Dagblaðið - 14.09.1978, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 14.09.1978, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1978. 9 Vinningshafarnir í 36 stiga hita f Grikklandi: NÆST ER ÞAÐ „SJOMENNSKA” UM BORÐ í LÚXUSFARKOSTI og f iskleysi við Jan Mayen „Þetta er ólíkt þægilegra að stunda sjó hérna við Miðjarðarhafið en að stíga ölduna í loðnunni heima,” sagði Helgi Ingvarsson, skipverji á Vestmannaeyja- bátnum Kap II. Hann er um þessar mundir „gestur” eiginkonu sinnar, Ragnheiðar Markúsdóttur. Hún var svo þrælheppin að hreppa Grikklandsreis- una miklu á vegum Dagblaðsins og Sunnu. Það má með sanni segja að guðir vinda og veðra hafi sýnt sínar beztu hlið- ar fyrri vikuna sem þau hjónin Ragn- heiður og Helgi dvöldu hér, segir Jó- hannes Reykdal, fréttamaður DB. sem hitti þau hjónin að máli um síðustu helgi. Hitastigið var um 36 gráður og sól skein í heiði. Sjórinn er hlýr og þægi- legur eins og bezta baðvatn. Meðal þess sem þau hjónin hafa skoð- að er Akropolis. „Þetta er bókstaflega eins og að ganga inn i mannkynssöguna, að sjá allt það sem maður las um í skóla- bókunum,” varð Ragnheiði að orði þeg- ar komið var upp á Akropolishæðina. Fyrri vikuna dvöldu þau hjónin á Glyfada-ströndinni á lúxushóteli sem heitir Fenix. Þar dvelja fjölmargir Is- lendingar, en spölkorn frá hótelinu er Hótel Regina Maris og þar eru íslend- ingar einnig í stórum hópum. Fararstjór- ar Sunnu, þeir Halldór Briem og Friðjón Friðjónsson, tóku á móti hópnum á flug- vellinum og hafa þeir verið boðnir og búnir að leysa hvers manns vanda. í dag eru þau hjónin, Ragnheiður og Helgi, komin áleiðis til Júgóslavíu og Ítalíu um borð í lúxus-farkostinum La Perla. Hugur þeirra stefndi mjög til þess ferðalags. enda er sjórinn þeim Eyrbekk- ingunum i blóð borinn. Höfðu þau hjón á orði að sá hluti ferðarinnar væri eigin- lega perlan í þeirra augum. En svo vikið sé frá Helga, sem nú hvílir lúin bein frá erfiðum störfum á sjónum, má segja þær fréttir af félögum hans á Kap II, að ólikt höfðust þeir að þessa viku meðan Helgi var í sólinni og baðvatnsvolgum sjónum við Glyfada. Þeir héldu nefnilega norður í Ballarhaf, allt noður til Jan Mayen i loðnuna þar. Hrepptu þeir brælu og leiðindaveður og fremur tregan afla í vikutúr þangað. Helgi og Ragnheiður skiluðu kveðjum til þeirra og allra vina og kunningja. En að sjálfsögðu er það von okkar að veiði- skapur Kap-verja gangi vel og þeir kom- ist jafnvel til Grikklands, þótt síðar verði, til að jafna metin við félaga sinn. —JBP— „Það er bókstaflega eins og að ganga inn i mannkynssöguna að sjá allt það sem maður las um i skólabókum,” varð Ragnheiði að orði eftir að hafa komið á Akro- polishxðina. Hér eru hjónin i fararbroddi ferðafélaga. Vængir óskuðu eftir við ræðunum við Flugleiðir „Viðræður Flugleiða og Vængja, sem Dagblaðið segir frá í gær, eru fyrir frum- kvæði og að ósk stjórnarformanns Vængja, Guðjóns Styrkárssonar,” sagði Örn Johnson, forstjóri Flugleiða, i við- tali við DB. Hann bætti við: „Þessar við- ræður eru á algeru frumstigi.” í fyrir sögn DB i gær segir að Flug- leiðamenn vilji kaupa Vængi og að um það standi nú viðræður þessara tveggja félaga. Flugleiðamenn hafa ekki tjáð þann vilja i þeim viðræðum sem hafnar eru að ósk Vængja. Hitt er vitað að um einhvers konar samvinnu er rætt og þó alveg sérstaklega leitað hófanna um áhuga Flugleiða á því að kaupa meiri- hluta hlutafjárins i Vængjum og þar með að taka við rekstri félagsins í innan- landsflugi. Eins og Öm Johnson forstjóri sagði eru viðræðurnar á algeru frumstigi og engin stefna ennþá mörkuð i þeim. BS. Frystihúsamaðir á f uöurnesjum: „RÓUM AF STAÐ UPP A LOFORÐIN” — mikil fiskverðshækkun gæti skapað vand- ræðaástand aftur á örskömmum tíma „Við erum að setja i gang eða róa af stað upp á loforðin, hækkuð rekstrar- lán, lækkaða vexti af þeim, væntan- legt lánsfé til hagræðingar i kjölfar gengishagnaðar af gengislækkuninni og vonandi breytingum á lausaskuld- um frá erfiðleikatimanum í vor yfir í föst lán," sagði forstjóri eins frysti- hússins á Suðurnesjum i viðtali við DB igær. Þar var alls staðar sömu sögu að segja. Allt var að fara i gang, togararn- ir farnir að landa heima eftir að hafa siglt út með afla að undanförnu, heimabátar komnir á miðin og vinnslusalirnir orðnir mennskir aftur. Þótt rekstrarástandið sé sízt betra þessa stundina en áður en húsin lok- uðu i sumar telja frystihúsamenn ekki stætt á að framlengja atvinnuleysið lengur að fengnum loforðum nýrrar ríkisstjórnar um úrbætur. Sameiginlegt álit þeirra var að ef fiskverð hækkaði ekki úr hófi á næst- unni væru bjartari tímar framundan, en nýs fiskverðs er að vænta á næst- unni. Þar er um að ræða brýnt hags- munamál fyrir sjómenn, en verði veru- leg fiskverðshækkun, sem verði ein- göngu borin uppi af frystihúsunum beint, töldu frystihúsamenn ekki nema nokkurra mánaða spurningu um hve- nær rekstrarástand húsanna yrði orð- iðjafnslæmtognú. Helgi og Ragnheiður busla i heitum öldum á Glyfada-ströndinni. DB-myndir Jóhannes Reykdal. BESTU KAUPIN I LITSJONVARPSTÆKJUM > m o 22" kr. 410.000.- 22" með fjarst. kr. 460.000. 26" kr. 465.000.- 26" meöfjarstkr. 525.000, BORGARTUN118 REYKJAVÍK SÍMI27099 SJONVARPSBÚÐIN Finlux Finlux Finlux Finlux Finlux Finlux AÐRIR ÚTSÖUSTAÐIR: Reykjavik: Radió & Sjónvarpsverkst. Laugav.147 Grindavik: Versl. Báran Selloss: Höfn h/f. Vestmannaeyjan Kjarnl s/f. Höfn Hornafirði: K.A.S.K. Stöðvarfjörðun Kaupfélag Stöðfirðinga Esklfjörður Versl. Elísar Guðnas. Seyðisfjörður Stálbúðin Egilstaðir: Rafeind Vopnafjöröur Versl. Ólafs Antonssonar Húsavik: Kaupfél. Þingeyinga Akureyri: Vöruhús K.E.A. Oalvík: Ú.K.E Ólafsfjörðun Valberg h/f. Ólafsfjörðun Kaupfélagið Siglufjörðun Ú.K.E. Sauðárkrókun Kaupfél. Skagfirðlnga Blönduós: Kaupfél. Húnvetninga Hvammstangi: Kaupfél. V-Húnvetninga Hólmavik: Risverslunin Bolungarvik: Radióv. Jóns B. Haukssonar Tálknarfjörðun Kaupfél. Tálknafjarðar ÓlafsvikiTómas Guðmundsson Finlux Finlux Finlux Finlux Finlux Finlux

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.