Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1995, Page 35

Frjáls verslun - 01.02.1995, Page 35
FORSÍÐUGREIN er áhugamaður, maðurinn á götunni, til að leika í sjónvarpsauglýsingu móðgast í sjálfu sér enginn. En hætta er á að sjónvarpsauglýsingin veki enga sérstaka eftirtekt og missi marks. Oft er sú leið farin að velja miðl- ungsþekkta leikara í sjónvarpsauglýs- ingar. Þeir hafa hæfileika og ferst verkið oft ágætlega úr hendi. Jafnvel þótt neytendur og áhorfendur þekki ekki nafn leikarans kann andlit hans engu að síður að vera kunnuglegt. Það eitt hjálpar til að ná fram þessu óvenjulega og þar með athygli áhorf- enda. VERIÐ ALDREIHRÆDDVIÐAD NOTA HLÝJU OG KÆRLEIKA En ef auglýsandi vill ekki hafa aug- lýsingu sína fyndna hvaða leið getur hann þá valið? Algengt er að vera með hreina og klára kynningu á vörunni og þeim kostum sem hún er gædd. Þá er sjónvarps- auglýsingin nánast eins og frétt. Miklu algengara er þó að gæða sjónvarpsaug- lýsingar tilfinningum til að grípa athygli áhorfenda. Tilfinningar tengdar dag- legu lífi ættu menn aldrei að forðast í auglýsingum. Þeir ættu aldrei að vera hræddir við að sýna hlýju, kærleika eða aðra þá mannlegu eiginleika sem fólk kann svo vel að meta í daglegum samskiptum. En hvemig vita menn að sjón- varpsauglýsingin þeirra er góð, hvort sem hún er fyndin eða ekki? í bókinni segir að aðalatriðið sé að leita að góðri og snjallri hugmynd þar sem myndin sé látin segja söguna. Þetta sé jú einu sinni SJÓNvarpsauglýsing. Nógu ein- föld hugmynd því betra. Best er hug- myndin ef hún segir alla söguna í ein- um lykil-myndramma í auglýsingunni. Handritið kann að þykja gott eða slæmt. Það er ævinlega matsatriði og sitt sýnist hverjum um það — um það er endalaust hægt að deila. En fyrir auglýsandann er aðalatriðið að sjón- varpsauglýsingin henti vörunni vel og hún sé áhrifarík, komi skilaboðum um vöruna rækilega til skila. FYNDNI í ÍSLENSKUM AUGLÝSINGUM Fyndni og skemmtun ýmiss konar er algengt í íslenskum sjónvarpsaug- lýsingum. Raunar segja fagmenn inn- an auglýsingageirans að fyndnar aug- lýsingar gangi svoh'tið í bylgjum. í þessu séu tískusveiflur eins og öðru. Engar mælingar eru til um þetta. Þótt fyndnar auglýsingar séu algengar hérlendis eru þessar mannlegu úr daglega lífmu samt algengastar. Oft ber þar á svolítilli kímni en mannlegi þátturinn er látinn leiða auglýsinguna og koma skilaboðunum áleiðis. Það, sem vekur kannski enn meiri athygli við fyndnina í íslensku sjón- varpsauglýsingunum, er valið á leik- urum til að koma gríninu til skila. Landsliðið í spaugsemi er oftast not- að. Það skipa þeir Spaugstofu- og Imbakassamenn: Þórhallur Sigurðs- son, (Laddi), ÖmÁmason, Sigurður Siguijónsson og Pálmi Gestsson. Vissulega vaknar sú spurning hvort þeir séu ofnotaðir í sjónvarpsauglýs- ingum. LADDI í AUGLÝSINGUM í YFIR TUTTUGU ÁR Þannig hefur Laddi leikið í sjón- varpsauglýsingum í yfir tuttugu ár og honum þykir ávallt takast jafn vel til. Því má skjóta hér inn í að fyrir um sex til sjö árum var skoðanakönnun í DV um fyndnustu menn þjóðarinnar. Þar trónaði Laddi í öruggu efsta sæti en næstur á eftir honum kom Sigurður Siguijónsson. Aðrir Spaugstofumenn fylgdu svo á eftir. Raunar lenti eitt gerva Sigurðar Siguijónssonar, Ragnar Reykás, í einu af efstu sætun- um. Það að Ragnar Reykás hafi verið í einu af toppsætum listans sýnir kannski best hvers vegna óhætt er að nota þessa fjóra helstu spaugara landsins svo mikið í sjónvarpsauglýs- ingum þótt þeir komi fram í eigin sjón- varpsþætti, skemmti á veitingahús- um og leiki stór hlutverk í leikhúsum. Það eru í raun gervin sem koma fram í sjónvarpsauglýsingunum en ekki þeir sjálfir. Spaugstofumenn eiga mörg gervi á lager og eiga jafnframt auðvelt með að skapa ný. „GERVIN" KOMA FRAM EN EKKI ÞEIR SJÁLFIR Þetta með gervin er líklegast lykill- inn að því að auglýsingamenn telja þá félaga ekki vera ofnotaða þótt þeir hafi komið við sögu í þekktustu, fyndnu auglýsingunum síðustu tíu til tuttugu árin. Að vísu er þess gætt að einhver þeirra sé ekki í mörgum herferðum á sama tíma í sjónvarpinu. Raunar er því haldið fram innan auglýsingafagsins að ef grannt sé skoðað sé hver þeirra ekki eins mikið í auglýsingum og margir æth, kannski þetta þremur herferðum á ári að jafnaði. En það gerir náttúrlega um tólf herferðir ef htið er á þá sem hóp. Ástæðan fyrir því að oft- ast er leitað til einhvers þeirra, þegar farið er út í stóra herferð, er fag- mennska og kunnátta þeirra. Þetta var orðað þannig að „þeir bestu tækju best stjórn líka“. Þeir eru vanir, mjög fljótir að vinna, snöggir að komast inn í hlutverk og gera nákvæmlega eins og þeim er sagt að gera. Það er gott að leikstýra þeim. Menn ganga ná- kvæmlega að því vísu hvað þeir fá þegar þeir eru ráðnir. Raunar getur falist í því vinnusparnaður að fá þá þar sem óhemju vinna getur legið í að finna óþekkt og óvannt fólk í hlutverk, auk þess sem tökur taka þá lengri tíma með tilheyrandi kostnaði til við- bótar í vinnulaunum og tækjakostn- aði. Best tekst þeim félögum upp þegar handrit og hugmynd eru góð. Eins og öllum öðrum getur þeim mistekist sé hugmyndin ekki nógu góð eða hand- / bókinni er rætt um það hvernig spilað sé inn á kynhvötina í auglýsingum. Sagt er að lífið snúist ef til vill um kynlíf en það selji ekki margar vörur. (Sex may make the world go round, but it doesn’t sell many products.) Bent er á að kynhvöt selji þegar verið sé að selja kynæsandi vörur eins og ilmvötn og snyrtivörur. 35

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.