Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1994, Blaðsíða 13
BÓKAÚTGÁFA PÁLS SVEINSSONAR
13
góð skil, sendir Páli að því er virðist viðstöðulítið andvirði þeirra
bóka, sem hann tekur á móti. Slíku á Páll ekki að venjast, enda er
honum ekki grunlaust um, að hér ráði örlæti prófasts, fremur en
einstæð bókhneigð Vopnfirðinga.
Páll er opinskár við prófastinn á Hofi og segir honum eitt og
annað af útgáfubasli sínu. Hann lætur þess getið vorið 1864, að
von sé á nýju hefti af Púsund og einni nótt. Síðan bætir hann við:
„Ég get ei meir í ár, hún gengur illa út, og ennþá verr gengur með
að fá inn fyrir það litla sem selst, en ef ég lifi ætla ég samt að ljúka
henni af, því ég hefi lofað því og ég vona að geta haldið það.“
Sumarið 1866 segir Páll í bréfi: „Með síðustu ferð til Vopna-
fjarðar í ár dirfist ég að senda yður 25 ex. af Þúsund og e., 9. hefti.
10. heftið, sem líka verður slúttnings-heftið, verður búið um
mánaðar tíma, en getur ekki komið til yðar fyrr en í vor. Það er
skömm að vera að plága yður með þessu bókarusli, sem ég er
orðinn leiður á fyrir löngu, en Þúsund og eina nótt mátti ég enda,
því annars var það einskis virði og ég orðinn svikari. Til að borga
kostnaðinn þarf ég að fá borguð 400 ex., en ég sel varla 200, og enn
síður að ég fái það borgað. Af þessu flýtur, að ég er jafnan í mestu
kröggum og skil ekki í sjálfur, hvernig ég á að synda fram úr því.
Kommer Tid, kommer Raad, segir Danskurinn. Nú sé ég þó fyrir
endann á Þúsund og einni nótt, og þegar hún er búin, þá fer ég að
rétta við.“
5
Arið 1865 hafði Páll gefið út Þúsund og eina nótt og fimmta
bindið af Nýrri sumargjöf, sem jafnframt varð hið síðasta. Næsta
ár sótti hann hins vegar í sig veðrið og gaf þá út þrjár bækur. Ein
þeirra var Bandinginn í Chillon og Draumurinn, tveir ljóðabálkar
eftir Byron, í einni bók, þýðandi Steingrímur Thorsteinsson.
Önnur bókin var Gandreiðin, skopádeila Gröndals í leikritsformi,
og hin þriðja Króka-Refs saga. Utgáfu hennar annaðist Þorvaldur
Bjarnarson, þá styrkþegi Árnasafns, síðar prestur á Melstað.
Haustið 1866 lauk Páll og útgáfu Þúsund og einnar nætur.
Enn á Páll í erfíðleikum, og sala útgáfubókanna er treg. Hinn 5.
október 1866 skrifar hann vini sínum Jóni Árnasyni: „Mér hefur í
alla staði gengið erfitt með að selja bækur mínar og má á endanum
selja þær sem maculatur (umbúðapappír). Bækur er varla orðið
seljandi á Islandi. — Ég hefi það annars gott og nóg að gera.“