Vísir - 03.03.1972, Blaðsíða 10
Lítið varíð í Fram og
FH án beztu manna!
— hálfgerður skrípaleikur, þegar FH
vann Fram í gœrkvöldi og svik við áhorfendur
Þaö voru mikil vonbrigði
meðal áhorfenda í Laugar-
dalshöllinni í gærkvöldi,
þegar í Ijós kom, að Fram
var með hálfgert B-lið i leik
sínum gegn FH — alla
landsliösmenn liðsins vant-
aði — og hjá FH var Geir
HaIIsteinsson ekki með.
Fólk kom ekki til að sjá
liöin leika án þessara
manna og ekki var hún góð
sú skýring eins af forustu-
mönnum Fram „aö fyrst
við fengum ekki að vera
með i Vikingsmótinu með
landsliðsmenn okkar, var
lítil ástæða til að vera að
nota þá gegn FH". Og
leikurinn vareitthvað i lik-
ingu við þennan hugsana-
gang og ekki var hann
glæsilegur handknatt-
leikurinn, sem liðin sýndu
án sinna beztu manna.
Þó var barizt og greinilegt var,
að hvorugt liðið vildi gefa sinn
hlut. FH fór með sigur af hólmi
19—18 eftir að 12—9 stóð fyrir liðið
i hálfleik — en ósköp er FH-liðið
sviplaust án Geirs. Það kom
raunverulega meira út úr leikn-
um hjá Fram — sumir ungu
mannanna, sem litiö sem ekkert
hafa fengið aö leika i vetur, léku
nú allstórt hlutverk eins og til
dæmis Andrés Bridde, sem varö
markhæstur leikmanna Fram
með fimm mörk og Stefán
Þórðarson var bezti maðurinn á
vellinum — en hann verður að
gæta skaps sins betur. En ekki
var þó heildarsvipurinn góður hjá
Fram án Axels Axelssonar,
Björgvins Björgvinssonar og
Sigurbergs Sigsteinssonar.
Leikurinn var nokkuð jafn
framan af. Birgir skoraði fyrsta
mark F'H, en Stefán og Arnar
svöruðu fyrir Fram og staðan var
2—1 eftir 5 min. Þá komu tvö
mörk Kristjáns og Viðars fyrir
1
SterkirSvíar
Sviar unnu .lúgóslvavi
óvæut i liandknattleik i gær-
kvöldi 14— i:i i Plosenti.
Sviarnir liöfðu dagiun áður
gcrt jafntefli við Austur-
Þjóðverja.
Júgóslavar liöfðu yfir i
liálflcik 7—:i gegn Svium, en
Svium tókst að snúa leiknum
sér i hag. l.emiart Kriksson
var markhæstur Svia með
fimm mörk. Jan Jonsson og
Göran Segerstad skoruöu
þrjú mörk livor.
Enn er taliö likíegast, að
Búmenar eða Austur-
Þjóðverjar sigri á mótinu, en
bæði löndin sigruðu i gær.
B ú m e n i a v a n n
Tékkóslóvakiu 12—9, en
Austur-Þyzkaland sigraði
imglingalandslið Búmeniu
28—10.
iS ■
‘■: >fán Þóröarson var „stjarna” Fram-liösins I gærkvöldi. Hér hefur
. '* framhjá vörn FH, en Hjalti Einarsson, markvöröur,
. ns aö þessu sinni. Ljósmynd BB.
FH — en Fram svaraði með
þremur mörkum og komst þvi i
5—3, þegar 10 min. voru af leik.
Viðar jafnaði þennan mun —
Andrés náði aftur forustu fyrir
Fram — en svo kom sá kafli, sem
gerði út um leikinn — Þórarinn
Ragnarsson skoraði þrjú mörk
fyrir FH, tvö úr vitum, og Gils eitt
og FH hafði náö þriggja marka
forskoti 9—6. Þessi munur breytt-
ist litið fram að leikhléinu og
staðan var þá 12—9 fyrir FH.
Og enn hélzt sami munur mest
allan siðari hálfleikinn — staðan
var 16—13 fyrir FH eftir 17 min.
og 18—15 eftir 20 minútur og þvi
litlar likur á þvi, aö Fram tækist
að jafna muninn.
En litlu munaði þó. FH skoraði
aðeins eitt mark siöustu tiu min-
útur leiksins og skoraði Viöar það
úr viti — en Arnar Guðlaugsson
sýndi ágætan leik fyrir Fram
þennan lokakafla og skoraði þrjú
falleg mörk. Og lokaminútuna
var hart barizt — en ekki tókst
Fram að jafna og lokatölur urðu
19—18 fyrir FH. Þær segja
raunverulega ekki neitt um hvort
liðið er betra — FH án Geirs er
litið lið, og Fram án landsliðs-
manna sinna ekki til útflutnings.
En það versta við þetta var, að
áhorfendur voru sviknir, þeir
áhorfendur, sem sótt hafa leikina
i handknattleik með svo miklum
ágætum i vetur. Það áttu þeir
ekki skilið og vissulega hafa leik-
menn og forustumenn félaganna
vissar skyldur gagnvart þeim —
skyldur, sem þeir brugðust að
þessu sinni.
Gömlu Haukarnir i FH-liðinu
skoruðu nær öll mörk liðsins i
leiknum. Viðar skoraði 6 (1 viti)
og Þórarinn einnig sex (3 viti).
Kristján skoraði 3, og þeir Birgir,
Gils, Auðunn og Hörður eitt hver.
Andrés Bridde skoraði 6 mörk
fyrir Fram, 3 viti, eða þrisvar
sinnum fleiri mörk, en hann skor-
aði fyrir Fram á öllu tslands-
mótinu. Þeir Arnar og Stefán
skoruðu 4 mörk hvor, Ingólfur 2,
og Sigurður Einarsson, Pálmi og
Gylfi Jóhannsson, sem litið sem
ekkert hefur leikið með liðinu i
vetur, eitt mark hver. —hsim.
Púkinn
í stuði
llann hefur skemmt sér
konunglega, prentvillu-
púkinn.hér i opnunni eins og
á öörum siöum blaösíns
siöustu vikurnar. Þaö heföi
ært óstööugan aö eltast viö
allar þær skráveifur, sem
hann hefur gert okkur.
Vissulega hefur hann veriö
striðalinn og er greinilega
farinn aö ofmetnast af
árangri sinum.
Aö minnsta kosti fannst
okkur fulllangt gengiö, þegar
liann fræddi okkur á þvi i
gær, aö efstu liðin i hand-
knattleikskeppninni á Spáni
siöar i mánuöinum ættu aö
keppa um neöstu sætin i
keppninni. En viö vonum þó,
að púkaskrattinn hafi þarna
skotiö yfir markiö og gengið
einum of langt i frekju sinni
og velviljaðir lesendur hafi
greint, að auövitaö eiga
neðstu liðin i riölunum
fjórum að keppa um 13.-16.
sæti i keppni hinna 16 þjóöa,
sem leika i undankeppni
Ólympiuleikanna
—hsim.
y ' , ' v-í. ' -. x't;: *
''Wi,
Þaö hafa fá liö jafn marga stórhættulega skotmenn og Vikingur — og þrumuskot leikmanna eins og Einars Magnússonar, Páls Björgvinssonar, Magnúsar Sigurðssonar og Guöjóns
Magnússonar verja ekki margir marKmenn.A myndinni sést Magnús hátt yfir vörn Tékka eftir aö hafa sent knöttinn i markið. —Ljósm.BB.
Gamla heimsmeistarakempan
réð ekki við fallbyssuskotin
— Einar Magnússon maður kvöldsins, þegar Víkingar ógnuðu Gottwaldow
— Glötuð vítaköst og opin tœkifœri Vikings riðu baggamunin
Afslappaðir, létt leikandi
Vikingar ógnuðu gestum sínum
frá Gottwaldov í gærkvöldi svo
um munaði. Það var langt liðið
á leikinn, þegar Tékkunum
tókst að jafna og komast yfir.
Jafnvel eftir það voru Víkingar
þeim stórhættulegir. Þetta var
langbezti leikur Víkings i vetur
og í rauninni undrast menn
hvað liðið hefur enn náð að
sýna lítið í deildinni af því sem
það sýndi í gær.
Víkingar náðu strax forystunni með
2:0. Hörkuskot frá Páli Björgvinssyni
og Einari Magnússyni voru aðeins
sýnishorn þess sem koma skyldi. Vik-
ingar höfðu yfirburöi i sókninni allan
hálfleikinn, voru 4 mörk yfir i i 12:8,
en höfðu aðeins eitt mark yfir i hálf-
leik, 13:12.
Það var vörnin og algjört gat i
markinu, sem gerði það að verkum að
Tékkum tókst að hanga i Vikingunum.
Rósmundur var meiddur og varð fljót-
lega að yfirgefa völlinn, enda til litils
gagns i sliku ástandi, en úngi mark-
vörðurinn sem kom i hans staö átti i
harðari glimu við eigin taugar en
knöttinn og varði litið.
Það var aldeilis skinandi sóknar-
leikur, sem færði Vikingum mörkin, en
mun slakari sóknarleikur Tékka færði
þeim óeðlilega mörg mörk.
1 seinni hálfleik, jafna Tékkar á 5.
minútu i 14:14, og komast yfir. Viking-
ar jöfnuðu þó i 16:16 og 17:17. Tékkun-
um tókst siðan að halda forystunni til
leiksloka. Geysilegur spenningur varð
þó undir lokin. Og i rauninni var það
aðeins að kenna óheppni eða úthalds-
leysi, eða hvoru tveggja aö Vikingur
vann ekki leikinn. Tvö vitaköst mis-
nota Vikingar á þessum tima, viti Ein-
ars varið, en Páls i stöng. Guðjón
brennir af i opnu og góðu færi rétt á
eftir, og Rósmundur kórónar allt sam-
an með misheppnuðu útkasti, sem
Tékkar ná og skora úr. Þá var staðan
orðin 22:19, — og samt áttu Vfkingar
eftir að velgja Tékkunum undir ugg-
um, enda þótt aðeins tæpar 3 min.
væru eftir af leiknum. Einar skoraði
fyrst og siðan Guðjón, 22:21. Rúm
minúta eftir. Dómararnir bæta þá
hálfri min. við vegna tafar Gottwaldo-
manna, en Einar Magnússon skýtur
framhjá markinu úr horninu, — og
Tékkar eiga lokaorðið, boltinn er á leið
i netið á siðustu sekúndu, 23:21.
Þessi leikur sýndi svo ekki verður
um villzt, að Vikingar eiga marga
beztu skotmenn okkar. Einar Magnús-
son hef ég aldrei séð svo sprækan. Þvi-
likur skotkraftur! Það var likast þvi
að fallbyssukúla þyti framhjá mark-
vörðunum. Gamal heimsmeistara-
kempan Arnost hefur liklega sjaldan
au verri dag en einmitt gegn siðhærðu
Vikingskempunum i gærkvöldi, — og
satt að segja gat hann fátt að gert, svo
stórkostleg voru skotin. Vikingsliðið er
ungt lið, og örugglega framtiðarlið,
svo framarlega, sem markvarzlan og
varnarmálin verða löguð, og félags-
andinn i lagi.
Ekki fannst mér mikið til Gott-
waldov koma. Ég er enn ekki búinn að
gleyma liði þeirra, sem hingað kom
1961, það var mun álitlegra. Engu að
siður eru þarna skemmtilegir leik-
menn, og ég hef grun um að þeir lumi á
einhverju betra en þvi sem við fengum
að sjá ikærkvöldi. Langbezti leikmað-
ur Tékkanna er Rehak, 29 ára gamall
leikmaður, hann skoraði megnið af
mörkunum, 11 talsins, Micalic og
Moringl 3 hvor, Cavrtnic og Divoka 2
hvor, Vacucik og Poloz eitt hvor. Mun
betur gekk Tékkunum eftir aö þeir
hættu með flötu vörnina gegn Vikingi.
Fyrir Vikinga skoruðu þessir: Einar
Magnússon 9 (öll stórkostlega falleg,
þar af eitt úr viti), Guðjón Magnússon
6, Magnús Sigurðsson 3, Páll Björg-
vinsson 2 og Sigfús eitt.
Dómarar voru Magnús Pétursson og
Haukur Þorvaldsson, og dæmdu þeir
leikinn með miklum ágætum. — JBP
Sigrar lands-
liðið Hamborg?
— þýzka liðið hefur unnið beztu landslið heims
og EM-meistara Gummersback tvívegis i vetur
— Þetta þýzka lið, SV
Hamborg, hefur mjög góð-
um leikmönnum á að
skipa. Það sigraði hið
heimsfræga lið Gummers-
back tvívegis í vetur og
varð i öðru eða þriðja sæti í
þýzku keppninni, sagði Sig-
urður Jónsson, einn af for-
ustumönnum handknatt-
leiksdeildar Víkings, þegar
blaðið náði tali af honum í
gær.
— Og það hefur einnig sigrað
fjölmörg landslið og þau ekki af
verri endanum siöustu árin — það
rúmenska, júgósla vneska,
sovézka, danska — sagði Sigurður
ennfremur, en ég vona þó, að is-
lenzka landsliðinu takist að sigra
það i leiknum i Hafnarfirði.
Vikingsmótið heldur áfram i
kvöld og veröur þá leikið i Hafn-
arfirði. Þar mætir islenzka lands-
liðið — með alla sina leikmenn
meö — þýzka liðinu Hamborg SV.
A undan verður leikur milli
Hauka og 2. deildarliös Armanns,
sem komiö er i úrslit gegn Gróttu
i 2. deild. — hsim.
Þorsteinn á EM
i Frakklandi!
Evrópumeistaramót í
frjálsum íþróttum innan-
húss fer fram í Grenoble í
Frakklandi dagana n. og
12. marz n.k.
Stjórn Frjálsiþróttasambands
tslands hefur ákveðið að senda
einn keppanda, Þorstein þor-
steinsson, KR, sem stundar nám
i Bandarikjunum og hefur náð
ágætum árangri á mótum vestra.
Þorsteinn keppir bæði i 400 og 800
m. hlaupum.
Þess skal getið, að ferða-
kostnaður Þorsteins er sáralitið
hærri, heldur en að senda mann
héðan beint til Evrópu. Þvi miður
getur Bjarni Stefánsson ekki farið
til Grenoble vegna prófa, en hann
stundar nám i menntaskólanum i
Hamrahlið. Með Þorsteini fer
Svavar Markússon gjaldkeri
FRt.
Enn setvr Art
nýtt heimsmet
Hollendingurinn fljúgandi —
Art Schcnk — stórbætti heimsmet
sitt i 3000 metra skautahlaupi I
kcppni i Inzell i gær i alþjóöa-
keppninni um „gullskautann”.
Schenk hljóp vegalengdina á
4:08.3 min. en eldra met hans á
vegalcngdinni var 4:12.6 min. sett
i Davos i fyrra.
Hollendingurinn hafði mikla
yfirburði yfir keppinauta sina i
gær og var 2.5. sekúndum á undan
næsta manni — landa sinum
Eddie Verheyen, sem hljóp á
4:10.7 min. og var þvi einnig langt
innan við gamla heimsmetið.
Þriðji i hlaupinu varð Jan Bols,
Hollandi, á 4:13.5 min. Fjórði
Kees Verkerk, Hollandi, á 4:14.9
min. og i fimmta sæti kom Roar
Grönvold, Noregi, á 4:15.7 min.
Ólympiumeistarinn i 500 m.
skautahlaupi, Þjóðverjinn
Erhard Keller, tapaði fyrir
Svianum Hasse Börjes i 500
metrunum þarna i Inzell i gær —
en mjög góður árangur náðist i
hlaupinu. Hasse sigraði á 38.4
sek., en Keller varð annar á 38.5
sek og i þriðja sæti var finnski
heimsmeistarinn i spretthlaupum
og heimsmethafi ásamt Keller i
500 m., Leo Linkovesi á 38.6 sek.
Landi hans Seppo Hænninen varð
i fjórða sæti á 39.0 sek.
Roar Grönvold varð i niunda
sæti i keppninni á 39.3 sek., sem
er langbezti timi, sem hann hefur
náð á þessari vegalengd og Art
Schend varð i tólfta sæti á 39.5
sekúndum. Alls hlupu 14 menn
innan við 40 sek.
5 ó afrekaskró
Norðurlandanna
Nýlega var gefin út
afrekaskrá Norðurlanda í
frjálsum iþróttum, 25
beztu i hverri grein.
Alls eru 5 islendingar á
þessari skrá, Bjarni
Stefánsson, KR, Erlendur
Valdimarsson, I R,
Guðmundur Hermannsson,
KR, Karl Stefánsson,
UMSK og Valbjörn Þor-
láksson, Armanni.
Bjarni Stefánsson er fremstur
Islendinga. Hann er 12. i 400 m.
hlaupi á 47.5 sek. og er auk þess á
skránni i 200m. hlaupi eða i 20-25.
sæti með 21.7. Guðmundur
Hermannsson er 15. i kúluvarpinu
með 18.02m.. Þá er Erlendur
Valdimarsson 17. i kringlukasti
með 56.54m. og Karl Stefánsson
18. i þristökki með 15.16. m. Loks
er Valbjörn Þorláksson 23. i
llOm. grindahlaupi með timann
14.7 sek.