Dagblaðið - 05.08.1976, Blaðsíða 24
Stjórnarmaður í Landeigendafélagi Laxór og Mývatns um lögbann á laxastiganum:
Vildu áður sökkva dalnum,
- en nú vernda lífríki hans
— er f ormaður Laxárvirkjunar að hóta nýjum deilum?
„Svo undarlega vill nú til að
þeir aðilar sem á sínum tíma
vildu sökkva Laxárdalnum með
stíflugerð við Laxárvirkjun
vilja nú ekki fyrir nokkurn
mun taka áhættuna á að lífríki
árinnar raskist með því að
hleypa laxi upp hana,“ sagði
Eysteinn Sigurðsson á Arnar-
vatni í viðtali við DB í gær, en
hann er einn stjórnarmanna
Landeigendaféiags Laxár og
Mývatns.
Hann sagði að bændurnir
sjálfir óttuðust ekki röskun af
völdum laxins, heldur mikið
fremur áhrif ,af verksmiðju-
rekstri við vatnasvæðið. Blaðið
hafði tal af honum vegna
fréttar í blaðinu i gær þess
efnis að vissir aðilar hygðust
beita sér fyrir að lögbann verði
sett á framkvæmdir við fyrir-
hugaðan laxastiga framhjá
Laxárvirkjun.
Eysteinn sagði að fullt sam-
komulag væri um málið innan
landeigendafélagsins og hefði
stjórnin í fyrradag undirritað
samkomulag við landbúnaðar-
ráðuneytið um þessa
framkvæmd. Framkvæmdir
hæfust væntanlega í sumar og
lyki næsta sumar, ef allt gengi
að vonurn.
Að sögn hans eru það einkum
utanaðkomandi menn sem nú
tala um röskun lífríkis og
náttúru, þeir vísindamenn, sem
rætt hafi verið við um málið,
telji ekki hættu á ferð auk þess
sem það sé stefna undan-
farinna ára um allt land að
auka laxveiðisvæði eftir mætti.
Er Eysteinn var spurður álits
á ummælum Vals Arnþórs-
sonar formanns Laxár-
virkjunar í útvarpsþætti í
fyrrakvöld, þar sem hann
sagðist þess fullviss að Laxá
yrði virkjuð frekar j
framtíðinni, sagði Eysteinn að
sér hafi þótt þessi ummæli
furðuleg. Samið hafi verið um
endalok málsins fyrir nokkrum
árum og hugsanlega mætti lita
á þessi ummæli sem hótanir um
nýjar deilur.
— Bls. 17 —G.S.
KASTAÐISER GEGNUM GLUGGA
Útlendingur, sem kvæntur er
íslenzkri konu og býr hér á
landi, skarst illa á höfði í gær er
hann varpaði sér út um glugga.
Slysið varð rétt fyrir kl. 13.30.
Ekki er vitað um aðdraganda
slyssins, en maðurinn var tals-
vert mikið skorinn enda mun
hann hreinlega hafa varpað sér
gegnum rúðu í glugga. Maður-
inn liggur nú í sjúkrahúsi.
DB-mynd Sveinn Þormóðsson.
GAMALT JOGURTIGLÆSTUM UMBUÐUM
Margir bera óneitanlega kvíð-
boga fyrir því að missa mjólkur-
búðina sína. Oft er hér um hreina
tilfinningasemi að ræða. Hins
vegar eru þeir nokkuð fleiri sem
hafa orðið slæma reynslu af því
hvernig nýlenduvöruverzlanir
sniðgangadagsetningar á vörum.
Þannig er þetta sérstaklega
áberandi með mjólkurafurðir.
Stundum er liðin vika frá dag-
setningu sem heimílar síðasta
söludag Búðin heldur áfram að
hafa vöruna fremst í hillunni.
Með þessu er verið að tryggja að
gamla varan gangi út, en ekki það
að neytandinn fái sem beztar og
. ferskastar vörur. — BÁ
frjálst, óháð dagblaí
FIMMTUDAGUR 5. ÁGUST 1976.
Malbíkið húlt í bleytunni:
Hunzaði tvœr
viðvaranir
og valt
Ökumönnum ætlar seint að
skiljast að malbik, og þá sér-
staklega ef það er nýlagt, getur
orðið flughált í rigningu.
Þannig velti maður bíl sínum í
fyrrinótt á gatnamótum
Reykjanesbrautar og Bústaðí'-
vegar, eftir að honum hafði
mistekizt að draga úr hraða
bílsins fyrir beygjuna, þar sem
hann rann stjórnlaust eftir að
hemlum var beitt.
Manninn sakaði ekki og ekki
er blaðinu kunnugt um hversu
mikið bíllinn skemmdist, en
eftir slysið viðurkenndi
maðurinn að hafa nýlega ekið
framhjá tveim aðvörunarskilt-
um á veginum, þar sem varað
var við að vegurinn yrði háll í
bleytu.
— G.S.
Smyglmúl tollvarðanna:
Málskjöl til
umsagnar
ráðuneytis
— óráðið hvort þeir
hefja aftur
störf við tollinn
Tollverðirnir tveir, sem upp-
vísir urðu að smygli fyrr í sum-
ar, hafa ekki verið við störf
síðan, en nú eru gögn dóms-
rannsóknar á málum þeirra til
umsagnar í fjármálaráðuneyt-
inu.
Höskuldur Jónsson ráðu-
neytisstjóri sagði í viðtali við
blaðið í gær að ráðuneytið
myndi meta hvort gjörðir
þeirra hafi áhrif á framtíðar-
veru þeirra í starfi. Taldi
hann síðan saksóknara ríkisins
taka lokaákvörðun í þessu
máli. —G.S.
21 HROSSI „STOUÐ" ÚR LÆSTRIGIRÐINGU
Þessi jógúrtdós var mynduð 4. ágúst, voru þá sex dagar liðnir frá
því siðasti leyfilegi söludagur var. Nýjustu jógúrtdósirnar sem
unnt var að fá í verzluninni þennan dag voru frá 30. júlí. — BÁ
Slagur lögreglunnar í
Reykjavík við hross í nágrenni
borgarinnar er margvíslegur,
og tekur á' sig æ sögulegri
myndir. Á laugardaginn var
upprekstrarlandið austan borg-
arinnar smalað, en þar er
bannað að beita hrossum því
beitin er ætluð sauðfé og er
ekki það mikil að hún nægi til
frekari beitar.
21 hross fannst í upprekstr-
arlandinu og voru þau sett í
girðingu við Lögberg. í ljós
kom að mark sama manns var á
þeim flestum ef ekki öllum.
Eigandinn var Þorgeir bóndi í
Gufunesi.
Snemma í gærmorgun varð
þess vart að hrossin voru horfin
úr girðingunni, sem þó var með
læstu hliði. Hafði girðingin
verið tekin niður á kafla til að
ná hrossunum. Síðar spurðist
um rekstur þeirra í átt til
bæjarins fyrir dögun.
Þúsund króna sekt er þeim
gert að greiða sem hross eiga er
finnast á friðuðu svæði. Er því
hér um 21 þúsund kr. sekt að
ræða. En vegna ólöglegrar töku
hrossanna verður úr þessu
stærra og meira mál. — ASt.
Olíuleit leyfð?
„Málið verður rœtt í dag/'
segir orkuráðherra
„Málið hefur verið til með-
ferðar hjá rikisstjórninni og
verið rætt þar,“ sagði Gunnar
Thoroddsen orkuráðherra í við-
tali við Dagblaðið um það, hvað
liði þvi að afstaða verði tekin
til þeirra beiðna, sem stjórn-
viildum hafa borizt um leyfi til
olíuleitar hér við land. „Eg geri
fastlega ráð f.vrir því, að málið
verði ra*tt á rikisstjórnarfundi í
dag, en veit ekki hvort fulln-
aðarðkvörðun verður tekin unt
málið.“
Sagði ráðherra, að ríkis-
stjórnin ntyndi fjalla um um-
sókninar, sem eru frá allmörg-
um fyrirtækjum. „Það hefur
ekki verið ýtt á eftir okkur með
þetta frá fyrirtækjunum, en
okkar vegna er rétt að fara aó
taka atstöðu til málsins," sagði
Gunnar ennfremur. „Hvort ég
persónulega sé trúaður á, að
olía finnst hér við land? Um
það get ég ekkert sagt."
—III*.
„HAFDIHEYRT AÐ ÞARNA
HEFÐIORÐIÐ SLYS",,.*,,
„Eg hef aldrei fengið skýrslu
um þetta mál," sagði Páll Ásgeir
Tryggvason, deildarstjóri varnar-
máladeildar utanríkisráðuneytis-
ins, i viðtali við Dagblaðið um
afdrif sjóliða þess er drukknaði
við neðansjávarvinnu undan Staf-
nesi árið 1965. Upplýsingar þess-
ar komu fram í grein Halldórs
Halldórssonar í Dagblaðinu sl.
þriðjudag óg hafa þær vakið
mikla athygli.
„Satt að segja fæ ég ekki skýrsl-
ur um sl.vs, sem verða á mönnum
eða eignum varnarliðsins, nema
að það heyri beint undir varnar-
máladeildina, eins og t.d. er
Dakota-vélin hrapaði hér uin árið.
Þá var leitað til mín urn það, hvaó
gera ætti vb' flakið," sagði Páll.
„Sjálfur hafði ég ékki tekið við
starfi minu hér. er þessir at-
burður varð, en ég hafði heyrt um
að kafarinn hefði slasazt eða
jafnvel drukknað þarna," sagði
Páll „Það var samt ekkert opin-
bert, það voru einungis sögusagn-
ir. Sennilega eru til um þetta
einhverjar skýrslur hjá bæjar-
fógetanum í Hafnarfirði, — þó
tel ég það ólíklegt, þetta hefur
bara verið skráð sem slys.“
—HP