Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1999, Blaðsíða 26
34
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1999
■» ----------------------------------------------------------
Fréttir i> v
Trillukarl sem veiddi fisk í mótmælaskyni og var dæmdur fyrir
Borga brosandi eða fer
hlæjandi í fangelsi
- segir Garðar H. Björgvinsson
Garðar H. Björgvinsson, 65 ára sjó-
maður sem reri í mótmælaskyni og
veiddi kvótalaust í fyrra, var dæmdur
í 480 þúsund króna sekt til ríkissjóðs
í Hæstarétti. Garðar segir að hann
muni á næstu vikum kanna mögu-
leika á að afla fjárins. Hann segist una
glaður við dóm Hæstaréttar sem
lækkaði sektina um 200 þúsund krón-
ur.
í fyrrasumar reri Garðar fimm
sinnum frá Hafnarflrði á bát sínum,
Rakkatindi HF 193, og lagði upp afla
sinn á fiskmarkaði. Fyrir hvern róður
hringdi hann í Fiskistofu og lét vita af
væntanlegu lögbroti. Svo fór að Garð-
ar var ákærður fyrir brot á fiskveiði-
löggjöflnni.
Garðar segir að hann hafi ánafnað
heObrigðiskerfinu tíu af hundraði af
aflaverðmætinu í róðrum sínum í
fyrra. Inni á sparisjóðsbók í Hvera-
V
>
Vinningshafar
leik Krakkaklúbbs DV
oq Kjöríee
3 a&lvinningar! ___
Dós með 150 Chupa sleikjóunt-^
sem lita tunguna.
Helena Helgadóttir nr. 3039
Pétur H. Sigurðsson nr. 110996
Arnar Þ. Halldórsson nr. 1514620
Aukavinningar:
Chupa Chups hylki með blýanti, penna,
reglustriku, stækkunargleri, strokleðri og sleikjó.
Ragnar H. Sverrisson nr. 14962
Jóhannes B. Jónsson nr. 4811
Freydís Guðjónsdóttir nr. 8754
Margrét Rúnarsdóttir nr. 12960
Kristinn H. Helgason nr. 14725
Ágúst K. Bjömsson nr. 12895
SigríðurÓsk nr. 13615
Lovísa L. Vilhjálmsdóttir nr. 15119
Snorri Gunnarsson nr. 6631
Dagný F. Elvarsdóttir nr. 6225
Björgvin Kristjánsson nr. 15511
Ólafur R. Kristjánsson nr. 7264
Auður S. Allansdóttir nr. 14454
Sólveig D. Jónsdóttir nr. 10057
Stefán Ö. Guðmundss. nr. 12287
Finnur Jónsson nr. 5476
Óðinn Ö. Arnþórsson nr. 9132
Rósmundur Öm nr. 13027
Tómas Freyr nr. 12371
Bárður Hilmarsson nr. 11784
www.kjoris.is
Krakkaklúbbur DV og Kjörís óska virmingshöfum
til hamingju og bakka öllum -fyrir þátttökuna.
rnir verða sendir í pósti nasstu daga.
gerði séu 12 þúsund krónur sem heil-
brigðisþjónustan getur gengið að.
Rekistefna Garðars gegn flskveiði-
stjórnunarkerfmu nær aftur til 1996
þegar hann taldi á sér brotið varðandi
úreldingu á bát. Styrkur sem veita
átti fyrir úreldingu reyndist skatt-
skyldur, þrátt fyrir yflrlýsingar um
annað. Eftir það hefur útgerð hans
sigið hægt og rólega niður á við, hann
segist hafa þurft að selja einbýlishús í
Hveragerði og sumarbústað líka til að
standa í skflum. Garðar hefur sótt mál
sitt fast og skrifað ótal blaðagreinar.
Hann segist aldrei hafa fengið að hitta
Þorstein Pálsson tfl að kynna honum
hugmyndir sínar um aflatoppskerfi.
Árni Mathiesen, nýi sjávarútvegsráð-
herrann, gaf sér aftur á móti tíma til
að ræða við Garðar í síma og lýsti yfir
áhuga á hugmyndum Garðars.
- En getur Garðar borgað sektina á
tilsettum tima?
„Ég vona það og vinn að því að
öngla saman peningum. Annað- hvort
borga ég brosandi - eða fer í fangelsið
hlæjandi. Takist mér ekki að borga
mun ég gefa mig fram til fangelsisvist-
ar og fer þangað með lyftingalóðin og
boxpokann minn. Ég segi eins og
Sverrir Hermannsson að orð skulu
standa, ég mun taka út minn dóm en
eftir sem áður á ég auðlindina rétt
eins og aðrir íslendingar. Baráttu
minni er hvergi nærri lokið, kvóta-
kerfið er að drepast og stór göt komin
á það,“ sagði Garðar Björgvinsson.
-JBP
Garðar sjómaður Björgvinsson hef-
ur haldið úti andófi gegn kvótakerf-
inu í meira en þrjú ár. Nú er hann
dæmdur maður fyrir að hafa veitt
fisk í blóra við lög.
Herbert Leon MacDonell flutti fyrirlestur um gildi efnislegra sönnunargagna nú á dögunum. Hann er mjög þekktur í
heimalandinu fyrir rannsóknir í afbrotafræði. DV-mynd Hilmar Þór
Ríkislögreglustjóri:
Fyrirlestur um sönnunargögn
í gær hélt embætti ríkislögreglu-
stjóra fyrirlestur um gildi efnislegra
sönnunargagna. Var það þekktur
bandarískur prófessor í afbrota-
fræðum, Herbert Leon MacDonell,
sem hélt fyrirlesturinn. Fyrirlestur-
inn hér á landi var um gildi efnis-
legra sannana. MacDonell fjallaði
um mikilvægi þess að vel væri stað-
ið að söfnun sönnunargagna. Hann
þykir mjög virtur á þessu sviði í
Bandaríkjunum og hefur verið kall-
aður til í 34 fylkjum Bandaríkjanna
til þess að vera sérfræðivitni. Hann
hefur kennt flestallt sem tengist af-
brotafræðum. Fyrsta rannsóknin
sem hann stýrði var á árunum
1969-1970 en rannsóknaráætlunin
var um flugeinkenni og dreifingu
mannablóðs. MacDonell starfaði
m.a. í réttarhöldunum yfir O.J.
Simpson. Fyrirlesturinn var vel
sóttur og voru fundarmenn mjög
ánægðir með hann. -EIS
FYRSTUR MEÐ FRETTIRNAR