Frjáls verslun - 01.02.1995, Síða 38
um sínum, og þar er hættan enn meiri
á ofnotkun. Þetta eru til dæmis
þekktir íþrótta- og tónlistarmenn.
Fólk sem skarar fram úr á sínu sviði.
Nærtækasta dæmið um slíkan mann
er Magnús Scheving, Evrópumeist-
ari í þolfimi og handhafi titilisins
íþróttamaður árins.
Magnús hefur verið notaður tals-
vert í sjónvarpsauglýsingum, sér-
staklega auglýsingum um hreysti og
heilsu. Munurinn á honum og lands-
liðinu í spaugi er sá að hann kemur
alltaf fram í eigin persónu en ekki í
gervum. Fyrir vikið getur hann — og
annað fólk sem fengið er til að auglýsa
vegna þess að það skarar fram úr á
einhverju sviði — orðið brothættari
en leikaramir ef vinsældir hans dvína
skyndilega.
Hætta á ofnotkun er miklu meiri en
hjá leikurum. Tökum Magnús Schev-
ing áfram sem dæmi. Hann drekkur
mjólk í auglýsingu vegna þess að hún
er holl. Hann gengur um í ákveðinni
tegund íþróttafatnaðar til að auglýsa
það merki. ímynd hans er hollusta og
hreysti. En hvað ætti auglýsandi
mjólkur að gera ef Magnús tæki
skyndilega upp á því að auglýsa
súkkulaði eða eitthvað allt annað sem
ekki er tengt hollustu? Hann yrði
væntanlega að hætta að nota hann.
Magnús Scheving, Evrópumeistari í þolfimi og íþróttamaður ársins, er vin-
sæll í auglýsingum. Hætta á ofnotkun er miklu meiri hjá fólki, sem kemur
fram í eigin persónu, en leikurum.
skólans eru löngu orðin sú að þær eigi
að vera fyndnar. Sú var tíðin að fólk
var farið að bíða eftir þeim á milli jóla
og nýárs. Þær voru skemmtun. Þess
má geta að það var Ólafur Stephen-
sen markaðsráðgjafi sem hratt þess-
um auglýsingum af stað á sínum tíma
en hann var þá einn af eigendum aug-
lýsingastofunnar Argus sem séð hef-
ur um auglýsingar fyrir Happdrætti
Háskólans frá upphafi.
Hallur Leópoldsson, fram-
kvæmdastjóri Argus, segir að lífs-
gleði, léttleiki og gaman séu enn í
fyrirrúmi í auglýsingum Happdrættis
Háskólans vegna þess að það gefist
best. Þegar aðrar aðferðir hafi verið
notaðar, eingöngu auglýst á alvarlegu
nótunum, hafi árangurinn orðið
minni. Hann segir að það sjáist ein-
faldlega munur
sé ekki notaður
húmor.
MAGNÚS
SCHEVING
En það eru
fleiri en þekktir
atvinnuleikarar,
sem auglýsendur
nota í auglýsing-
FÓLK í EIGIN PERSÓNU
MIKLU FYRR OFNOTAÐ
Þetta sýnir að fólk, sem fengið er í
auglýsingar í eigin persónu, verður
ofnotað langt á undan leikurum. Auð-
vitað getur það ekki unnið fyrir keppi-
nauta á sama sviði heldur eru líka aug-
ljósar takmarkanir á að þetta fólk færi
sig á milli sviða — auglýsi mjólk í dag
en sælgæti á morgun.
Lokaorðin eru stutt og einföld. Á
að nota fyndni í
auglýsingum?
Já, ef hún bakk-
ar skilaboðin
upp. Áréttar
þau. Hamrar
skilaboðin inn í
hugi fólks.
Fyndni, ein og
sér, selur hins
vegar ekkert.
Á að nota fyndni í
auglýsingum? Já, ef hún
bakkar skilaboðin upp.
Áréttar þau. Hamrar þau
inn í hugi fólks. Fyndni,
ein og sér, selur hins
vegar ekkert.