Vísir - 09.10.1970, Side 2
Nægur bjór
Charlas Hawkins, 88 ára göml-
um manni frá Little Hay, Eng-
landi hefur verið lofað að fá ó-
keypis allan þfenn bjór sem hann
geti drukkið það sem hann á eftir
ólifað. Það var kráareigandi sem
á þá ágætu krá, Holly Bush Pub
sem gaf Ch'arles loforðið, en
gamli maðurinn hefur verið reglu
legur viðskiptavinur þar í 74 ár
og er enn. Charles segist drekka
einn og hálfan lítra af bjór í
hvert sinn sem hann fer inn á
krána, en þaö gerir hann einu
sinni á degi hverjum. „Það er
ekki bjórinn sem fær hann til hð
fara á krána, daglega", segir
Martha, 83 ára eiginkona hans,
„heldur vínið sem ég brugga hér
heima".
*
Beta verður amma?
Það kann að valda einhverju
fjaðrafoki, en með svolítilli
heppni er ekkert líklegra en
Elizabeth Taylor verði bráðum
amnfa.
Þessar frómu ályktanir eru
dregnar af því, að sonur hennar,
Michael Wilding, en hann er 18
ára og sonur leikara sem ber
sama nafn, kvæntist 1 London um
daginn.
Kona hans er 19 ára stúlka sem
heitir Beth Clutter og er hún
dóttir bandarísks haffræðings.
„Við Beth hittumst á Hawaii
í fyrra“, sagöi Wilding frétth-
mönnum, „og urðum strax ást-
fangin. Núna erum viö að leita
okkur að íbúð í London. Foreldr-
ar okkar beggja eru mjög hrifin
af þessu".
*
Hver Ég
Jack Anderson, dómari í Vhn-
couver, Kanada horfði um dag-
inn þungbrýnn á ungling einn
er sat gegnt honum í dómssaln-
um, en unglingur þessi haföi ver-
ið tekinn höndum fyrir aö ræna
úr kjörbúð.
Jack dómari spurði svo: Hvert
er nafn þitt?
„Hver ég“, sv'araði unglingur-
inn. •
„Já, þú“, hvæsti dómarinn,
„nafn þitt, ef þú viilddr láta svo
lítið“.
„Hver ég", svaraöi sá ákærði
aftur.
„Er það það sem þú heitir",
sagði þá dómarinn, „Hver ég?“
„Já“, svafaði. unglingurinn,
„ég heiti Hver ég“.
Piiturinn skýröi málið síðan
fyrir dómaranum. Síðastliðinn 10
ár hafði hann alizt upp meö
xnaiánum í noröurhluta Brezku
Kólombíu og gáfu þeir honum
þetta ágæta nafn, Hver ég.
„En skemmtilegt“, sagði dóm-
arinn bara. Hver ég er 20 ára
að 'aldri og slapp meö minni
háttar sekt fyrir kjörbúðarránið.
Með vax-
myndir yfir
Ermarsund
Madame Tussaud hefur nú
fært út starfsemina og er komin
inn á EBE-markaðinn með þvi
að setja upp vaxmyndasafn í
Amsterdam.
Auðvitað hefur sú raunverulega
Madame Tussaud verið undir
grænni torfu í meira en öld, en
nafn hennar lifir samt enn, m. a.
fyrir það að þrjú barna-böm
hennar eru fyrirferðarmikil í við-
skiptalífinu í Bretlandi.
Enska fyrirtækið sem ber nafn
Tussaud og rekur samnefnt vax-
myndasafn sá um stofnun safns-
ins í Amsterdam, og á enda
helminginn í því fyrirtæki.
Þessi útvikkun á starfsemi
Tussaud-safnsins mun vera hin
fyrsta á þessu sviði, síðhn fjöldi
vaxmyndasafna varð gjaldþrota
og varð aö loka á 19. öldinni.
Þá urðu slík söfn geysivinsæl um
eitt skeið, spruttu upp út um
alla Evrópu og Band'aríkin, en
fljótlega minnkaði áhuginn og
þau hrundu niður aftur.
Madam Tussaud í London lifði
þó þessa kreppu af og einnig
Museé Grévin í París.
Forstjóri Tussaud-s'afnsins i
London og jafnframt safnsins
nýja í Amsterdam er ensk-hol-
lenskur að ætterni og heitir Ed-
uard V. Gatacre og segir hann að
hann hafi vhlið' fyrstá útiBúi
Tussaud stað í Amsterdam
vegna þess „að 17. öldin á svo
rík ítök í hugum manna hér í
Amsterdam, og einnig vegna þess
að börgin er áreiðanlega sú borg
í Evrópu sem er mest vakandi og
opin fyrir nýjungum".
Þegar gengið er inn í hið nýja
„Hollenska Madame Taussaud’s",
þá er fyrst komið inn í svokallað
„Shfn hinna frægu“ og hittir
maður þar fyrst fyrir sjálfa Mad-
ame Tussaud, en vaxmyndina af
henni gerði hún sjálf er hún var
81 árs að aldri árið 1842. Næst
frúnni sjálfri kemur svo mynd af
John F. Kennedy, fyrrum Bfanda-
ríkjaforseta. Sýnir myndin hann
43 ára og er gerð eftir lýsingum
starfsmanna í Hvíta húsinu og
svo ljósmyndum — segja kunn-
ugir að myndin sé góð, en hins
vegar komi hinn „hlýi persónu-
leiki hans ekki fyllilega fdam".
Og þeir eru þama líka Maó for-
maður, Jóhannes páfi 23., Gandhi,
Castró — myndina af honum
gerði sonar-sonársonur frú Tuss-
aud með hjálp frá kúbanska
sendiráðinu í London, og Winston
Churchill er viö hlið Castrós,
82 ára að aldri.
Meðal frægra Hollendinga i
safninu er Vilhjálmur þögli, lands
fáðir Hollendinga. Erasmus frá
Rotterdam, heimspekingurinn
þekkti, en vaxmyndin af honum
er gerð eftir teikningum og beina
grind hans sjálfs. Þá er hún
þarna sú kynþokkafulla Mata
Hari, frægasti kvennjósnhri allra
tíma og einnig málarinn, Vincent
van Gogh.
Þarna er líka Vilhelmína drottn
ing, 76 ára gömul — myndin var
gerð 1956. Vaxmynd Önnu Frank
er á áber'andi stað og mun hún
gerð eftir ljósmyndum og lýs-
ingum föður hennar, Ottós Frank.
ÁSur en safnið í Amsterdam
var opnað voru gerðar fjölmargar
vaxmyndir af merkum persónum
Hollands núlifandi. Og er sfagt að
allir þeir sem leitað var til og
beðið um leyfi til að gerð yrði
vaxmynd eftir, hafi tekið sérlega
vel í það. Greinilegt er að viðkom
andi frægar persónur hafa mun-
að orð George Bernard Shaw
em hann sagði er leitað var ti'l
hans frá safninu [ London: „Það
væri bara einum of snobWað aö
neita“.
I safni Madame Tussaud í Amsterdam: Vilhjálmur hinn
þögli horfir á er landi hans, Karel Appel listmálari, er
færður í föt og komið fyrir á stalli.
Hugsanir Onassis
F'yrst kom fram á sjðnarsvið-
ið „lífil" bók sem heitir „Rauða
kverið" pg .jnnihélt sú „hugsanir
Mao-tse-Tungs“.
Og svona upp á grín kom út
skömmu seinna, „Litla græna
kverið" sem innheldur „hugsanir
Daleys borgarstjóra.“
Og enn eru hugsanir eins spek
ingsins komnar út í ærið samhn-
þjöppuðu formi. Það eru hugsan
ir Aristótelesar Onassis. Blað eitt
er kemur út mánaðarlega og heit
ir „Ótakmörkuð velgengni“, og
mun þá átt við velgengni á við
Maud Wikström-Adams, heitir
hún þessi og er sænsk aö þjóð-
erni, en hefur starfað sem fyrir-
sæta í Bfandaríkjunum um nokkra
hríö. Hún var reynd til að leika
aöalkvenhlutverkið á móti Steve
McQueen í myndinni „24^ tímar
í Le Mans“, en „ég er ekki viss
um að ég fái hlutverkið”, segir
Maud, ,,ég er nefnilega hærri í
loftinu en Steve, og hann leggur
nú svo mikið upp úr khrlmennsk
unni sinni“
skiptasviðinu, frekar, en öðrum
sviðum, birti í októberheftinu
glefsur úr hugsunum Onassis:
• Hugsið vel um líkhmann ...
Ég er enginn grískur guð, en ég
eyddi ekki tíma mínum í að
gráta að ég liti ekki vel út.
• Borðið lítið og drekkið ekki
vín og þungmeltan mat þegar
verk er að vinna. Bíðiö til kvölds
og njótið þá matar með vinum,
og aldrei skuluð þið ræða við-
skiptamál yfir máltíð.
• Stundið líkhmsæfingar....
jóga hjálpar mikið.
• Verið sólbrún, jafnvel þó þið
þurfið aö nota „háfjallasól“. Að
vetrinum er gott að vera sól-
brúnn, því að þá halda allir að
m*aður hafi veriö á baðströnd —
sól er nefnilega peningar.
• Búið i fallegu húsi — jafnvel
þó þið leigið aðeins eitt herbergi
uppi í risi, því þar hittið þiö dag
lega rikt fólk. Farið oft á lúxus-
kaffihús, jafnvel þó þið þurfið að
halda á s'ama glasinu tómu allt
kvöldið.
• Ef ykkur vantar peninga, fá-
ið þá lánaða. Biðjiö aldrei um
lítil lán. Verið stórtæk í lánum,
en borgið líka reglulega.
• Segið ekki öðrum frá vanda-
málum ykkar.
• Sofið ekki of mikið ... Ef þið
sofiö þrem klukkustundum skem
ur hverja nótt í eitt ár, merkir
þ'að að þér hafið einn og hálfan
mánuð til viðbótar við venjuleg
an starfstíma.
• Eyðið ekki tímanum í að lesa
um hluti sem aðrir hafa gert.
Með öðrum oröum, kæru vinir,
ef þið hafi lesið hingað niður, þá
skuluð þið ekki hugsa frekar tun
veleengni í viðskiptum!
i