Þjóðviljinn - 27.04.1991, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 27.04.1991, Blaðsíða 4
Viðreisn valdakerfis Sjálfstæðisflokksins væri að mynda öfluga jafnaðarmanna- Davíðs og Þorsteins. Ég sagði við hann: hreyfmgu. Auðvitað var mikil óánægja, Jón, þú yrðir valdamesti maður á íslandi, bæði í minum flokki og flokki Jóns með þú yrðir fyrsti raunverulegi foringi jafnað- þessa fundaherferð, en við fórum hana armanna á Islandi í slíkri ríkisstjóm og það samt. mætti kannski frekar spyija mig: af hveiju í síðustu borgarstjómarkosningum ert þú að gera þetta fyrir Jón Baldvin og varð Nýr vettvangur til sem líka olli titr- Alþýðuflokkinn. Því auðvitað gæti það ingi. Það fólk var að leita að nýjum sam- þjónað flokkspólitískum hagsmunum Al- starfsvettvangi fyrir jafnaðarmenn og fé- þýðubandalagsins að Alþýðuflokkurinn og Iagshyggjufólk. Sjálfstæðisflokkurinn rækjust saman í Ur Alþýðubandalaginu hafa gengið skammtíma flokkshagsmunum. einstaklingar sem hafa trúað á þessa hug- sjón. Alþýðuflokkurinn breytti nafni sínu Hvaða skýringu gaf Jón Baldvin á yfir í Jafnaðarmannaflokkur íslands. Össur því að hann hafnaði hugmyndinni? Skarphéðinsson sagði á sigurstundu í próf- Hann sagði mér aldrei að hann haíhaði kjörinu í Reykjavík: Þetta er traustsyfirlýs- henni. Hann hefúr ekki ennþá sagt mér að ing á mig frá þeim sem vilja stóra jafnaðar- hann ætlaði að benda á Davið Oddsson. mannaflokkinn og treysta Alþýðuflokkn- Hann hefúr ekki hafl manndóm til að horfa um best til þess. Sigur þeirra sem eru á í augun á mér og segjast ætla að gera Dav- móti valdakerfi fjölskyldnanna fjórtán. Og íð Oddsson að forsætisráðherra, en hann svo lýkur kosningunum þannig að í fyrsta fór og ræddi við Steingrím Hermannsson í Ólafur Ragnar svarar spurningum fréttamanna að afloknum kosningum. Ljósmynd: Jim Smart. Davíð Oddsson hefur fengið umboð til að mynda ríkisstjórn, í krafti þess að Jón Baldvin benti forseta á Davíð sem forsætisráðherraefni. Viðreisnarstjórn sýnist því vera í burðarliðnum, þvert á úrslit kosninganna. Þjóðviljinn ræddi við Ólaf Ragnar Grímsson formann AI- þýðubandalagsins um þessi tíðindi, sem Ólafur kallar svartasta daginn í sögu vinstri hreyfíngarinnar á Islandi þar sem Alþýðuflokkurinn hafí glatað eina tækifærinu sem hann hefur fengið í meira en hálfa öld til að leiða alvöru rík- isstjórn félagshyggjuflokkanna. Jón Baldvin segist fá sínum málum betur borgið í Viðreisn en áframhaid- andi vinstri stjórn. Tekurðu þessi rök gild? Nei, þau eru ekki gild. Ég spurði Jón Baldvin að því í gær: (fimmmtudag) Hvaða mál eru það sem þú telur þig fá fram hjá Sjálfstæðisflokknum sem þú getur ekki náð fram í samvinnu við okkur og Framsóknar- flokkinn? Hann gat ekki nefnt neitt, en sagði að Davíð Oddsson tæki öllu vel. Auðvitað tekur Davíð Oddsson öllu vel. Hann er fyrst og fremst að hugsa um að endurreisa valdakerfi Sjálfstæðisflokksins og er þess vegna tilbúinn að skrifa upp á hvaða texta sem er. Viðræður okkar Jóns síðustu daga hafa þó fýrst og fremst snúist um það hvar við stöndum hann og ég, sem formenn þessara tveggja flokka. Eg hef sagt honum að aldrei fyrr í sögu þessara flokka hafi forystumenn jafnaðar- mannahreyfingarinnar á Islandi hafl mögu- leika til þess að setja Sjálfstæðisflokkinn varanlega til hliðar og gera jafnaðarmanna- hreyfinguna og flokka hennar að forystu- afli í íslenskum stjómmálum. Það væri skylda okkar, að gera allt sem við gætum til þess að koma í veg fyrir að þessu tækifæri verði glutrað niður... Hverju hefur Jón Baldvin svarað? Hann hefur játað því að þetta sé rétt, en hann talar alltaf óljóst um einhver mál sem séu óleyst. Við töluðum um valdakerfi Sjálfstæðis- flokksins. Valdakerfi sem cr byggt upp á samtvinnun hagsmunagæslu ákveðinna tjölskyldna, ákveðinna fyrirtækja og teygir sig um öll helstu stórfyrirtæki landsins. Hann hefur sjálfur talað um fjölskyldumar fjórtán, hann hefur sjálfur líkt Sjáífstæðis- flokknum við Mexikanska valdaflokkinn og talað um það sem höfuðverkefni að ýta þessu valdakerfi til hliðar. Jón Baldvin og Össur Skarphéðinsson, sem ár eflir ár hafa sagst í orði berjast gegn þessu valdakerfi, eru nú að hefja höfuðpaur þess, Davíð Oddsson, til æðstu valda á Is- landi. En ég hef sagt flcira við Jón: Ég hef rifjað það upp fyrir honum að árið 1974 bundumst við í pólitiskt bræðralag um hug- sjónina um stóra íslenska jafnaðarmanna- hreyfingu. Ég gekk með hópi ungra manna út úr Framsóknarflokknum undir því merki. Hann afncitaöi þeim forystumönn- um Samtaka frjálslyndra og vinstri manna sem höfðu gengið í Alþýðuflokkinn, því að í þeim kosningum ætluðu þeir að endur- reisa Viðreisnina. Jón Baldvin fór í framboð á Vestíjörð- um og ég á Austfjörðum undir þcim merkj- um að koma í veg fyrir Viðreisn. Síðan höf- um við gengið langa leið og flokkamir sem við erum í hafa sýnt okkur þann trúnað að gera okkur að formönnum þeirra. Og í fyrsta skipti í áratugi cru söguleg deilumál flokkanna komin til hliðar. Við höfum náð þeim árangri sem enginn okkar fyrirrenn- ara hefur náð að Ijúka ríkisstjómarsam- starfi með miklum árangri og í sátt. í janúar 1989 fómm við í fundaferð um landið. Tilgangur hennar var að heíja um- ræðu um framtíð jafnaðarmannahrcyfing- arinnar. Við sögðum við þúsundir af ungu fólki að okkur væri alvara, við væmm til- búnir að færa miklar fómir til þess að hægt skipti í sögunni hafa forystusveitir Alþýðu- flokksins og Alþýðubandalagsins tækifæri til þess að halda áfram. Jón Baldvin var sammála mér um það að ef Sjálfstæðisflokkurinn yrði hér fjögur ár utangarðs myndi hann liðast í sundur af því að hann er ekki stjómmálaflokkur í venjulegum skilningi, hann er hagsmuna- bandalag og valdatæki fyrir ákveðin öfl og hefur haldið styrk sínum þess vegna. Ég satt að segja trúði því ekki þegar ég gekk frá honum í gær að hann myndi virki- lega benda á Davíð Oddsson, að hann myndi að minnsta kosti ekki fyrst gera til- raunina til þess að við störfuðum áfram saman... ...undir hans forsæti? Já, einmitt undir hans forsæti. Það sýn- ir hve langt við vildum ganga að þingflokk- ur Alþýðubandalagsins samþykkti á sínum fyrsta fundi eftir kosningar að við væmm reiðubúin að gera Jón Baldvin að forsætis- ráðherra. Ég ræddi það við Steingrim Hermanns- son og Halldór Ásgrímsson og það var ljóst að Framsóknarflokkurinn var líka tilbúinn að gera Jón að forsætisráðherra. Ég sagði við Jón Baldvin í gær (fimmtudag): Það hefði verið algerlega nýr vemleiki í íslenskum stjómmálum að AI- þýðuflokkurinn væri forystuflokkur vinstri stjómar. í fyrsta skipti í hálfa öld væri for- maður Alþýðuflokksins forsætisráðherra í alvöru félagshyggjustjóm og Sjálfstæðis- flokkurinn í rúst, tættur í sundur eftir deilur morgun og Steingrímur tjáði mér síðar að Jón hefði sagt sér að hann myndi benda á Davíð. Hver er þá þín skýring á að þetta gerist? Ég verð að játa að ég skil það ekki. Það er slík afneitun á öllum þeim hugsjónum scm ég hélt að við stæðum fyrir. Það em slík brigð við það sem við höfum gert sam- eiginlega. Var fundarherferðin á rauðu ljósi, bara markiaust grín? Var nafnbreytingin í Jafn- aðarmannaflokkur Islands háðsmerki? Vom allar ræðumar fyrir þúsundir af ungu fólki sem kaus Alþýðuflokkinn á þeim for- sendum að hann ætlaði sér að leiða vinstri hreyfinguna á Islandi í nýjum stíl bara blekkingar? Einn forystumanna Framsókn- ar sagði mér í morgun að Jón Baldvin hefði sagt honum fyrir einum og hálfum mánuði að hann ætlaði að mynda ríkisstjóm með Sjálfstæðisflokknum eflir kosningar. Jóhanna Sigurðardóttir, hverju ætlar hún að ná fram með Sjálfstæðisflokknum? Hvað er það í félagslegum réttindamálum sem Alþýðuflokkurinn ællar að fá fram í ríkisstjóm með Sjálfstæðisflokknum? Það veit ég ekki. Um hvaða málefni er Jón Baldvin að tala? Búvömsamninginn? Ætlar hann að fá Egil Jónsson, Pálma Jónsson og þá sem vom framsóknarmegin í kosningunum í gagnrýni sinni á búvörusamninginn til að taka frá bændum fjóra miljarða, eins og hann hefur verið að nefna síðustu daga? Jón Baldvin gefúr til kynna að hann sé búinn að fá Davíð til að játa því að sjávar- útvegurinn greiði fimm miljarða á næsta ári í veiðileyfisgjald. Em Matthías Bjama- son, Einar Oddur eða aðrir forystumenn sjávarútvegsins búnir að samþykkja það? Þegar Sjálfstæðisflokkurinn stjómaði hér jukust ríkisútgjöldin um 6% að raun- gildi, um rúm 30% allan tímann. Þau hafa minnkað síðan við tókum við. Hvað er það sem Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að skera niður? Em það húsnæðismálin? Einn stærsti vandinn sem við blasir á þessu ári er fjár- hagsvandi húsnæðiskerfisins. Ætlar Jó- hanna að leysa það í samvinnu við Geir Haarde og Halldór Blöndal? Hvað ætlar Össur Skarphéðinsson að segja við þau hundmð sem kusu hann í prófkjöri Álþýðuflokksins og hann segir sjálfúr að hafi komið saman nokkmm dög- um fyrir kosningar til að tryggja honum kjör í nafni hugsjóna um stóra hreyfingu jafnaðarmanna? Gerðist eitthvað það í kosningabar- áttunni sem olli trúnaðarbresti á milli ykkar Jóns? Nei, enda ef það er rétt að þeir hafi samið um Viðreisnina fyrir einum og hálf- um mánuði, skiptir kosningabaráttan engu máli. Þannig að það er bara tilbúningur að menn séu sárir. Líturðu svo á að Jón Baldvin hafi aldrei meint neitt með bræðralaginu ár- ið 1974 eða hefur hann einhverntíma á leiðinni skipt um skoðun? Ég veit það ekki. Kannski eiga menn í stjómmálum ekki að leyfa sér það, en ég er persónulega mjög dapur yfir því sem er að gerast, vegna þess að þessi hugsjón, að búa til breiða og sterka hreyfingu jafnaðar- og félagshyggjufólks sem stjómaði án Sjálf- stæðisflokksins, hefúr verið mér mikið al- vömmál og rauði þráðurinn í öllu minu stjómmálastarfi. Ég taldi að þótt leiðir okk- ar Jóns skildu um tíma, þá ættum við þetta sameiginlegt og þetta var draumur feðra okkar sem störfuðu saman á ísafirði, sem þá var kallaður rauði bærinn, í áratugi. En í dag virðist sonur Hannibals hafa kosið sér pólitísk örlög Guðmundar I. Hvað tekur við þegar búið er að mynda þessa ríkisstjórn? Hjá okkur í Alþýðubandalaginu tekur við stjómarandstaða sem verður ekki í venjulegum dúr, vegna þess að hún verður innblásin af miklum hugsjónaeldi og hins vegar af mikium sárindum þúsunda ungs fólks, sem hafa séð stærsta sögulega tæki- færið sölsað úr greip sinni af forystu Al- þýðuflokksins. Þá er það okkar verkefni að tengja saman með algerlega nýjum hætti allar þær þúsundir af vinstrisinnum, jafn- aðarsinnum og félagshyggjufólki sem em heimilislausar i dag. Við verðum að taka á móti þessu fólki af skilningi og umburðar- lyndi. En við munum veita þessari viðreisn valdakerfisins eins harða andstöðu og hægt er. Með hugmyndum sínum virðist Jón Baldvin nálgast Sjálfstæðisflokkinn frá hægri. Heldurðu að Sjálfstæðisflokkur- inn þoli að koma þeim öllum í verk? Alit sem mér hefúr verið sagt af þess- um viðræðum síðustu daga bendir til þess að hér sé verið að tala um valdakerfi en ekki stefnu. Ríkisstjómin sem nú á að fara að mynda er stofnuð á siðferðisbresti, hún er stofnuð á hugsjónasvikum, hún er stofnuð á trúnaðarbresti við þær þúsundir sem hafa trúað málflutningnum um stóra jafnaðar- mannahreyfingu á íslandi. Hún er stofnuð í þágu valdakerfis Sjálfstæðisflokksins, Jón Baldvin átti kost á að verða kallinn í brúnni á nýrri vinstri stjóm, en valdi sér að vera matrós hjá Davíð Oddssyni og fjöl- skyldunum fjórtán. hágé. 4 SlÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Laugardagur 27. apríl 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.