Vísir - 09.10.1970, Page 1
— en þulurinn haföi þá gert mist'ók
• Það urðu mikil fagnaðarlæti
meðal áhorfenda að keppn-
inni um titiiinn Ungfrú Skand-
inavía 1970, þegar nafn annarr-
ar íslenzku stúlkunnar var lesið
upp f þriðja sæti, þegar úrslit-
in voru tilkynnt. Var greinilegt,
að áhorfendur kunnu vel að una
þeim úrslitum.
Öánægjuraddimar urðu lika
ákaflega háværar, þegar kvnn-
irinn dró þau úrslit til baka og
tilkynnti, að sér hefðu orðið á
mistök við talningu atkvæða.
Það ætti að vera ungfrú Noreg-
Ur, sem skipa skyldi þriðjh sæt-
ið.
Blaðið sneri sér til Jónasar
Jónssonar í morgun, en hann er
nýkominn heim frá Helsingfors
í Finnlandi, þar sem keppnin fór
fram s.l. laugardag. Kom Jóas
þar fram í sjónvarpsþættinum,
sem sendur var út til allra Norð
urlandanna beint frá úrslita-
keppninni. Söng Jónas þar vin-
sælt dægurlag með íslenzkum
texta, sem bar nafnið „Sólskin".
„Það er eiginlega ekki hægt
að lýsa því, hve víðáttumikill
sjónvarpssalurinn var, sem
keppnin fór fram í. Þegar ég
kom t. d. fram á senuna til að
syngja, veit ég að þeir, sem
sátu á öftustu bekkjunum hafa
varla greint mig. Sviðið var líka
risastórt, svo að maöur var bara
eins og smá peð á því. Mér
gekk samt alveg skínandi vel,
vil ég segja. Og það sama er að
segja um íslenzku stelpumar,
þær Guðmundu og Kristínu.
Þær komu ákaflega vel fyrir og
maður heyrði talað um það,
bæði fyrir og eftir keppni, að
þær hefðu svo sannarlega átt
skilið að komast ofarlega í úr-
slitin. Það varö líka ógurlegur
„skandair þegar Guðmunda var
tilkynnt í þriðja sæti, en þeirri
tilkynningu síðan fijótlega kippt
til baka — áður en nokkur verð-
latm höfðu verið afhent." —ÞJM
Heildarkröfur farmanna 70-80%
SEX ÁRA \ SKÓLANN
9 IJðlega 1250 6 ára börn eru að
hefja skólagöngu þessa dagana.
Eins og kunnugt er, þá er
kennsla 6 ára bama í barna-
skólum nýlunda hér á landi og
því þurfti að senda nokkra
barnakennara á námskeið í
kennslu svo ungra barna. Nám-
skeiði þessu lauk ekki fyrr en í
september og því hefja bömin
námiö nú eftir mánaöamót.
Sennilegt verður að telja að
skólagangan verði börnunum
mest megnis leikur. Þau verða
ekki nema 13—15 stundir í skól
anum í hverri viku.
Myndin hér að ofan var tekin í
Áusturbæjarskólanum f morgún
og sýnir nokkur 6 ára börn kom
in á skólabekk. Áhuginn á skóla
starfinu leynir sér ekki í svip
bamanna. — GG
Ekkert þokast í samkomulagsátt / farmarmadeilunni
9 Ekkert virðist ganga saman með
útgerðarfélögunum og yfirmönn
um á kaupskipaflotanum, sem hafa
allir sagt upp miðað við miðnætti
aðra nótb Báðir deiluaöilar verjast
allra frétta um launakröfur yfir-
manna, en samkvæmt upplýsingum
sem Vísir hefur aflað sér munu
heildarkröfur yfirmannanna vera
nálægt 70—80%, ef allt er talið
með, aukin friðindi, aukin fri
o. s. frv.
Núgildandi kjarasamningar við
yfirmenn eru mjög flóknir og erfitt,
að gera grein fyrir þeim í stuttu
má'li. Starfsmaður eins útgerðarfé-
lagsins sagði í viðtali við Vísi í
morgun, að hann væri fyrst að kom
ast inn í samningana nú eftir 8 ára
starf hjá fyrirtækinu. Samkvæmt
upplýsingum hans mun láta nærri,
að yfirmennirnir, þ. e. stýrimenn,
vélstjórar, loftskeytamenn og bryt-
ar, hafi um 40 þús, krónur á mán-
uði, auk ýmissa fríðinda, svö' sem
frftt fæði, gjaldeyrisfríðindi, skatta-
frádrátt, tryggingar, greiðslu sjúkra
samlagsiðgjaida o. fl. — Að vísu
munu launin nokkuð misjöfn og
eru yfirmenn á minni kfeupskipun-
um að öllu jöfnu launahærri vegna
meiri vinnu. Vegna vinnu um helg-
ar og á öðrum almennum frídögum
hafa yfirmennirnir 117 daga frí á
ári.
Næsti samningafundur yfirmanna
og ful'ltrúa útgerðarfélaganna verð-
ur í dag, en fyrstu skipin munu
stöðvast um helgina, ef ekki semst
í dág 'eða á morgun. —VJ
Guðmunda tilkynnt í þriðja sæti
Barnið enn á Seyðisfirði
— Barnaverndarráð athugar mál þess
• Eins og Vísir hefur skýrt frá,
stendur nú deila um veru
barns frá Vopnafiröi á Seyðisfirði.
Bam þetta var í fóstri hjá ömmu
sinni á Vopnafirði, löglegum um-
ráðanda sínum, en fékk síðan að
fara í heimsókn til Seyðisfjarðar
að hitta föður sinn og hans fólk.
Síðan þetta gerðist eru rúmlega
2 mánuðir liðnir og er bamið enn
á Seyðisfirði, þótt upph'aflega hafi
stutt heimsókn verið fyrirhuguð.
Amma barnsins á Vopnafirði
sneri sér til yfirvalda til að fá
aðstoð til að ná b'arninu aftur.
Hafði bamaverndamefndin í Kópa-
vogi málið fyrst á sinni könnu, þar
eð hún ráðstafaði barninu upphaf-
■ ••••••••••••••••••••••
legla til Vopnafjarðar. Nefndin í
Kópavogi hafði um hríð I athugun
að senda sálfræðing til Seyðis-
fjarðar til að hafa tal af barninu
og ættingjum þess þfer. Síðar ’var
hætt við þá ráðstöfun og ákveðið
að fá Barnavemdarráði Islands
málið til athugunar. Átti ráðið að
skera úr um hvort nefndin í Kópa-
vogi ætti að hafa málið áfram á,
sinni könnu, eða hvort Barnavernd
arráð sjálft ætti að taka málið að
sér að öllu leyti.
Ólafur Guðmundsson, fulltrúi
Warnavemdamefndar Kópavogs
tjáði blaðinu í morgun, að vænta
mætti einhverrar niðurstöðu af
athugunum Barnavemdarráðs á
næstunni. — GG
!•••••••••••••••••••••••••
Andóf við
tregðuna
Galletií SÚM á húsvegg, sem
snýr að porti við Vatnsstíginn.
Næsta dag hivít skella. Gatllerí
SÚM, með svörtum stöfum. —
Næsta dag hvít skella. Húsvegg
urinn á að málast hvítur. And
stöðu Súmmara við eigendur
veggjarins er lokið. Hins veg-
ar munu Súmmarar halda áfram
andöfi sínu við tregðuna. Þeirri,
sem snýr að viðleitni þeirra til
að halda iifi og hreyfingu f
kringum listina.
Á bls. 9 í blaðinu í dag er
rætt við nýkjöma stjóm félags
ins og forvitnazt um starfsemi
—ÞJM
••••••••••••••••••-•••
Dauðsföllum vegna sjálfs-
morða fækkar hlutfallslega
I und íbúa. Hæsta dánartalan er
| árið 1966 en þá eru skráð 18.9
j dauðsföll af þessum völdum á
hverja 100 þúsund íbúa. Arið
1967 er talan 15.1, árið 1968 7.5
og árið 1969 9.9.
Á árabiiinu 1951—1955 er tailan
11.8, 1956—’60 8,1 og 1961—’65
9.8.
Ef talan frá árinu 1966 er borin
saman við tölur frá öörum þjóð-
iöndum, sem Alþjóðlega beilbrigð
ismálastöfnunin gefur upp, lendir
ís'land ofarlega í flofcki landa með
hátt hlutfall siálfsmorða — eöa í
áttunda sæti, eða fast á ðftir Dan
mörku og Finnlandi. Einhverju
kann þó að skeika um samanburð-
inn, þar sem tölurnar, sem miöað
er við eru frá árunum 1965—’66.
I þessari töflu er Vestur-Berlín með
hæsta tölu sjálfsmorða eða 41,3,
þá kemur Ungverjaland með töluna
29,6, Austurríki 23,1, Tékkóslóvak
ía 21,5, Vestur-Þýzk'aland 20,0,
Finnland 19,8, Danmörk 19,3 og ef
ísland er tekið inn með töluna frá
1966, þar á eftir. —SB
Hlutfallslega hefur dauosföllum
vegna sjálfsmorðs eða sjálfsá-
verka fækkað á síðustu árum
hér á landi. í nýútkomnu sept-
emberhefti Hagtíðinda eru tol-
ur yfir dauðsföll af þessum völd
um frá árinu 1951—1969. Töl-
urnar eru miðaðar við 100 þús-
Þorskblokkin hækkar enn
— vandamálib er oð afla nægs hráefnis á
markaðinn — skrif Consumer Reports virðast
ekki hafa áhrif á sóluna
0 Verðið á þorskblokk-
inni hefur haldið á-
fram að stíga á Banda-
ríkjamarkaði og hefur
nú verið í 31 senti pund-
ið í 1—2 vikur. Allt bend
ir til þess, að verðið
muni halda áfram að
stíga næstu mánuði, en
óvarlegt er að spá um,
hvar það kann að stöðv-
ast.
Þonskblofckin befur aðeins
einu sinni áður komizt í þetta
verð eða 1966, þegar verðið rétt
snerti 31 sent, en hrapaði svo
skömmu seinna alveg niður í
19 sent.
Ekkert bendir til þess, að
slíkt verðfall geti endurtekið
sig. Mikill skortur er á flestum
tegundum freðfisks á Banda-
rfkjamarkaði,, en talið er ólík-
legt, að framboðið aukist aö
marki fyrr en eftir áramót.
Neikvæð ummæli bandaríska
neytendablaðisins Consumer Re-
port virðast ætla að hafa mjög
hverfandi áhrif á sölu íslenzkra
aðila á Banda'ríkjamarkaði. Tals
mönnum sjávarafurðadeildar
SÍS og Sölumiðstöðvar hrað-
fylstihúsanna ber saman um, að
áhrif greinarinnar hafi verið
hverfandi. Vandamál þeirra eru
annars eðlis, þ.e. anna eftir-
spurninni, en skortur er hér á
nokkrum tegundum freðfisks.
—VJ