Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1996, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1996, Blaðsíða 44
LAUGARDAGUR 9. MARS 1996 A!>"V 52 sviðsljós Cameron Diaz rísandi stjarna í Hollywood: Náttúrulega þokkafull Cameron, sem er 23 ára, er nýhætt með unnusta sínum og ekki í föstu sarnbandi þótt slúðurdálkahöfundar hafa viljað spyrða hana við George Clooney. Hún segist þó vilja stofna fjölskyldu og lifa venjulegu lífi en það verði þó að bíða um sinn. Kvikmyndin Mask markaði fyrstu kynni Cameron af leiklistinni. Áður hafði hún verið eina önn á leiklist- arnámskeiði í framhaldsskóla. Breyting verður á þessu á næstunni því fljótlega verða teknar til sýn- inga vestanhafs fjórar kvikmyndir sem hún hefur ný- lega lokið við að leika í. Cameron Diaz er líklega sú stjarna sem hæst rís um þessar mundir í Hollywood. Flestir þekkja líklega myndinni Mask þar sem hún lék á móti Jim Carrey og fékk aug- un til aö skjótast úr honum og tung- una til aö lafa niður á gólf. Kvikmyndin Mask markaði fyrstu kynni Cameron af leiklist- inni. Áður hafði hún verið eina önn á leiklistamámskeiði í framhalds- skóla. Breyting verður á þessu á næstunni því fljótlega verða teknar til sýninga vestanhafs fjórar kvik- myndir sem hún hefur nýlega lokið við að leika í. Þar á meðal er mynd- in Feeling Minnesota þar sem hún leikur á móti Keanu Reeves. Camer- on fer með hlutverk nektardans- meyjar sem er þvinguð til að giftast bókara nektardansstaðar í refsing- arskyni fyrir að stela peningum frá yfirmanni sinum. Síðan fellur hún fyrir bróður bókarans en hann er leikinn af Keanu. I kvikmyndir fyrir tilviljun Handritshöfundur og leikstjóri Feeling Minnesota segir Cameron kjörna í hlutverkið. Hann hafði ekki séð hana leika þegar honum var bent á hana en strax við fyrstu kynni þá sá hann að þarna var rétta manneskjan í hluverkið. Hún væri kynæsandi á sérstakan máta - ekki bara vel vaxin með fallegt andlit. Hún gæti grett sig og gert sig ljóta - er reyndar óhrædd við að haga sér eins og fifl fyrir framan myndavél- ina - en á sama tíma verið þokka- fúU. Eftir að Cameron lék í Mask beið hún í heilt ár eftir næsta hlutverki. Hún vildi ekki festast í hlutverkum þar sem hún léki heimska ljósku sem aðeins kæmi fram fyrir útlitið. Ekki skorti á slík tilboð. Hún vildi sanna sig sem leikkonu og það ætl- ar hún að gera í Feeling Minnesota. Reyndar var það ekki ætlun hennar að leggja fyrir sig leiklist- ina. Henni gekk vel sem fyrirsæta og þénaði vel á því að birtast á for- síðum tímarita beggja vegna Atl- antsála. Síðan sá hún handritið að Mask á borði umboðsmanns síns og gantaðist með að ágætt væri að fá hlutverk í þessari mynd. Umbi tók hana á orðinu og kom í kring prufu- töku og stuttu síðar fékk hún hlut- verkið. Hún segist eiga Jim Carrey að þakka hve vel henni gekk í þeirri mynd. Hjálp hans hafi verið ómet- anleg. Önnur mynd sem Cameron hefur nýlokið við að leika í heitir The Last Supper. Sú mynd er allt öðru- visi en hinar myndimar tvær sem nefndar hafa verið Lítil dama Cameron hefur ekki mikið sjálfs- álit. Hún er há og grönn, 175 sm á hæð og 54 kíló. Hún segist ekki hafa þurft að gera mikið til að hljóta þennan líkama. Hún segist borða eins og hross og ekki hreyfa sig neitt. Fæstir myndu segja að hún sé dama í háttum. Hún blótar, hlær hrossahlátur og er á flestan máta skvettuleg. Tvær aðrar myndir, sem væntan- legar eru með Cameron í aðalhlut- verkum, eru siðan Above Water, þar sem hún leikur á móti Harvey Keitel, og She’s the One sem leik- stýrt er af Edward Bums. Hún ólst upp í Kaliforníu, nánar tiltekið Long Beach. Faðir hennar var yfirmaður í olíufyrirtæki og móðir hennar sérfræðingur í inn- og útflutningi. Hún á eina eldri systur og segist dálítið mörkuð af því þar sem hún þurfti að berjast fyrir því að verða ekki undir í fjölskyldunni. Uppáhaldshljómsveitin hennar er Smashing Pumpkins og í ljósi þess er hún fyrir harðari rokktónlist en ljúfar melódíur. Cameron, sem er 23 ára, er ný hætt með unnusta sínum og ekki í fóstu sambandi þótt slúðurdálkahöf- undar hafa viljað spyrða hana við George Clooney. Hún segist þó vilja stofna fjölskyldu og lifa venjulegu Kynæsandi, dulur og hlédrægur - segir David Duchovny, leikari í Ráðgátum, um sjálfan sig David Duchovny þénar 6,5 milljónir fyrlr hvern þátt sem tramleiddur er af Ráðgátum. Hann fær 6,5 milljónir fyrir hvern þátt af X-files eða Ráðgátum sem hann leikur í. Framleiðendurn- ir segja að hann vinni fyrir hverri krónu. David Duchovny, sem er 35 ára og býr til skiptis í Vancouver og Los Angeles, hefur fengið drauma- starfið og samning til fimm ára og því lítil hætta á að aðdáendur hans fái ekki að kynnast spennu og hinu yfimáttúrlega með honum. David, sem konur hafa valið sem einn af kynþokkafyllstu karlmönn- um i heimi, finnst lítið varið í að vera frægur. „Ég skildi aldrei hvað það þýddi að vera stjama en nú, þegar ég er kominn í þeima hóp og heyri stelp- umar öskra þegar ég læt sjá mig, þá átta ég mig á hvað það gengur út á,“ segir David sem alltaf stefndi að því að veröa enskukennari. Hann var og er mikill námsmaður og gáfu- maður og hlaut meðal annars styrk til að nema enskar bókmenntir við Yaleháskóla sem hann og gerði í nokkur ár. „Mamma var lengi ekki sátt við að ég legði leiklistina fyrir mig. Hún er þó orðin stolt af mér og ár- angri mínum,“ segir David. Fyrsta hlutverk hans var þegar hann lék FBI njósnara og kynskipt- ing í sjónvarpsþáttunum Twin Pe- aks. Síðan fékk hann smáhlutverk í Beethoven og myndinni Ekki segja að bamfóstran sé dauð. Síðan byrj- aði hann að leiká í Ráðgátum og framtíðin blasir við honum. Hann hefur sinn eigin aðdáenda- klúbb og heimasíðu á Intemetinu. Þar er hægt að fá þær upplýsingar um hann að hann sé 183 sm hár, með fæðingarblett á hægri kinn, grænmetisæta og stundi jóga. Hund- urinn hans heitir blár og sjálfúr syndir David, sem ólst upp í New York með móður sinni og tveimur systkinum, einn kílómetra á hverj- um morgni. Þar kemur líka fram að hann býr með Perrey Reeves sem meðal annars hefur leikið blóðsugu í Ráðgátum. Loks kemur þar fram að hann þolir ekki að láta kalla sig Fox nema fyrir framan myndavél- amar. „Ég er David en ekki Fox. Fyrst varð ég fyrir vonbrigðum með að fá þúsundir aðdáendabréfa eftir að ég kom fram ber að ofan í einum þátt- anna. Svo áttaði ég mig á því að ég má þakka fyrir að fólki líkar við mig í því hlutverki sem ég er. Það má vel vera að ég sé kynæsandi en þá er ég líka dulur og hlédrægur." Það þarf því ekki að koma nein- um á óvart að duchovny þýðir draugur eða heimsóttur af draugum á úkraínsku. Olyginn sagði... . . . að nýjasta mynd Robins Williams fjallaði á gamansaman hátt um samkynhneigða félaga. Myndin, sem heitir Fuglabúrið, verður tekin tii sýninga í mars vestanhafs. Williams var stadd- ur í London nýlega í tilefni frumsýningar Jumanji þar í landi. . . . að Nicole Kidman og Tom Cruise hefðu nýverið verið í landi andfætlinga. Þar horfðu hjónin á kappræður frambjóð- enda til þingkosninga og sagð- ist Nicole styðja Keating, sem reyndar tapaði, því pabbi henn- ar gerði það. Tom sagðist hins vegar ekki styðja neinn enda hefði hann gætt sín á því í gegnum tíðina að iýsa aldrei yfir pólitískum skoðunum sín- um. ... að Sharon Stone hefði verið svo heilluð af Robert De Niro að hún gat vart talað þegar hún hitti hann fyrst. Sfðan hefði hún tekið sjálfa sig taki og kastað sér um háls honum og gefið sig honum á vald. Ólyginn hefur enn fremur eftir Sharon að De Niro kyssi einstaklega vel. . . . að leikkonan Kate Winslet, sem leikur Marianne Dashwood í myndinni Sense and Sensi- bility, þakkaði Jane Austen, sem uppi var snemma á 19. öld, fyrir það hve myndin sem hún lék í væri góð. Austen skrifaði söguna sem myndin er byggð á. ... að Wesley Snipes væri nú til aðgerðar á sjúkrahúsi. Ástæð- an er flökt á öðru auga hans sem hann ræður ekki við. Flökt- ið var farið að há honum veru- lega þar sem hægt var orðið að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.