Lesbók Morgunblaðsins - 15.10.1967, Blaðsíða 8
(Andsvörin við rikjanði stíl eru stundum merkileg. í Svíþjóð og
Danmörku er nú fátt eins eftirsóknarvert og afgömul hús með háu
irisi, örlitíum gluggum og bjálkum í Ioftinu. „En syttontalsstuga"
í Svíþjóð eða „en gammel bondegárd“ í Danmörku kosta nú of
ifjár. Síðan er áríðandi að láta ný húsgögn ekki sjást þar inni;
ihelzt á þar að vera eitthvað sem eigandinn hefur af snilld sinni
irekið saman sjálfur eða þá afgamlir gripir. Borðið næst á mynd-
‘inni er málað í skærrauðum lit, en gluggar af þessu tagi þykja
skcmmtilegt og rómantískt afturhvarf frá þessum nýtízkulegu
risagluggum.
Rómantíkin er ekki öll fólgin í nærveru gamalla muna, heldur og
einnig því, að maður hafi sjálfur smíðað að mestu það sem innan-
stokks er. Þá gerir ekkert til þótt efnið sé eplakassar eða eitthvað
álíka vandað. Blöð á Norðurlöndum keppast um að birta myndir
eins og þessa af slíkum heimilum, þar sem hjónin hafa gert allt
úr engu, en verið feiknarlega hugmyndarík og frumleg. Hillurnar
eru úr funiborðum og uppistöðurnar lieimatilbúnar. Sófaborðið er
lír kössum, en bekkurinn úr furu, búinn svampsessum í skærum
litum.
í augum þeirra Svía, siem orðnir eru leiðir á harðplasti og pali-
sander og öðru sem heyrir til fínum húsum, getur fátt jafnast á
við gamlan vefstól, sem gjarnan er settur uipp í stofunni og helzt
þarf að hafa í honum vef, sem húsmóðirin grípur í öðru hverju.
í sænsku blaði var nýlega mynd af hefilbiekk, sem húsbóndinn
hafði í stofunni. Skápurinn á veggnum er eldri en tvævetur og
gegnir rómantísku hlutverki þarna.
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
15. október 1967