Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1998, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1998, Blaðsíða 10
10 menning____________________________________________________________ MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1998 JjV ÍÆgir með bestu smá- söguna Úrslit liggja fyrir í smásagna- keppni Vikunnar. Tæplega 200 Ismásögur bárust í keppnina og hafði dómnefndin því mikið verk að vinna, en hana skipuðu; Ingibjörg Haraldsdóttir rithöf- undur, Þórarinn Eldjám rithöf- undur og Sigríður Arnardóttir, ritstjóri Vikunnar. Sigurvegari keppninnar er Ægir Hugason úr Reykjavík, en 1 verðlaunasmásagan í útlöndum I er ekkert skjól er fyrsta smásaga Ehans. Ægir hlaut að launum tveggja vikna ferð til Portúgals með Úrval- Útsýn. í öðru sæti varð Guðmundur Ólafsson, leikari og rithöfundur, en Gerður Kristný, rithöfundur og ritstjóri, lenti í þriðja sæti. ÍSævarreið á Rás eitt Flutningur gamalla leikrita 1 hefur notið mikilla vinsælda I hlustenda rásar 1 í sumar. Alla | miðvikudaga kl. 13.05 eru flutt 1 leikrit í fullri lengd í leikritaröð- I inni Minningar í I mónó. í dag verður I flutt verk sem frumflutt var árið 1964, Sævarreið eft- I ir J.M. Synge i þýð- ingu Bjarna Bene- diktssonar. ÍLeikendur era ekki af verri end- 1 anum, Helga Val- | týsdóttir, Arnar Jónsson, Helga Bachmann, Margrét Guðmunds- [ dóttir, Baldvin Halldórsson, Brí- | et Héðinsdóttir og Sigríður | Hagalín. Leikstjóri er Thomas McAnna. Sævarreiö verður end- I urflutt næstkomandi laugardags- > kvöld. Gallerí á Akranesi ? Fyrir skömmu opnaði Bjarni i Þór Bjarnason myndlistarmaöur : gallerí og vinnustofu að Skóla- É braut 22 á Akranesi. Bjarni Þór í? er kunnastur fyrir minnismerk- ið um Þorgerði Brák sem er í I Borgamesi og minnismerkið um I hafmeyjarslysið sem er við > gamla vitann á Akranesi. í gall- | eríinu verða til sýnis og sölu > :? vatnslitamyndir, olíumálverk og ; grafík, auk skopmynda Bjama 1 sem hafa vakið mikla athygli og 1 era orðnar vinsælar gjaflr við Iýmis tilefni. Að sögn Daníels, fréttaritara DV á Akranesi, þá þarf fólk ekki annað en að koma með mynd af manni og segja lít- | illega frá persónuleika viðkom- I andi, þá teiknar Bjarni skemmti- lega skopmynd á svipstundu. „Við ætlum að gera tilraunir með það að vinna liti úr jarðefnum. Við erum búin að vera að safna efni og ég verð að segja að það kemur mér mjög á óvart hvað fjölbreytnin er mikil.“ Þetta segir Dröfn Friðfinnsdóttir myndlistarmaður en hún hefur ásamt hópi listamanna opnað sýn- ingu, sem ber yfírskriftina Alþjóðleg- ir listadagar, í tengslum við Lista- sumar á Akureyri. Sýningin hefst í Deiglunni en sameiginleg vinnustofa listamannanna verður á jarðhæð Ket- ilhúss. Hópurinn hittist í Litháen fyrir ári en hann samanstendur af átta lista- mönnum frá fjórum löndum, Hollandi, Danmörku, Litháen og Is- landi. Auk Drafnar eru Laufey Páls- dóttir frá Akureyri og Kristín Geirs- dóttir úr Reykjavík fulltrúar íslands í hópnum. „Við ætlum að hafa samsýningu, eða nokkurs konar kynningu verka sem listamennirnir voru með í farteskinu en einnig ætlum við að vinna á sameiginlegri vinnustofu til nítjánda ágúst. Þar koma jarðefnin, sem við höfum verið að safna, til sög- unnar,“ segir Dröfn. „Við höfum safnað leir og í stuttu máli öllu því sem gefur lit á pappír en litirnir geta verið allt frá gulu og upp í svart. Það veröur örugglega dálítið misjafnt hvernig hvert okkar nýtir sér efnin. Sumir nota þau líklega sem þurrkrit en aðrir blanda efnin með línolíum, þurrkefnum og því sem við á til þess að efnin verði eins og oliumálning. Síðan ætlum við að gera tilraun sam- hliða þessu með það að setja vax í lit- inn. Á laugardag og sunnudag verð- um við svo með opið hús fyrir alla sem hafa áhuga á því að sjá hvernig okkur miðar.“ Þegar Dröfn er spurð að því hvem- ig gangi að vinna með fólki sem mað- ur þekkir ekki mikið þá segir hún að listamennimir hafi náttúrlega kynnst þessa viku sem þeir voru í Litháen en auðvitað reyni á hvern og einn, eins og alltaf þegar um hópstarf er að ræða. „Þó að þetta fólk sé einstaklega þægilegt í viðkynningu á örugg- lega eftir að reyna á samstarfið en það er ekki ástæða til þess að kvíða því. Það er ekkert okkar sem er svona „illa sérstakf ‘ eins og oft er sagt að listafólk sé,“ segir Dröfn og hlær. „Þetta eru reyndir listamenn með langan sýningaferil að baki og era því mjög vinnuvanir þó að ég viti ekki ná- kvæmlega hversu vel þeir eru þekktir í sínum heimalöndum." Þegar talað er um vinnuvana lista- menn þá ætti Dröfn Friðfinnsdóttir að teljast vön en hún tók við titlinum bæjarlistamaður á Akureyri nú í byrj- un ágúst. Dröfn segist verða á launum þetta ár og geta þar af leiðandi helgað sig myndlistinni. Áður hefur hún unn- ið hlutastarf hjá Akureyrarbæ en nú verður hún að breyta aðeins um takt því að samfara verðlaununum er ekki ætlast til þess að hún stundi launaða vinnu. Að sumu leyti segist Dröfn þó sakna vinnunnar því það hæfi henni vel að vinna með öðrum en hún segist líta á titilinn sem mikinn heiður, sér- staklega eftir að hún fór að finna fyr- ir jákvæðum viðbrögðum fólks. Dröfn segist enn fremur finna að til- raunirnar með jarðefnin veki áhuga. „Með þessu eram við að brjóta upp hefðir og venjur. Við erum afltaf að vinna með olíuliti, sömu túpurnar og sama dótið og það er skemmtilegt ef sýningin verður til þess að einhver af okkur, eða jafnvel einhver sýningar- gesta, heldur áfram að gera tilraunir með ný efni í framtíðinni." Frá Varena í Litháen, þar sem hópurinn hittist fyrst. Listasumar á Akureyri: Jarðefnin nýtt til listsköpunar Hlfinningaríkir Færeyingar og klámfengnir kirkjugarðsverðir Nýlega kom út áttunda hefti tímaritsins And blæs. Ritstjóri þess er Magnús Gestsson, sá er fyrrum nefndi sig Magnúx Gezzon og orti ljóð. í ritinu gefur að líta myndlist- ^ argaUerí, smásög- ur, þýðingar, ljóð og langt viðtal við rithöfundinn Bjarna Bjamason, þann sem skrifaði bókina End- urkoma Maríu. Við- talið er stórskemmti- legt og það allra ffam- bærilegasta í þessu hefti Andblæs. Bjami tjáir sig um rithöfunda, gfldi til- nefninga til verðlauna og fleira auk þess sem hann rifjar upp sögur úr æsku sinni með eftirminnilegum hætti. Til dæmis segir hann frá því þegar hann var í sveit, fékk vondan mat og lá undir grun um að ætla að keyra nið- ur kornabarn á traktor. Þá segir n hann að pár hans í dagbók hafi I bjargað sér, því að heimilisfólkið ’ las dagbókina, komst að því að honum var misboðið og allt varð betra eftir það. Þetta er dæmisaga um það hvemig fólk getur grætt á skrifum sínum. Gaflerí Andblær hlýtur að teljast nýjung í tímaritum af L þessari gerð. Galleríið rúmar einar átta myndir eftir jafn- marga listamenn og augljós sú viðleitni ritstjórnar að gera ritið þannig úr garði að það rúmi sem flestar listgreinar og form bók- menntanna. Þannig eru einnig þýðingar í Andblæ. Þetta eru þýðingar á færeyskum ljóðum Tórodds Poulsen, Martins Næs, Odd- fríðs Marna Rassmussens og Jóanesar Nielsen. Ef einhver hefur efast, þá gefa þessi ljóð tilefni til þess að ætla að Færeyingar i séu mjög | næmir á til- —- finningar og skrambi góð skáld. Þýðingar hljóta að vera unn- ar af ritstjóm, annað er ekki tekiö fram, en mikið er skemmtilegt að fá að lesa kveðskap frænda okkar í riti af þessu tagi. Ljóð íslenskra skálda eru einnig í Andblæ. Nokkur ljóðskáld eru vel þekkt og önnur minna eins og gengur. Af þekktari skáldum má nefna Jóhann Hjálmarsson og Eyvind P. Eiríksson og ljóð þeirra sem eru hlýleg og fógur og bera þroska höfundanna vitni. Steinar Bragi, ungur kirkjugarðsvörður, fær birt fjögur ljóð. Eitt þeirra er klám og svívirðingar út í gegn og ég get ímyndað mér að jafnvel harösviruðustu neðanjarðartöffarar fái verk fyrir brjóstið. Gaman væri að birta tilvitnun ef DV væri ekki fjölskyldublað. Af smásögum má nefna söguna Úr ap- ótekinu og heim, ferðasögu eftir Aðal- stein Svan Sigfússon, sem betur er þekkt- ur sem ljóðskáld, og Hrossasögu eftir Hjörvar Pétursson. Sagan Karlmenn eru glæpa- menn!! eftir Evu Heiðu Önnudóttur vekur at- hygli, en í stuttu máli sagt fjallar hún um það að karlmenn eigi undir högg að sækja í þjóðfélaginu og verði örugglega bráðum getulausir af hræðslu og samviskubiti vegna stöðugra ofsókna af hálfu kvenvarga. Leiðinlegt ef sú spá reynist rétt. Ég veit ekki hvort skal kalla tímaritið Andblæ einhvers konar neðanjarðartímarit. Um leið og jarðvegur virðist góður fyrir slíkar skilgreining- ar, þá rekur maður augun í eitthvað sem afsann- ar það með öllu. Það er heldur engin ástæða til þess að vera með skilgreiningar af því tagi. Ritið er skemmtilega fjölbreytt og sumt er gott og sumt er slæmt. Svona eins og lífið sjálft. Halla Har sýnir í Ed- inborg Nú stendur yfir listahátíð í Edinborg í Skotlandi, þar sem ís- ~ lensk listakona er þátt- takandi. Þetta er Halla Har mynd- og glerlista- kona, sem sýnir í Gall- erí Kunst í Stocbridge dagana 7. til 29. ágúst. Á sýningunni verða bæði figurativ og abstrakt ol- íumálverk, öll unnin á þessu ári. Halla Har hef- ur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum bæöi hér heima og erlendis. í ágúst stendur einnig yfir sýning á mynd- og glerverkum Höllu í Eldborg, húsi Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi. Sýning- in er opin laugardaga og sunnu- daga frá kl.10-16. Umsjón Þórunn Hrefna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.