Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Qupperneq 30
30
LAUGARDAGUR 14. MARS 1998 DV
%ikamál
Pagowski. Þeim var
gefiö aö sök aö hafa sameiginlega
staöið að morði Eugens Pagowskis,
þrjátíu og sex ára sonar konunnar
andspænis þeim. Að hafa í raun
réttri tekið hann af lífi með því að
þrýsta skammbyssuhlaupi að gagn-
auga hans og hleypa af.
Svefnlyf
Franz var getið að sök að hafa
skotið Eugen en Justine að hafa gef-
ið honum svefnlyf í drykk svo að
auðveldara yrði að ráða hann af
dögum. Justine var eiginkona hans,
móðir tveggja barna þeirra og
tengadóttir Elisabeth.
Saksóknarinn í þýska bænum
Paderborn fékk málið. í réttarsaln-
um fór hann yfir hvert einstakt at-
riði og segja má að næstum hvert og
eitt hafi fengið mikið á viðstadda.
Var haft á orði að mörg þeirra gætu
verið beint úr óhugnanlegri kvik-
mynd.
„Það var Justine sem kom með
hugmyndina um aö losa sig við Eug-
en,“ sagði Franz Múting, hinn þrjá-
tíu og fjögurra ára elskhugi hennar.
„Hún vildi hann ekki lengur hjá sér.
Hann vann allt of mikið og hafði
hvorki tima fyrir konu né böm.“
Eugen Pagowski hafði unnið mik-
ið. Það var rétt, en hann gerði það
til að veita fjölskyldunni öryggi og
þokkaleg lífskjör. En þegar Franz
sagði hann vanrækja bömin lokaði
Elisabeth augunum. Hún minntist
sonar síns sem góðs föður sem lét
böm sín ganga fyrir í einu og öllu.
En þetta var ekki þaö eina dapur-
lega sem hún þurfti að hlusta á I
réttinum.
Ástríðufull kona
„Justine var ástriðufull," sagði
Franz. „Og hún fékk ekki nóg hjá
Eugen. Það var því gott að hún gat
leitað til mín.“
hafði
átt að
nota
hluta launa
sonar hennar
til að ráða hann
af dögum.
Leigumorðinginn, sem leita átti
til, var vinur Franz og Justine, Ralf
Willeke, tuttugu og níu ára. En
hann brást á síðasta augnabliki.
„Ég var því neyddur til að skjóta
Eugen sjálfur," sagði Franz. Og það
var ekki að sjá að hann tæki það
nær sér að segja frá þessu en venju-
legur maður að strjúka hár af jakk-
anum sínum.
Tilefnið var bflakaup
Ákveðið var að ráða Eugen af
dögum úti í skógi. Þörf var því á að
fá hann í ökuferð og tilefnið sem
nefnt var í því sambandi var kaup á
nýjum bíl. En áður en lagt var af
staö gaf Justine honum drykkinn
með svefnlyfinu í.
Franz settist undir stýri og eftir
nokkra stund sofnaði Eugen í sæt-
inu við hlið hans. Franz tók þá
stefnuna út í nærliggjandi skóg.
Hann stöðvaði bílinn á stíg, tók
fram skammbyssuna, bar hlaupið
að höfði Eugens og hleypti af.
„Hann dó víst á staðnum," sagði
Franz, „en bíllinn varð eitt svinari.
Ég hafði alls ekki hugsað út í það.“
„Varstu ekki heimilisvinur?"
spurði saksóknarinn.
„Jú, það verður víst að kalla mig
það,“ sagði Franz og kinkaði kolli,
„en því fylgdi svo ýmislegt. Þú veist
víst hvað ég á við.“ Aftur brosti sak-
bomingurinn en hélt svo áfram:
„Justine fékk áhuga á mér þegar
hún sá mig í fyrsta sinn og það leið
ekki á löngu þar til við fórum sam-
an í bóliö. Hún hafði ekkert að gera
þegar hann var ekki heima og böm-
in í skóla.“
Kynsterk kona
Allra augu beindust nú að
Justine Pagowski, hinni þrjátíu og
eins árs gömlu konu á sakborninga-
bekknum. Kynbomba gat hún ekki
talist. Hárið var liðað en heldur
óreiðulegt. Þá var hún í brúnum og
ekki sérstaklega snotrum jakka.
Lengst af hafði hún setið þegjandi. í
þau skipti sem hún hafði orðið að
svara spumingum hafði henni legið
svo lágt rómur að vart heyrðist til
hennar.
En mætti marka orð Franz var
hún nánast kynóð. „Hún vildi alltaf
vera að því og á allan hátt,“ sagði
hann næst.
„Hringdi hún ekki heim til þín
kvöldið sem Eugen dó?“
spurði saksóknarinn.
„Jú, hún var í
miklu uppnámi og
ég varð að koma
á stundinni.
Hún hafði
mikla
þörf
fyr-
framið hafði konan séð Justine
hleypa manni inn til sín. „Og það
var alls ekki maðurinn hennar!"
sagði nágrannakonan þegar hún
sagði rannsóknarlögreglunni sögu
sína.
Grunsemdirnar um að Justine
Pagwoski væri sek leiddu til þess að
rannsóknarlögreglumenn fóru að
sækja hana til yfirheyrslu. En þeir
komu að læstum dymm og þótt þeir
hringdu og bönkuðu lét hún ekki
sjá sig. Að lokum urðu mennimir
að brjóta upp dymar. Þá kom í ljós
að Justine hafði ekki farið til dyra
af því hún var í miðjum ástarleik í
rúminu.
Franz Múting kvartaði í réttinum
yflr framkomu lögreglumannanna.
„Viö vorum ekki í einni einustu
spjör," sagði hann „en þeir komu
inn í svefnherbergið og gláptu á
okkur. Það var rétt að við fengum
tíma til að klæða okkur."
Réttarhöldin yfir þeim Franz
Múting, Justine Pagwoski og
Ralf Willeke stóðu í þrjá
daga og vöktu athygli
fyrir þær sérstöku lýs-
ingar sem fram
komu.
Þrír dómarar
kváðu upp dóminn
yfir sakborningun-
um eftir að þeir
höfðu verið sakfelld-
ir. Öll þrjú fengu
lífstíðardóma.
Eftir dómsupp-
kvaðninguna fylgd-
ust flestir viðstaddra með
Elisabeth Pagowski, móður Eugens.
Hún leitaði stuðnings hjá lögmanni
sínum því nú, er málflutningurinn
var afstaðinn, var eins og allt sem
gerst hafði í réttarsalnum væri
henni um megn. Hún skalf.
Þeir sem til hennar þekktu sögðu
síðar að hún hefði í raun staðið ráð-
þrota frammi fyrir því sem gerst
hafði. Hún hefði ekki getað skilið
þennan heim, þar sem tilfinninga-
kuldi, sjálfshyggja og illska heföu
leikið svo stórt hlutverk. Hún hefði
oft leitt hugann að barnabörnunum
sínum tveim meðan réttarhöldin
stóðu. Enginn hefði svo mikið sem
minnst á þau þótt það áfall sem þau
höfðu orðið fyrir myndi gerbreyta
lífi þeirra. Faðirinn væri dáinn og
móðirin á leiö í ævilangt fangelsi.
En Elisabeth Pagowski haföi tek-
ið sína ákvörðun áður en hún gekk
úr dómhúsinu. Hún ætlaði að taka
bömin að sér og sjá um uppeldi
þeirra. Því haföi hún heitið sjálfri
sér og því lýsti hún yfir við börnin
þegar heim kom.
Myndir taidar aö ofan:
Justine Pagowski.
Eugen Pagowski.
Elisabeth Pagowski.
Franz Muting.
Ralf Willeke.
hún getað fundið upp á hverju
sem var. Hún heföi jafnvel getað
kjaftað frá þegar kynhvötin náði
tökum á henni."
„Ókstu þá heim til hennar?"
„Já, við höfðum samfarir. Hún
var alveg óð og þetta eru bestu mök
sem ég hef nokkru sinni átt.“
Það varð grafarþögn í réttarsaln-
um.
Sagan af líkinu
Dómararnir bára með sér að
þeim var brugðið við þessi orð. Og
tengdamóöir Justine, Elisabeth, átti
greinilega bágt með að sitja undir
frásögninni. Loks rauf saksóknar-
inn þögnina. „Varstu þá búinn að
losa þig við likið?“
„Nei, ég hafði verið of önnum kaf-
inn til þess,“ svaraði Franz. „En
Ralf hafði lofað að gera það.“
Ralf Willeke hafði fallist á að gera
það en ekki komið því í verk.
„Hann vafði það inn í gamalt
teppi,“ sagði Franz „og lagði það aft-
ur í Volkswagen-rúgbrauðið sitt.
Hann hafði í huga að aka með það
út í nærliggjandi skóg daginn eftir.
Þcir er djúpt stöðuvatn.“
En það gerðist dálítið sem setti
babb í bátinn. Um nóttina var bíln-
um stolið. Eitthvert þjófagengi tók
hann og notaði við innbrot en skildi
hann síðan eftir í útjaðri bæjarins.
Þar fann lögreglan hann daginn eft-
ir og ók honum á svæði þar sem
hún geymdi bila sem hún tók í
vörslu sína. Ekki var hugað að því
sem í honum var og lá líkið því
áfram í honum.
Bent á morðingjana
Þrír dagar liðu nú án þess að
nokkur liti á Wolkswagen-bílinn á
geymslustæði lögreglunnar. Þá hug-
uðu loks tveir lögregluþjónar betur
að honum. Er þeir opnuðu dymar
gaus á móti þeim óþefur. í ljós kom
lík sem farið var að rotna.
Er fréttin um morðið barst út
fékk nágrannakona Justine grun-
semdir um að ekki væri allt með
felldu um framkomu hennar. Dag-
inn sem morðið var talið hafa verið
Dómsorð
Elisabeth Pagowski var miðaldra,
vel klædd og kom vel fyrir þar sem
hún sat í réttarsalnum við hliðina á
lögmanni sínum. Hún var í hvítri
blússu og bláum jakka og lengst af
sat hún þögul en stöku sinnum
mátti sjá sársaukakippi i andlitinu.
Beint á móti henni, á sakbom-
ingabekknum, sat þrenningin sem
ákærð hafði verið fyrir morðið sem
var tilefni réttarhaldanna, Franz
Múting, Ralf Willeke og Justine
Sakborningurinn reyndi að brosa
en engum í salnum fannst neitt
fyndið við orð hans. Næst reyndi
hann því að koma sökinni af sér að
hluta.
„Þetta var allt saman hugmynd
Justine. Hún haföi lagt til hliöar
allnokkra upphæð (jafnvirði 150.000
króna) af heimilispeningunum og
þá átti ég að nota til að borga leigu-
morðingja."
Elisabeth kipptist til þegar hún
heyrði þetta. Það