Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2003, Síða 47
BV Sport
LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2003 49
Þetta er klárlega
stærsti bardagi
kvöldsins þarsem allt
getur gerst og er ekki
ólíklegt að þeir standi
haus í haus og skiptist
á kjarnorkusprengjum.
Tvö fslandsmet í gær Örn Arnarson
tvlbætti Isiandsmet sitt í 50 metra baksundi I
Dublin á Irlandi ígær.
Evrópumeistaramótið í 25 metra laug í Dublin
Örn tvíbætti íslandsmetið
öm Arnarson, sundmaður úr ÍRB
varð í sjöunda sæti í 50 metra
baksundi á Evrópumeistaramótinu í
25 m laug sem fram fer í Dublin á ír-
landi en hann tvíbætti íslandsmet
sitt í gær og synti úrslitasundið á
24,47 sekúndum sem er 23/100 úr
sekúndu betri tími en íslandsmet
hans stóð í fyrir daginn.
Það var Þjóðverjinn Thomas
Ruppradi sem vann sundið með yf-
irburðum en hann er handhafi
heims-, Evrópu- og mótsmetsins í
þessu sundi. Rupprath synti úrslita-
sundið á 23,71 sekúndu sem 76/100
betri tími en hjá Erni. örn Arnarson
synti á 24,81 sekúndu í undanrásum
og var tíundi inn í millriðilinn þar
sem hann synti á nýju glæsilegu
íslandsmeti, 24,53 sekúndum, og
bætti ársgamalt met sitt um 17/100
úr sekúndu.
Örn Arnarson hefur þar með
komist í úrslit í báðum greinunum
sem hann hefur tekið þátt í á mótinu
en hann varð fimmti í 200 metra
baksundi í fyrradag. Hann keppir
síðan í 100 metra baksundi í dag.
Ragnheiður Ragnarsdóttir, úr
Sundfélagi Hafnarfjarðar, bætti sig
annan daginn í röð þegar hún synti
100 m fjórsund á tímanum 1:06,13
mfnútum og hafnaði í 25. sæti. Heið-
ar Ingi Marinósson synti í undanrás-
um í 100 m skriðsundi og náði þar
tímanum 52,00 sem skilaði honum í
66. sæú.
Tvær íslenskar konur syntu í
undanrásum 50 m flugsunds
kvenna, Anja Ríkey Jakobsdóttir
synti á 29,77 sekúndum sem skilaði
henni 48. sæti og Sigrún Benedikts-
dóttir synti á 30,73 sekúndum og
varð í 50. sæti.
ooj@dv.is
Skápur Bókaskápur
Mikið úrval af speglum. Verð frá kr. 2.900,-
VÖRU
Opið alla daga 12 til 19
MARKAÐUR