Lesbók Morgunblaðsins - 15.10.1967, Page 11
Innsig'lingarvarða.
SR.
GÍSU
BRYNJÓLFSSON
FRAIVI
Hraun í Grindavík.
Barnaskólinn í Grindavík.
Jón á Hrauni var hverjum manni veð-
urgleggri, sjósóknari mikill. Hann var
hættur formennsku þegar þessar visur
voru kveðnar, enda þá kominn undir
áttrætt. Um hann er þessi formanns-
vísa frá fyrri tímum:
Jón á Hrauni, hreppstjórinn,
heppni ónaum hann sty'ður
fákinn strauma fullorðinn
flínkur tauminn viður.
Jón dannebrogsmaður dó 90 ára gam-
all 19. júní 1878. Guðbjörg ekkja hans
náði líka níræðis aldri. Hún andaðist
20. september 1905.
Talið var, að kært hefði verið með
ungu húsfreyjunni á Hrauni og Höskuldi
borgara. Gengu um það sagnir, sbr.
F. J.: Þjóðhættir og ævisögur.
Um formennina, sem getið er í vís-
um þessum, skal þetta tekið fram:
2. visa: Höskuldur Jónsson var lausa-
maður á Hrauni. Hann var fæddur a'ð
Hamri í Gaulverjabæjarsókn 18. ágúst
1824. Foreldrar hans voru Jón Gislason
og Arndís Höskuldsdóttir. Þrítugur að
aldri kom hann austan frá Hæli í Gnúp-
verjahreppi í vinnumennsku að Hrauni
til Jóns hreppstjóra. Höskuldur fékk síð-
ar borgarabréf og stundaði verzlun og
gerðist efnamaður. Dr. Bjarni Sæm-
undsson segir í endurminningum sínum,
að hann hafi verið mætur maður og
víðlesinn. — Á efri árum var hann mjög
gigtveikur. Sæmundur Tómasson frá
Járngerðarstöðum minnist þess, er hann
var heima í bernsku, að Hraunsfólkið
fór um hlaðið á lei'ð til messu að Stað,
allt gangandi nema Höskuldur, sem reið
í djúpum kvensöðli. Höskuldur andað-
5. Ef ei spýtist unnin blá
Oddur nýtur gnægð á sjá
me'ður nýta þundum þá
Þótkötlu- ýtir stöðum frá.
griimdan/íkurslóe)
6. Lækki són í löðrunum
lýsufrónavagninum
út á sjónum iðgrænum
ekur Jón frá Miðbænum.
7. Magnús kundur knálegu
kjöls á hund með liðinu
Árni stundar stillingu
frá -stöðum skundar Þórkötlu.
8. Frá Hópi skríður hrannar ljón
hefur bið um þorska frón
heppni styður samt útsjón
son Hafliða mætan Jón.
9. Situr ár á sæmiðum
síð oft gár að vörunum
Einar hár að höppunum
hreppstjóri knár frá Garðhúsum.
10. Súð til vei'ðar Sæmundar
sem er greiður liðsemdar
stökkuls breiðu storðirnar
frá -stöðum skeiðar Járngerðar.
11. Sval ef skerðir, Sveinsson þá
súða- ferðast jórnum á
Jón á sverðshvals bólin blá
byggð Járngerðarstaðar frá.
12. Beztur hundur hlés um sjá
Húsa-skundar tóftum frá
mesta fundið mannval á
Matthías kundi Þórði hjá.
13. Færir slyngur fley á skrfð
um foldarhring með öruggt lið
jafnan glingrar gæfan við
Guðmund Ingimundar nið.
14. Jón er mögur Magnúsar
með órögum huga snar
fram á högum flyðrunnar
fimur mjög til skipstjórnar.
15. Greiptur mundum gæfunnar
gelti sunda leið vísar
út um grundir ýsunnar
Árni kundur Guðmundar.
16. Ártal set á óðarskrá
átján letra hundruð má
tvisvar vetur 33
þess ég get sem stendur á.
Hraun var eitt fjölmennasta heimilið
í Grindavík á þessum árum. Voru þar
17 manns heimilisfastir. Þar bjó Jón
hreppstjóri og dannebrogsmaður Jóns-
son, 78 ára, frá Járngerðarstöðum. Hann
var tvígiftur. Fyrri kona hans var Sig-
ríður Jónsdóttir frá Ásólfsstö’ðum í
Eystrihrepp. Var hún 15 árum eldri
heldur en bóndi hennar. Þau voru barn-
laus. Sigriður dó á jóladaginn 1839 „af
innvortis sjúkdómi“. Næstu tvö árin var
Kristín systir Jóns fyrir búi hans, en
1841 fluttist til hans 25 ára gömul
stúlka austan undan Eyjafjöllum, Guð-
björg Gísladóttir, fædd á Lambafelli 10.
marz 1815. Fyrsta ár sitt á Hrauni var
Guðbjörg talin þar vinnukona, því næst
bústýra, en haustið 1842 þ. 7. október,
Járngerðarstaðarliverfi.
gaf sr. Geir Backmann þau Jón hrepp-
stjóra saman í Staðarkirkju. Þá var
brúðguminn 54 ára, en brúðurin 27 ára.
Þau Hraunshjón eignuðust þrjú börn:
Jón, dó vikugamall, Sigríður, fædd 29.
janúar 1851. Hún giftist Hafliða Magnús-
syni. Bjuggu þau á Hrauni og eignuð-
ast mörg börn. Guðbjörg, fædd 30. jan.
1859, giftist Gísla Hermannssyni frá
Buðlungu. Þau bjuggu einnig á Hrauni.
Jón á Hrauni var hinn mei'kasti mað-
ur. Bær hans var hinn allra reisuleg-
asti í sókninni, segir sr. Geir í sóknar-
lýsingu sinni. Hann lét byggja þrjii
mikil timburhús, slétta túnið og byggja
um það grjótgarð mikinn, grafa afar-
djúpan brunn, sem úr fékkst all-gott
vatn, en vatnsskortur var einn aðal-
ókostur jarðarinnar. Sá var annar, að
þaðan var ekki útræði á vetrum og
höfðu Hraunsmenn uppsátur á Þorkötlu-
staðanesi. „En nú er velnefndur hrepp-
stjóri að láta búa til vör fyrir sunnan
túnið, vinnur þar að með mikilli at-
orku og víst þó töluverðum kostnaði
að hverju sem verður“. (Sóknarlýsing).
ist á Hrauni, tæplega sjötugur 3. maí
1894.
3. vísa: Jón Einarsson, vinnumaður á
Hrauni 32 ára. Hann fluttist tveim ár-
um síðar að Stóra-Hofi í Gnúpverja-
hreppi, gerðist þar vinnumaður hjá Vig-
fúsi Pálssyni hreppstjóra.
4. vísa: Buðlunga var hjáleiga fr:á Þor-
kötlustöðum. Hermann, bóndi þar og
meðhjálpari, var fæddur í Móhúsum á
Stokkseyri. Hann er í manntali sagður
33 ára þegar vísur þessar voru ortar.
Kona hans var Guðrún Sveinsdóttir.
Þau fluttust að Hrauni 1890 og voru
þar í húsmennsku enda var Gísli son-
ur þeirra þá kvæntur Gúðbjörgu Jóns-
dóttur svo sem fyrr segir. Hermann
andaðist 9. júní 1911 áttræður að aldri.
5. vísa: Oddur Jónsson á Þorkötlustöð-
um I, 42 ára. Hann var kvæntur Ás-
dísi Magnúsdóttur og áttu þau nokkur
börn. Ásdís andaðist 29. júní 1869. Eftir
það bjó Oddur með ráðskonu nokkur
ár, en mun síðan hafa flutzt úr Grinda-
vík.
Frambald á bls. 13
15. október ÍMT
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS H