Dagblaðið - 05.08.1976, Page 8
8
DAGBLAÐIÐ. — FIMMTUDAGUR 5. ÁGUST 1970.
PRENTUM A
FLJÓTT OG VEL*
Við prcntum fljótt og'vel með nýjum og hraðvirkum
"vélum. sem gerir okkur niiigulegtað taka rastaðar ljós-
mvndir beint á plötu áu fiimugerðar. — Það er ódýrara
og hraðvirkara.
Því ekki að hriugja eða koma og kanna hvað við getum
gert fyrir þig?
Offsetprentsmiðjan FJ9LNIR H/F
Brautarholti 6. — Sími 22133.
Reykjavík.
FJÖINIRhf
Há
leðurstígvél
brún og svört.
Aðeins í stœrðum
39V2,40740V2og41
Verð: Kr. 6000.-.
Póstsendum
Skóbúðin,
Snorrabraut 38, sími 14190
Bílaviðgerðamenn!
Viljum ráóa strax bifreiðasmiði og
réttingamenn, einnig aðstoóarmenn á
málningarverkstæói. MIKIL VINNA.
Bílasmiðjan Kyndill,
Súðarvogi 36,
sími 35051 og 85040.
árg. '67 til sölu
Er til sölu Man árg. ’67 7—8 tonn í
góðu lagi og vel útlítandi með stálpalli
og Sindra sturtum. Skoðaður. Uppl. í
síma 32828.
Iðnaðarvélar til sölu
Þar á meðal 36 prjónavélar, litunar-
vél, loftpressa, sjálfvirkur gufuketill
20 ferm og fleiri fylgihlutir. Tilboð
óskast.
Uppl. í síma.95-5405 á daginn og 95-
5410 á kvöldin.
6. I UACBLAÐIÐ — FOsi
^tuDagui<2 J,,,, i97fi
Frumleitin að heitu vatni:
Grundfiiðim
Ekki bara hart, — heldur heitt undir Grundfirðingum:
LÍKUR Á AÐ ÞEIR
EIGNIST HITAVEITU
,,Við erum að vonum
afskaplega ánægðir með þessar
niðurstöður," sagði Arni
Emilsson, sveitarstjóri í
Grundarfirði, er DB innti hann
eftir niðurstöðum þeirra rann-
sókna á heitu vatni sem fram
fóru á staðnum í fyrra.
„Það kom í ljós að hita-
stigullinn er 114 gráður á 1000
m dýpi, svo reikna má með að
vatnið sé um 100 stiga heitt
þarna niðri. Þetta eru mjög
ánægjulegar fréttir fyrir
okkur, þar sem við getum þá
meðal annars haft sundlaugina,
sem verið er að reisa, opna allt
árið,“ sagði Árni og hló ,, en
auk þess verður auðvitað
gífulegur sparnaður við hita-
veitulagningu í kauptúnið."
,,En málin eru að sjálfsögðu
ekki komin þetta langt ennþá,
því að niðurstöðurnar bárust
okkur í hendur í morgun og ég
er í þann mund að Ijúka bréfa-
skriftum til orkumálayfirvalda
og annarra hlutaðeigandi um
þessi efni. Ég efast ekki um að
ef orkumálaráðherra og starfs-
menn hans halda enn sömu
stefnu og i fyrra, og bregðast
jafnskjótt við og þeir gerðu i
það skipti, þá verður hitaveita
komin til Grundarfjarðar innan
tíðar," sagði sveitarstjórinn að
lokum. ÖF/BJ
n
Þessi mynd er tekin við
borholuna í Grundarfirði, sem
nú gefur þeim vonir um hita-
veitu í framtíðinni. Holan er
skammt vestan við bæinn í
landi Kirkjufells (DB-mynd
Árni Páll)
Makalaus sambúð: Aldrei sundurorða í 45 ár!
Einkar fróðleg fréttaklausa
birtist í síðasta blaði Dags á Akur-
eyri. Ætti hún að verða ýmsum
hjónakornum til umhugsunar í
landi þar sem hjónabandsslysin
gerast æ tíðari. Klausan hljóðar
svo:
„Aldrei sundurorða.
Roskinn maður sagði frá því í
sumar, að honum og konu hans
hefðialdrei orðið sundurorða í 45
ára sambúð. Hjónakorn, ung eða
gömul, geta e.t.v. hugleitt sín
hjónabönd út frá þessari frásögn,
sem vera mun sönn. Nokkuð mun
það aigengt, að hjón eigi í hörðum
orðasennum með tilsvarandi geðs-
hræringum í stofu, eldhúsi eða
inni í svefnherbergi, og ekki nóg
með það, heldur vill það æði oft
við brenna, að annað hjónanna
getur ekki á hitt hlustað án stöð-
ugra athugasemda, þótt aðrir séu
viðstaddir. Vonandi er hið gagn-
stæða þó algengara og líkara hinu
ágæta hjónabandi rosknu hjón-
anna, sem minnzt var á.“
Sigurður Björnsson óperusöngvari syngur við vinsœldir í Munchen
Sigurður Björnsson óperu-
söngvari í Múnchen er einn
þeirra íslenzku listamanna sem
„gera garðinn frægan" og hafa
getið sér gott orð í list sinni.
Leikárið 1975—'76 hefur hann
sungið við aðra óperuna í
Múnchen. „Staatstheater am
Gártnerplatz". Teiknari dag-
blaðsins „Súddeutsche
Zeitung" hefur hér á m.vnd
þessari teiknað Sigurð ásamt
fleiri' leikurum í einþáttungn-
um „Galathea hin fagra" eftir
Franz von Suppé. Sigurður er
lengst til hægri á myndinni í
hlutverki Pygmalions. Aðrir
leikarar eru. talið frá vinstri.
þau Liselotte Ehnet setn Gany-
med. Frederic Mayer sem lista-
verkasafnarinn og Angelika
Vogel i hlutverki Galatehu.
— HH