Þjóðviljinn - 27.04.1991, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 27.04.1991, Blaðsíða 20
T~ ir~ 3— 4— V— (p 7 v— 4— 9 10 )i sr VL 13 ¥ iý 13 Js~ )b W 22 )í 17 /5 )É w— 14 $2 11 22 2D 21 22 V )b 1S 2% 24 12 T 25" iT Jb 2b )5 V J3 w 23 V S 22 n 24 2$ ¥ sr 4 21- (o 22 )o )(p T 2J 2f 8 )0 20 22 & 22 6 i4 22 22 15 / á> T 20 fy 24 16 /4 24 ¥ 12 X2 Vt V 14 13 V 24 U <7 e V 11 sp 8 }G 72 2Z 22 5 )4 2o ib f /<? 14 22 22 ¥ 8 12 2l )to 12 22 t Jg ll V °) 3 22 2*) 14 J5 U 30 1Z lá> ¥ iT )4 22 °í / )2 n V 3/ )2 4 U 22 ) )$. V/ 24 TF~ ¥ W 2S 4 y *Gr ÍD i 0 22 € 12 /<? // >4 J3 AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ Krossgáta nr. 144 Setjið rétta stafi 1 reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á götu í Garðabæ. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðvilj- ans, Síðumúla 37, 108 Reykjavík, merkt „Krossgáta nr. 144“. Skila- frestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa. 5 21 JJ J3 22 /9 /6 15 )4 Lausnarorð á krossgátu nr. 140 var Blesugróf. Dregið var úr réttum lausnum og upp kom nafn Stellu Sigurdórsdóttur, til heimilis að Há- holti 27, Akranesi. Hún fær senda skáldsöguna „Götuvísa gyðings- ins“ eftir Einar Heimisson. Vaka-Helgafell gaf út 1989. Verölaun fyrir krossgátu nr. 144 eru „( pokahorninu" - verölauna- bók Karls Helgasonar. Vaka- Helgafell gaf út 1990. MEÐFLUGU í HÖFÐINU Sigurður Palsson Ég lofaði síðast að koma með flugu sem hentaði í bæjarlækinn á Blönduósi. Veiðiaðferðir þar hafa valdið sálarangist hjá mörgum hreinlífismönnum í veiðiskap. Um þetta hafa spunnist hinar hroðaleg- ustu sögur. Sjálfur þekki ég menn sem veiða þama á hveiju sumri, og líta ekki út fyrir að vera skepnuníð- ingar. Þess vegna langar mig að veiða með þeim og einmitt í Blöndu. Eins og menn vita em nú að koma til breytingar í þessu vatnakerfi sem e.t.v. leiða það af sér að áin verði sæmilega tær stundum og þá fjölgar þeim dögum þegar laxinn tekur fluguna vel. Það var einmitt á slíkum degi að veiðimenn veifuðu flugum sínum og hjá þeim á bakkanum stóðu blaðamenn víst einir tveir, og ljósmyndarar til full- tingis. Nú átti að sýna þjóðinni hvemig húkkið færi fram. Þennan dag var reytingsveiði og allt á flugu enda ekki annað borið við á þeim degi. Útsendarar hreinlífismanna röltu hljóðir á brott þegar langt var liðið á dag og hafa ekki getið heim- sóknarinnar í annálum sínum. Svo hógværir em menn hér á Blönduósi að þeir vilja ekki segja mér hveijir vom þama á ferð. Það er svo álita- mál hvort notalegra sé fyrir laxinn að vera dreginn á land á kjaftinum eða að krækt sé í bakuggann á hon- um. Hvomgt getur verið mjög nota- legt og því best að glíman sé eins stutt og kostur er. Þessi fluga er miðuð við kjaftinn og heitir: Stóri slangi Hún er úr bók sem ég á og fjallar um sjóbirtingsflugur. Líka em þama áhrif frá norskri flugu sem heitir Sunray Shadow. Þesu hef ég blandað saman og bætt í hugar- ómm ffá sjálfum mér. Uppsksriftin af Stóra Slanga er svona: 1. Önglar em tveir. Sá aftari er þrikrækja en ffemri einkrækja. Þeir em festir saman með gimi. Tvö- foldu 18 punda gimi. Flugan erbest 10-15 cm löng. 2. Nú er beygjan klippt af ein- krækjunni og uppá þetta er dregin perluhvít Mylarslanga fléttuð. Hún er fest við aftari krókinn með gul- grænum hnýtingatvinna en þann ffemri með svörtum. Athugið að strekkja þetta vel. 3. Vængurinn ef um slíkt má tala er svona: Fyrst em 6 bronslitar páfuglsfanir. Næst koma nokkrir strimlar af perluhvítu Krystal Flash. Síðan kemur gult geitarhár og efst kemur svo svart geitarhár. 4. Svartur haus með hvítu auga með svörtum punkti í. Sá sem hnýtir þetta og ætlar að veiða á kvikindið ætti að nota stöng fyrir línu 10. Það er talsvert erfitt að kasta svona lengju og í öllum bæn- um reynið ekki að gera þetta með línu 8 nema þið séuð snillingar eða rúmlega það. Þesi fluga er upplögð í allar stórar ár gæti maður haldið og ónothæf í litlar sprænur. Aldrei má neitt vera á hreinu. Tveir ungir menn vom við veiðar í Reykjadalsá í Borgarfírði. Þeir vom einmitt við það fræga KAettsfljót. Logn var og sól skein í heiði. Enginn Iax hreyfði sig. Þeir reyndu þá hveija einustu flugu úr nokkmm boxum. Alveg sama, ekkert gerðist. Þá setti annar þeirra 5 stk. af tveggja tommu tú- bum á kaststöng. Aflaní þetta eina litla þrikrækju. Laxinn flaug á þetta með það sama. Hann var auðvitað einhversstaðars á miðri dræsunni og enginn öngull nærri. Þeirri glímu lauk fljótt. Þá var settur ön- gull inn á milli og reynt aftur. Laxinn var á um leið og nú var hann á öngli. Þessi fiskur tolldi á al- veg að löndun en fór þá. Þetta var látið gott heita að því sinni. Sesatt eða sesé: Ekkert á hreinu. Ég vaknaði mæddur í morgun... Petur Tyrfingsson skrifar um blús Otis Rush Einn svipmesti blúsmaðurinn meðal þeirra sem tóku út þroska á sjötta áratugnum er Otis Rush. Hann kemur frá Mississippi, - fæddur í Philadelphia þar í fylk- inu 29. apríl 1934. Þegar hann var drengur vann hann landbúnaðar- störf á skika foreldra sinna. í frí- stundum lærði hann að spila á munnhörpu og gítar með því að spila samhljóma plötum með Lightnin’ Hopkins, Muddy Wat- ers, Little Walter og John Lee Hooker. Rush fjölskyldan flutti til Chicago 1949, þar sem Otis fékk vinnu í skipasmíðastöð. Arið 1953 hóf Otis feril sinn sem starf- andi músikmaður á „Club Alibi“. Hann hefur sungið og spiiað blús nær látlaust upp frá því. Otis Rush syngur á mjög sér- stakan hátt. Stundum er eins og röddinn sé kæfð og full af örvænt- ingu. Hann hefur samt töluvert raddsvið og sveiflar sér leikandi Iétt yfir í einstaklega fallega og tilgerðarlausa falsettu. Eini sam- tímamaður hans í blús sem stóð honum jafnfætis á þessu sviði var Magic Sam. Otis Rush er stílsmiður í gít- arleik. B.B. King var ein helsta fyrirmynd hans í gítarspili eins og margra annarra á hans reki. Hann spilar ekki eins, en gítarinn er í sama hlulverki í ílutningi blússins hjá báðum. Tvcnnt hefur gríðar- leg áhrif á gítarstíl Otis Rush. Hið fyrra er að hann er örventur og spilar á gítar fyrir rétthentan eins og hann kemur fyrir (eins og Al- bert King), þannig að allt snýr öf- ugt. Spuni og „víbrató" verða mjög sérstök vegna þessa. Annað sem setur mark sitt á gítarstílinn er að Otis mótaðist á því að spila með lítilli hljómsveit án saxófóna eða píanós. Eli Toscano hleypti Cobra út- gáfufyrirtæki sínu af stokkunum 1956 með „1 can’t quit you baby“, blús sem hinn ungi Otis Rush söng af ríkri tilfinningu. Fleiri gimsteinar liggja eftir Rush frá þessu tímabili (1956-59): „All your Iove“, „Double Trouble“, „My love will never die“, „Gro- aning the blues" o.fl. (á geisla- disknum „Otis Rush: His Cobra Recordings“). Þegar Cobra ævin- týrið var úti gerði Otis stuttan stans hjá Chess og hljóðritaði 8 lög árið 1960. Þar glóa perlumar „So many roads, so many trains", „All your love I miss loving" og „I can’t stop baby“ (Er á safn- disknum „Vintage Blues“ ásamt efni með Albert King og fleirum). Eftir þetta er eins og allt gangi á afturfótunum fyrir Otis Rush: Frá 1960 og þar til 1976 kemur ekki út efni sæmandi þessum mikla listamanni, ef frá em talin fáein lög á safnplötu með Chic- agoblús sem Vanguard fyrirtækið hljóðritaði 1965. Arið 1971 hljóðritaði Otis Rush músik á heila breiðskífu fyrir Columbia- fyrirtækið, en ekkert varð úr út- gáfu fyrr en fimm ámm seinna, þegar þessi plata kom út undir heitinu „Right place. Wrong time“ (Edsel). Þctta er mikil lista- smíð, þar sem Otis sýnir á sér fág- uðu hliðina. Otis Rush hafði ekki horft glaður á eftir hljómplötu á mark- að í fimmtán ár, þegar hann loks hljóðritaði breiðskífu vandræða- laust fyrir Delmark 1975. Í ljósi forsögunnar þarf ekki að koma á óvart að platan ber heitið „Cold Day in HelT'! Sama árið kom út plata með efni úr hljómleikafor Otis Rush til Japans 1974-5, „So Many Roads“ (Delmark). Á þess- um plötum sýnir Otis þann innri kraft sem í honum býr. Þama er hann hrjúfur og þungbúinn. Þegar Otis Rush fór næst í hljóðver kvað við nokkuð annan tón; 1977 skilaði hann frá sér verkinu „Troubles Troubles“. Þessi plata er ekki eins frumleg og „Right Place...“ Hér em sígild- ir blúsar sem heyrast víða, en af- skaplega er smekklega með þá farið. Platan er mjög látlaus og þægileg til hlustunar á rólegu kvöldi. Næstum tíu ár liðu án þess að nýtt efni kæmi frá Otis Rush. Hann dró sig í hlé í kringum ára- tugaskiptin ‘80. Um miðjan síð- asta áratug kom út plata í Frakk- landi, „Live In Europe“ (Isabel) með 10 ára gömlum upptökum frá Jazz-hátíðinni í Nancy 1977. Um líkt leyti reis hann sjálíúr úr öskustónni. I september 1985 kom hann fram á Blúshátiðinni í San Fransisco og var efnið tekið upp og gefið út á plötu, sem heitir „Tops“ (gefin út af Demon í Eng- landi). Þessar tvær plötur sem hljóðritaðar em með 10 ára milli- bili em með því besta sem komið hefúr frá Otis Rush. Otis Rush er blús. Oski maður þess að hlusta á áhrifamikinn Chicago-blús, alvömgefinn og ljóðrænan, er blúsinn hans settur undir nálina. Flestar tilfmningar og hughrif má frnna í blús Otis Rush, nema léttúð. Lítið fer fyrir bjartsýni. FeriII hans og líf virðist líka vera bannsettur blús. 20 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Laugardagur 27. apríl 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.