Lesbók Morgunblaðsins - 15.10.1967, Síða 14
A
erlendum
bókamarkaði
BÓKMENNTIR:
The Chinese Room. Vivian Connell.
Corgi Books 1966. 5/—.
Þessi bók kom fyrst út 1943 og var
tekið misjafnlega. Bókin hneykslaði
marga og þótti ekki sem hollust lesn-
ing, því varð eftirspurnin mikil og nú
er tali'ð að selzt hafi á fjórðu milljón
eintaka af bókinni. Þetta er ein þeirra
bóka, sem vekur forvitni og hentar
ýmsum sem afþreyingarlesning.
Caravans. James A. Michener. Corgi
Books 1966. 6/—.
Þetta er spennandi reyfari um banda-
ríska stúlku, sem hverfur í Afganistan.
Hafin er leit að stúlkunni og verður hún
mjög söguleg. Bók þessi er lipurlega
skrifuð, persónur fremur týpur en ein-
staklingar og atburðarásin reyfaraleg,
höfundi tekst bezt upp í náttúrulýsing-
um. Þetta er löng bók, á fjórða hundr-
að blaðsíður, þéttprentuð.
Shakespeare Survey. An Annual Sur-
vey of Shakespearian study & Produc-
tion 19. Edited by Kenneth Muir. Cam-
bridge University Press 1966. 45/—.
Þetta er nítjánda bindið í ritsafni um
Shakespeare og verk hans og það þriðja,
sem er helgað aðeins einu leikriti hans.
1 þessu riti eru um fimmtán greinar um
Macbeth. Fyrsta greinin er um rann-
sóknir á þessu leikriti á tuttugustu öld
og árangur þeirra rituð af G. K. Hun-
ter. Kenneth Muir skrifar um symból-
ismann í Macbeth og Inga-Stina Ewbank
ber saman „Medea“ eftir Seneca og Mac-
beth. Auk greina er einnig skrá um sýn-
ingar Shakespeares á Bretlandseyjum
árið 1965. Ritinu fylgja myndir og efnis-
yfirlit. Þetta safn er öllum nauðsynlegt
sem áhuga hafa á verkum Shakespeares
og leikstarfsemi.
Memoirs of Hadrian. Marguerite Your-
cenar. Four Square 1966. 5/—.
Bókin er þýdd á ensku af Grace Frick.
Hún kom fyrst út í Frakklandi 1951 og
hefur oft veri'ð endurprentuð. Ýmsir
telja að þessi bók sé með beztu sögu-
legum skáldsögum, sem út hafa komið
síðustu tvo áratugina. Bókin er skemmti-
lega skrifuð, umhverfið forvitnilegt og
persónur skýrar. Athuganir höfundar um
tilorðningu bókarinnar, sem prentaðar
eru í bókarlok, auka gildi bókarinnar.
Hochverrat ist eine Frage des Datums.
Definitionen — Aphorismen — Maxi-
men. Herausgegeben von Lothar
Schmidt.. Deutscher Taschenbuch Ver-
lag 1966. DM 2.80.
Söfn spakmæla, þversagna, snjallra
skilgreininga og snjallyrða eru alltaf
skemmtileg lesning. Útgefandi raðar
snjallyrðunum upp eftir uppsláttarorð-
um, sem skrá er yfir að bókarlokum, auk
þess fylgir skrá höfunda. Útgefandi seg-
ist hafa eytt miklum tíma í samantekt
þessarar bókar og er hún úrval úr safni
höfundar.
SAGA:
Life in France under Louis XIV. John
Laurence Carr. B. T. Batsford 1966. 27/6.
Bókin er gefin út í bókaflokki útgáf-
unnar „Europea Life Series“ og sér Pe-
ter Quennell um flokkinn. Lúðvík XIV
kom til ríkis 1643 og lézt 1715. Þau 72
ár, sem hann ríkti voru glæstustu ár
Frakklands, allt snerist umhvenfis Sól-
konunginn og í þessari bók lýsir höfund-
ur öllum lögum fransks þjóðfélags, si'ð-
um, atvinnuvegum og háttum manna
og dregur upp ágæta mynd af lífinu í
Versölum meðan konungur var og hét.
Bókin er afbragðsvel myndskreytt og
frásögnin lifandi og styðst við öruggar
heimildir. Áhrif Frakka hafa aldrei ver-
ið slík sem á þessu tímabili og gætti
þeirra um alla Evrópu, í listum, bók-
menntum og tízku. Þetta er ágæt bók,
þótt stutt sé, registur fylgir.
Renaissance Italy 1464—1534. Peter
Laven. B. T. Batsford 1966. 45/—.
Bókin er ætluð leikmönnum og einnig
þeim sem sagnfræði stunda. Batsford-
útgáfan hefur gefið út nokkrar bækur
um sagnfræði, og eiga þær allar sam-
merkt í því að vera þokkalega skrifað-
ar og því læsilegar og einnig er þess
gætt að birta í þeim skrá yfir nýjustu
bækur um viðkomandi efni. Höfundur
skiptir ritinu í ellefu höfuðkafla og
fjallar hver kafli um afmarkað efni,
svo sem verzlun, fjármál, vísindi, trúar-
brögð og listir. Bókin er einkar hand-
hæg og þa’ð sem stórlega eykur gildi
hennar er sómasamleg bókaskrá. Bók-
inni fylgja nokkrar myndir og registur.
The Roots of Evil. A Social History of
Crime and Punishment. Christopher
Hibbert. Penguin Books 1966. 9/6.
Hibbert hefur skrifað margar vinsælar
bækur um sagnfræði og skyld efni. I
þessari bók segir hann sögu glæpa og
refsinga. Þetta er löng bók, um 560 síður
og í henni rekur höfundur glæpasöguna
allt frá miðöldum og jafnframt hegn-
ingarsöguna. Meginhluti bókarinnar
fjallar þó um seinni aldir, enda skortir
mjög heimildir þegar kemur lengra aft-
ur í aldir. Höfundur lýsir viðbrögðum
hvers tíma við glæpastarfsemi og aðferð-
um þeim sem notaðar voru til þess að
fæla fólk frá glæpastarfsemi. Bókinni
fylgja athugagreinar, bókaskrá og reg-
istur. Bókin er í senn fróðleg og hroll-
vekjandi.
Autumn of Terror. Tom Cullen. Col-
lins—Fontana Books 1966. 5/—.
Undirtitillinn er „Jack the Ripper —
His Crimes and Times“. Þessi bók er
hrollvekjandi frásögn ógeðfeldustu
morða, sem framin voru í London seint
á síðastliðinni öld. Bodley Head gaf
þessa bók út í fyrra og varð metsölu-
bók. Bókin er vel skrifu'ð og spennandi.
Framkv.stj.: Sigíús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason £rá Vigur.
Matthias Johannessen.
Byjólfur Konráð Jónsson.
Ritstj. fltr.: Gísli Sigurðsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Útgefandi: H.f. Árvakur, Reykjavík
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
15 október 1967