Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1999, Page 2
Fréttir
Byggðavandi og staða fiskverkafólks utan dagskrár á Alþingi:
Byggðamálin eru
komin í vítahring
- sagði Karl V. Matthíasson málsheíjandi. Samkeppnisstofnun taki á nýtingarstuðlum
Séra Karl V. Matthíasson, varaþingmaður Samfylkingar, lýsti þungum
áhyggjum yfir meintu óréttlæti í úthlutun aflaheimilda og byggðavanda sem
það hefði í för með sér.
I gær fóru fram á Alþingi utan-
dagskrárumræöur um byggðavand-
ann og stöðu fiskverkafólks. Máls-
hefiandi var séra Karl V. Matthías-
son, 2. þingmaður Vestfiarða. Sagði
hann ástand byggðamála vera kom-
ið í vítahring og vísaði til ástands-
ins á Þingeyri þar sem yfir 100
starfsmenn Rauðsíðu eru atvinnu-
lausir meðan fullkomin óvissa ríkir
um framtíð fyrirtækisins. Nýliðun í
sjávarútvegi, undirstöðugrein nær
allra smærri plássa á landsbyggð-
inni, væri engin vegna geipiverðs,
og skorts á aílaheimildum. Þetta
gerði það að verkum að smábátaút-
gerð og fiskvinnsla í landi ætti und-
ir högg að sækja gagnvart togurum
og vinnslu á hafi úti.
Sagði hann að á meðan ástand
þetta varaði væri fátt til ráða og
lagði áherslu á það við stjórnvöld að
þau gerðu sitt til þess að létta undir
með smábátaútgerð og fiskvinnslu í
landi með réttlátara fiskveiðistjórn-
unarkerfi. Hann lýsti einnig þeirri
skoðun sinni að tími væri til kom-
inn að fiskverkafólk fengi aukinn
þátt i stjórnun veiða og vísaði þar
til stefnuyfirlýsingar ríkisstjómar-
innar um aukna samvinnu laun-
þega og atvinnurekenda.
Lauk hann máli sínu á að varpa
fram þremur spurningum til Áma
Mathiesens sjávarútvegsráðherra,
meðal annars um hvort hann myndi
beita sér fyrir auknum aflaheimild-
um til smábátaútgerðar.
Árni sagði að fiskveiðistjómunar-
kerfið yrði endurskoðað, meðal ann-
ars með hagsmuni smærri byggðar-
laga fyrir augum. Hann sagði þó
ólíklegt að heimildir til þeirra yrðu
auknar fyrr en þeirri endurskoðun
væri lokið, það er ekki fyrr en á
þamæsta fiskveiðiári. Hann hvatti
fólk til að hafa ekki áhyggjur af
staðbundnum og tímabundnum
vandamálum og sagði ástand þjóð-
arinnar i atvinnumálum annars
sjaldan hafa verið betra.
Einar Oddur Kristjánsson, alþing-
ismaður Vestfirðinga, áréttaði að
vandinn væri tilkominn vegna þess
að frystitogurum og landvinnslu
væri mismunað stórlega þar sem
vinnsla á sjó þyrfti að sýna mun
minni nýtingu en landvinnslan.
Hann sagði að full ástæða hefði ver-
ið fyrir Sainkeppnisstofnun að
skoða þau mál.
-fin
Sjávarútvegsráðherra Noregs í heimsókn:
Bætt andrúmsloft
íslands og Noregs
- taka þarf á veiðum hentifánaskipa
Ami Mathiesen sjávarútvegsráð-
herra hitti norska sjávarútvegsráð-
herrann Peter Angelsen í
gær. Áttu Ámi og Angelsen
tveggja tima fund þar sem
rætt var það helsta i sam-
skiptum þjóðanna. Rætt var
um hvemig löndin gætu
unnið saman í kjölfar
Smugusamninganna. Var þá
aðallega rætt um leiðir til að
stemma stigu við veiðum
hentifánaskipa. Angelsen
sagði andrúmsloftið milli
þjóðanna hafa batnaö mikið
eftir Smugusamningana. Ætti eftir
að samþykkja þá og yrði það gert á
norska Stórþinginu þann 17. júní.
Peter Angelsen.
Því væri þetta afmælisgjöf til íslend-
inga frá Norðmönnum.
Mikið var rætt um sjáv-
arspendýr og hvemig
mætti nýta þau. Sjávarút-
vegsráðherrarnir ræddu
hugsanlega samvinnu á al-
þjóðlegum vettvangi til
þess að berjast fyrir mál-
stað þeirra sem hygðu á
hvalveiðar. Að sögn Áma
Mathiesen hafa samskipti
ríkjanna batnað mikið eftir
Smugusamninga því áður
hefðu óleyst mál í sam-
bandi við Smuguna verið það eina
sem komst að í viðræðum milli ráð-
herra. -EIS
Samstarf LM Ericsson og
Íslandssíma undirritað
Undirritaöur var í gær samstarfssamningur milli LM Ericsson og íslands-
síma um heildarlausn í fjarskiptum fyrir Íslandssíma. Andvirði samningsins,
sem gildir í þrjú ár, er sagt nema hundruðum milljóna króna. Sturla Böðvars-
son samgönguráðherra fagnar samningnum og lofar að stuðla að heil-
brigðri samkeppni í fjarskiptum.
Svik og prettir ökukennara og fyrrverandi lögregluþjóns:
Eg er ekki glæpamaöur
- segir Gylfi Guöjónsson sem passar við lýsinguna
„Ég er bæði ökukennari og fyrr-
verandi lögregluþjónn eins og sá
starfsfélagi minn sem hnepptur var
í gæsluvarðhald fyrir að falsa skjöl
vegna ökuskírteina. Síminn hefur
ekki stoppað heima hjá mér. Það
eru allir að athuga hvort ég sé í
fangelsi," sagði Gylfi Guðjónsson
ökukennari sem reyndar varaði við
gloppóttu kerfi við útgáfu ökuskír-
teina hér á landi í DV fyrir 20 árum.
„Ég skrifaði grein eftir heimsókn
sem ég fór í til Alamogordo í Nýju-
Mexíkó. Þar taka menn bílpróf á
lögreglustöðinni og ljósmynd af við-
komandi er tekin á staðnum. Þá er
tekið sjónpróf og sakavottorði flett
upp í tölvu. Að þessu loknu er öku-
skírteinið prentað út með mynd og
öllu án nokkurra milliliða og allt
svindl útilokað. Á þetta var ég að
Gylfi Guðjónsson: - Var búinn að vara við þessu. DV-mynd Pjetur
benda í grein minni í DV fyrir 20
árum og nú kemur á daginn að
menn hafa fundið glufu í íslenska
kerfinu til að svindla á,“ sagði Gylfi
og bætti því við að það væri kald-
hæðni örlaganna að lýsingin á
meintum brotamanni í þessu máli
ætti við sig í öllum aðalatriðum.
Ökukennarinn sem grunaður er
um að hafa falsað gögn vegna
meiraprófsskírteina í samvinnu við
tvo starfsmenn Umferðarráðs stóð í
alls kyns hliðarviðskiptum auk öku-
kennslunnar. Hann flutti inn notaða
bíla og bifhjól og átti við spilafíkn
að stríða. Samkvæmt heimildum
DV má rekja meint afbrot ökukenn-
arans til bágs fjárhags vegna fyrr-
nefndra viðskipta, sem gengu ekki
öll jafnvel, og spilaástríðunnar sem
varð honum dýrkeypt. -EIR
ÞRIÐJUDAGUR 15. JUNI 1999
Stuttar fréttir dv
Reykjavíkurflugvöllur
Sturla Böðv-
arsson sam-
gönguráðherra
og Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir
borgarstjóri und-
irrituðu sam-
komulag um
Reykjavíkurílug-
vöU í gær. Samkvæmt því verður
ReykjavíkurílugvöUur miðstöð inn-
anlandsflugs a.m.k. tU ársins 2016.
Dýrari íbúðir
íbúðaverð hefur hækkað um
12,5% á einu ári - eða um 10% um-
fram hækkun vísitölu neysluverðs
að sögn Dags.
Fyllibyttur teknar
Tveir Islendingar voru handtekn-
ir vegna ofurölvunar á flugveUi i
London í gærmorgun en þeir voru á
leið tU íslands með farþegaþotu Atl-
anta-flugfélagsins. Af öryggisástæð-
um þótti ekki stætt á því að hleypa
þeim um borð í vélina. FlugvaUar-
lögreglu fannst einnig öryggi á flug-
veUinum ógnað og flutti þá á lög-
reglustöð.
Maður mánaðarins
Jón Baldvin Hannibalsson, sendi-
herra íslands i Bandaríkjunum, hef-
ur verið valinn maður mánaðarins
af ritstjóm The Washington Times
fyrir virka þátttöku á ráðstefnum
og málþingum þar sem hann hefúr
vakið athygli á menningu þjóðar
sinnar. Auk þess hefur kona hans,
Bryndís Schram, vakið áhuga á ís-
landi hjá menningarsinnuðu fólki.
Mótmælti NATO-æfingu
Koibrún HaU-
dórsdóttir alþing-
ismaður mót-
mælti heræfing-
um Atlantshafs-
bandalagsins hér
á landi á Alþingi
í gær. Æfð verða
viðbrögð við
öfgafúUum umhverfissinnum. Siv
Friðleifsdóttur umhverfisráðherra
taldi jafn eðlUegt að veijast öfgafúU-
um umhverfisvemdarsinnum sem
öðrum öfgahópum.
Seljandi borgi
Héraðsdómur Reykjaness hefur
dæmt seljanda húss í Hafnarfirði, sem
veggjatítiur eyðilögðu, að endurgreiða
kaupanda 3,2 mtiljónir af kaupverði
hússins og 912 þús. kr. i málskostnaö.
Morgunblaðið greindi frá.
Enn er kært
Framkvæmdir við bamaspítala á
lóð Landspítalans hafa aftur verið
kærðar tti úrskurðamefndar skipu-
lags- og byggingarmála. Kærendur
em sömu nágrannar byggingarinn-
ar og kærðu áður. Morgunblaðið
sagði frá.
Samþykkir
Stöð 2 hafði eftir norska sjávarút-
vegsráðherranum að norska Stór-
þingið mundi samþykkja Smugu-
samnmginn við íslendinga þann 17.
júní.
Þungur róður á EM í bridge
íslensku sveitinni á EM í bridge á
Möltu gekk heldur illa tvo fyrstu
keppnisdagana. Er með 68 stig af 125
mögulegum. Svíar era efstir með 109
stig. ísland vann San Marino 19-11 í
fyrstu umferð. Tapaði síðan 13-17
fýrir Króatíu og 7-23 fyrir Slóveníu.
Vann Belgíu 17-13 - sem var meðal
efstu þjóða - en tapaði fyrir Spáni
12-18 í gærkvöld.
Forseti til Kanada
Ólafur Ragn-
ar Grímsson for-
seti ferðast um
íslendinga-
byggðir í
Kanada í júlí-
mánuði og verð-
ur viðstaddur
100. íslendinga-
daginn 2. ágúst í Norður-Dakóta.
Baldur heiðraður
Baldur Jónssón, prófessor og for-
maður íslenskrar málstöðvar, fékk í
gær viðurkenningu Málræktarsjóðs
og 400 þúsund króna verðlaunafé.
Hann er þriðji maður til að hljóta
þessa viðurkenningu. Hinir era
Halldór Halldórsson prófessor og
Vigdís Finnbogadóttir. -SÁ/hsím