Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Qupperneq 43

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Qupperneq 43
LAUGARDÁGUR 14. MARS 1998 55 Gaui litli og Samvinnuferðir-Landsýn: Feitir og fjörugir til Mallorca Gaui litli er þekktur aö öðru en að feta í troðnar slóðir. Nú vinnur hann að undirbúningi sólarlanda- ferðar í samvinnu við ferðaskrif- stofuna Samvinnuferðir-Landsýn. Þetta er engin venjuleg sólarlanda- ferð því hún er einkum ætluð fólki sem er í yfirþyngd og er kjörorð ferðarinnar: Feitir og íjörugir i fjör- unni. Ásamt Gauja mun Sigurbjörg Jónsdóttir annast fararstjórn í ferð- inni. Nagandi samviskubit Gaui segir tilganginn með þessari ferð, sem verður á tímabilinu 20. maí til 13. júní nk„ vera þá að gefa feitu fólki tækifæri til að ferðast á þægi- legan hátt og í góðum félagsskap. „Það má rekja upphafið að þessu til síðasta hausts en þá tók ég mér frí í ágúst og það sama gilti mn það fólk sem var á námskeiðum hjá mér fyrr um sumarið. Þegar við svo hittumst aftur í. september höfðu allir sömu sögu að segja. Fólk hafði farið í frí og ákveðið að hugsa ekki mikið um í skoöunarferð til höfuöborgarinnar Paima. finninguna að það sé eitthvað öðru- vísi,“ segir Gaui. En Gaui segir að það séu fleiri fylgikvillar þess að vera feitur á ferðalagi. Til dæmis passi fólk illa í sæti flugvéla og oftar en ekki séu sætisólar of stuttar. „Á þessu ætlum við að taka fyrir- fram þannig að enginn þarf að nið- urlægja sig við að biðja um fram- lengingu þegar i flugvélina er kom- ið. Það er okkar mottó að fólki líði vel alla ferðina," segir Gaui. Sárstakt hlaðborð í ferðinni verður boðið upp á hefðbundnar skoðunarferðir en einnig verður efnt til skemmtana á kvöldin. Þá verða skipulagðar gönguferðir svo fólk geti haldið sér í formi. „Þá verðum við með sér- stakt fitu- og sykursnautt hlaðborð á hótelinu og eins látum við flytja sérstaklega inn fyrir okkur fitu- snauðan bjór frá Bandaríkjunum. Þannig að það er hugsað sem best fyrir öllu. Allir velkomnir hreyfingu eða matar- æði á meðan reyndu allir slappa af og 1 það huggulegt en með þeim Hópurinn hans Gauja litla mun hafa nóg fyrir stafni á Mallorca og meöal annars fara formerkjum að samviskubitið kraumaði undir niðri allan tímann. Fólk var jafnvel að fá kvíða- köst vegna heimkomunn- ar og hugsaði mikið um það hvernig það yrði að þurfa að byrja aftur eftir að hafa kannski bætt á sig Gaui litli veröur fararstjóri á Mallorca í apríl. nokkrum kílóum," segir Gaui. Þá segir Gaui hugmyndina að sameiginlegri ferð þeirra sem eiga í baráttu við aukakílóm hafa kvikn- að. Það sé líka gott að geta veitt hvert öðru aðhald og stuðning þótt fólk sé í sumarfríi. Ekki meinlætaferð Gaui ætlar með hópinn til Mall- orca eins og fyrr segir og um er að ræða venjubundna sólarlandaferð að mestu leyti. „Þetta verður engin meinlætaferð heldur munum við gera í því að hafa það gott og skemmta okkur. Það er nefnilega eitt að vera feitur eða vera feitur á sólarströndu innan um allar mjónumar. Ég er ekki í vafa um að fólki mun líða betur í hópi jafningja og það fær síður á til- Tólf þúsund flugvélar koma á flughátfð- ina í Lakeland árlega /s Gaui leggur á það ríka áherslu að allir sem geta hugsað sér að ferðast með feitu fólki séu velkomnir í ferð- ina. „Þessi ferð er öllum opin og er langt frá því að vera einhver sérferð fyrir þá sem sækja námskeiðin hjá mér. Það eru allir feitir og fjörugir velkomnir," segir Gaui að lokum. -aþ r Utígeim Fjöldi fyrirtækja vinnur nú að hönnun geimflauga sem ætlað er að flytja góðglaða ferðamenn út fyrir lofthjúp jarðar. Ferðaskrifstofan Zeg- hrahm Space Voyages áætlar sína fyrstu geimferð árið 2001; á meðan flest geimferðafyrir- tækin eru aö gera áætlun sem gerir ráð fyrir ferðum ein- hvern tíma á næstu tíu árum. [ Fyrir þá sem vilja ekki biða : svo lengi stendur nú til boða að prófa loftleysi í Stjörnu- borginni svokölluðu sem er staðsett nálægt Moskvuborg. Þar eru farþegar leiddir um borð í geimflaugarlíki sem hingað til hefur gegnt hlut- verki æfingastöðvar rúss- neskra geimfara. Það þykir mesta upplifun að hanga í lausu lofti í orðsins fyllstu merkingu. Hægt er að nálgast upplýsingar um geimferðir á slóðinni www.spacea- idventures.com á Netinu. Jákvæð áhrif Titanic Skemmtisiglingar um ■ heimsins höf eru ferðamáti sem nýtur síaukinna vin- sælda. Árið 1997 þótti gjöfult fyrir þá sem reka slík skip en 1 frá Bandaríkjunum einum fóru 5 milljónir manna í | skemmtisiglingu. Bókanir það f: sem af er þessu ári virðast | ætla að fara fram úr björtustu vonum manna og ekki þykir stórmyndin Titanic spilla fyr- ir þessum áhuga. Raunar ótt- Iuðust sumir að sjóslysamynd myndi spilla fyrir skemmti- siglingum almennt en það er öðru nær. Hefja flug til Brasilíu Belgíska flugfélagið Sabena gerði nýverið samning við brasilíska flugfélagið VASP. Samningurinn felur í sér tíð- ari flug frá Belgíu til þriggja áfangastaða i Brasilíu, Sao Paulo, Salvador de Bahia og Recife. Forsvarsmenn Sabena segja að í fyrstu verði um fimm ferðir á viku og fyrsta ferðin er áætluð 4. maí næst- komandi. < A flughátíð í Flórída Flughátíðin SUN ’N FUN er næst- stærsta flughátíð heims, haldin í borginni Lakeland í Flórída. Fyrsta flugs félagið, sem er félag íslenskra flugáhugamanna, skipuleggur nú hópferð, dagana 20.-27. apríl, á þessa miklu flughátíð. Flughátíðin verður hápunktur ferðarinnar en þar er reiknað með um 12 þúsund flugvélum og 650 þúsund gestum. „Það má líkja þessu við áfengislausa þjóðhátíð þar sem flugið er aðalatriðið. Á hverjum degi á milli 14 og 16 er snilldarleg flugsýning í lofti en þess utan er hægt að skoða flugvélamar á jörðu niðri,“ segir Gunnar Þor- steinsson, formaður Fyrsta flugs fé- lagsins. Vöktu athygli í fyrra Fyrsta flugs félagið efndi einnig til ferðar á hátíðina í fyrra og þá vakti íslenski hópurinn mikla at- hygli og munu skipuleggjendur SUN ’N FUN ætla að taka sérstak- lega á móti íslendingunum i ár. „Þetta er önnur ferðin okkar á þessa hátíð og við búum að ákveð- inni reynslu frá þvi í fyrra þannig að ýmislegt verður gert betm- í ár. Það er gríðarlega margt um að vera á sýningarsvæðinu; tugir fyrir- lestra um flug á degi hverjum, kvikmyndasýningar, útimarkaður með flugvarning, áhugavert flug- minjasafn og margt fleira. Við ætl- um að blanda saman í réttum hlut- föllum flugáhuga, sólböðum og annarri skemmtan þannig að allir í fjölskyldunni geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Frekari upplýsingar um flughátíðina og ferðina þangað eru veittar hjá Fyrsta flugs félag- inu. -aþ Tölvur, Netið, tækni og vísindi Alla mánudaga segir allt sem segja þarf
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.