Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1998, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1998, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1998 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EVJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaóaafgreiósla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SlMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar flölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: tSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverö á mánuöi 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblaö 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Sinnuleysi samborgaranna Nauögun ofbeldismanns á varnarlausri konu í vegarkanti fjölfarinnar umferöargötu dregur upp dökka mynd af íslensku samfélagi. Fjölmörg vitni voru að glæpnum. Augljóslega var hægt aö koma í veg fyrir hann. En enginn lagði á sig að aðstoða fórnarlambið. Atvikið á Reykjanesbrautinni gefur ríkt tilefni til að staldra við og spyrja: Á hvaða leið erum við? Hvert stefnir þjóðfélag þar sem vegfarendur leggja lykkju á leið sína fram hjá vamarlausum einstaklingi sem berst upp á líf og dauða við árásarmann? Málsatvik eru sérstök. Glæpurinn var ekki framinn að húsabaki. Hann var ekki framinn í skjóli nætur. Hann var þvert á móti framinn í augsýn flölda manna sem hefðu hæglega getað stöðvað tilræðismanninn. En sinnuleysi eða síngimi varð ofan á. Þegar fómarlambið gat slitið sig lausa og hlaupið út á götuna í leit að hjálp, aurug og illa til reika, datt engum í hug að stöðva bílinn og aðstoða hana. Aðvífandi ökumenn sveigðu meira að segja hjá og leyfðu árásarmanninum að halda óáreittum áfram! Glæpurinn var svo hrottalegur að lögreglumaður telur hann harkalegustu nauðgunarárás sem rekið hefur á flörur hans á hartnær fhnmtíu ára starfsferli. Er nema von að menn spyrji: Em dagar miskunnsama Samverjans taldir á íslandi samtímans? Aðeins eitt fjölmargra vitna gerði lögreglunni aðvart um átökin. Aðeins einn af tugum manna sem óku fram hjá! En aðvörunin kom of seint. Skaðinn var skeður. Eftir situr kona í sárum sem er ekki aðeins fórnarlamb ofbeldis heldur líka sinnuleysis samborgaranna. Til skamms tíma vom samhjálp og samkennd með náunganum eitt af aðalsmerkjum hins örsmáa samfélags okkar. Fólk fann til með öðrum og lagði á sig erfiði til að hjálpa þeim sem lentu í erfiðleikum. Það brást ekki sjálfsagðri skyldu gagnvart náunganum. En tímamir em að breytast til hins verra. Fálæti gagnvart öðrum ryður sér til rúms. Menn leggja sjálfa sig ekki lengur í hættu til að hjálpa öðrum. Hluti af skýringunni kann að liggja í því að harkalegt ofbeldi færist í vöxt og menn óttast um eigið skinn. Slíkur ótti kann að vera mannlegur þó ekki sé hann geðslegur. Hann skýrir hins vegar ekki hvers vegna aðeins eitt vitni af flölmörgum hafði fyrir því að láta lögregluna vita af verknaðinum. Skeytingarleysið á sér aðrar og ósýnilegri rætur. Mannleg samskipti em að breytast. Maðurinn lifir á öld hraðans þar sem tengsl hans við aðra menn verða sífellt lausari og yfirborðskenndari. Hann lifir eftir settum reglur yfírvalda og er orðinn vanur því að það séu aðrir en hann sem bera ábyrgð á umhverfinu. Smám saman er það því orðið hlutskipti annarra, lögreglu og yfirvalda, að skakka leikinn þegar leikreglur samfélagsins eru brotnar. Ábyrgðin á náunganum hefur færst yfir á ópersónulegt kerfi. Við skynjum ekki lengur að ábyrgð okkar nái út fyrir nánustu fiölskyldu. Þessa þróun, sem gætir í enn ríkari mæli í stórborgum útlandanna en hér, þarf að brjóta niður. í nútíma- samfélagi, þar sem glæpir em daglegt brauð, hvílir grunnurinn að víðtæku öryggi borgaranna á því að almenningur sé á verði og vinni saman. Samfélag virkar ekki nema með virkri þátttöku borgaranna. Við þurfúm að verja hvert annað og getum ekki vísað ábyrgðinni alfarið yfir á lögreglu og kerfið. Við gætum öll lent í sporum konunnar á Reykjanes- brautinni. Össur Skarphéðinsson Greinarhöfundur segir þessa „sterku" rfkisstjórn með 40 þingmenn á bak við sig ekki bara hafa gefist upp við að mæta útgjaldavextinum heldur valdi honum að verulegu leyti sjálf. Ríkisfjármál í uppnámi óvæntar tekjur - en það dugar ekki til. Útgjöldin vaxa hraðar. Og í stað- inn fyrir að takast á við útgjaldavandann grípur ríkisstjórnin til þess ráðs að fjármagna eyðsl- una með eignasölu. Þessi „sterka“ ríkis- stjóm með 40 þingmenn á bak við sig hefur ekki bara gefist upp við að mæta útgjaldavextinum heldur veldur honum að verulegu leyti sjálf með fjáraustri í gælu- verkefhi; fjölgun og stækkun sendiráða, endurbyggingu stjórn- arráðshúss, þátttöku í dýrum heimssýningum og viðlíka. Út af fyrir — „Þótt jafna megi reikninginn á næsta árí með eignasölu upp á ellefu þúsund milljónir króna hvað hyggjast menn þá gera næsta ár á eftir þegar eldurinn sprettur fram að nýju?u Kjallarinn Sighvatur Björgvinsson alþm. og formaður Alþýöuflokksins í umræðunum um fyrirætlanir ríkis- stjórnarinnar um sölu Landsbanka ís- lands hf. til erlendra aðila er eitt mikil- vægt atriði sem hlot- ið hefur litla utnfjöll- un. Það er hvers vegna ríkisstjóm- inni bráðliggur svo á. Fjármálaráðherra og utanríkisráð- herra hafa þó báðir nefnt ástæðima. Samt virðist hún hafa farið fyrir ofan garð og neðan í um- fjöllun um málið. Skýringar beggja ráðherranna era þær að án umfangs- mikillar sölu ríkis- eigna náist ekki jöfnuður í ríkis- rekstri. Utanríkis- ráðherra hefur sagt að til þess aö tekjur ríkisins nái að mæta útgjöldum þurfi að selja ríkiseignir fyr- ir 11 miUjarða króna þegar á næsta ári. Hvað er •maðurinn að segja? Hann er að segja að ríkis- útgjöldin séu í slíkum vexti að ekki sé unnt að mæta þeim nema með sölu verðmætra eigna ríkisins. Eyðsla og óráðsía Hvemig má það vera? Löngu samdráttarskeiði er lokið og ríkis- tekjur era í öram vexti. Heildar- launatekjur landsmanna hafa stór- aukist og þá um leið tekju- og launaskattar til ríkissjóðs og sprenging hefur orðið í verslun og viðskiptum, ekki síst vegna ört vax- andi innflutnings, m.a. á dýrum, varanlegum neysluvörum. Vöra- skiptajöfnuöurinn við útlönd er orðinn hrikalega neikvæður svo veldur áhyggjum. Af öllu þessu fær ríkissjóður hins vegar miklar og sig þörf og góö verkefni en fjár- munimir til þess að greiða kostn- aðinn eru ekki til. Nema með þvi að selja eignir. Olía á eld Ýmis ummæli ráðherranna í þessu sambandi era með ólíkind- um. Þannig hefur t.d. utanríkisráð- herra látið hafa eftir sér að sala á meirihlutaeign ríkisins í Lands- banka íslands til SE-bankans í Sví- þjóð sé til þess fallin að draga úr þenslu! Þvílíkt og annað eins! Vitaskuld er öllum kunnugt, að sala á ríkiseignum getur dregið úr þenslu - en þvi aðeins að salan eigi sér stað á innlendum vettvangi. Þeir fjármunir, sem fyrirtæki og einstaklingar á íslandi nota til kaupa á ríkisfyrirtækjum, fara þá ekki í annað og á þann hátt má draga úr þenslu. En sé um að ræða sölu til erlendra aðila eins og í þessu tilviki hefur það þveröfug áhrif. Þannig sækir ríkissjóður sér fé út fyrir landsteinana til þess að fjármagna rekstrarútgjöld sin og slíkur „innflutningur eyðslueyris" er eins og olía á eld - eykur þensl- una í þjóðfélaginu í stað þess að draga úr henni. Þetta á utanríkis- ráðherra að vita, maður með end- urskoðunarmenntun, en kýs að tala gegn betri vitund. Eignasala lækki skuldir Árið 1997 voru sett athyglisverð lög á Alþingi um fjárreiöur ríkis- sjóðs. Þar var reynt að færa stjóm ríkisfjármála í vitrænna horf. Rík ástæða er til að skoða hvort ekki sé rétt að setja í þann lagabálk fyrir- mæli um að tekjur af sölu verð- mætra ríkiseigna megi aðeins nota til þess að greiða niður skuldir rík- issjóðs en ekki til þess að standa undir rekstrarútgjöldum. Slík fyr- irmæli kæmu í veg fyrir að ríkis- stjórnir gætu fjármagnað rekstrar- útgjöld ríkisins og ríkisstofnana með sölu eigna. Rekstrarhalli á ríkissjóði í góð- æri, sem fjármagnaður er með sölu eigna, er eins og falinn eldur. Þótt jafna megi reikninginn á næsta ári með eignasölu upp á ell- efu þúsund milljónir króna hvað hyggjast menn þá gera næsta ár á eftir þegar eldurinn sprettur fram að nýju? Halda áfram að selja með- an eitthvað er til! Og svo hvað? Hannes Hólmsteinn Gissurarson hugmyndafræðingur varð fyrst þjóðkunnur þegar hann lét í ljós þá skoðun að ekkert væri athugavert við að maður seldi ömmu sína væri markaður fyrir hana. Skyldi SE- bankinn vera reiðuhúinn til þess að kaupa? Eða öllu heldur HofF- mann-LaRoche? Og hvað skyldi svo verða um ves- alings ríkissjóð ef sölumaður deyr? Sighvatur Björgvinsson Skoðanir annarra Hvers vegna vísindi? „Ef vísindin vilja halda stöðu sinni og mikilvægi verða þau að sannfæra okkur um að þetta sé svona, að þau geti lýst veröldinni betur en aðrar aðferðir, að þau séu áreiðanleg, að þau séu skynsamleg. Auk sið- ferðilegrar réttlætingar þarfnast vísindin því þekk- ingarfræðilegrar réttlætingar. Eins og kirkjam á mið- öldum þurfa vísindin nú að sannfæra okkur um að orð þeirra séu grundvölluð á eðli hlutanna ... Það er hins vegar augljóst að vísindamenn sem aðrir þurfa að vera tilbúnir að horfast í augu við þær efasemdir sem vaknað hafa um gildi framfaranna. Merm þurfa að geta svarað spumingunni: Hvers vegna vísindi?“ Þröstur Helgason í Mbl. 11. ágúst. Mannréttindi eða gróði „Risaflugfélagið British Airways er að hefja á ný áætlunarflug til írans þar sem ofstækisfull klerka- stjóm er enn viö stjórnvölinn. Ástæðan er sú gróða- von sem fyrirtæki á Vesturlöndum sjá nú í vaxandi mæli í þessu olíuvinnsluríki. Til að fá bita af kökunni era stjómendur British Airways reiðubúnir aö brjóta gróflega manméttindi á enska rithöfundinum Salman Rushdie. Þeir hafa ákveðið að banna honum að fljúga með vélum félagsins hvar sem er í heiminum. Þannig er fórnarlamb miskunnarlauss ofbeldis gerður að sökudólgi £if hálfu risafyrirtækis í vestrænu lýðræðis- ríki.“ Elías Snæland Jónsson í Degi 11. ágúst. Sameiginleg þolinmæði „Það var nú svo sem vitaö að á álagspunktiun gætu myndast hnútar en almennt finnst okkur að umferð- in hafi gengið jafnvel betur en við áttum von á. Til að mæta þessu álagi höfum við kallað út aukafólk og reynt að nýta þrjár akreinar í eina áttina og eina í liina ... Göngin era jafnný fyrir okkur og vegfarendur og við erum að skoða hvernig umferðin dreifist og hvar álagspunktamir eru. Menn þurfa að fara í gegn- um þetta ferli með sameiginlegri þolinmæði." Gísli Gíslason í Mbl. 11. ágúst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.