Lesbók Morgunblaðsins - 15.10.1967, Síða 9
f Noregi líkt og víða annars-
staðar, hefur rómantiskt við-
horf farið eins og eldur í sinu
og hirtist í því, að dregnir eru
fram af háaloftum gamlir gripir
úr búi afa og ömmu, ef ekki
eitnþá eldri. Borgundarhólms-
klukkur hafa aldrei verið vin-
sælli, gamlir pílárastólar og
einskonar sófar, sem á sinni tíð
voru reknir saman úr sterkleg-
um furuborðum og settar sessur
á. Þannig sófi er í horðkrókn-
um hér á myndinni og minnir
hann talsvert á gamlan, íslenzk-
an stól í Þjóðininjasafninu, en
sá er raunar útskorinn, Norsk
húsgagnagerð hefur að undan-
förnu verið með miklum ágæt-
um, en enginn hlutur er svo
góður, að ekki sé hægt að fá leið
á honum og þessvegna er gamli
tíminn dreginn fram í dagsljós-
ið.
Margir muna úr bernsku sinni
eftir rúmum með stólpum og í
þá daga virtist raunar óhugs-
andi að smíða rúm án þess að
hafa á því rennda stólpa. Nú
verður þess víða vart, að stólp-
arnir hefji sinn gang að nýju,
stundum lágir en stundum jafn-
vei háir svo hægt sé að hafa
himin yfir, sem er vafalaust
hámark í rómantíkinni. Víða
suður í Evrópu eru nú komin á
markaðinn rúm í líkingu við
þetta ágæta, franska rúm, sem
sést á myndinni.
/
'
.
I
z ' '
5« ■■:■:■'■■ ■:■: ’m
■ '
■mmmm
mz/z/mzm.
m/////0m//M
//0/////Z//////Z//
ii/illii
- ■
/'■:"■ ' .
!
1
ZzZZZ^'ZZ.
I Bandankjunum
hafa menn aldrei
sagt skilið við róm-
antískt viðhorf til
húsgagna og þar
hefur kolonial-stíll
ævinlega verið í
miklum metum og
annað eftir því.
Bandaríkjamenn
hafa ekki að ráði
hrifizt af einfald-
leik nútíma hús-
gagna. Þar er al-
gengast að sjá efnis-
mikla sófa og stóla
með rósóttu áklæði,
en borð og stólar
eru oft einkennilegt
sambland af gömlu
og nýju. Á mynd-
inni er bandarísk
stofa með ýms-
um húsbúnaði, sem
venjulegt er að sjá
á heimilum þar í
landi.
Rómantiska viðhorfið veldur því óhjá-
kvæmilega, að gömul hús verða eftir-
sóknarverð, því þau hafa til að bera þá
rómantísku töfra, sem ekki er unnt að
laða fram í splunkunýju steinhúsi. í
gömlu húsi verður risið jafnvel eftir-
sóknarverðast, senniiega vegna þess að
það getur orðið ólíkast því sem venju-
legt er. Við þessar fornfálegu rishæðir
má gera ýmislegt skemintilegt, líkt og
sést af myndinni, þai sem bitar og
sperrur hafa verið máluð í svörtum lit,
en veggfóðrað á milli.
Iö. október 1967
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 0