Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1999, Side 22
4
30
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1999
Sport
íslandsmeistari pilta í holukeppni:
„Vissi að ég gæti þetta“
Sigurþór Jónsson, GK, varð um helgina íslandsmeistari
í holukeppni pilta og segir að úrslitin hafl ekki komið sér
á óvart en hann er aðeins 18 ára gamall og á framtíðina
fyrir sér. „Ég vissi að ég gæti þetta. Ég vissi þegar ég var
kominn í fjórðungsúrslitin að ég gæti unnið. Þetta er ann-
að íslandsmótið í holukeppni sem ég tek þátt í og ég fór í
16 manna úrslit í fyrra en komst ekki lengra. Ég er að
bæta forgjöflna miðað við síðasta ár og fram undan er að
taka þátt í næsta stigamóti og svo er Evrópumótið í Sví-
þjóð í sumar,“ sagði þessi ungi golfsnillingur.
Fínar aðstæður
„Mér fannst Gunnar Þór Jóhannsson, GS, erfiðasti and-
stæðingurinn en ég vann hann á 18. holu. Aðstæður til
golflðkunar voru fínar á sunnudeginum og seinni hlutann
á laugardeginum en fyrsta daginn var rok og rigning og
völlurinn erfiður," sagði Gunnar. -DVÓ
íslandsmeistari stúlkna í holukeppni:
Ætlaði að vinna
Sigurvegarinn í holukeppni kvenna, Kristín Erla Er-
lendsdóttir, er nýorðinn 17 ára og var að taka þátt í sínu
fyrsta íslandsmóti í holukeppni unglinga. Hún hefur ver-
ið húsett í Danmörku og greinilega æft stíft þar í landi
enda aðstæður mjög góðar.
„Ég var ekki að slá mjög vel fyrir mótið en ég var búin
að setja mér það mark að vinna mótið og það náðist. Ég er
aðeins að lækka mig í forgjöf frá síðasta ári. Vallaraðstæð-
ur voru mjög góðar, flatimar voru mjög góðar en það eina
sem var slæmt var að það var aðeins blautt eftir rigning-
amar,“ sagði þessi efnilega golfkona.
„Mér fannst Nína alveg tvímælalaust vera erfiðasti and-
stæðingurinn. Fram undan hjá mér er að taka þátt i stiga-
móti unglinga um næstu helgi og svo er ég búinn að
tryggja mér sæti í Evrópuliðið. Svo er hara hellingur af
mótum fram undan sem ég ætla að taka þátt í,“ sagði
Kristín að lokum en við eigum örugglega eftir að sjá meira
af henni í framtíðinni á golfvöllunum. -DVÓ
>
Bestar
- á Pæjumótinu
Bestu leikmenn Pæjumótsins í
knattspymu vom valdar í lokahófi
mótsins. Þaö voru þjálfarar,
forráðamenn liðanna og dómarar í
leikjum mótsins sem völdu í
sameiningu bestu leikmenn mótsins.
í 6. flokki hlaut Sara Björk
Gunnarsdóttir, Haukum, bikarinn. í
5. flokki var Hekla Pálmadóttir, ÍA,
valin best. í 4. flokki varð Margrét
Lára Viðarsdóttir, ÍBV,
hlutskörpust, en hún var einnig
markahæst í sínum aldursflokki. í 3.
flokki var svo valin Dóra María
Lámsdóttir, Val.
-ÍBE
íslandsmótið í holukeppni unglinga:
Golfsnillingar
Leiðrétting
í DV í gær var sagt frá markahæstu
leikmönnum á Pæjumótinu í Vestmanna-
eyjum. Því miður fékk blaðamaður rang-
ar upplýsingar frá mótsstjóm þar sem
gleymdist að minnast á þá stúlku sem var
næstmarkahæst í 5. flokki, B-liða. Sú heit-
ir Rúna Sif Stefánsdóttir, Fjölni, en hún
skoraði alls 11 mörk. Rúna er beðin vel-
virðingar á þessu.
Tinna Hauksdóttir, KR, var valin efni-
legasti leikmaður Pæjumótsins í knatt-
spymu. Efnilegasti leikmaðurinn er jafn-
framt besti leikmaður mótsins og því mik-
ill heiður að hljóta þennan titil.
„Ég er alveg i sjokki. Ég veit ekki hvað
það er sem ég er að gera svona vel, ég er
bara að reyna að vinna vel fyrir liðið,“
sagði Tinna sem var í mikilli geðshcær-
ingu eftir að úrslitin vom tilkynnt.
„Ég er búin að æfa síðan ég var 8 eða 9
ára og alltaf verið í KR. Ég ætla pottþétt
að halda áfram og stefni á landsliðssæti."
KR-stúlkur sigruðu í 3. flokki kvenna á
mótinu og vom að sjálfsögðu alveg í skýj-
unum með það. „Þetta var síðasta tæki-
færið okkar til að vinna Pæjumót þannig
að við vorum alveg staðráðnar í því. Okk-
ar helsti styrkleiki er hvað við erum sam-
rýmdar og stöndum vel saman. Þegar ég
er ekki í fótbolta
flnnst
mér gam-
an að
eyða tíma
með vin-
um mín-
um, sér-
staklega
fótbolta-
stelpun-
um,“ sagði
þessi sigur-
sæla KR-
stúlka að
lokum.
-ÍBE
Tinna Hauks-
dóttir, efnileg-
asti leikmaður
Pæjumótsins.
- var sigursælastur í golfinu á Akranesi
DV, Akranesi
Helgina 11.-13. júní fór
fram íslandsmót í holu-
keppni unglinga í golfi.
Það var ungt fólk úr Golf-
klúbbnum Keili sem sló til
sigurs að þessu sinni og
sigraði glæsilega, bæði í
karla- og kvennaflokki.
Erfiðar aðstæður
Mótið fór fram á golf-
velli Golfklúbbsins Leynis
á Akranesi og var fram-
kvæmd öll hin besta.
Aðstæður til golfiðkun-
ar voru ekki upp á það
besta þar sem mikil rign-
ing setti strik í reikning-
inn. Þar af leiðandi var
völlurinn mjög erfiður á
fostudeginum og laugar-
deginum en á sunnudegin-
tun skein sólin skært á
Skaga.
Stúlkunum að fjölga
Fjörutíu og sjö piltar og
tólf stúlkur frá tíu golf-
klúbbum tóku þátt í mót-
inu. Það vakti athygli að
miklar framfarir eiga sér
stað hjá stúlkunum og
fleiri stúlkur eru farnar að
stunda golfíþróttina.
Stíf dagsskrá
Dagskráin á mótinu var
þannig að á fóstudeginum
var leikin 36 holu for-
keppni í höggleik og
komust 16 golfarar áfram.
Á öðrum degi var fyrst
leikinn 16 manna
holukeppni og síðan
8 manna hoiu-
keppni þeirra sem
komust áfram. Á
þriðja degi v°"
leikinn
manna holu
keppni
þeirra
komust
áfram og síð-
an var leikið
til úrslita bæði um 3. sæt-
ið og það fyrsta.
Greinilegt er að íslend-
ingar eiga marga efnilega
golfara og er því framtíðin
björt í íslensku golfi.
Golfararnir sem höfnuðu í fjórum efstu
sætunum í karla- og kvennaflokki í
holukeppninni á Akranesi um helgina
voru að sjálfsögðu ánægðir með frá-
bæran árangur. Frá vinstri: Helga Rut
Svanbergsdóttir, GK, hafnaði í fjórða
sæti, Kolbrún Sól Ingóifsdóttir, GK,
hafnaði í þriðja sæti, Nína Björk Geirs-
dóttir, GKJ, lenti í öðru sæti og Kristín
Elsa Erlendsdóttir, GK, var sigurveg-
ari ■ stúlknaflokki, Sigurþór Jónsson,
GK, sigurvegari í karlaflokki, Birg-
ir Már Vigfússon, GKJ, hafn-
aði í öðru sæti, Örlygur
Helgi Grímsson, GV, hafn-
aði i þriðja sæti og
Bjarni Þór Hannesson,
GL, lenti í fjórða sæti.
DV-mynd DVÓ
Fimmtánda Gull
og silfurmótið
Hið árlega Gull- og silfurmót Breiðabliks verður haldið í 15.
sinn í Kópavogi 15.-18. júlí næstkomandi. Að venju er keppt í
2., 3., 4., 5. og 6. flokki stúlkna og er öllum félögum þar sem
spiluð er kvennaknattspyma heimilt að senda lið til keppni.
Allir leikir fara fram á félagssvæði Breiðabliks í Kópavogs-
dal. Leikið verður í riðlum á föstudag og laugardag en úrslita-
leikir fara fram á sunnudag. Leikið verður samkvæmt regl-
um KSÍ um minni knattspymu en leiktíma gæti veriö hnik-
að til.
Auk knattspymunnar verður þátttakendum boðin ýmis
önnur skemmtun, til dæmis sund, kvöldvökur, grill og fleira.
Þátttökugjald er 2.000 krónur á hvem þátttakanda auk 2.500
króna staðfestingargjalds fyrir hvert lið. Tekið verður við
þátttökutilkynningum fram til 18. júní en nánari upplýsing-
ar veita Jörandur Áki Sveinsson og Ingólfur Sigmundsson
i símum 895 9472 og 564 4006.
ujwi r\
Geirsdottir,
GKJ, hafn-
aði í öðru
sæti í
holu-
keppninni
á Akra-
nesi um
helqina.
-DVO
Efnilegust
pæja í Eyjum