Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1995, Page 61

Frjáls verslun - 01.02.1995, Page 61
ERLENDIR FRETTAMOLAR Laurent Beaudoin hefur gert Bombardier að stórfyrirtæki í flugvéla- og járnbrautaiðnaði. rothögg fyrir iðnaðarframleiðslu á svæðinu. í KEPPNIVIÐ TÍMANN Þegar G. Richard Wagoner yngri, fyrrum fjármálastjóri hjá bílafram- leiðandanum General Motors, var búinn að vera 6 mánuði við aðalstjóm- völinn hjá GM á markaðssvæði Norð- ur-Ameríku, náðist 690 milljóna doll- ara hagnaður sl. ár í þeim heimshluta, sem eru fyrstu hagnaðartölur þar frá ’89. Eftir endurskipulagningu á hluta framleiðslugetunnar á sl. ári, aukast líkur á meiri hagnaði með vaxandi framleiðslu og framleiðni. Ef sala verður jafnari og teygist yftr lengri tíma gefst tækifæri til að minnka kostnað og laga efnahagsreikninginn hjá GM, en þetta verður keppni við Wagoner hjá GM gerði hlé á vinnu í 5 mínútur til að fagna hagnaðartölu sl. árs, og svo héldu menn áfram að vinna. tímann. Ef ekki kemur til vinnustöðv- ana, þá ætti þetta að vera greið sigl- ing, aðmatiJohnA. Casesa hjá Wert- heim Schroder & Co., sem býst við 2,85 milljarða dollara hagnaði á þessu ári. MEÐ LESTUM 0G FLUG- VÉLUM BOMBARDIER Á bökkum St. Lawrence-árinnar í tíu þúsund manna bæ í Quebec-fylki í Kanada, hefur Bombardier-fyrirtæk- ið aðsetur, en það hefur komist í fremstu röð í framleiðslu tækja til fjöldaflutninga. Jámbrautarvagnar fyrir Ermasundsgöng, New York- borg o.fl. hafa verið framleiddir af fyrirtækinu auk járnbrautarverkefna í Kína, Ankara og Kuala Lumpur, en framleiðsla járnbrautarvagna var 27% heildarsölu sl. árs og þotuframleiðsla 54% sölu. Laurent Beaudoin forstjóri tók við stjórn 27 ára gamall, þegar fyrirtækið framleiddi aðeins snjóbíla, og hefur gert það að stórfyrirtæki á 29 árum, sem þrefaldað hefur sölu sl. 5 ár, eða í 3,4 milljarða dollara ’94, og hagnaður hefur aukist um 157% á sama tíma, eða í 125 milljónir dollara á sl. ári, auk þess sem framtíðin lofar góðu. Eftir jarðskjálftann mikla í Kobe í Japan í janúar sl. verður að mörgu að hyggja í uppbyggingu á svæðinu. Var- lega áætlaður kostnaður endurbygg- ingar er talinn 200 milljarðar dollara, sem er u.þ.b. jafngildi þriggja mánaða iðnaðarframleiðslu á svæðinu. Fyrir flest stórfyrirtæki olli stöðvun rekst- urs aðeins töf á framleiðslu og afhend- ingu hennar, og Tatsuro Toyoda for- stjóri hjá Toyota sagði að það yrði bætt upp með 3 aukavöktum ein- hverja helgina. Náttúruhamfarirnar voru högg, en rothögg var það ekki fyrir athafnasemi á svæðinu. Náttúrhamfarirnar í Kobe voru ekki UPPBYGGING í KOBE 0G NÁGRENNI 61

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.