Lesbók Morgunblaðsins - 10.07.1966, Blaðsíða 2
JLHTIUÉl
SVIP-
MVND
anikvæmt almanaki Mú-
ameðstrúarmanna, sem notað er í
^Saúdí-Arabíu, er nú árið 1386, og
vestrænum ferðamönnum finnst
oft, að eftir voru tímatali sé þar
líka árið 1386. Ævafomir, austur-
lenzkir siðir eru enn við lýði í
þessu víðlenda og strjálbýla eyði-
merkurlandi, svo að aðkomufólki
finnst það vera komið til lands, þar
sem sögurnar í Þúsund og einni
nótt séu enn að gerast. Refsiréttur-
inn, sem þar gildir og byggist á frum
stæðum ákvæðum kóransins, gerir
ráð fyrir því, að goldið sé með auga
fyrir auga og tönn fyrir tönn í bók-
staflegum skilningi. Þjófar hafa verið
handhöggnir, rægikarlar fóthöggn-
ir, hórkarlar ýmist geltir eða háls-
höggnir (eftir „stærð“ afbrotsins),
og kokkálaðir eiginmenn mega sjálf
ir skera eyru, nef og varir af ber-
syndugum konum sínum. Feður
f semja um hjónabönd barna sinna,
án þess að þau sjáist áður. Nú síð-
ast í vor skrifaði vararektor íslams
háskólans í Medínu lærdómslega
ritgerð, þar sem hann styður ein-
dregið þá kenningu, að jörðin sé
flöt, og hann hallast að kenningu,
sem sett var fram á 14. öld, þar
sem fjöllin á jörðunni eru talin
vera „ballest", er hindri, að jarð-
kringlan steypist yfir um sig.
Þrátt fyrir allt þetta, eru gamlir
siðir að víkja fyrir nýjum í Saúdi-Ara-
bíu, eins og annars staðar. Konungur-
inn, Feisal ibn Abdul Aziz ibn Saúd,
reynir smátt og smátt að koma breyt-
íngum á í landi sínu, og hann er ekk-
ert feiminn við að kalla það byltingu.
Feisal, sem nú er 61 árs gamall, segir:
„Byltingar geta eins komið frá hásæti
konungs og úr kjallara samsæris-
manns“.
Feisal konungur fæddist í Er-Riyadh
árið 1905. Hann var óvenju bráðþroska,
og aðeins fjórtán ára gamall var hann
ritari sendinefndar Saúdí-Arabíu á frið
arráðstefnunni í París.
Árið 1945 var hann formaður sendi-
nefndar lands síns á stofnþingi Sam-
einuðu þjóðanna í San Francisco. Hann
er hægfara framfarasinni (mjög rót-
tækur í samanburði við flesta bræður
sína og frændur), ósérhlífinn og dug-
legur, — hálfgerður meinlætamaður,
sem vinnur sjaldnast minna en 20 klst.
*á sólarhring. Hann er einn af fáum
leiðtogum Araba, sem hægt er að bera
saman við einræðisherrann í Egypta-
landi, Gamal Abdel Nasser, um gáfur
og styrka skapgerð.
F eisal hefur verið konungur í
Saúdí-Arabíu síðan árið 1964, þegar
hann lét tilleiðast að ýta þáverandi
.T eisal er mjög ákveðinn í því að
breyta þjóðskipulaginu á flestum svið-
um. Hann lætur hinar fjóru ættbálka-
samsteypur, sem þjóðinni hefur verið
skipt í, haldast, en tekur annars ekkert
tiilit til þessarar skiptingar. Honum er
mjög í mun að tryggja landi sínu er-
lenda fjárfestingu og útlenda ’tækniað-
stoð. Fyrir nokkru fór hann til Madríd
til viðræðna við Franco, og þaðan hélt
hann til Washingtonborgar. Vegna inn-
rásar Egypta i Jemen, þar sem stuðn-
ingur Feisals við landsmenn hefur enn
komið í veg fyrir sigur Nassers, er
Saúdí-Aröbum nauðsynlegt að tryggja
sér vináttu sem flestra erlendra ríkja.
Feisal gerir sér ekki mikla rellu út af
nútíma lýðræðishugsjónum. Þó heldur
hann daglega e.k. þingfund með þegn-
um sínum, svokallað majli. Þangað
mega allir koma, — og þangað koma
allir, sem vettlingi geta valdið, til þess
að tjá konungi áhyggjur sínar. Feisal
situr þá í hásæti og hlustar á kvartan-
ir ríkra kaupmanna, fátækra bænda og
staurblanka frænda sinna, en þrælar
hafa enn ekki fengið orðið á þessum
fundum, enda á þrælahald eiginlega
að vera afnumið í Saúdí-Arabíu, þótt
vitað sé, að árlega sé enn smyglað
fjölda þræla frá Afríku til landsns. Um
þessa „þingfundi" og þjóðskipulagið í
heild segir Feisal, að þetta sé í raun-
inni hið æðsta form lýðræðis, „þótt
V esturlandamönnum þyki það frá-
brugðið því, sem þeir eiga að venjast".
E
l ins og fyrr segir, vinnur Feisal
venjulega um tuttugu stundir á sólar-
hringi hverjum; hann rannsakar sjálf-
ur allar nýjar áætlanir, les heimsblöð-
Framh. á bls. 6
Framkv.stJ.:
Hitstjórar:
Auglýsingar:
Ritstjórn:
Utgefandi:
Sigfns Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vieur
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Arni Garðar Krlstlnsson.
Aðalstrætl 6. Sími 22480.
Hi. Arvakur. Reykjavllt.
verksmiöjur hafa verið reistar, sem
vinna ferskt vatn úr söltu. Tvær sjón-
varpsstöðvar hafa verið reistar (í Riy-
adih og Jidda).
Allt hefur þetta áhrif á daglegt
líf fólksins. Ofstækisfull trú Wahabít-
anna, sem er ríkistrú, er smám saman
á undanhaldi. Æ fleiri þora að neyta
áfengra drykkja, dansa eða spila fjár-
hættuspil, án þess að eiga yfir hófði
sér reiði Allah og ríkisstjórnarinnar.
Konungur hefur þó ekki gefið öllu laus-
an tauminn, því að eins og flestir lands-
menn vill hann ganga nýja tímanum á
hönd með gát. í Riyadh, höfuðborginni,
ganga enn varðmenn trúarlögreglunn-
ar um götur, loka verzlunum með valdi
á bænatímum, rífa útlend tímarit með
myndum af fáklæddu kvenfólki í tætl-
ur og slá með löngum og þungum
stöfum sínum á óhulda kvenmanns-
ökla eða úlnliði. Samt voga margar
konur sér nú orðið að nota varalit og
augnskugga innan veggja heimilisins.
Úti á eyðimörkinni farga bedúína-
hirðingjarnir úlföldum sínum og kaupa
sér jeppa í staðinn. Bedúínarnir e±u
taldir vera um 80% þjóðarinnar, en þeir
eru að byrja að fá sér fasta bústaði,
eftir að ríkisstjórnin hefur látið grafa
örugga brunna á heppilegum stöðum.
Hve fjölmenn er þjóðin? Árið 1952
gáfu yfirvöldin upp töluna sjö milljón-
ir, en hún er talin stórlega ýkt. Senni-
lega væri 3.500.000 nær réttu lagi.
Feisal konungur
konungi, hinum íhaldssama eyðslusegigi
og letingja, Saúd, til hliðar að fullu.
Þeir Saúd eru hálfbræður. Saúd lét und
an hverri ósk hinna mörg hundruð
prinza ættarinnar. Frændamergðin
krafðist æ fleiri hallarbygginga og
skrautbifreiða, — sá lúxus var naumast
til, sem prinsarnir létu ekki eftir sér.
Þegar þeir ferðuðust til Evrópu og
Ameríku, fylgdu þeim lífverðir, vopn-
aðir rýtingum og byssum, hjákonur og
þrælar.
Þegar gamli Saúd, faðir þeirra
bræðra, átti ráðstefnu við F. D. Roose-
velt, Bandaríkjaforseta, í síðustu heims-
styrjöld um borð í bandariskum tund-
urspilli, gerði kóngur sér lítið fyrir og
sló tjöldum á þilfari herskipsins, eins
og hann væri staddur úti í eyðimörk-
inni. Stór fjárhópur var síðan rekinn
um borð og kindunum slátrað til kvöld-
verðar. Saúd, sonur hans, var oft álíka
frumstæður í umgengni við erlenda
þjóðhöfðingja. Þegar hann hitti Eisen-
hower að máli í Washington árið 1957,
kom hann ásamt fylgdarliði sínu, sem
taldi mörg hundruð manns, í nokkrum
flugvélum. Ferðatöskur konungs sjálfs
voru 317, og í fylgdarliði hans voru
hirðrakari, konunglegur kaffilagari,
krúnugimsteinavörður, áttavitaberi, sem
varð að geta sagt konungi hvenær sem
var í hvaða átt Mekka væri, og sjötíu
risavaxnir og kolsvartir þrælar frá Nú-
bíu, sem voru einkalífverðir konungs.
Þeir bám gullskefta og gimsteinum
setta daggarða og handvélbyssur, sem
þeir veifuðu framan í viðstadda.
riðji konungurinn, sem situr á
veldisstóli í Er-Riyadh, Feisal, hefur
ekki eins mikið pomp og pragt í kring-
um sig. Nú um síðastliðin mánaðamót,
þegar hann heimsótti Johnson Banda-
ríkjaforseta í Washington, báru ráð-
herrar hans skjalatöskur en ekki rýt-
inga. Feisal klæddist þó viðhafnarmikl-
um klæðnaði og bar gullspangir í höfuð-
búnaði sínum.
Konungur hefur beitt sér fyrir marg-
víslegum umbótum í ríki sínu. Tekjur
konungsættarinnar af olíulindum á Ara-
bíuskaga eru geysilegar, en Feisal álít-
ur, að þeim tekjum eigi að verja í þágu
allrar þjóðarinnar. Á þessu ári er gert
ráð fyrir, að hreinar tekjur af olíu-
vinnslu nemi um 33 milljörðum ísl.
króna (33 þúsund milljónum). Um allt
landið er verið að reisa nýja skóla,
verksmiðjur og íbúðarhús. Vatnsleiðsl-
ur eru lagðar, sandgræðsla stunduð, og
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
10. iúlí 196«