Frjáls verslun - 01.02.1995, Page 41
ÞU NÆRÐ EKKIARANGRINEMA
TALA VIÐ STARFSMENN ÞÍNA
Að tala og hlusta. Til að árangur
náist þurfa menn að tala saman. Hér
reynir aftur á þroska og hæfni í mann-
legum samskiptum. Hvernig kem ég
skilaboðum áleiðis? Hvaða hindrun-
um gæti ég mætt? Kann ég að halda
uppi lifandi samræðum? Þarf ég að
stilla „senditækið" mitt betur? Þá er
ekki síður mikilvægt að kunna að
hlusta. Talað er um „virka hlustun"
þegar menn reyna markvisst að skilja
þann sem rætt er við, setja sig í hans
spor og hjálpa honum til að tjá sig.
Þarf ég kannski að stilla „móttöku-
tækið“ mitt betur?
LEYFÐU SKOÐANASKIPTI -
ÁGREININGUR Á RÉTT Á SÉR
Kunna að leysa ágreining — leyfa
skoðanaskipti. Stundum gerist það að
samkeppni manna innan sama fyrir-
tækis verður svo hörð að fyrirtækið
hlýtur tjón af. Ágreiningur rís og ekk-
ert er gert í málunum fyrr en um
seinan. Það krefst ákveðinnar færni,
ákveðni og kjarks að grípa í taumana,
láta ekki spennu hlaðast upp og leysa
deilur áður en þær fara úr böndunum.
Á hinn bóginn þurfa menn að gera sér
grein fyrir því að skoðanaskipti og
ágreiningur eiga rétt á sér og þurfa að
fá eðlilegan farveg innan hópsins. Það
þarf m.ö.o. að ríkja samkomulag um
það hvernig menn leysa ósamkomu-
lag.
HRÓSAÐU. EKKI HUGSA FYRST OG
FREMST UM ÞAÐ SEM MIÐUR FER
Kunna að hrósa og hvetja — og
gera það sjálfur. Ekki þarf að fara
mörgum orðum um gildi þess að
kunna að hrósa á réttan hátt. Hrósið
er sú næring eða sá orkugjafi sem
heldur jákvæðum samskiptum gang-
andi. Mikilvægt er að hrósa mönnum
þegar þeir eiga það skilið og vera fljót-
ur að bregðast við. Það er mikilvægt
þjálfunaratriði að taka eftir því sem
vel er gert og sýna jafnframt að mað-
ur kunni að meta það.
Ekki má falla í þá gryfju að láta
einhvem annan um hrósið, eða
ímynda sér að „búið sé að hrósa nóg“.
Það er ótrúlega útbreiddur misskiln-
ingur að stjórnendur eigi fyrst og
fremst að hugsa um það sem miður
fer í fyrirtækinu, leita mistaka ogjafn-
vel refsa fyrir þau. Slík vinnubrögð
verða fljótt niðurdrepandi og draga úr
frumkvæði og sköpunargleði.
GERÐU EINS OG ÞJALFARI:
BREYTTU LIÐINU EFILLA GENGUR
Gera nauðsynlegar breytingar á
liðinu. Hvað gerir þjálfari liðs ef ein-
hver leikmanna stendur sig ekki?
Hann getur reynt að hvetja leikmann-
inn. Leyft honum að leika áfram undir
getu þar sem hann trúir því að við-
komandi muni ná sér á strik síðar.
Skipt honum út af um stundarsakir,
dregið úr ábyrgð hans t.d. með því að
láta hann skipta um stöðu eða hrein-
lega tekið hann út úr liðinu, sett hann í
B-liðið. Oft þurfa menn að taka skjót-
ar ákvarðanir. Þegar illa fer að ganga
er ljóst að breytinga er þörf. Þá gildir
að þora að taka ákvarðanir og standa
við þær. Ákvarðanataka og ákveðni
eru mikilvægir þættir sem allir nú-
tímastjórnendur þurfa að kunna skil
á.“
Hlutverk stjórnanda er að skapa sterka liðsheild sem stefnir að sama mark-
miði. Hann verður að ná saman liði sigurvegara, nokkurs konar sérsveit þar
sem valinn maður skipar hvert rúm og geta hvers og eins nýtist til fulls.
41