Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1996, Blaðsíða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1996, Blaðsíða 58
66 afmæli Jón ísaksson framkvæmdastjóri, Akraseli 29, Reykjavík, verður fimmtugur þann 11. mars. Starfsferill Jón gekk í Réttarholtsskóla, Gagnfræðaskólann við Vonar- stræti og nam tvö ár við Mennta- skólann í Reykjavík. Hann lauk einkaflugmannsprófi við Flugskól- ann Þyt en sneri sér þá að verslun- arstörfum og hóf störf hjá heild- sölufyrirtækinu Matkaup hf., fyrst sem sölumaður en síðan sem deild- arstjóri innréttingadeildar félags- ins sem hann byggði upp og þróaði þar til það hætti starfsemi á árinu 1990. Við þau tímamót keypti hann þann þátt starfseminnar og stofn- aði firmað Verslunartæki ehf. sem hann hefur síðan starfað við. Firm- að veitir ráðgjöf varðandi skipu- lagningu verslana og flytur inn tæki og innréttingar því viðkom- andi. Jón hefur setiö í stjóm nokkurra félaga, s.s. Verslunarmannafélags Reykjavíkur, Sölumannadeildar VR, Knattspymufélagsins Víkings og Krummaklúbbsins. Árið 1985 stofnaði Jón fyrirtækið Flutninga- tækni ehf. ásamt Benóný ólafssyni, forstjóra Gámaþjónustunnar hf., og er í stjórn þess svo og stjórn Gáma- þjónustunnar. Fjölskylda Jón kvæntist 19.06.65 Friðgerði Sigríði Benediktsdóttur, sölumanni í söludeild Flugleiða, dóttur Gyðu Guðmundsdóttur frá Skjaldvarar- fossi á Barðaströnd og Benedikts Kristjánssonar frá Bolungarvík. Böm Jóns og Friðgerðar eru Bryndís, f. 14.12.1966, kennari, sem er gift Pétri Valdimarssyni við- skiptafræðingi og eiga þau eina dóttur, Maríu Gyðu; Gyða Björk Jónsdóttir, f. 15.07. 1967, kennari, sem er gift Eggerti Marinóssyni trésmið og eiga þau eina dóttur, Rakel Maríu; ísak Jónsson, f. 13.07. 1972, stúdent úr MR. Systkini Jóns eru Ámi, veiði- málastjóri, kvæntur Ástu Guðrúnu Sigurðardóttur hárgreiðslumeist- ara; Bryndís, bókasafnsfræðingur, gift dr. Jóni Torfa Jónassyni há- skólakennara; Ragnheiður, gift Ro- bert A. Carling tónlistarkennara. Foreldrar Jóns eru Ragnheiður Árnadóttir, fyrrverandi deildar- stjóri í landbúnaðarráðuneytinu, og ísak Sigurgeirsson, fymverandi framkvæmdastjóri. Ætt Ragnheiður er dóttir Áma Sig- urðssonar, fríkirkjuprests í Reykjavík, sonar Sigurðar Þor- steinssonar, fasteignasala frá Flóagaíli við Eyrarbakka, og konu hans, Ingibjargar Þorkelsdóttur, Þorkelssonar, útvegsbónda í Óseyr- arnesi (Bergsætt). Móðir Ragnheið- ar var Bryndís Þórarinsdóttir, dótt- ir Þórarins Þórarinssonar, prests á Valþjófsstað, Þórarinssonar, b. að Skjöldólfsstöðum á Jökuldal, Stef- ánssonar, prests að Skinnastað, bróður Þorbjargar, ömmu Krist- jáns Eldjárns forseta (Vefaraætt). Móðir séra Þórarins á Valþjófs- stað var Þórey, systir Hjörleifs prests að Undirfelli, föður Einars Kvarans skálds. Hjörleifur var son- ur Einars prests í Vallanesi, Hjör- leifssonar, prests á Krossi í Land- eyjum. Kona séra Þórarins og móðir Bryndísar var Rafnheiður Jóns- dóttir, prófasts að Hofi í Vopna- firði, Jónssonar, prests í Klaustur- hólum, Jónssonar, prests í Hmna, Finnssonar, bróður Hannesar Finnssonar biskups, Jónssonar, biskups í Skálholti, Halldórssonar, prófasts og fræðimanns í Hítardal (Finsenætt). Móðir Ragnheiðar, konu séra Þórarins, var Þuríður Kjartansdóttir, prests í Skógum, Jónssonar, komin út af séra Jóni Steingrímssyni, eldklerki á Prest- bakka á Siðu. Jón er i móðurætt 7. ættliður frá Finni Jónssyni Skálholtsbiskupi, 16.01. 1704-23.07. 1789 og 8. ættliður frá Jóni Steingrímssyni, 10.09. 1728- 11.08. 1791 í beinan kvenlegg. ísak er sonur Sigurgeirs á ísa- firði, Kristjánssonar í Gervidal Gíslasonar, hálfbróðir Þórðar í Strandseljum, afa Friðfmns Ólafs- Jón ísakssop. sonar og þeirra systkina. Móðir ís- aks var Bjarney Einarsdóttir en móðir hennar var Guðrún Jóna ís- leifsdóttir, systir Guðbjargar Rann- veigar, fyrri konu Auðuns Her- mannssonar, bónda og útgerðar- manns við ísafjarðardjúp, langafa Haraldar Blöndal hæstaréttarlög- manns, Styrmis Gunnarssonar rit- stjóra og Þorsteins Blöndals yfir- læknis. Jón tekur á móti gestum í Há- teigi, Grand Hotel, Reykjavík, milli klukkan 17 og 19 á afmælisdaginn. Tryggvi M. Sigtryggsson Til hamingju með Tryggvi M. Sigtryggsson, málm- iðnakennari við Framhaldsskóla Vestfjarða, til heimilis að Urðar- vegi 21, ísafirði, er fimmtugur í dag. Starfsferill Tryggvi fæddist á ísafirði. Hann lærði vélvirkjun í Vélsmiðjunni Þór á ísafirði, stundaði nám við Iðnskóla ísaijarðar, lauk sveins- próíl 1970, hóf nám í kennslufræð- um við KHÍ 1989 og lauk þeim próf- um 1991 og lauk námi sem svæðis- bundinn leiðsögumaður á Vest- fjörðum vorið 1994. Tryggvi var vélvirki hjá Vél- smiðjunni Þór í eitt ár en flutti þá til Danmerkur og bjó þar um tíma. Hann réðst aftur í Vélsmiðjuna Þór og var þar vélvirki og verkstjóri en frá 1986 var hann yfírverkstjóri þar. Hann hefur verið iðnfulltrúi og málmiðnakennari við Fram- haldsskóla Vestfjarða frá 1991. Tryggvi hefur sinnt ýmsum fé- lagsstörfum, lék knattspyrnu með fsfirðingum og starfaði lengi að íþróttamálum, var formaður Knatt- spymufélagsins Vestra og Knatt- spyrnuráðs ísafjarðar og sat í stjóm ÍBÍ. Um árabil var hann for- maður Félags járiðnaðarmanna á ísaflrði. Fjölskylda Tryggvi kvæntist 12.11.1966 Guð- rúnu Á. Stefánsdóttur, f. 20.1. 1948, áfangastjóra og námsráðgjafa við Framhaldsskóla Vestfjarða og bæj- arfulltrúa Kvennalistans á Ísafírði. Hún er dóttir Stefáns Hauks Ólafs- sonar, f. 4.1. 1927, bankastarfs- manns, og Ástu Þórgerðar Jakobs- dóttur, f. 20.9. 1930, handverks- konu. Börn Tryggva og Guðrúnar eru Stefán Haukur Tryggvason, f. 3.2. 1965, vélvirki og starfsmaður í Mjólkursamlagi Ísfírðinga, kvænt- ur Guðbjörgu Gísladóttur og eru börn þeirra Guðrún Ásbjörg, Aldís Dröfn og Anna María; Jakob Ólaf- ur Tryggvason, f. 27.8. 1967, stál- virkjasmiður og starfsmaður hjá Vélsmiðjunni Þristi á ísafirði, kvæntur Hönnu Mjöll Ólafsdóttur og em böm þeirra Ólafur Njáll og Hafrún; Heiðrún Tryggvadóttir, f. 19.12. 1973, íslenskunemi við HÍ en sambýlismaður hennar er Kári Samúelsson; Ásta Tryggvadóttir, f. 1.5. 1976, sjúkraliði á ísafirði en sambýlismaður hennar er Bjami Freyr Guðmundsson og eru sonur þeirra Guðfinnur Tryggvi. Systkini Tryggva eru Guðjón Gísli Ebbi, f. 22.9. 1935, skipstjóri í Reykjavík; Guðmundur Annas, f. 24.12. 1937, dmkknaði 10.3. 1960, sjómaður; Alda Erla, f. 24.6. 1939, hjúkrunarfræðingur á ísafirði; Jör- undur, f. 29.6. 1942, sjómaður á ísa- firði; Anna Guðrún, f. 5.9. 1944, Tryggvi M. Sigtryggsson. skrifstofumaður í Reykjavík; Hólm- fríður, f. 29.10. 1947, starfskona á hjúkrunarheimili í Reykjavík; Árni, f. 9.12. 1949, húsasmiður, Hafnarfirði; Jón Björn, f. 15.11. 1954, tannlæknir í Keflavík; Hreið- ar, f. 6.7.1956, kennari í Reykjavík; Katrín, f. 11.8. 1959, húsmóðir og fiskvinnslukona á ísafirði. Foreldrar Tryggva: Sigtryggur K. Jörundsson, f. 5.8. 1909 á Flateyri, og Hjálmfríður S. Guðmundsdóttir, f. 19.8. 1914 í Staðardal í Súganda- firði. afmælið 9. mars 75 ára 50 ára Aase J. Kaldal, Eskihlíð 16B, Reykjavík. Fjóla Bjarnadóttir, Grundarvegi 17, Njarðvík. Jensína Jónsdóttir, Unufelli 31, Reykjavík. Jón Gústafsson, Rauðafelli, Bárðdælahreppi. Þorlákur Magnússon, 70 ára hreppi. Ingimar H. Guðmundsson, Skaftahlíð 40, Reykjavík. Kristinn Erlendsson, Vesturási 62, Reykjavík. Jakob H. Þórðarson, Stórasvæði III, Grýtubakka- 60 ára hreppi. Elsa Stefánsdóttir, 40 ára Skarðshíð 13G, Akureyri. Kristjana Bjarnadóttir, Breiðanesi, Gnúpverjahreppi. Steinunn Ingvadóttir, Borgarhrauni 12, Grindavík. Magnús Þ. Einarsson, Breiðvangi 43, Hafnarfirði. Tryggvi Gunnarsson, Austurholti I, Borgarbyggð. Ingibjörg Ingimundardóttir, Austurbraut 11, Höfn í Hornafirði. Helga Þóra Þórsdóttir, Flúðaseli 14, Reykjavík. Elín Þorbjömsdóttir, Hátröð 5, Kópavogi. Eiríkur Siguijónsson W RAKA- OG# JONATÆKIN FRÁ BIONAIRE GETA KOMIÐ í VEG FYRIR * HÖFUÐVERK * ÞURRK í HÚÐ * ÞURRK íAUGUM * ÞURRK í HÁLSI * STÖÐURAFMAGN RYKMYNDUN lIOWALKli - L-VÚLll L’lL^/á LxLeLLLíU KRINGLUNNI 9. MARS FRÁ KL. 12 újsöm/m. Reykjavík: Byggt og Búið Kringlunni, Húsasmiðjan Skútuvogi 3, Glóey, Armúla 19, Bílanaust, Borgartúni 26. Rafsól Skipholti 33. Kópavogur: Festa, Hamraborg 14. Hafnarfjörður: Rafbúðin, Álfaskeiði 31. Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6. Selfoss: Árvirkinn, Eyrarvegi 29. Akureyri: Hljómver, Glerárgötu 32, Raflagnadeild KEA, Óseyri 2. ísafjörður: Straumur, Silfurgötu 5. Húsavík: Smiðjan Valholtsvegi. Keflavík: Ljósboginn Hafnargötu 25. 8 K4 LJT\~P LA-ST 1117 Vöhitcigi 3, Most'cllshrc. Stmi 566-8300 Eiríkur Sigurjónsson, bóndi og iðnverkamaður, Hafnarfirði, verð- ur áttræður mánudaginn 11. mars. Starfsferill Eíríkur fæddist að Sogni í Kjós- arhreppi í Kjósarsýslu og ólst upp í Sogni í Kjós. Hann sinnti bústörf- um og vinnumennsku í sveit, var vinnumaður á Sogni og á Reyni- völlum. Eiríkur stundaði verka- mannavinnu við vegagerð, í bygg- ingariðnaði og í sláturhúsi. Aðal- starfsvettvangur voru bústörf í Sogni, fyrst við hlið föður síns, en hann tók við búi í Sogni um 1960. Eiríkur fluttist til Hafnarfjarðar 1979 og hefur búið þar síðan. Hann starfaði í Rafha á árunum 1979-90. Fjölskylda Eiríkur kvæntist 17.06. 1960 Guðnýju Gisladóttur, f. 17.08. 1918, húsmóður og iðnverkakonu. Hún er dóttir Gísla Jónssonar, f. 05.01. 1885, d. 02.10. 1963, b. á Hnappa- völlum í Öræfum, og k.h., Guðnýj- ar Pálsdóttur, f. 04.02. 1889, d. 29.06. 1973, húsmóður. Eiríkur og Guðný eiga engin böm, en jafnan var mikið af börn- um í sumarvist að Sogni. Systkini Eiríks em Ragnhildur, f. 29.06. 1917, húsmóðir í Reykja- Eiríkur Sigurjónsson. vík, gift Ögmundi Hannessyni, f. 16.03. 1911; Hulda, f. 01.11. 1927, húsmóðir og símavörður í Eyrar- koti í Kjós, gift Karli Andréssyni, f. 19.06. 1914, d. 19.09. 1991. Foreldrar Eiríks voru Sigurjón Ingvarsson, f. 29.10. 1889, d. 22.07. 1970, b. að Sogni í Kjós, og k.h., Gróa Guðlaugsdóttir, f. 28.10. 1892, d. 01.07. 1961, húsmóðir að Sogni. Eiríkur og Guðný kona hans taka á móti gestum í veitingasal Skútunnar, Hólshrauni 3 í Hafnar- firði, sunnudaginn 10. mars kl. 15-18.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.