Lesbók Morgunblaðsins - 16.05.1965, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 16.05.1965, Blaðsíða 6
18. júní 1816 er einn minnisverðasti dagur mannkynssögunnar, þá hófst og lautk orustunni við Waterloo. Her Wellingtons taldi milli 50 og 60 þúsund manns og hann taldi herinn bæði illa útbúinn og illa samæfðan. Þegar leið á daginn tók að halla á Frakka og um kvöldið var franski herinn á óskipu- legum flótta undan sveitum Bliichers. Alls féllu um 40 þúsund Frakkar, 7 þúsund Prússar og 15 þúsund af liði Wellingtons. Miðað við orrustur 20. aldar var þetta engin stórorrusta, en því þýðingarmeiri. Þessi sigur jók gífurlega herfrægð Wellingtons. Þjóðhöfðingjar banda- manna kusu hann sem yfirmann her- námsliðsins, sem átti að sitja í Frakk- landi næstu þrjú árin. Enska þingið launaði honum ríkulega með 200 þús- und pundum, hann hafði þegið 500 þús- und pund áður og ýmsir þjóðhöfðingjar launuðu honum með ríkulegum gjöfum. ^$1 ellington átti mikinn þátt að því að Frakkland hélst óskert og að óþarfa harðýðgi var ekki beitt gegn Frökkum við friðarsamningana. Þeir góðu menn á Vínarfundinum skildu að friður yrði bezt tryggður í Evrópu með því að tryggja Frakklandi sess á borð við önnur ríki álfunnar, öll auðmýking hlaut að leiða til ófriðar síðar. Kurt- eisi og tillitssemi við sigraðan fjand- mann voru taldir mannasiðir á þess- um árum. Hingað til hafði Wellington fyrst og fremst ágætt sig sem snjall hershöfð- ingi, þótt hann hefði nokkuð sinnt stjórnmálum. Brezki herinn var á eng- an hátt til fyrirmyndar í upplhafi styrj- aldanna við Frakka, það kom greini- lega í ljós í upphafi styrjaldanna 1793. Allskonar spilling hafði grafið um sig innan hersins, aginn gat verið betri og allt skipulag var í molum. Welling- ton er sagður hafa sagt „að hann hefði sigrað Napóleon með úrkasti mann- kynsins“, en því er oftast sleppt sem hann bætti við „að það væri furðulegt hve mennilegir þeir væru orðnir undir sinni stjórn“. Megnið af óbreyttum her mönnum var samansafnað úrkast, drykkjusvolar, lögbrjótar og flækingar. Til að aga þennan skríl mátti ekki spara svipuna, og 'hinar brútölu refs- ingar við agabrotum og yfirsjónum óttuðu öðrum frá því að ganga í her- inn. Wellington lagði bann við ránum hermanna, en þrátt fyrir bannið, rændu brezkir hermenn í herferðunum á Spáni. Frönsku hermennirnir voru aftur á móti hvattir til rána af Napó- leon sjálfum. Wellington hafði tekizt að aga herinn það vel 1814, að rán og gripdeildir brezkra hermanna voru óhugsandi. Liðsforingjarnir voru aðals- menn eða menn af borgaraættum, sem höfðu ráð á að kaupa sér liðsforingja- tign. Það var mikið djúp staðfest milli liðsforingjans og soldiátans, hirðuleysi liðsforingja um það fólk, sem þeir áttu að stjórna, var áberandi fyrri ár Napó- leonsstyrjaldanna, en þetta lagaðist þegar á leið. Styrkur Wellingtons sem hershöfðingja var sú trú hans að það væri hægt að sigra heri Napóleons, og þeirri trú kom hann inn hjá liðsmönn- um sínum. Trúin á það að Napóleon væri ósigrandi var almenn meðal hers- hufðingja í Evrópu. Herirnir sem stefnt var gegn keisaranum voru sigraðir áður en kom til orrustu, óttinn var bezti bandamaður keisarans. Wellington mannaði soldátana og agaði liðsforingjana. Ýmsir þeirra iðkuðu hegðun, sem féll illa að hráu lífi vígvallanna, og hertoginn varð heldur styggur, er nokkrir liðsforingjar af borgaraætt- um spenntu upp regnihlífar í miðri orr- ustu vegna úrfellis. Áhugi á hermennskunni sem atvinnu var ltíill meðal þeirra, sem gegndu herþjónustu, og aðdáim á slíkri atvinnu var hverfandi. Wellington leit á stríðið sem illa nauðsyn, hann talar um sigur- inn sem „mesta harmleikinn næst á eftir ósigrinum". Annað var það sem ágætti Well- ington hershöfðingja, það var að hann vanmat aldrei andstæðinginn. Hann sagði að „nærvera Napóleons á vígvell- inum væri á við fjörutíu þúsund manna lið“. Hann kynnti sér vel allar aðferð- ir Napóleons og hertæikni og færði sér þá þekkingu vel í nyt. Raunsæi, ótta- leysi og þrautseigja voru einkenni hans sem hersihöfðingja. Bandamenn kalla heri sína heim frá Frakklandi 1818. Þá hefst stjórnmála- ferill Wellingtons. Hann tekur sæti í ríkisstjórninni með vissum skilyrðum. Hann var konungssinni, og þótt hann fyllti flokk Torya var hann aldrei flokksmaður í eiginlegri merkingu orðs ins. Hann hugsaði fyrst og fremst um að þjóna konungi sínum og þjóð, ekki flokknum. Hann var að uppeldi og eðli íhaldssamur. Hann var enganveginn ánægður með þá framvindu mála, sem átti sér stað á árunum 1822—27. Hann var á önd- verðum meið við stefnu Cannings í utan ríkismálum. Canning studdi uppreisnar- menn í Grikklandi, demókrata á Spáni og í Portúgal og viðirrkenndi sjálf- stæði nýlendna Spánar í Suður-Ame- ríku. Wellington óttaðist að ,3retland yrði viðsikila við bandamenn sína á meginlandinu, með slíkri pólitík. Utan- ríkisstefna Cannings varð jjnjög vinsæl og áhrif hertogans fóru dvínandi. 1827 er Wellington skipaður yfirhersböfð- ingi og í því embætti gat hann ekki látið að sér kveða sem stjórnmála- maður. Þegar Canning er skipaður for- sætisráðherra aftur 1827, móðgast Well ington og segir af sér sem ráðherra og yfirhershöfðingi. Við þetta klofnar flokkur Torya og 1828 verður Welling- ton forsætisráðherra. Hann áleit það skyldu sína að taka við embættinu og vonaðist jafnframt til þess að geta aftur sameinað Torya-flokikinn. Þetta tókst honum ekki og samvinnan innan síjórnarinnar var erfið. Pólitískt jafn- rétti kaþólskra varð nú mál málanna, ástandið á írlandi fór versnandi og landið var á barmi borgarastyrjaldar. Þá var það sem Wellington lagði fram frumvarpið um pólitískt jafnrétti ka- þólikka. Þetta varð hið mesta hitamál, en með lagni og hörku tó-kst Welling- ton að fá frumvarpið samþyfckt í báð- um deildum. Þetta var mesta afrek Wellingtons á sviði stjórnmálanna. Með þessu afstýrði hann borgarastyrjöld á írlandi og jók mannréttindi. Andstaðan gegn þessu máli var mjög mikil, svo megn að íhaldsömustu þingmenn tóku að mæla með endurbótum á kjördæma- skipuninni, til að koma 1 veg fyrir að kaþólikkar keyptu upp fámenn kjör- dæmi og næðu þannig auknum áhrif- um á þingi. Samþykkt þessa frum- varps varð því meðal annars til þes3 að ýta undir lagfæringar á kjördæma- skipuninni. Georg IV deyr 1830, Vil- hjálmur IV tekur við. Vegna þessa fara fram kosningar. Stjórnin tapar fylgi og Wellington áleit það vera sökum laganna um pólitískt jafnrétti kaþólikka. En hér kom fleira til. Áhriía júlíbyltingarinnar gætti á Englandi, engu síður en annarstaðar og kraUn um endurbætur á kosninga- og kjör- dæmalögunum var almenn. S tjórnin hefði getað haldið velli með því að komast að samkomulagi við fylgismenn Cannings og með þvi að gera smávegis endurbætur á kjör- dæmaskipuninni. En slík eftirgjöf var fjarri skaplyndi Wellingtons, hann lýsti því yfir að kjördæmaskipun og kosn- ingalög væru heppileg og að engar breytingar yrðu gerðar varðandi þessi mál. Óánægja manna með þetta fyrir- komulag eins og það var orðið var mjög mikil. Fámenn kjördæmi, sem stundum töldu nokkra tugi kjósenda, áttu að kjósa þingmann, hin svonefndu „rotten boroughs“ og „pocket bor- oughs“, meðan fjölmennar borgir áttu enga fulltrúa. Auk þessa var kosninga- réttur takmarkaður. Wellington hafði einhverntíma sagt að „the rotten boroughs" gerðu séntilmönnum fært að taka þátt í stjórnmálum. Það var hægt að erfa slík kjördæmi eða þá að kaupa þau. Framhald á bls. 15 Mary, greifafrú af Wilton. 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS' 18. tbl. 1965

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.