Frjáls verslun - 01.02.1995, Qupperneq 18
UPPLÝSINGATÆKNI
INTERNETIÐ ER
SJÓÐANDIHEITT
Brennandi áhugi er nú á Internetinu. Vart koma tveir menn saman í kokteil-
boðum ánþess að ræða netið. En gagnastþað fyrirtækjum eins og afer látið?
□ átt er meira rætt þegar tölvur ber á góma en
Intemetið, fjölþjóða upplýsinganet sem komið hef-
ur af stað byltingu í tölvusamskiptum. Nær engin
takmörk eru fyrir því hvaða upplýsingar má nálgast og
senda frá sér með aðgangi að Intemetinu. Hefðbundin
landamæri þurrkast út og vegalengdir hverfa.
Intemetið gerir það að verkum að samskipti við tölvu-
eigendur í Ástralíu ganga jafn auðveldlega fyrir sig og verið
væri að tala við mann í næsta herbergi. Með Intemetinu
sparast bæði tími og fyrirhöfn og, sem ekki skiptir minna
máli, umtalsverðir peningar. Allt sem þarf er einkatölva,
sem sífellt fleiri eiga og em til staðar í nánast öllum fyrir-
tækjum, og mótald sem tengir tölvuna við símalínu og
aftur við milljónir einkatölva, fyrirtæki og upplýsingabanka
um heim allan.
Upphafið að Internetinu má rekja til Pentagons, höfuð-
stöðva Bandaríska hersins. Árið 1969 kom varnarmála-
ráðuneytið upp tölvuneti sem skyldi vera samskiptamiðill
ef kæmi til stórátaka. Ef ein tölva dytti úr netinu héldi það
eftir sem áður áfram að virka. Þetta netkerfi varð fljótlega
að háskólaverkefni í Bandaríkjunum og dreifðist síðan jafnt
og þétt til annarra landa á áttunda og níunda áratugnum.
En þótt Internetið sé 26 ára gamalt og hafi í raun verið til
hér á landi frá 1986 var það ekki fyrr en í ársbyrjun 1994 að
hinn almenni tölvunotandi komst í samband við Internetið.
Þá varð upphafið að þeirri netsprengingu sem dynur á
meðal íslenskra tölvunotenda. í dag
er talið að 5-6 þúsund tölvunotendur
hér á landi hafi aðgang að Intemetinu.
Fyrir sjö árum voru þeir einungis tíu.
Virkir notendur em nú rúmlega 3
þúsund. Ef litið er til heimsins er talið
að um 50 milljónir tölva séu tengdar
Intemetinu.
Flytja má allar tegundir upplýsinga
um netið en þar eru bragð og lykt þó
eðlilega undanskilin. Notagildi þess
eru nær engin takmörk sett. Hver
sem er getur sent og móttekið skila-
MYNDIR: KRISTJÁN EINARSSON
„Með jafn lítilli fyrirhöfn
og tengingu við Internetið
fá fyrirtæki og
einstaklingar aðgang að
öllum mörkuðum
heimsins. “ — Róbert
Bjarnason, Miðheimum
boð hvaðan sem er á hnettinum, pantað og selt, fengið
upplýsingar um samgöngur á landi, sjó og í lofti, fengið
upplýsingar um gengi gjaldmiðla og verðbréfa, farið inn í
gagnabanka af ýmsu tagi, bókasöfn, dagblöð, tímarit, sent
gögn í prentsmiðjur, pantað mat og svo mætti lengi telja.
Notagildið ætti að vera augljóst fyrir fyrirtæki af öllum
stærðum og gerðum og einstaklinga, eins og námsfólk.
HEIMASÍÐUR
En hvað þarf til að komast í samband við Intemet? Það
þarf aðgang að einkatölvu, mótald og sérstakt forrit. Mælt
er með mótaldi sem er a.m.k. 14.400 bita en slík mótöld
má fá fyrir minna en 20 þúsund krónur. Öflugri mótöld,
28.800 bita, eru komin á markað en em töluvert dýrari en
hin. Forritið Mosaic hefur tryggt, myndrænt notenda-
viðmót á Intemetinu en nú hefur forritið Netscape leyst
það af hólmi. Ætli viðkomandi að ná í lifandi myndir eða
hljóð, t.d. tónlist, um Intemetið er ráðlegt að hafa hljóð-
kort í tölvunni, gott skjákort sem tryggir góða myndupp-
lausn. Síðan þarf að komast í samband við fyrirtæki sem
miðlað getur tengingu við Internetið og selur áskrift að
netinu. Þessum fyrirtækjum fer ört fjölgandi. Auk Mið-
heima má nefna Nýherja, Menn og mýs, Skímu, Streng,
íslenska menntanetið, Margmiðlun og Netverja.
Fyrirtæki og einstaklingar geta komið sér upp svoköll-
uðum heimasíðum á Internetinu en þær eru andlit viðkom-
andi út á við á netinu og virka sem
inngangur að þeim upplýsingum sem
viðkomandi aðili vill koma á framfæri.
Hver heimasíða hefur sitt númer sem
notendur Internetsins kalla fram og fá
á sinn tölvuskjá. Með heimasíðunum
hefur leið notandans að upplýsingun-
um verið stytt. í stað þess að skrifa
langan slóða potar notandinn bendlin-
um á skjánum í tiltekna reiti og smell-
ir. Heimasíða Miðheima hf. er gott
dæmi um þetta.
Veraldarvefurinn eða World Wide
18