjálflanum og gætti þess að horfa út um hliðargluggann svo að bílstjór- inn sæi ekki andlit hans. Hann reyndi að horfa fram hjá gleraugunum sem voru þakin móðu. - Þekkirðu Lása gamla á bílaverkstæðinu? Spurði Daníel eftir svolitla þögn. - Nei, svaraði Heimir dræmt, og þóttist þurfa að hugsa sig vel um. - Hvað segirðu maður, ég hélt að allir Blönduósingar þekktu Lása gamla, sagði Daníel undrandi. - Nei... ja, ég er svo nýlega fluttur norður, ég er eiginlega frá Vopnafirði. Kærastan er að norðan. - Já, svoleiðis. Þú hefur þá líklega heyrt um manninn sem var spurður að því hvað kon- an hans héti, sagði Daníel. -Nei. - Hann svaraði: Ég hef aldrei verið kvænt- ur góði minn. Hinsvegar hef ég búið á Vopna- flrði! Heimi stökk ekki bros. Hann þóttist horfa út um hliðargluggann, en gaut samt augunum ffam fyrir bílinn og bölvaði karlinum í hugan- um fyrir að keyra ekki hraðar. Nú hlytu þeir að fara að nálgast staðinn þar sem strákarair biðu. - Heyrðu, það er ágætis kunningi minn sem á heima á Vopnafírði, sagði Daníel eftir svolitla þögn. Þórður Ákason, veistu hver það er? Heimir stirðnaði upp í sætinu. Hvað átti hann nú að segja? Þessu hafði hann ekki búist við. - Þórður Ákason, tuldraði hann utan í rúð- una. - Já, Doddi Áka, hann á heima þama innst inni í bænum. Hann vinnur.á... Daníel þagnaði í miðri setningu, hallaði sér fram á stýrið og starði út um framrúðuna. Hann hægði ferðina á bílum. - Hver andskotinn er nú þetta? Ha? Bíll úti á miðjum vegi! Nei, hættiði nú alveg! Heimir kipptist við í sætinu og horfði frarn fyrir bílinn. Hann hélt niðri i sér andanum. - Það er ekki nokkur leið að komast ffam hjá honum, hélt Daníel áfram, og keyrði fast upp að bílnum. Þar nam hann staðar og sterk ljósin lýstu upp rauðan sendlabílinn. - Heyrðu mig, þetta er eitthvað dularfullt, tautaði hann við sjálfan sig og ýtti um leið á bílflautuna. Heimir hrökk í kút. Þeir biðu svolitla stund. Ekkert lífsmark var sjáanlegt umhverfis bílinn. Hann stóð þama skáhallt á miðjum veginum, ljóslaus og greinilega ekki með vélina í gangi. Daníel flautaði aftur án árangurs. - Varla hafa mennimir farið að skilja bíl- inn eftir úti á miðri götu, þótt svo hann hafi bilað, sagði hann hneykslaður. - Nei, tæplega, sagði Heimir lágt. - Ég held að maður neyðist til að skjótast út og athuga þetta, sagði Daníel og Ieit á Heimi. Þetta er ekkert eðlilegt helvíti. Hann teygði sig í úlpu sem lá aftan við bíl- stjórasætið og klæddi sig í hana. - Ég verð fljótur, sagði hann og klifraði út úrbílnum. Heimir greip um handfangið á hurðinni, reiðubúinn að hlaupa út á réttu augnabliki. Svo mundi hann allt í einu eftir lambhúshett- unni. hann þreif hana af sér og rúllaði henni niður. Eftir andatak var hann búinn að troða henni yfir höfuðið, og sá nú í gegnum götin tvö hvar bílstjórinn gekk að sendiferðabílnum og gægðist inn um afturrúðumar. Hann horfði lengi inn. Hvað sá hann eiginlega? Hvað hafði komið fýrir? Af hverju hlupu strákamir ekki út eins og um var talað? Höfðu þeir gugnað þegar til átti að taka? Loks sá Heimir hvar bílstjórinn hætti að horfa inn í bílinn og gekk fram með honum vinstra megin. Heimir ýtti hurðinni upp og stökk út í rigninguna. Þegar hann kom í ljós- keiluna frá flutningabílnum, sá hann hvar tveir grímuklæddir menn þustu út úr sendiferða- bílnum og réðust á bílstjórann. Hann sá hvem- ig þessi úlpuklæddi maður skall í götuna og hnefi var reiddur á loft upp í rigninguna. IROSA- •GARÐINUM Á > LÓTTA FRÁ SÍN- UM UPPRUNA Sterk fisklykt við Hetjólfs- götu í Hafnarfirði - Varla hægt að búa lengur við götuna segir íbúi. Fyrírsagnir í DV HVAR FÆ ÉG HÖFÐI HALLAÐ? Þetta má orða svo að ástæða sé til að óttast að gömlu flokkam- ir efni ekki loforð sín og að Kvennalistinn efni loforð sín. Leiöari í DV SÆLIR ERU HÓGVÆRIR Hrafhi Gunnlaugssyni, ,JK.u- rosawa norðursins" eins og sum- ir nefna hann, var falið það verk- efni að skrifa handrit... Morgunblaðiö HÆFILEGT MANNÁT Þótt manni þykir þeyttur ijómi góður er ekki þar með sagt að maður vilji borða hann með öllum mat. Það sama á við um karlmenn. Morgunblaóiö EN EKKI KLERKSINS Á BERGÞÓRSHVOLI Eggert Haukdal kosinn á þing þrátt fyrir hrakspár: „Þetta tókst með guðs hjálp.“ Fyrírsögn í DV ERUGUÐOGBAKK- US IHALDSMENN? I Rinarlöndum er það hæg- fara og hægrisinnaði armur jafn- aðarmannaflokksins sem ræður ferðinni, enda íbúar fylkisins yufirleitt kaþólskir bændur og víndrykkjumenn. Þjóöviljinn TILBOÐ SEM ÞÚ GETUR EKKI NEITAÐ Málefnasamningur er ekki það sem skiptir höfúðmáli heldur gagnkvæmt traust sem menn sýna hveijir öðram, sagði Davíð Oddsson um hugsanlega stjóm Alþýðuflokks og Sjálfstæðis- flokks. Alþýöublaöiö LAUNAR KÁLFUR OFBELDI? Rómantísk ævintýri era of- beldi fortíðarinnar, segir á einum stað og óneitanlega komu þessi orð upp í hugann þegar formaður Alþýðuflokksins lýsti því yfir í hádegisfféttum rikisútvarps í gær að hann „ætti hlýjar minningar um viðreisnarstjómina". Grein í Alþýöublaöinu 2 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Laugardagur 27. apríl 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.