Dagblaðið - 25.09.1979, Blaðsíða 12
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1979.
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1979.
13
iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
D
úrslitin í Austur-Þýskalandi”
—sagði þjálfari unglingalandsliðsins, Lárus Loftsson, við DB ígærkvöld
„Við höfum að sjálfsögðu (ekirt
stcfnuna á úrslilakeppnina, sem fram
fer í Auslur-Þýzkalandi næsla vor en
það verður örugglega við ramman rcip
að draga þar sem Finnanir hafa stcrku
lifli á afl skipa," sagði I.árus Loftsson,
þjálfari islenzka unglingalandsliðsins
við I)B í gær. íslenzka unglingalands-
liðið, sem er undir hans stjórn, leikur
gegn þvi finnska á fimmtudaginn
kemur kl. 17.30 á l.augardalsvelli en til
þessa hefur þessi leikur drukknað í
fréttum blaðanna um Evrópuleiki
hinna islcnzku félagsliða.
Hópurinn, sem nú undirbýr sig al
kappi, er þannig skipaður:
Stefán Jóhannsson, KR
Kristján Ármannsson, Vík. Ól.
Benedikt Guðmundsson, Breiðabliki
Hafþór Sveinjónsson, Fram
Guðmundur Torfason, Fram
Ómar Rafnsson, Breiðabliki
Sigurjón Kristjánsson, ÍA
L.árus Guðmundsson, Vikingi
Ragnar Margeirsson, Keflavík
Sigurður Grétarsson, Breiðabliki
Óskar Þorsteinsson, Vikingi
Ásbjörn Björnsson, KA
Einar Ólafsson, ísafirði
Valur Valsson, FH
Von Óster er
orðin lítil
Tcitur Þórðarson og félagar hans
hjá Öster þurfa víst örugglega að láta
sænska meistaratitilinn af hendi í
lok þessa keppnistímabils. Nú eru
aðeins fjórar umferðir eftir og von
Öster um að halda titlinum er orðin
ákaflega lítil. Um helgina gerði Öster
jafntefli við Norrköping á útivelli 1—1,
en þrátt fyrir þetta góða stig er Öster
vonlítið um að endurheimta (itilinn.
Efsla liðið Halmstad vann góðan sigur
á Gautaborg um helgina en fyrir leikinn
var Gautaborgarliðið í 2. sæti
deildarinnar. Öster er nú fimm stigum
á eftir Halmstad.
Úrslitin í Sviþjóð á sunnudag urðu
sem hér segir:
Elfsborg-Landskrona
Halmstad-Gautaborg
Hammarby-Atvidaberg
Kalmar-AIK
Malmö-Halmia
Norrköping-Öster ♦
Sundsvall-Djurgaarden
2—1
2—0
0—0
4—
3 —
1 —
I —
Það er fyrst og fremst hin slæma
byrjun Öster sem verður liðinu að falli í
Liðinu gekk afleitlega í byrjun enda
settu sífelld meiðsl leikmanna strik i
reikninginn svo um munaði. Teitur
hefur sjálfur ekki náð sér á strik fyrr
en síðari hluta mótsins en þá líka farið í
gang svo um munar. Hann hefur verið
óstöðvandi undanfarnar vikur og
mánuði og hann er nú markahæstur
leikmanna Öster með 7 mörk. Það er
mun minna en hann skoraði i fyrra en
nú þekkja hann allir varnarmenn og
hann er stíft „dekkaður” í öllum
leikjum.
Staðan í Allsvenskan er nú þannig
eftir að4 umferðir eru eftir:
Halmstad
Malmö
Elfsborg
Gautaborg
Hammarby
Norrköping
Öster
Kalmar
Atvidaberg
Landskrona
Djurgarden
AIK
Sundswall
Halmia
Jósteinn Einarsson, KR
Gísli Felix Bjarnason, KR
Fyrirliði hópsins cr Benedikt
Guðmundsson úr Blikunum. Eins og
'menn sjá er hópurinn settur saman úr
mörgum liðum og t.d. er þarna i fyrsta
skipti leikmaður úr Víkingi, Ólafsvik.
„Við settum á fót leiki viðs vegar um
landið i sumar til þess að geta fengið
einhverja mynd af því, sem var að ger-
ast á hinum ýmsu stöðum og í þessum
leikjum komum við auga á leikmenn,
sem voru vel boðlegir i landslið. T.d. er
markvörðurinn frá Ólafsvík þannig til
kominn i unglingalandsliðshópinn,”
sagði Lárus er DB leit inn á æfingu hjá
strákunum þar sem þeir æfðu undir
hans stjórn á grassvæði við l.augar-
dalslaugina. Grasið líktist meira
lauginni sjálfri en nokkurn tima grasi
þvi allt var á floti en piltarnir létu ekki
slika smámuni á sig fá og greinilegt var
að andinn innan hópsins var góður.
„Það er ekki svo gott að búa liðið
undir leikinn gegn Finnunum þar sem
við vitum harla lítið um þá,’’ sagði
L.árus. „Við vitum þó að þeir hafa lagt
gcysilega áherzlu á að drífa knatt-
spyrnu upp hjá sér á undanförnum
árum og t.d. á A-landslið þeirra
möguleika á að tryggja sér sæti í úr-
slitum HM í fyrsta skipti i finnski
knattspyrnusögu. Við lékum æfinga-
leik við KR hér á þessu æftngasvæði á
laugardag og þ.að varð jafntefli 1 — I.”
Piltarnir sem skipa þennan hóp eru
lescndum DB vafalitið ekki ókunnugir
með öllu. Stór hluti þeirra hefur æft og
lcikið rcglulega með meistaraflokkum
telaga sinna. Benedikt Guðmundsson,
Breiðabliki, hefur leikið nteð Blikunum
i sumar og sömu sögu er að segja um
markakónginn Sigurð Grétarsson,
félaga hans úr Blikunum. Gunnar
Torfason og Hafþór Sveinjónsson úr
Fram hafa báðir verið i meistaraflokks-
liði síns félags i sumar og Hafþór var
fastamaður mikinn hluta keppnistíma-
bilsins. Lárus Guðmundsson og Óskar
Þorsteinsson léku með Víkingi í sumar
og var Lárus i flestum lcikjanna en
Óskar fékk nokkur tækifæri.
Einar Ólafsson, Valur V'alsson og
Jósteinn Einarsson léku einnig allir i
meistaraflokki sinna félaga, og sömu
sögu er að segja um Kristján Ármanns-
son, Vikingi Ólafsvík. Það er þvi vist
að nær allir piltanna hafa híotið tals-
verða leikreynslu hér heima.
Islenzka unglingalandsliðið getur
státað af mjög góðum árangri í
Evrópukeppni landsliða siðustu árin.
L.iðið hefur komizt i úrslitakeppnina
fimm sinnum á sl. sjö árum en i fyrra
var leikið gegn Hollcndingum. Þeir
reyndust ofjarlar okkar í það skiptið en
leikurinn hér heima var bráð-
skemmtilegur á að horfa.
Það er ekki létt verk að stjórna
unglingalandsliðinu ár eftir ár þvi
endurnýjunin er mjög mikil á milli ára.
Þannig taldist Lárusi Loftssyni til að
það væru ekki nema 3—4 leikmenn i
liðinu frá því i fyrra þannig að það
þýðir lítið að byggja á gömlum merg.
Lárus hefur sýnt það ár cftir ár að hann
nær því bezta út úr strákunum sinunt
hverju sinni. Við skulum bara vona að
svo verði einnig nú og hvetjum um leið
alla til að sjá strákana á fimmtudag.
-SSv.
Jens Jensson sýnir hér balletttilþrif i leik Fram og Víkings
DR.mvnd Árni Páll.
Eyjamenn þakka
fyrirsig
íþróttabandalag Vestmannaeyja sendir kveðjur
sínar og alúðarþakkir til hinna fjölmörgu félaga,
fyrirtækja og einstaklinga, sem glöddu okkur á
sigurdegi í I. deild með rausanrlcgum áheitum,
gjöfum, blómum og heillaskeytum.
I.angþráðu takmarki er nú náð. íslandsbikarinn
hcfur loksins verið fluttur heim til F.yja. Við munum
seint gleyma hinum stórkostlegu móttökum Vest-
mannaeyinga þá er við komum heim mcð bikarinn.
Til að tjá sig iiiii |>ær skortir lýsingarorð. ÍBV
þakkar öllum þeim er hafa stutl liðið og styrkt,
bæði heiiua i t.yjum og viða um landið. Þar hafa
margir lagt hönd að verki og mcð þessari sluttu orð-
sendingu viljum við koma á framfæri til ykkar allra
okkar innilegustu þakklætiskveðjum.
I.eikmcnn, þjálfarar og
knaltspyrnuráðsmenn i ÍBV
Mennea enn
langfyrstur
Eric Motti, Frakklandi, var kominn með 4.087
stig cftir fyrri dag lugþrautarkcppninnar á
Miðjarðarhafsleikunum, sem lýkur um næslu helgi
en lauk ekki um sl. helgi eins og við sögðum hér í
hlaðinu í gær. Konslantin Kostis frá Grikklandi var
annar með 3.850 stig.
Pietro Menneajtalíu, sigraði næsta örugglcga i
úrslitum 100 metra hlaupsins á 10,24 sek. eftir að
hafa einnig hlaupið á mjög góðum tima í undan-
rásunum. Franco l.azzer, landi hans, hafnaði í öðru
sætinu á 10.47 sek.
í 400 metra grindahlaupi var selt nýtt lcikjamel .
Þar hljóp Rok Kopitar frá Júgóslavíu á 49,70 sek. í
kúlunni sigraði Vldimir Milic frá Júgóslaviu með
20,58 metra, sem er einnig nýtl leikjamct. Angelo
Groppelli, sem kom hingað með ítalska kastlands-
liðinu varð aðeins i 5. sæli með 18.46 metra.
Skallagrímur
sigraði
Meistaramóti Ungmennasambands Borgarfjarðar í
knattspyrnu 1979 lauk á Miðgarðsvelli 15. scpt-
ember með úrslitalcik á milli UMF Hauks, Þrasla,
Vísis og UMF Skallagríms. Leiknum, sem fram fór i
roki og rigningu, lyktaði með jafntefli, hvort lið
skoraði þrjú mörk. Jafnteflið nægði Skallagrims-
mönnum til sigurs í mótinu þar scm þeir höfðu eins
stigs forystu yfir sunnan-heiðarmenn fyrir úrslita-
leikinn.
Úrslil mólsins urðu þessi: .
1 UMF Skallagrímur (Borgarfjarðarm. 1979) lOstig
10 sliK
2. l!MF Haukur, Þrestir, Vísir 9stig
3. UMFSinfholtstunen-> Rcvl.dæla 3slig
4. UMF Björn Hitdælukappi, Hitdælak.,
lCgill Skallagrimss. 2s,iB
I eikiu vui tvolold iimlerð. leiklimi 2xJ5 min-
útur.
Að úrslitaleiknum loknum bauð stjórn UMSB og
UMF Þrestir leikmönnum liðanna til kaffidrykkju
þar sem verðlaun voru afhent. UMF Skallagrímur
vann, með sigri í mótinu, farandbikar til varðveizlu í
eitl ár.
Ungverjar í
efsta sætinu
Hcimsleikar unglinga í tugþraul standa nú yfir í
llaag i Hollandi. Eftir fyrsta dag keppninnur voru
Ungverjar í cfsta sætinu með 3284 stig en á hæla
þeim komu Svíar með 3240 stig. Hollendingar voru í
þriðja sætinu með 3230 stig, þá komu V-Þjóðverjar
mcð 3228, Finnar 3222, Ástralíumenn 3184, Rússar
3180, Bandaríkjamenn 3170 og Tékkar 3166. Pól-
verjar og Brelar voru mcð 3lSOstig hvor þjóð.
Getraunir
í 5. Icikviku Gctrauna urðu úrslit nokkuð óvænt
og af 12 leikjum lyktaði 7 með jafnlefli. Fyrsti
vinningur kom á 10 rétta cn mcð þann árangur voru
18 seðlar og vinningur á hvern kr. 63.000.- Með 9
rétta voru 120 raðir og vinningur fyrir hverja kr.
4.000.-
Stenmark á batavegi
Ingcmar Stenmark, sænski skíðakappinn, mun
fara af sjúkrahúsinu í Innsbruck eftir rétta viku, að
því cr talsmenn þess segja. Stcnmark slasaðist illa
um fyrri hclgi við brunæfingar og eftir slysið hefur
hann sagt að héðan í frá muni hann aldrei keppa
aftur í bruni. „F.g hef gefiö upp alla von um að
vinna hcimsbikarinn í vetur, en það eru enn fimm
mánuðir þar til ólympíuleikarnir hefjast í l.ake
Placid og ég stelni að sigri þar í sviggreinunum,”
sagði Sviinn og lætur greinilcga cngan bilbug á sér
finna.
íslenzka unglingalandsliðið á æfingu í gær ásaml þjálfara sínum, l.árusi Loftssyni.
DB-mynd Árni Páll.
„Stefnum að sjálfsögðu í
Hurst rak Osgood frá
Chelsea með skömmum
—og leysti að auki 7 leikmenn f rá samningi við félagið
Það gengur greinilcga á ýmsu hjá
Chelsea þessa dagana. I gær var Peter
Osgood rekinn frá félaginu fyrir að
mæta ekki á æfingu og Geoff Hurst,
sem tók við af I)anny Blanchflower
fyrir tveimur vikum hefur heldur betur
látið til skarar skríða á þeim stutta
tíma, sem hann hefur verið við völd hjá
félaginu. Auk þess að reka Osgood frá
félaginu leysti hann 7 leikmenn til við-
bótar frá samningi.
Víkingar
Knapp í
vígahug
Víkingarnir hans Tony Knapp hafa
nú heldur betur hækkað flugið á ný
eftir skrykkjótt gengi undanfarnar
vikur. Viking er nú í efsta sæti norsku
1. deildarinnar og um helgina tryggði
liðið sér þátttökuréttinn í úrslitaleik
norsku bikarkeppninnar. Viking vann
Brann frá Bergen 1—0 um helgina og
mætir annarrar deildar liðinu Haugen i
úrslitum. Haugen kom mjög á óvart nú
og vann Mjölndalen 3—1 á útivelli í
undanúrslitum. Það verður því að telja
sigurlíkur Viking miklar í bikarnum og
i deildinni stendur liðið langbezt allra
liða að vígi.
Leiðrétting
Úrslit tveggja leikja i körfuboltan-
um um síðustu helgi voru ranglega
gefin upp i blaðinu i gær. Leikur Fram
og Ármanns fór 122—100 fyrir hina
fyrrnefndu og KR vann Ármann með
124 stigum gegn 107.
Forsaga málsins var sú að fyrir
rúmum tveimur vikum kom upp mikil
óánægja með Blanchflower eftir tap
Chelsea á heimavelli fyrir Birmingham.
Undirritaður sá þann leik á Stamford
Bridge og þar var Osgood tekinn af
leikvelli um miðjan siðari hálfleikinn
vegna slakrar frammistöðu. Ekki mun
Osgood alls kostar hafa líkað við þessa
ráðstöfun Blanchflower sem þá var enn
við stjórn og lýsti því þá yfir við blaða-
menn eftir leikinn að Blanchflower
væri gamaldags skarfur og það væri
einlægur vilji leikmanna að hann léti af
stjórn. Osgood hefur aldrei þótt vera
merkileg manngerð og i þetta skiptið
kom hann algerlega aftan að Blanch-
flower, sem hugsaði ráð sitt í tvo daga.
Síðan sagði hann starfi sínu lausu og
Geoff Hurst, þrennuhetjan frá því í úr-
slitaleik HM 1966, sem hafði verið
þjálfari hjá Chelsea og enska landslið-
inu um skeið, tók við völdum.
Hafi Osgood gerl sér vonir um betri
tið byggðist það á einhverjum misskiln-
ingi. Hurst hristi heldur betur upp í lið-
inu og Osgood varð fyrsti maðurinn
sem hann tók út úr liðinu i næsta leik.
Að auki fylgdu tveir aðrir leikmenn og
annar þeirra var Clive Walker. Þótti
undirrituðum það undarleg ráðstöfun
þar sem Walker var tvímælalaust bezti
maður Chelsea í leiknum gegn Birming-
ham. Vel má þó vera að aðrar ástæður
hafi legið að baki.
Chelsea fékk Ijótan skell gegn ný-
liðum og neðsta liði deildarinnar,
Shrewsbury. Síðan hefur ekki mikið
heyrzt af samskiptum þeirra Osgood og
Hurst þar til i gær að Osgood var
leystur frá samningi við félagið. Hætt
er við að hinir tryggu áhangendur
félagsins verði ekki ánægðir með þessa
framvindu mála. Að auki leysti Hurst
sjö leikmenn frá samningi og þar á
meðal voru þeir John Phillips mark-
vörður, sem fékk frjálsa sölu og svo
einhver Docherty, sem Chelsea keypti
fyrir 50.000 pund sl. vetur. Félagið er i
miklum fjárhagskröggum um þessar
mundir og hefur í raun aldrei borið sitt
barr eftir byggingu hinnar nýju stúku
vallarins, sem kostaði vel yfir tvær
milljónir punda.
Menn bíða nú spenntir eftir því hvað
muni gerast hjá Chelsea en ekki kæmi á
óvart þótt fleiri uppsa.mir fylgdu í kjöl-
farið og af reynslu fyrr. ’ra má allt eins
búast við að Hurst verði látinn fjúka.
Osgood er hér sigurreifur eftir bikarsigur Southampton 1976 og hampar verðlauna-
gripnum. Ferill hans eftir það hefur verið hálfgerð hrakfallasaga.
LEIKMENN BARCEL0NA K0MU
TIL LANDSINS í GÆRKVÖLD
—æfa á LaugardalsveHi kl. 17.00 í dag
Leikmenn spænska liðsins
Barcelona, sem leika gegn Skaga-
mönnum í Evrópukeppni bikarhafa á
Laugardalsvellinum á morgun kl. 17.30
komu til landsins í gærkvöld. Um
helgina lék liðið gegn Real Madrid á
útivelli og mátti þola 2—3 tap gegn
þessu fræga liði. í Dagblaðinu á
föstudag var ýtarleg kynning á leik-
mönnum Barcelona en til þessa hefur
lítið farið fyrir leikmönnum
Akurnesinga, sem leika á morgun. Sá
Skagamaður, sem athyglin beinist mest
að á morgun er vafalitið hin síunga
kempa Jón Alfreðsson. Jón hefur eftir
þvi sem bezt er vitað leikið flciri
meistaraflokksleiki en nokkur annar
hér á landi og leikurinn gegn Barcelona
verður 320. leikur hans með ÍA. Auk
þess verður þelta 15. Evrópuleikur
Jóns en hann hefur leikið í öllum
Evrópuleikjum ÍA til þessa. Jón hefur
margoft lýst því yfir á undanförnum
árum að „nú væri hann að hætta” en
alltaf hefur hann haldið áfram, Akur-
nesingum til ómetanlegs gagns í gegn-
um árin. Að öðrum ólöstuðum hefur
Jón vcrið driffjöðrin í leik Akurnesinga
í mörg ár og það er því vel við hæfi að
stórlið sem Barcelona skuli verða
mótherji Skagamanna í 320. leik hans.
Eins og endranær mun Knatt-
spyrnuráð Akraness gefa út vandaða
leikskrá fyrir leikinn. Að þessu sinni
verður spjallað við þá Jóhannes
Guðjónsson, Svein Teitsson og Hans
Nielsen, sem ætti að vera óþarfi að
kynna fyrir öllum þeim er á annað borð
sækja leiki Skagaliðsins. Hansi er
eldhress að vanda og víst er að hann
fer ekki troðnar slóðir í tilsvörum.
Annars er hópurinn, sem leikur gegn
Barcelona þannig skipaður:
Jón Þorhjörnsson, markvörður, 21 árs.
Háskólanemi. Hóf að leika með ÍA
1977, lék áður með Þrótti, Reykjavík.
Hefur leikið 84 leiki og skoraé I mark.
Hefur leikið 9 unglingalandsleiki.
Bjarni Sigurðsson, markvörður, 18
ára: Nemi Hóf að leika með ÍA 1979,
lék áður með ÍBK. Hefur leikið 10 leiki
með ÍA og 6 unglingalandsleiki.
Árni Sveinsson, varnarmaður, 23 ára.
Trésmiður. Hóf að leika með ÍA 1973
og hefur leikið 163 leiki og skorað 25
mörk. Hann hefur leikið 24 landsleiki
og 7 unglingalandsleiki.
Guðjón Þórðarson, varnarmaður, 24
ára. Rafvirki. Hóf að leika með ÍA
1972 og hefur leikið alls 185 leiki og
skorað 3 mörk. Hefur leikið 7
unglingalandsleiki. Guðjón er kvæntur
Bjarneyju Jóhannesdóttur og eiga þau
tvö börn.
Jóhannes Guðjónsson, varnarmaður,
28 ára. Endurskoðandi. Hóf að leika
með ÍA 1968 og hefur leikið 174 leiki
og skorað I mark. Er fyrirliði IA á leik-
velli. Jóhannes er kvæntur Guðrúnu
Guðmundsdóttur og ciga þau eitt
barn.
Jón Gunnlaugsson, varnarmaður. 29
ára. Forstöðumaður. Hól að leika nteð
í A 1968 og hefur leikið alls 277 leiki og
skorað 29 mörk. Hefur leikið 5 lands-
leiki. Jón er kvæntur Elínu Einarsdótt-
ur og eiga þau eitt barn.
Sigurður Halldórsson, varnarmaður,
22. ára. Trésmiður. Hóf að leika með
ÍA 1975 og hefur leikið 53 leiki og
skorað 6 mörk. Hefur leikið 2
unglingalandsleiki. Sigurður er
kvæntur Lovísu Jónsdóttur.
Jón Áskelsson, varnarmaður, 22 ára.
Trésmiður. Hóf að leika með ÍA 1976
og hefur leikið 74 leiki og skorað 3
mörk.
Jón Alfreðsson, framvörður, 29 ára:
Verkamaður. Hóf að leika með ÍA
1966 og hefur leikið 319 leiki og skorað
20 mörk. Jón hefur leikið 4 landsleiki.
Sveinbjörn Hákonarson, framvörður,
21 árs. Trésmiður. Hóf að leika með í A
1976 og hefur leikið 55 leiki og skorað
11 mörk.
Kristján Olgeirsson, framvörður, 19
ára. Nemi. Hóf að leika með ÍA 1979
en lék áður með Völsungi, Húsavík.
Hefur leikið 33 leiki og skorað 3 mörk.
Hefur leikið 8 unglingalandsleiki.
Sigurður I.árusson, framvörður, 25
ára. Trésmiður. Hóf að leika með ÍA
1979 en lék áður með Þór og ÍBA.
Helur leikið 34 leiki og skorað I mark.
Sigurður er kvæntur Valdisi Þorvalds-
dóttur og eiga þau tvö börn.
Matthías Hallgrimsson, framherji, 32
ára. Rafvirki. Hóf að leika með IA
1965 og hefur leikið 306 leiki og
skorað!6l mark. Lék i Svíþjóð 1976—
77. Matthías hefur leikið 45 landsleiki.
Kristinn Björnsson, framherji, 24 ára.
Háskólanemi. Hóf að leika með ÍA
1977 en lék áður með Val. Hefur leikið
88 landsleiki og skorað 30 mörk. Hann
hefur leikið 2 landsleiki.
Sigþór Ómarsson, framherji, 23 ára.
Rafvirki. Hóf að leika með ÍA að nýju
1979 eftir að hafa leikið tvö ár með Þór
á Akureyri. Hefur leikið 52 lciki og
skorað 16 mörk. Hefur leikið 1
unglingalandsleik.
Andrés Ólafsson, framherji, 28 ára.
Bankagjaldkeri. Hóf að leika með ÍA
1968 og hefur leikið 128 leiki og skorað
21 mark. Andrés cr kvæntur Rósu
Pétursdóttur og eiga þau citt barn.
Guðbjörn Tryggvason, framhcrji, 20
ára. Rafvirkjanemi. Hóf að lcika með
ÍA 1976 og hefur leikið 36 leiki og
skorað5 mörk.
Þjálfari ÍA er Klaus Júrgen Hilpert
frá Vestur-Þýzkalandi og aðstoðar-
þjálfari er Hörður Helgason.