Dagblaðið - 05.08.1976, Page 9
DA(;i;i.AÐIt). — KIMMTl'DACiUK 5. ACliST 1976.
9
Þegar ölvaður
maður
veldur tjóni
íakstri:
TRYGGINGIN BORGAR, - EN
ENDURKREFUR ÖKUMANNINN
Þt'ssi lögreKlubill skemmdist
verulega og er líkiega ónýtur
eftir að ölvaður unglingur ók á
hann fyrir nokkru. Svo kann
að fara að ungi maðurinn
komist að raun um að ölvunar-
aksturinn hafi orðið nokkuð
dýr.
(DB-mynd)
„Þegar ölvaðir menn valda
tjóni hafa þeir engar máls-
bætur. Einna helzt yrði litið til
efnahags þeirra vegna endur-
greiðslukröfu tryggingarfélags-
ins,“ sagði Runólfur Ó. Þor-
geirsson skrifstofustjóri Sjóvá-
tryggingarfélags íslands, en
hann skýrði frá því hvernig
menn yrðu að greiða trygg-
ingarfélagi sínu til baka ef þeir
yllu tjóni undir áhrifum
áfengis.
Ekki allir gera sér grein fyrir
því að þeir eru að eyðileggja
bílatryggingu sína þegar þeir
valda tjóni ölvaðir undir stýri,
og getur þetta komið mjög illa
út fyrir efnalítið fólk, sem til
dæmis lendir í þessu óhappi
ungt að árum. Auðvitað má
segja sem svo að menn eigi alls
ekki að vera ölvaðir undir stýri,
en það er auðvitað dálítið hart
fyrir 17 ára ungling að þurfa að
greiða nokkrar milljónir. Sér-
staklega þegar um fólk er að
ræða sem lítið gerir af því að
neyta áfengis, en lendir einu
sinni i árekstri við slíkar að-
stæður.
Tekið tillit til fjárhags
Runólfur sagði að mjög mikið
tillit væri tekið til þess að reyna
að gera fólk ekki að bón-
bjargarmönnum með því að
stilla endurkröfu eftir
borgunargetu, og starfar sér-
stök endurkröfunefnd að því að
meta þessi mál. í henni eiga
sæti fulltrúar allra tryggingar-
félaganna. fulltrúi frá F.Í.B. og
dómsmálaráðuneytisins. Nefnd
þessari var upphaflega komið á
laggirnar til að veita trygg-
ingarfélögunum aðhald.
Gáleysi —
ásetningur
Mikið tillit er tekið til þess,
hvort tjóninu var valdið af
ásetningi eða stórkostlegu
gáleysi. Er heimild til að lækka
bótakröfuna með hliðsjón af
sök tjónvalds, efnahag hans og
fjárhæð tjóns eða af öðrum
ástæðum.
Munu tjónvaldar sjaldan eða
aldrei þurfa að greiða allt það
sem tryggingarfélagið borgar
tjónþolanum. Almenn bifreiða-
trygging bætir tjón upp að 20
milljónum. Er bæði bætt örorka
sem hlýzt af slysinu sem og
skemmdir á bifreiðum. Gefur
auga leið að fáir menn myndu
borgunarmenn 20 milljóna ef
heildartjón næmi þeirri upp-
hæð. Tryggingarfélög munu
yfirleitt semja um hlutagreiðsl-
ur við tjónvald.
Ungir ökumenn
Runólfur sagði að ekki væri
tekið tillit til aldurs sem slíks.
Hins vegar kynni oft að verða
að lækka endurkröfuna ef
einsýnt vær-i að fólkið gæti ekki
greitt alla kröfuna.
Þá kæmi oft fyrir að ungt
fólk væri á bifreiðum foreldr-
anna, en ef tjón yrði þyrftu
foreldrarnir að greiða. Skráður
eigandi bæri ætíð skilyrðis-
lausa ábyrgð á tjóni sem bif-
reiðin ylli og skipti ekki máli
hver æki henni. Það væri
aðeins I þeim tilvikum sem
bifreið væri tekin i algeru
óleyfi sem ábyrgð félli á öku-
manninn.
—BÁ
Námskeið fyrir asma og of nœmissjúk börn:
FORELDRARNIR HVATTIR TIL AÐ MÆTA
„Við viljum endilega hvetja
þær fjölskvldur sem geta til að
sækja námskeiðið," sagði Hjördís
Þórsteinsdöttir, varaformaður
Samtaka asma- og ofnæmisSjúkl-
inga I samtali við DB, en þau
samtök gangast fyrir 2ja daga
námskeiði fyrir börn, sem þjást af
þess konar sjúkdómum og for-
eldra þeirra, í Reykholti nú um
helgina.
„V'ið munum njóta þarna að-
stoðar Ólafs Stephensens, barna-
læknis og konu hans Guðrúnar
Theódóru Sigurðardóttur, barna-
sálfræðings, en þaú hjónin munu
bæði halda erindi og vera með
umræðuhópa f.vrir foreldrana.
Auk þess verður þar Unnur Gutt-
ormsdóttir sjúkraþjálfari og
mun hún leiðbeina um meðferð
þessara barna, en Unnur fór til
Svfþjóðár sl. vor til að kvnna sér
þessi mál. Þá verða þarna einnig
tveir íþróttakennarar sem munu
vera með börnunum, fara með
þeim í sund og fleira,“ sagði Hjör-
dís enníremur.
„Það er afskaplega erfitt að
meðhöndla börn sem þjást af
þessu'm s.iúkdómum og reynir þar
kannski mest á mæðurnar, sem
þurfa að annast þau allan daginn,
gera með þeim sérstakar æfingar
og meðhöndla þau á ýmsan annan
veg til að bæta líðan þeirra. Það
er því mjög mikilvægt fyrir for-
eldra þessara barna að læra réttar
aðferðir við meðhöndlun þeirra
og tækifæri til þess gefst einmitt
nú um helgina I Reykholti, auk
þess hefðu feðurnir reglulega
gott af að kynna sér þetta. Þarna
er aðstaðan öll mjög góð og gefum
v?ð foreldrum og börnumþeirra
kost á að dveljast í þessu um-
hverfi eina helgi. en ég vil leggja
áherzlu á að það á ekki að ein-
angra þessi börn og því er upplagt
að leyfa systkinum þeirra að
koma með,“ sagði Hjördís að
lokum.
Það eru ennþá nokkur laus
pláss og þeir sem vilja notfæra
sér þetta tækifæri, ættu að hafa
samband við skrifstofu SÍBS
strax og tryggja sér pláss.
JB
Eitthvað fyrir þig
NAUTAFILLET .......1630 kr. kg.
NAUTAMÖRBRÁÐ.......1630 kr. kg.
NAUTASNITCHEL .....1250 kr. kg.
NAUTAGULLASCH......1130 kr. kg.
NAUTA-T-BONE....... 980 kr. kg.
NAUTABÓGSTEIK ..... 655 kr. kg.
NAUTAGRILLSTEIK ... 655 kr. kg.
NAUTA HAMBORGARI ... 50 kr. stk.
NAUTAHAKK.......... 670 kr. kg.
NAUTAHAKK 10 kg. í kassa .. 600 kr. kg.
URVALS KJÚKLINGAR... 840 kr. kg.
HÆNUR, 10 stk...... 500 kr. kg.
KÁLFALÆRI ......... 370 kr. kg.
KÁLFAHRYGGIR....... 300 kr. kg.
KÁLFAKÓTELETTUR ... 370 kr. kg.
KÁLFAHAKK.......... 490 kr. kg.
Á SÉRVERDI HEINZ BARBECUE SAUCE MEÐ KJÓT-
MEYRI. GLASIÐ AÐEINS 231 KR.
w
Laugalœk 2. REYKJAVIK, simi 3 5o2o