Vísir - 06.08.1970, Side 9
> í S I R . Fimmtudagur 6. ágúst 1970.
Erla Scheving-Thorsteinsson,
húsmóöir: „Ég er á móti öll-
um boðum og bönnum og vín
bann vil ég alls ekki.“
1 nýju húsi ÁTYR er tappað
á átta þúsund flöskur á dag
— velta Áfengis- og
tóbaksverzlunarinnar
er 5 milljónir daglega
□ íslendingar drekka ekki
mikið áfengi ef borið er
saman við aðrar þjóðir. Hlvert
mannsbarn mun drekka sem
svara 2,17 lítrum af hrein-
um spíra á ári og er það
minnsta magn á Norðurlönd-
um. Finnar drekka t.d. 4 Utra
af spíra á ári. Samt þurfum
við að hýsa okkar verzlun
vel.
□ „Fyrstu flöskuna sem við
töppuðum á hér í nýja
húsinu ætlum við að gefa
ráðuneytisstjóranum í fjár-
málaráðuneytinu“ sagði for-
stjóri ÁTVR, Jón Kjartans-
son — aðspurður. „Það er
eðlilegt.“
Á morgun verða merk tima-
mót í rekstri Áfengis- og tóbaks
verzlunar ríkisins, en þá verða
tekin í notkun ný húsakynni
hennar að Draghálsi 2 við Suð-
urlandsveg skammt norðan nýja
Árbæjarhverfisins. ,
Þarna í þessu nýja húsnæöi
verður allur lager áfengisverzl
unarinnar og sömuleiðis öll fra*n
leiðsla áfengis og átöppun. Jón
Kjartansson forstjóri ÁTVRboð
aði til blaðamannafund^r í gær
vegna þessa og veitti uþplýsing
ar um rekstur og rekstrarfyrir
komulag ÁTVR.
Vatnið úr Öxarárfossi
„Þetta húsnæði okkar hér var
ekki hægt að sýna nokkrum
manni“. sagöi Jón er við rædd-
um við hann í gömlu Nýborg,
en þar var allt áfengi bruggað
og því tappað á flöskur allt
fram á þennan dag. Jón sagði
að lagerinn hefðu þeir og ver-
ið aö flytja upp að Draghálsi
síðustu daga og af þeim sökum
var heldur tómlegt þar í Ný-
borg, en húsið angaði þó allt
fremur viðkunnanlega — viðir
allir orðnir mettaðir áfenginu.
„Ég get sagt ykkur sem
dæmi“ sagði Jón. ,,að eitt sinn
bauðst mér að selja íslenzkt
brenniyfn til Skotlands. Kaup-
andinn vildi fá að sjá verk-
smiðjuna sem vínið væri fram-
leitt í og kom hingað til íslands
í þeim tilgangi. Mér kom auð-
vitað ekkj til hugar að sýna
honum Nýborgina, þvi þá hefðu
öll viðskipti samstundis verið
dauðadæmd — hins vegar ók
ég með honum austur að Öxar-
árfossi og sýnd; honum hann
— þarna fáum við vatnið í
brennivínið sagöi ég“.
Nýborg rifin í haust
Nýborg var byggð fyrir upp
haf fyrri heimsstyrjaldar og var
þá korngeymsla. Áfengisverzl-
unin fékk svo húsið til afnota
1923, en fram til þess tíma var
verzlunin dreifð um bæinn. Öll
starfsemin flutti svo í Nýborg
er hún komst í gagnið, en skrif
stofan var þá og síðar að Hverfis
götu 21 í húsi Jóns Magnússon-
ar ráðherra. Fyrsti forstjóri var
P. L. Mogensen en 1928 tók
Guðbrandur Magnússon við og
var hann forstjóri fram til árs-
Nýja átöppunarvélin er fullkomin: 'Hún ekki einasta fyllir á
gerðum, heldur skrúfar hún líka tappana á þæ r og límir svo
M oíí .u-iM'tb -
ins 1957 og tók þá núverandi
forstjóri, Jón Kjartansson við.
Gamla Nýborg sem svo lengi
hefur þjónað Bakkusi og fleiri
góðum, verður væntanlega rif-
in til grunna í haust.
8000 flöskur á dag
Óneitanlega er umhverfi allt
hið snyrtilégasta við nýja hús-
næði ÁTVR að Draghálsi 2.
Húsið sjálft var keypt af Ofna
smiðjunni á 12 milljónir kr. fyr-
ir rúmu ári. Síðan það var hef
ur sitthvað verið gert til að
aðlaga húsið starfsemi ÁTVR,
og hefir 17 milljónum verið var
ið til þeirra • framkvæmda. Eru
þær helztar að keypt voru inn
fullkomin brugg- og blöndunar
tæki frá Frakklandi og sömu
leiöis átöppunarvél. Sú átöpp-
unarvél er miklum mun full-
komnarj en eldri vélin, því hér
áður var aðeins hægt að tappa
brennivini eða ákavíti á 3000
fiöskur daglega. Núna afkastar
átöppunarvélin hins vegar 8 þús.
flöskum á dag. Sú aukning kem
ur svo fram i bragðbetri drýkk,
því ef aðeins er tappað á 3000
flöskur daglega stendur vínið
sama og ekkert við, en nú er
stefnt að því að seija ekki
flösku sem hefur ekki verið
geymd f a. m. k. 8 mánuöi.
10 útsölustaðir
Nýja húsiö að Draghálsi er
engin smásmíð, því það er 3000
fermetrar að flatarmáli, en því
er skipt í sundur með eldvarn-
arvegg einum „rándýrum úr
krossviði sem ekki brennur þótt
honum sé kastaö á bál“. t>á er
eldvamarkerfi hússins mjög full
komið — leiðslur eru í lofti og
ef eldur kemur upp þarf starfs-
maður eða vörður ekki annað
að gera en skrúfa frá krana og
l\ UÍÍiDlliií i íiDlýlhr:i
úðast þá eldvarnarefnið ýfir
alla sali.
Og ekki veitir af að hafa lag-
erinn veglegan — þvíþaðan er
vín'föngum dreift á 10 útsölu-
staði. Núna eru útsölur 3 i
Rvík og svo ein á hverjum staðn
um Akureyri. Seyðisfiröi, ísa-
firði, Vestmannaeyjum, Nes-
kaupstað, Keflavík og svo ein
afgreiðsla fyrir póstkröfur og
hótel og sú er í Reykjavík.
Jón Kjartansson sagði að sala
með póstkröfum hefði minnkað
að mun „einkum eftir að út-
sala var opnuð i Vestmannaeyj-
Fluga í brennivínsflösku
Brugg- og blöndunartæki Á-
fengisverzlunarinnar eru nú orö
in mjög svo fyrifferðarmikil og
flókin. Geymar eru gífurlega
stórir taka samtals 33500 lítra.
Öli bruggun áfengis fer um lok
að kerfi undir umsjón lyfjafræð
ings. en hann tekur stöku sinn-
um prufur „og gætir vel að því
að styrkleikinn sé i lagi“, sagöi
Jón Kjartansson.
Jón sagði að lítið væri um
það að fólk kvartaði undan
brennivíninu þeirra — eitt sinn
hefði aö vísu heimsótt sig kona
og hefði sú sýnt sér brennivíns
flösku sem innihélt eina dauða
flugu. Var konan ævareið og
hótaði að hlaupa með þetta i
blöðin. — Það er ágætt, sagöi
Jón þá — þetta er nefnilega
eina flaskan af um það bil tveim
ur og hálfri milljón sem eitt-
hvaö er athugavert við síðan ég
tók hér til starfa — Sagði Jón
svo að helzt væri það að fólk
kvartaði undan því hvort mið-
ar á brennivínsflöskum væru
svartir eða einhvern veginn
öðruvísi og eru um það mjög
skiptar skoðanir „og því bezt
að hafa bara báða“. sagði Jón.
flöskur af öllum stærðum og
á þær merkimiða að síðustu.
Núna eru áfengisútsölur í
Reykjavík 3 talsins og eru ekki
uppi neinar fyrirætlanir um að
opna nýja. Það kostar 2—3
milljónir að opna nýja útsölu,
og sagði Jón Kjartansson að
þeir myndu ekki hugsa um aö
opna nýja í nýju hverfunum,
t. d. Árbæ og Breiðholti eins
og stæöi.
Reglusamir starfsmenn
Eflaust mun íslendingum þykja
gott til þess að vita að álfeng-
isverzlunin, þetta uppáhalds rík
isfyrirtæki okkar sé komið í
góð húsakynni og það sem enn
betra er, að umhverfiö er þama
að verða mjög snyrtilegt. Gras-
flatir em að spretta upp um-
hverfis bygginguna en fyrirhug
að er að á lóðinni, sem er i
eigu fyrirtækisins. rísi svo fleiri
hús áhangandi ÁTVR — Það er
húsnæði fyrir tóbakseinkasöluna
og Lyfjaverzlun ríkisins og einn
ig munu skrifstofur eflaustflytj
ast þangað uppeftir. — hvenær
sem það verður.
Þama við homið á nýja hús
inu er svo þegar risið annað
hús allmiklu minna þó, en það
á að vera samastaöur lögregl-
unnar í Reykjavík, eins konar
útibú fyrir Árbæjarhverfið.
„Það sparast mikill vinnu-
kraftur við að fá svo fullkom-
in tæki“, sagði Jón Kjartans-
son, „stundum unnu í Nýborg
50 — 60 manns, það þurfti svo
margar stúlkur við að líma miða
Núna eru starfsmenn í áfeng-
isdeildinni aðeins 20“. Alls störf
uöu hjá ÁTVR 102 og sagði Jón
að það væri allt saman úrvals
fólk og samvizkusamt. Síðasta
ár mættu 34 af þessum 102
hvern einasta dag. Aðra vant-
aöi mjög sjaldan. Sagði Jón að
sér fyndist það ómetanlegt að
hafa góða samstarfsmenn.
—GG
Viljið þér vínbann á ís-
landi?
Magnús Þorláksson, sjómað-
ur: „Nei, alis ekki.“
Jörundur Guðmundsson, hár-
skeri: „Nei, sé enga ástæðu
til þess — og svo vil ég fá
bjórinn.“
3*
Öm Ingólfsson, starfsmaður
ísals: „Nei ég sé enga á-
stæðu til þess, vil að hver
maður sem kominn er til vits
og ára ráði sér sjálfur.“
Hörður Sigmundsson, af
greiðslumaður: „Nei, það er
af og frá — frekar vil ég
frjálsari vínlöggjöf.“
O